Results for 2005-07

11.7.2005 | (Empty title)

Þá er síðan komin aftur upp. Eins og glöggvir lesendur kunna að hafa áttað sig á, þá var hún tímabundið niðri vegna ip-böggs, en það er allt leyst núna, þökk sé herra Þórðarsyni

Annars var ég nú með eitthvað skemmtilegt að segja, en það er alveg dottið úr mér. Það að bera allt þetta grjót gerir mann hálf ruglaðan í kollinum. Mikið skil ég hann Sísyphos vel, (sjá mynd). Ég er nú samt almennt betur klæddur í vinnunni, enda næ ég nú líka oftast að klára þau verkefni sem að mér eru falin. Fokkin' klæddu þig betur Sísyphos!!! Fokkin' auli!!!

Annars fór ég loksins að sjá Sin City í bíó í gær. Heppnaðist loks í þriðju tilraun. Það er krónískt uppselt á þessa mynd. Eins og það á að vera. Til að lesa um dálæti mitt á þessarri mynd sjá fyrri færslu. Reyndar langar mig til að leiðrétta þá færslu og nefna að Miramax verðskuldar engan vegin að vera ausið þar virðingu, þar sem að það er að sjálfsögðu Dimension Films sem að dreifa og Troublemaker Studios sem að framleiða myndina, en við þekkjum þá sögu öll þannig að ég fer ekki nánar út í hana. Slæmur strákur Arnaldur!!!


6 comments
(The Dude)



1.7.2005 | (Empty title)

Jæja, þá er officially kominn flöskudagur, og ég ætti að vera kominn undir feld. Annars ætlaði ég eiginlega bara að koma að einni færslu til heiðurs góðum félaga sem að er genginn sinn veg og farinn á feðranna vit. Það er hann Geirharður Áróruson Linnet sem að lenti í bílslysi fyrir skemstu. Hans verður minnst með gleði í hjarta og vissum söknuð fyrir allar rispurnar sem að hann veitti mér sem grallara-kettlingur.