Var bent á lag um daginn með stúlku sem að þykist heita Amerie. Í þessu lagi lofsyngur hún hinn eina sanna Naldó, og ákallar nafn hans ítrekað. Ég hef nú skipað þetta lag hinn opinbera þjóðsöng Arnaldíu. Þökk sé Árna Braga fyrir ábendinguna og þess ber einnig að geta að Árni Bragi hefur nú verið skipaður ríkistónskáld
Gjörið svo vel: One Thing með hnátunni Amerie.
Þá er maður hættur að vinna og svona, lífið aftur farið að vera til. Nú er maður reyndar staddur í KBH, í fríi og hyggst fara til BER á morgun og svo fuck knows what after that. Jei!!! Já það er svo sannarlega gaman að vera til.
Ég og Sveinbjörn lentum um áttaleytið á laugardaginn og vorum umsvifalaust drifnir í party hjá Benjamin þar sem að bjór var teygaður af mikilli list og fatafellur felldu föt, líka af mikilli list.
Anyways, annars ætla ég núna að halda áfram á ferð minni um lífsins lystisemdir, læt ykkur vita þegar ég finn tilganginn
Mikil sorg. Virðist vera búinn að tapa myndavélinni minni. In memoriam Sony Cybershot U-20. Ef einhver finnur, vinsamlegast skila. Ekki selja fyrir heróín!
"Censeo Circum esse delendam!" - "Að lokum legg ég til að Sirkus verði lagt í eyði!"
Í kvöld slysaðist ég til að horfa á þátt í seríunni Everwood með kempunni honum Treat Williams í aðalhlutverki. Svosem ekki í fyrsta sinn.
Hvers vegna Ríkissjónvarpið kýs að varpa þessu veruleikafirrta efni yfir fólkið í landinu á prime-time, albeit á þriðjudögum, er mér hulin ráðgáta. Líf þessa fólks er mér svo óskiljanlegt og bandarískt að mig langar stundum til að fella tár. Og æla galli. Samt get ég yfirleitt ekki gert annað en að kíkja á skjáinn og fárast yfir þessu. Dálítið eins og að finna vonda lykt. Maður verður að komast að því hvaðan hún kemur. Viðbrögð mín við þessum þætti eru almennt þau sömu. Ég skil ekki fólkið í þessum þætti og mér finnst það ekki eiga rétt á að vera til. Fictional eða ekki. Ég vona allavega innilega að það sé enginn í heiminum sem að lifi eins og þetta fólk. Allir í þessum þætti láta eins og að þeir séu á svakalega miklum eiturlyfjum, með smá bland af því að vera stofnanamatur.
Ég get ekki séð neina ástæðu fyrir því að það sé haldið áfram að sýna þessa þætti og vona innilega að þeir verði teknir af dagskrá sem fyrst svo þeir hætti að confuse-a mig og infuriate-a. Ég er þess allavega full viss að líf mitt muni batna við það.
"Censeo Circum esse delendam!" - "Að lokum legg ég til að Sirkus verði lagt í eyði!"
Jamm. Þá er Vesalingsmannahelgin liðin með öllum sínum ælingum og viðbjóði. Ahhh, the pity of man! Ég fann til að mynda þennan unga mann hér til hliðar fyrir utan skemmtistaðinn Sirkús, og myndaði hann. Hann var nú fremur fámáll. Enda held ég að hann hafi verið módel. Og allir vita að módel eru fámál. Eða bara fávís. Reyndar reyndi hann með einhverju handapati að gefa mér merki um eitthvað það var bara bull. Aftur á móti komst ég sjálfur sæmilega vel frá helginni, fyrir utan að hafa verið brutally assault-aður með skotglasi á Prikinu af lítilli stelpu. Erfitt líf.
Annars er eitt sem að ég vil gera nöldurlega athugasemd við, og það er "sirkusvæðing" þessa þjóðfélags. Eins og að það sé ekki nóg að vera með eina ljóta sorabúllu sem að heitir Sirkús í þessarri annars þolanlegu borg. Nei, nú er farið að opna hvert fjölmiðlavígið á fætur öðru undir merkjum þessa viðbjóðs. Reyndar eru þetta blað og þessi sjónvarpsstöð voða mikið að reyna að líta út fyrir að vera viða slick og cool, "you know, for the YOUNG people", með svona touch af uppa-kókaín fíling. En það er samt enþá megn ælulykt af þessu, alveg eins og af Klapparstíg neðan Laugarvegs eftir klukkan 04:30 á laugardegi.
"Censeo Circum esse delendam!" - "Að lokum legg ég til að Sirkus verði lagt í eyði!"
"Unfortunately, Ol' Dirty couldn't be here wit' us today, but he sends his regards. Duh-huh-uh"
(Árni)