Results for 2005-11

29.11.2005 | (Empty title)

Mér þykir Baldur Thorlacius vera misskilinn snillingur! Hvernig er hægt að láta sér detta svona vitleysu í hug? Ég verð að taka ofan fyrir þessu!!!


1 comments
(Baldur)



26.11.2005 | (Empty title)

Er einhver sem getur sagt mér út frá íslenskufræðilegu sjónarmiði, hvort það er eitthvað vitlaust, eða hreinlega bara smekksatriði hvort maður notar orðið -að þar sem það þarf ekki?

Dæmi um það sem að ég er að reyna að segja:

  • Þegar hann var að fara spurði hann hvort hann ætti að kaupa mjólk.
  • Þegar hann var að fara spurði hann hvort hann ætti að kaupa mjólk.


19 comments
(Anonymous Coward)



26.11.2005 | (Empty title)

Nei, nú þarf maður að fara að rukka fyrir aðgang að þessari síðu!

Já, það er rétt. Hvernig ætti ég nú annars að geta greitt fyrir lífverðina sem ég þarf á að halda núna, eftir að ég er orðinn menningar-íkón? Eða stjarna, sem vísar venjulegum almúganum leið í gegnum svartnætti hversdagsleikans?

Jú gott fólk, núna á miðvikudaginn var birt æðisleg grein um sjálfan mig í Dagblaðinu Vísi. Ó, já meðan ég man, þá er rétt að ég tæpi á aðal umfjöllunarefni blaðsins, þar sem að það er ljóst að það hefur sjálfsagt farið framhjá fólki þegar öll athygli þess beindist að mér. Maður að nafni Stefán Hjaltested ku víst vera raðnauðgari, og eru einstaklingar með píku vinsamlegast beiðnir um að sniðganga hann, var það eina sem að stóð í þessu blaði. En svo var auðvitað falleg lofsemdargrein um mig. Lítilli grein, undir fyrirsögninni "Úr bloggheimum", þar sem ágæti mitt fram yfir nafna minn var tíundað.

Hmmm... en svona öllu gamni sleppt, þá er þetta held ég í fyrsta skipti sem að nafn mitt og mynd er birt á opinberum prentmiðli. Ég veit nú ekki hvað mér á nú svosem að finnast um það. En eitt er víst að það hefði nú kannski verið hægt að finna skemmtilegri pistil til að vísa í. Ekki það að þetta er nú sjálfsagt hót skárra en þetta drasl sem að er yfirleitt verið að birta þarna: ...ég fór á djammið í gær og það var strákur sem að pissaði á bíl fyrir utan sirkus :o og ég var bara omg! ;) og sagði nei!!! :o og þá sagði gudda sjitt!!!:)...

Jæja, ég veit ekki ég er bara farinn að bulla hérna. Ég nenni þessu rausi ekkert frekar núna en að ég held að þið nennið að lesa þetta, þannig að ég ætla að hætta hérna.

Mig langar reyndar svona í lokin að benda á þessa ótrúlega undarlegu, og jafnvel óviðeigandi, en samt skringilega fræðandi færslu á wikipedia, sem mér var bent á um daginn. Farið í...!!!


6 comments
(Halldor Eldjarn)



22.11.2005 | (Empty title)

Ég vil bara biðja fólk endilega um að skoða þetta fyrirtaks sjónvarpsefni, og horfa til enda, sem fyrst helst, þetta dettur út eftir 2 daga. Kári í beinni. Fengið frá Dodda.


4 comments
(Arnaldur)



22.11.2005 | (Empty title)

Og eftir hátíðlegan úrdrátt samkvæmt ÁrnKáískum stöðlum, er sigurvegari í gamanmálakeppninni miklu fundinn. Sá er engin annar en Doddi!!!!!

Doddi getur nú valið milli þriggja verðlauna, eða mysteríu-kassans fræga!
(Valið skal fara fram hér, á commenta-síðunni við þessa færslu, og er sjálfsagt að fólk komi með skoðanir á því hvað Doddi skuli velja, þar til hann endanlega velur.)

Fyrst ber að nefna þessi glæsilegu, kynþokkafullu, en þó karlmannlegu japönsku vélmenni. Athugið að vélmennin eru fullkomlega ósjálfvirk, og ekki er hægt að þjálfa upp með þeim gervigreind eða vilja til að myrða allt mannfólk. Þó ber að nefna þeim til varnar að þau eru enn í upprunalegum umbúðum, sem að hafa verið heimili þeirra frá því að þau voru steypt í leikfangaverksmiðjunni einhverntíman á tuttugustu öld, að ég held.

