Hugmyndin er að setja inn mynd á hverjum degi fram að jólum. Mestmegnis verða þetta ýmist samklipp eða teikningar, þótt ritstjórnarstefnan sé enn tiltölulega óákveðin.
Ég hef áður verið með tilburði í þessa áttina áður, en aldrei haft agann í að standa vaktina. Nú hef ég þó aðeins tekið til í eigin ranni og ég vona að þetta gangi upp í ár.
Markmiðið núna er ekkert síður að smíða einhverja umgjörð utan um svona dagatal, þannig að það megi verða þægilegra og skýrara í framkvæmd seinna meir, ef þetta er eitthvað sem ég ákveð að verði þess virði að halda í.
Í einhverjum tilvikum hef ég verið í þó nokkurri hugmyndavinnu í kringum einstaka daga, en hef kannski ekki haft svigrúm til að útfæra hugmyndirnar eins og ég hefði viljað. Í þeim tilvikum hef ég einsett mér að reyna að ná fram ásættanlegri loka-niðurstöðu (jafnvel aftur í tímann), og mun ekki hika við að uppfæra og bæta við daga aftur í tímann hérna á Jóladagatals síðunni. Slíkt mætti þá líka kannski verða skemmtileg heimild um þróun og útfærslu hugmynda.
Við skulum reyna að hafa þetta á léttum og skemmtilegum nótum svo sem flestir geti notið...
Mynd dagsins er í tengslum við smá goodie sem ég fann á netinu.
Wiley var að gefa út jólalag. Það fæst fríkeypis á guardian-vefnum.
Nú gef ég almennt fremur lítið fyrir jólalög, en mér fannst ég verða að deila þessu.
Nú eru margir farnir að tengja Icesave-málið við jólin.
Í tilefni dagsins gerði ég smá myndræna skrýtlu.
Þetta er 'Icesave-málið' fyrir dómstólum.
Heyrðu mig nú! Kaffibaunahreindýr! Má þetta einusinni?
Það varð að koma ein kaffimynd.
Ég er sérstaklega ánægður með rauða kaffiberja-nefið.
Þessi átti að koma fyrr í dag, en ég var ekki í netsambandi á eigin tölvu lengst af framan af. Þess vegna er ég líka kominn með nýja strategíu hérna. Þetta ætlar að reynast heilmikill skóli, þetta dagatal.
Allavega, þá er þetta byggt á ísjaka, sem er sóttur í þetta stórfenglega myndaalbúm á Lemúrnum. Endilega kíkið á þetta folks.
Lemúrinn er virkilega skemmtilegur og 'inspiring' vefmiðill. Húrra fyrir honum!
Helgin var frekar löng og eventful þannig að ég gaf mér ekki tíma til að fullklára ýmsar pælingar.
Hérna er þessvegna ótrúlega cheap mynd af mér sem jólasveinn. Konsept sem mætti alveg vinna meira með.
Kannski engin sérstök pæling en mig langaði að gera eitthvað með 'The Masters of the Universe'
On second thought þá hefði verið sniðugara að útfæra þetta einhvernvegin á hreindýr eða eitthvað.
Sonny Chiba, m.a. vegna þess að í dag var haldið upp á afmæli japanskeisara á Íslandi (hann á reyndar ekki afmæli fyrr en 23. desember).
Þetta er gamall kall sem ég endurvann. Hann er afsprengi hvals upprunalega. En hérna breytti ég honum í jólakúlu.
Annars set ég hérna svarthvítu skissuna með. Ég er ekki frá því að hún sé jafnvel betri...
Ég var að prófa nýja rauða blekið mitt. Hann er með rauða jólaslaufu.
Þetta átti upphaflega að vera mynd af Megasi, en hann varð eitthvað aðeins of hress á leiðinni. Nokkuð ánægður með karakterinn samt, þótt hann nái alls ekki Megasi.
Ok. Þessi er cheap. Mér fannst samt eitthvað pínku fyndið við þessa mynd. Og svo langar mig að nota þetta andlit í eitthvað.
Þannig að þetta var alveg eins bara smá personal reminder í leiðinni...
Jólin halda innreið sína. Það er eiginlega klikkað hvað þetta er fljótt að líða.
4. desember var laugardagur.
Það var erfitt.
Takk fyrir mig.
Hér hefði farið vel á því að gera eitthvað um vitringana þrjá. Við eigum það bara inni. Í staðin fáum við flóðhreindýr sem dagdreymir um að þjóna á sleðanum...
Innblásið af Lemúrnum.
"Second comes right after first!"
Myndin fyrir 1. desember var reyndar skissuð upp í töluverðum flýti í vinnunni. Mig langaði að útfæra þetta betur, og skissan var aðallega til að festa hugmyndina í sessi. Kannski geri ég eitthvað meira með þetta seinna ef ég nenni (t.d. á næsta ári).
1. desember er merkilegur dagur. Og mér finnst hálfgerð skylda að tengja við Fullveldisdaginn, jafnvel þótt að þetta sé jóladagatal.
1. er einn. Hann er pínku einmanalegur. Hann stendur einn og horfir á íslenska fánann dreginn við hún meðan fyrsti snjórinn fellur og legst yfir allt eins og teppi.
Það er ábyrgðarhlutverk að vera fyrstur...
Hérna er ljósmynd eins og ég hafði séð þetta fyrir mér. Spurning um að 'shopp-a' inn íslenska fánann á Alþingi til að fulkomna stemninguna.