Þá er síðan komin aftur upp. Eins og glöggvir lesendur kunna að hafa áttað sig á, þá var hún tímabundið niðri vegna ip-böggs, en það er allt leyst núna, þökk sé herra Þórðarsyni
Annars var ég nú með eitthvað skemmtilegt að segja, en það er alveg dottið úr mér. Það að bera allt þetta grjót gerir mann hálf ruglaðan í kollinum. Mikið skil ég hann Sísyphos vel, (sjá mynd). Ég er nú samt almennt betur klæddur í vinnunni, enda næ ég nú líka oftast að klára þau verkefni sem að mér eru falin. Fokkin' klæddu þig betur Sísyphos!!! Fokkin' auli!!!
Annars fór ég loksins að sjá Sin City í bíó í gær. Heppnaðist loks í þriðju tilraun. Það er krónískt uppselt á þessa mynd. Eins og það á að vera. Til að lesa um dálæti mitt á þessarri mynd sjá fyrri færslu. Reyndar langar mig til að leiðrétta þá færslu og nefna að Miramax verðskuldar engan vegin að vera ausið þar virðingu, þar sem að það er að sjálfsögðu Dimension Films sem að dreifa og Troublemaker Studios sem að framleiða myndina, en við þekkjum þá sögu öll þannig að ég fer ekki nánar út í hana. Slæmur strákur Arnaldur!!!
nei ég mundi nú bara eftir þessari sögu, hinsvegar var ég dágóða stund að finna hvað gaurinn hét.
Ég man ekki mikið eftir 3. bekk, en ég man samt eftir tímanum þegar Helgi Ingólfs sagði okkur sögurnar af Sísýfosi og Tantalosi.
Einmitt Aðalsteinn.
Ég mundi nú eftir Tantalosi, en ég bara gat ekki munað hvað Sisýfos hét.
Þegar þú bloggar ekki fara englar og kettlingar að gráta. *suitable-emoticon*
Yo, man, I'm, like, a total fan of yours, man. WTF d00d? You ain't bloggin no more. Shit, man, this is fucked up man, I'm totaly put off, man. I thought we were getting somewhere, huh?
The password to post a comment is:
(The Dude)