Í öðru lagi ber að nefna þennan ákaflega eigulega bíómiða, sem að gildir fyrir einn, á eina kynþokkafyllstu kvikmynd áratugarins, The Legend of Zorro. Með þessum verðlaunum getur hagsýnn maður sparað sér allt að átta hundruð krónur, þegar hann reynir að komast í náðir ungra stúlkna með því að bjóða þeim á kvikmyndasýningu.

Í þriðja lagi ber að nefna undarlegt og jafnvel dulúðlegt lítið bangsakvikindi, bleikt að lit, sem að einnig er japanskt að uppruna og hefur notið mikillar hylli þar í landi (kvenhylli jafnvel)! Gloomy, heitir bangsinn góði, en kynþokkafyllsku hans ber að varast, þar sem að Gloomy á það til að myrða lítil börn. Með Gloomy fylgir Gloomy plastvasa-mappa fyrir laus blöð. Fullkomið fyrir manninn sem að vill vera skipulegur í háttum sínum. (Mappa ekki með á mynd.)

Að lokum stendur svo til boða að velja undra-kassan, eða mysteríu-kassan eins og margir vilja kalla hann. Enginn veit hvað í honum er, en í honum gætu verið verðlaun sem að hafa kynþokkafyllsku stuðul, hærri en öll hin verðlaunin til samans. Eða bara eitthvað bölvað ókynþokkafullt drasl. Hvað er í mysteríu-kassanum!?!

Við óskum Dodda til hamingju með sigurinn, þrátt fyrir að hann hafi verið einn af tveimur þáttakendum. Einnig vil ég nota tækifærið og tikynna að ný keppni kemur EKKI til með að vera haldin nokkurn tíma, í fyrirsjáanlegri framtíð, sökum einstaklega lélegrar þáttöku.

Að lokum mun birt vinningsgamanmálið, sem er endurómuð skrýtla á engilsaxnesku og hefur sem umfjöllunarefni sitt misskilning sökum tungumálaörðugleika og málfötlunar. Klassík!

Sean Connery was sitting by the pool one morning when he got a call from his agent about a new role:
"Hi Sean" says his agent, "Listen I want you to meet up with this director tomorrow morning to discuss the part, about Ten-ish."
"Tenish" replies Sean, I don't even own a racket!"


2 comments
(Arnaldur)



21.11.2005 | (Empty title)

Mig langar til að segja frá því að ég glápti á einn af nýrri South Park þáttunum, í hverjum Stan kemst í kynni við helað Scientology pakk. Fokking brilliant stuff. Tékkið á Xenu.net til að sjá þáttinn. Eða finnið hann bara einhverstaðar á netinu. Ég vona innilega að þessi Scientology úrhrök fái aldrei að koma til Íslands. Mér finnst alveg jafn mikilvægt ef ekki mikilvægara að halda þessu liði úti og Hell's Angels. Annars er það alveg vel þess virði að tékka á Xenu.net bara upp á flippið, ef að fólk vill lesa um vitleysuna sem að þetta rugl gengur út á.

En því ótengt, þá langar mig svo annars til að benda á stórskemmtilega lesningu ef að fólk kann að hafa áhuga á. Og ef það er með húmor. Og ef það er ekki bara einhverjar tussur. Allavega, Ladies and Gentlemen, I give you the INSANE-ly amusing RANTINGS of Ariel D. Jarn!!!

Annars finnst mér rétt að benda á að gamanmálakeppninni miklu lýkur á morgun og vil ég því hvetja fólk til að taka þátt. Til mikils er að vinna!!! Veglegu verðlaunin eru iðandi af spenning um hvert þau munu fara, eins og lítil stelpa á skólaballi. Eða eru verðlaunin kannski bara lítil stelpa? Komist að sannleikanum kl. 12:30 á morgun!!!




17.11.2005 | (Empty title)

Ég er mjög óánægður og ósáttur með hvað er að gerast þarna hjá Google. Eins og margir vita eflaust, þá heiti ég Arnaldur. Eins og margir þeirra sem það vita, vita þeir líka að ég heiti Arnaldur Grétarsson.

Í gær gerðist það að leitarorðið "Arnaldur", staðsetti síðuna mína í sjötta sæti. Sem að er óásættanlegt. Almennt hef ég nú verið í toppbaráttunni og gjarnan haft þriðja sætið, en núna er einhver finnsk áhugamanna síða um Arnald Indriða farin að outranka mig. What up með það??? Ussss!!! Hvernig getur einhver finnsk eða dönsk síða um einhvern Arnald gaur, sem er ekki ég, verið að outranka mig??? Þetta þýðir bara eitt. Þið fólk eruð ekki nógu dugleg að linka á mig og eruð bara almennt ekki nógu dyggir þegnar, og ekki nógu dugleg að standa vörð um google-ranking-ið mitt!!! Fussumsvei!!!

