Results for 2005-10

27.10.2005 | (Empty title)

Undanfarið hef ég notið þess mjög að hlusta á tónsmíðar snillingsins Megasar, sem að mér þykja hið mesta ljúfmeti. En það er kannski ekki í sjálfu sér þess vert að fjallað sé um það nánar. Ég vil síður neyða upp á fólk einhverju lofsemdarrausi um karlinn. Ætli fólk verði ekki að finna sér sjálft eitthvað sem að veitir því andlega fróun hér í skammdegiskúknum.

Það sem að mig langaði hinsvegar til að benda fólki á, er að Megas er ekki bara Magnús Þór Jónsson. Megas er fokking bad-ass róbot frá framtíðinni (sjá mynd) sem að ver jörðina fyrir geimverum. Hversu magnað er það? Að vera annars vegar orðheppinn bóhem, og hinsvegar Mega(s) tímaflakkandi crushernater-vélmenni! (Allavega á sunnudögum að mér best sýnist.)

ÞAÐ ER BARA KÚL! Jafnvel Vatican Posse kúl!

Að lokum til að undirstrika hvað Megas er illmatic unit er hér tilvitnun í plot summary-ið á þessum þáttum.

"The huge robot, technically called M.E.G.A.S. (Mecha Earth Guard Attack System), actually got there through a time-traveling accident.

"Ceterum censeo Circum esse delendum!" - "Að lokum legg ég til að Sirkus verði lagt í eyði!"


1 comments
(Steinn)



17.10.2005 | (Empty title)

Ég á það til að vakna eftir stórfenglegar draumfarir og halda að ég hafi fengið slíkar snilldar hugmyndir, til jafns á við þær sem að mótað hafa mannkynssöguna í stórum stíl. Gjarnan hef ég haft blaðsnepil og blýant á náttborði mínu til að vera í þeirri aðstöðu að geta hripað niður þessar hugmyndir þegar þær ljósta mig í svefnrofunum, áður en að þær hverfa frá mér og heimurinn í kjölfarið fari varhluta af.

Nýasta snilldin sem að kom upp úr mér, að því að ég fæ best séð, út úr illæsilegu krafsinu, var eftirfarandi:

"Lygamæligaurar sem að lesa hugsanir. Með electromagnetic feeds í "rats". Allir að svitna!"

Eins og sjá má er einhver stórfengleg hugsun á bakvið þetta allt saman, en einn er þó vankantur á, og hann er sá að ég skil ekkert hvað þetta á að þýða.

Reyndar skil ég oftast ekkert hvað ég hef verið að hugsa þegar ég rekst á svona krafs á náttborðinu mínu, en aftur á móti þykir mér oft gaman að lesa þessi "insane rantings".

Ef einhver er með hugmyndir endilega komið þeim á framfæri.


7 comments
(Sveinbjorn)



4.10.2005 | (Empty title)

Hehehe... Djövulli er verið að skíta yfir nýju kaballah-glæpamyndina hans Guy Ritchie. Ég verð samt að segja að ég held að ég hafi sjaldan heyrt jafn quotable gagnrýni, eins og þá sem birtist hjá Daily Mirror. "...so incredibly, absurdly, breathtakingly awful, I wanted to buy a revolver so I could shoot the projectionist before turning the gun on myself." Jamm. Read all about it.

Anyway, hvað á það að þýða að vera að búa til eitthvað kaballah drasl??? Þetta er nógu hallærislegt fyrirbæri fyrir, án þess að hann þurfi að láta Jason Statham vefja sig í bleikt band áður en hann rænir pókerspilara og endanlega drepa þetta.

I blame Madonna!

"Ceterum censeo Circum esse delendum!" - "Að lokum legg ég til að Sirkus verði lagt í eyði!"


5 comments
(Siggi Arent)



3.10.2005 | (Empty title)

4 8 15 16 23 42

Ég verð að viðurkenna að ég er orðinn mjög illa "hooked" á sjónvarpsþáttaröðina Lost, eins mikið og ég leitast við að horfa ekki á sjónvarp. Enda fæ ég svosem alla mína þætti af netinu. En nóg um það... Ég rakst á frekar athyglisverða síðu þar sem að þessi sjúklega frumlega nördakona er með ágæta tilgátu um hvaða merkingu þessar helvítis tölur hafa í þáttunum. Ekki vitlaus pæling. Og ég verð að segja að ég tek ofan af fyrir þessari manneskju fyrir að láta sér detta þetta í hug. En við sjáum til hvort að þetta er rétt hjá henni.

Annars rakst ég í leiðinni á nokkrar fyndnar síður. Sú fyrri er besta kennslubókardæmið um Asperger/Einhverfu sem að ég hef séð og er hér. Í alvörunni, tékkiði á þessu! Hver nennir svona rugli!?! Og hver hefur tímann í svona rugl!?!

Hin er heldur ekki af verri endanum. Aðallega fyrir skemmtilega óskýra framsetningu og móðursýkiskeim. Hún er hér. Mæli líka mikið með henni.

Að lokum langar mig til að benda á funky rússneskt comic sem að ég rakst á. Virkilega vel teiknað stuff, þrátt fyrir að díalógurinn sé skrýtinn á köflum og pólitísk óríentasjón verksins sé umdeilanleg. Þetta er nú svona mest fyrir Aðalstein og Níels gert, og kannski Sveinbjörn, sem á eftir að elska þetta stöff?

"Ceterum censeo Circum esse delendum!" - "Að lokum legg ég til að Sirkus verði lagt í eyði!"


8 comments
(Anonymous Coward Master)



1.10.2005 | (Empty title)

Hmmm... Eins þroskaheft gelgju-sport og mér finnst þetta klukk dæmi, þá verð ég eiginlega að fagna skrifum þess annars skemmtilega orðheppna manns, Stígs Helgasonar, um bókmenntir sem listform. Vei, loksins kom einhver fram og þorði að segja það. Bókmenntir eru bara ekkert merkilegri en kvikmenntir eða tónmenntir! Og René Goscinny er bara stórbrotinn listamaður og hans verður sárt saknað um langan tíma, allavega af mér.

Speaking og which, ég fjárfesti í nýrri Asterix bók um daginn. Hún inniheldur 12 smásögur um kappana sem ekki hafa áður verið birtar. Þannig að kallinn er bara ennþá að skrifa from beyond the grave!