27.9.2005 | (Empty title)

Nýtti mér salernisaðstöðuna í Árnagarði í dag og rak augun í plastböggul á hillu yfir sósurörinu sem innihélt salernispappír. Það sem vakti kátínu mína var að kúkabréfin voru framleidd í smábænum Cuijk eða Kúk eins og ég vil íslenska nafnið á þessu indæla litla bæjarfélag í Hollandi. Hversu skemmtilegt cosmic irony er það að bærinn Kúkur skuli sjá HÍ fyrir salernispappír. Í kjölfarið fór ég að velta fyrir mér hvort að Háskólinn í Reykjavík fengi þá ekki indælis handunnin silkipappír frá smábænum Haegthirr í N.V. Indlandi? Pæling!

Annars datt mér líka í hug eftirfarandi drasl: "Ef að manneskja hefur mikið óþol gagnvart dauðu fólki, þjáist sú manneskja þá af lík-ama?"

Disclaimer

Ath. að smábærinn Haegthirr er ekki til í alvöru og fyrirfinnst eingöngu sem afkvæmi ímyndunnar minnar, á meðan að Cuijk er alvöru skítabæli.




0 comments


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment