Undanfarið hef ég notið þess mjög að hlusta á tónsmíðar snillingsins Megasar, sem að mér þykja hið mesta ljúfmeti. En það er kannski ekki í sjálfu sér þess vert að fjallað sé um það nánar. Ég vil síður neyða upp á fólk einhverju lofsemdarrausi um karlinn. Ætli fólk verði ekki að finna sér sjálft eitthvað sem að veitir því andlega fróun hér í skammdegiskúknum.
Það sem að mig langaði hinsvegar til að benda fólki á, er að Megas er ekki bara Magnús Þór Jónsson. Megas er fokking bad-ass róbot frá framtíðinni (sjá mynd) sem að ver jörðina fyrir geimverum. Hversu magnað er það? Að vera annars vegar orðheppinn bóhem, og hinsvegar Mega(s) tímaflakkandi crushernater-vélmenni! (Allavega á sunnudögum að mér best sýnist.)
ÞAÐ ER BARA KÚL! Jafnvel Vatican Posse kúl!
Að lokum til að undirstrika hvað Megas er illmatic unit er hér tilvitnun í plot summary-ið á þessum þáttum.
"The huge robot, technically called M.E.G.A.S. (Mecha Earth Guard Attack System), actually got there through a time-traveling accident.

"Ceterum censeo Circum esse delendum!" - "Að lokum legg ég til að Sirkus verði lagt í eyði!"
vóóv! geðveikt mega cool! ég mæli sérstaklega með því að fólk prófi leikina sem eru inni á megas síðunni
The password to post a comment is:
(Steinn)