Nýlega tók ég til í vistarverum mínum og uppgötvaði að ýmislegt var ekki þar sem að það átti að vera. Hlutir sem að hafa verið miklir gleðivaldar í lífi mínu í gegnum tíðina. Eitthvað af þessu var nú lánað út áður en að ég fluttist búferlum til Baunalandsins góða, til einstaklinga sem að nú eru gleymdir. Aftur á móti datt mér í hug að nota tækifærið og lýsa eftir þessum munum hér og reyna að hvetja fólk til að rétt líta í gegnum föggur sínar og athuga hvort að þessir hlutir dúkka upp þar einhverstaðar.
Allar ábendingar um örlög þessara hluta eru vel þegnar og ábendingar um aðra hluti sem ég kynni að eiga, og hafa dagað uppi hjá fólki, gætu jafnvel verið enn betur þegnar. Einnig er vert að minnast þess að fólki er frjálst að gera eignarhaldskröfur í innbú mitt, ef það telur, og getur fært rök fyrir, að það eigi rétt á sér.
Í fljótu bragði er listinn eftirfarandi:
Já, þannig er nú það. Og í ljósi þessa vil ég hér nota tækifærið og minnast góðra félaga sem hafa fallið frá á undangengnum árum. Þessir félagar munu lifa í minningunni, sem mikilfengnir gripir þó að um þá sé eflaust farið illum höndum í skúmaskotum mannlegs samfélags á þessari stundu.
Þessir félagar eru:
![]() Já, hér gefur að líta samansafn af bókum um Gaulverjann frækna Ástrík. Bækurnar sem að um ræðir voru fyrstu útgáfur á ensku, sumar hverjar, og því illbætanlegar. |
![]() Hér hefði átt að vera mynd af fallegum ólífugrænum og bláum anorak, sem að kenndur var við Jamie Lynn, snjóbrettahetju, og var framleiddur af Sessions, snjóbrettafyrirtæki. Í staðinn er sessions logo-ið |
Megi slæmt líf bíða þeirra sem tóku þessa kæru vini frá mér, ófrjálsri hendi og megi þeirra niðjar líða vítiskvalir á meðan á þeirra jarðlífi stendur um komandi kynslóðir.
(Þó skal getið að þeim þjófóttu einstaklingum sem að kynnu að hafa Ástrík og Jamie Lynn jakkann undir höndum, mun þegar fyrirgefið og verðlaunað, skyldu þeir sýna þann stórhug að koma fram og láta mér þá í té.)
Some people might think that by this caption, I mean the betrayal of the Jedi order by Anakin Skywalker, in the latest installment of George Lucas' Star Wars. However, this is not what I mean. What I do mean, is how I, along with millions of other Star Wars fans, was stabbed in the back by Lucas' recklessly wielded lightsaber adventure.
Where to begin? The gigantic plotholes? The absolute disability to create the slightest suspension of disbelief? The painfully poor dialouge? The incoherent characters? Since many people may not have seen the film, I won't dwell on the ghastly storyline, in case there still are some who want to see it. Although they shouldn't go see it. In fact I can't really see the point in dwelling much on the film in it's entirety, because there really isn't anything to talk about. It reminded me of watching someone playing videogames. Let it suffice to say, that the Revenge of the Sith, managed to slaughter the old Star Wars magic.
Personally I am most inclined to try and contact Michel Gondry and ask him if I could use his "Eternal Sunshine of the Spotless Mind" machine. Preferably, to erase the memory of Episodes I-III, along with their precence in human history.

Jæja, þar kom að því, apparently þá mun þessi yndislega síða verða temporarily niðri frá og með seinni hlutanum í dag. Ekki er vitað nákvæmlega hve lengi en Sveinbjörn, of Mentat fame, mun verða í því að koma þessu aftur í lag. Vonandi mun þetta ástand ekki vara mikið lengur en nokkra daga.
