Nýlega tók ég til í vistarverum mínum og uppgötvaði að ýmislegt var ekki þar sem að það átti að vera. Hlutir sem að hafa verið miklir gleðivaldar í lífi mínu í gegnum tíðina. Eitthvað af þessu var nú lánað út áður en að ég fluttist búferlum til Baunalandsins góða, til einstaklinga sem að nú eru gleymdir. Aftur á móti datt mér í hug að nota tækifærið og lýsa eftir þessum munum hér og reyna að hvetja fólk til að rétt líta í gegnum föggur sínar og athuga hvort að þessir hlutir dúkka upp þar einhverstaðar.
Allar ábendingar um örlög þessara hluta eru vel þegnar og ábendingar um aðra hluti sem ég kynni að eiga, og hafa dagað uppi hjá fólki, gætu jafnvel verið enn betur þegnar. Einnig er vert að minnast þess að fólki er frjálst að gera eignarhaldskröfur í innbú mitt, ef það telur, og getur fært rök fyrir, að það eigi rétt á sér.
Í fljótu bragði er listinn eftirfarandi:
Já, þannig er nú það. Og í ljósi þessa vil ég hér nota tækifærið og minnast góðra félaga sem hafa fallið frá á undangengnum árum. Þessir félagar munu lifa í minningunni, sem mikilfengnir gripir þó að um þá sé eflaust farið illum höndum í skúmaskotum mannlegs samfélags á þessari stundu.
Þessir félagar eru:
![]() Já, hér gefur að líta samansafn af bókum um Gaulverjann frækna Ástrík. Bækurnar sem að um ræðir voru fyrstu útgáfur á ensku, sumar hverjar, og því illbætanlegar. |
![]() Hér hefði átt að vera mynd af fallegum ólífugrænum og bláum anorak, sem að kenndur var við Jamie Lynn, snjóbrettahetju, og var framleiddur af Sessions, snjóbrettafyrirtæki. Í staðinn er sessions logo-ið |
Megi slæmt líf bíða þeirra sem tóku þessa kæru vini frá mér, ófrjálsri hendi og megi þeirra niðjar líða vítiskvalir á meðan á þeirra jarðlífi stendur um komandi kynslóðir.
(Þó skal getið að þeim þjófóttu einstaklingum sem að kynnu að hafa Ástrík og Jamie Lynn jakkann undir höndum, mun þegar fyrirgefið og verðlaunað, skyldu þeir sýna þann stórhug að koma fram og láta mér þá í té.)
Ég held að ég sé með eina Asterix bókina. Asterix og Sesar eitthvað svoleiðis, kem henni til þín við fyrsta tækifæri.
Ég er alveg örugglega með The Beach heima einhvers staðar. Fékk hana lánaða, kláraði að lesa hana og lét hana á borðið. Og þar hefur hún verið síðan.. að ég held.
Hmmm... Ótrúlegt, þetta virðist vera að bera árángur. Ég fékk hugmyndina um að auglýsa eftir draslinu mínu hérna eftir að ég las gagnrýni á Internetið sem að hélt því fram að það væri bara eitt stórt gagnlaust notice board. Huge noticeboard=yes. Gagnslaust=heldur betur ekki!
Ég er með Pusher, Reservoir Dogs og Fast Show í láni..kem þessu til þín þegar ég kem heim frá dk.
Remember the man in the dark overcoat wearing sunglasses who came to your house one murky September night and borrowed your soul?
That was me. I know you'll be needing it to strike that no-more-procrastination-in-exchange-for-my-soul bargain with the devil, so I'm willing to negotiate terms.
Call me at 1-800-ANONYMOUS.
Jeij, Rock on! Aldrei átti ég von á þessu.
By the way, hvenær kemuru heim Árni Bragi? Og reyndar Árni for that matter líka?
Jeij, Rock on! Aldrei átti ég von á þessu.
By the way, hvenær kemuru heim Árni Bragi? Og reyndar Árni for that matter líka?
Kemur í ljós á næstu dögum. Mig dreymdi reyndar að ég væri að breyta flugmiðanum og myndi koma heim 20. júlí sem er dagsetningin sem ég var að hugsa um.
The password to post a comment is:
(Árni Bragi)