Þetta er þó ekki svo slæmt í sjálfu sér, þar sem að það lítur ekki út fyrir að ég hefði póstað neinu athyglisverðu hvort eð er fyrr en í fyrsta lagi á laugardaginn, en þá verður síðan vonandi örugglega kominn aftur upp. Nú vantar mig bara c.a. átta blaðsíður af orginal efni um copyright violations, og þá getur maður lagt þennan bölvaða Háskóla á hilluna í bili. Phew!
Jæja, hér til vinstri sjáið þið alveg afskaplega kátan og glaðan mann. (Með alveg ferlega skakkar tennur með mikið af fyllingum í.) Þessi maður er alveg svakalega glaður afþví að hann var að klára próf í Háskóla Íslands.
Já það er rétt. Nú er ég loksins laus undan þessu prófafargani og er nokkurn vegin frjáls ferða minna. Á bara eftir að skila inn tveimur ritgerðum sem eru langt komnar hjá mér. Fram þjáðir nemar í þúsund löndum, sem þekkið prófa glímutök! Nú getur maður farið að einbeita sér að áhugamálunum sínum sem að hafa mikið setið á hakanum undanfarið.
En fyrst mun verða hefðbundið próflokadjamm í kvöld og jafnvel mun ég mæta á frumsýningu kvikmyndar sem ég lék í fyrir skemstu. Arnaldur stuntcock er nefnlinlegar orðinn heimsfrægur stand-in áhættuleikari.
En já, þeir sem að hafa nennt að hafa fyrir því að skoða þessa blessuðu síðu geta nú búið sig undir mikla og skemmtilega hluti, teiknimyndir, ljósmyndir og almennt sprell.
Þá er bara að drífa sig í partý og vonandi endarmaður ekki eins og ólánssami herramaðurinn hér til hægri
Já, það er erfitt líf þegar að náttúruöflin sjálf eru farin að snúast gegn manni.
Hehehehe... Þetta lið er svo helað, og svo hrætt og svo glatað. The Hawks in Washington? More like the Chickens in Washington.
Jæja, ég skellti inn mynd af mér í einhvern star estimator á netinu, eftir að ég las um þetta unit á síðunni hans Baldurs. Niðurstöðurnar voru vægast sagt merkilegar. Sjá hér. Mér finnst sérstaklega merkilegt að mér sé líkt við Tom Lister Jr.
Tom Lister Jr., er eins og glöggir lesendur átta sig kannski á:
Annars virðist vera einhver tendens í að bendla mig við sköllótt fólk. Bartez, er sköllóttur og let's face it Henry er heldur ekkert svakalega hærður. But hey, computers are always right. Þess vegna fer ég fram á að fólk kalli mig Tom Lister Jr. hér eftir. Thierry Henry, verður líka tekið sem gott og gilt.
Jæja, nú fer ég að verða svakalega steiktur í hausnum eftir mikinn próflestur. Ekki að það þurfi endilega að vera eitthvað mjög slæmt. Ég fer nú samt að hlakka til þess að þetta verði búið. En annars er því miður eitthvað tómt á manni þessa dagana. Verð samt að taka fram að ég fór á Vitabar, þann ágæta stað í gær og gæddi mér á yndislega góðum tveggja hæða ostborgara. Afhverju, spyr ég, fer maður ekki þarna oftar? Vitabar fær vitanlega "two thumbs up" hjá Arnaldi. Annars skyldi maður passa sig á þessu greaseball fæði. Ekki vill maður enda eins og þessi vinur okkar hér við hliðiná.
Í öðrum fréttum eru þessar stórmerkilegu myndir af fylkisstjóra Kaliforníu sem að ég rakst á áðan. Maðurinn er bara hórkarl og saurlífisseggur. Já hvað ætli hún María hans segi um þetta?
Nei! nú er komið nóg. Ég er farinn að hljóma eins og heitapottskall hérna. Ég ætla að hætta þessu áður en að ég fer að tala um Bobby Fischer og Framsókn.
(Árni Bragi)