Næst sló ég inn "Arnaldur G". Arnaldur Indriða á þar aftur meirihlutann af sætunum og hann heitir ekki einusinni Arnaldur G, heldur Arnaldur I!!! Yðar einlægur kemst ekki einusinni á lista. Samt heiti ég nú Arnaldur G. Það sem að ég fann hinsvegar var geðveikt leiðinlegt e-mail frá Decode. Og þessa geðveikt sveittu og fagurfræðilega gölluðu síðu. Ég virðist sumsé eiga sveittan nafna á Agureyri.

Það var ekki fyrr en að ég sló inn fullt nafn að ég fékk fullnægjandi niðurstöður. Sem að er kannski ekki merkilegt, í ljósi þess að ég er eini Arnaldur Grétarssoninn í mannkynssögunni. Þá fann ég líka þennan skemmtilega tónleikadóm úr Morgunblaðinu, sem að gerir að umfjöllunarefni sínu, tónleikastúss mitt með MR-Kórnum frá því í gamladaga. En hov, hvað er þetta? Haldiði ekki að Indriðinn nái ekki að troða sér inn á svæðið mitt. Hættir þessi maður aldrei!?! Næst þarf ég að fara að bæta við kennitölu í leitir að sjálfum mér.

Getur líka einhver útskýrt fyrir mér hversvegna Ólafur Guðmundsson í Borgarnesi er búinn að kaupa lénin arnaldur.com og arnaldur.net? Mér finnst þetta glatað. Ég veit hvar þú átt heima Ólafur, ég mun koma á eftir þér!!!


7 comments
(Anonymous Coward)



17.11.2005 | (Empty title)

Í gær fékk ég rafpóst frá stúdentaráði. Í honum stóð meðal annars: "Gleðilega dag íslenskrar tungu!"

Hvað er að verða um HÍ sem menntastofnun?


4 comments
(Aðalsteinn)



16.11.2005 | (Empty title)

Ég tilkynni hér með stolltur að eftir hatramma sokkaumræðu hér að framan, á ég enga hvíta sokka lengur!!!

Reyndar eiginlega bara ekki nein hvít nærklæði yfir höfuð...

Allavega. Ég er farinn í ÞMS. Þið sem að ekki vilduð með, eruð aumingjar og lítilmenni og ég mun sérstaklega hugsa til ykkar þegar ég skoða mig um á sextándu öldinni. Sem er ógeðslega glatað tímabil í Íslandssögunni!!!

Að lokum minni ég á að það eru fjórir dagar eftir af gamanmálakeppninni vinsælu, og til að árétta, þá hefur skemmtileiki gamanmálsins ákaflega lítið vægi þar sem að það verður dregið úr innsendum lausnum samkvæmt ÁrnKáískum reglum. Verðlaunin eru eftir sem áður vegleg, og hef ég nú ákveðið að þau verði gender-based. Þannig að karlmenn koma ekki til með að fá einhverja fruity bleika hluti, og konur koma ekki til með að fá vélvædda hluti sem þær hafa ekki burði til að skilja.


1 comments
(Kaare)



15.11.2005 | (Empty title)

a) Ég er að drepa sjálfan mig úr táfýlu! Ojjjbara. Ég kenni sundlaugum landsins um. Og Alþingi.

b) Hver vill koma með mér í rannsóknarferð á Þjóðminjasafnið á morgun kl.13.30? Táfýlan verður dulkóðuð með hátæknivæddum leiðum.

c) Ég stend í mikilli óþakkarskuld við hundinn minn. Hún hefur gert sokkaþvott minn enn óbærilegri en venjulega (ég vil meina að sokkar séu hinar leiðinlegustu þvottaeiningar) með því að smita sokkana mína með feldinum sínum – en hún virðist hafa kosið að skilja hann hér eftir um öll gólf, öllum til mikils ama.

d) Hver er munurinn á metric-ton og U.S.-ton? Er þá annað þeirra í raun og veru new-ton!?!

Afsakið. Ég bara varð.

e) Ég vil að lokum minna á gamanmálakeppni þá sem rekin er í bili á þessarri síðu, sjá áhlekkjaða færslu. Skemmtileg verðlaun í boði. Eða allavega... verðlaun í boði.


5 comments
(Arnaldur)



15.11.2005 | (Empty title)

Mér sýnist sem svo að ég þurfi að fá mér fjármála-ráð-gjöf ef að ég á að hafa ráð á gjöfum fyrir þessi jól.

Annars var ég að gera merkilega uppgötvun. Í dag er fyrsti dagurinn sem að ég hefi mætt í skólann síðan að ég hætti að reykja. Löngunin blossaði aftur upp lítillega. Ég hefi séð að hér er fjöldinn allur af tækifærum sem að ég átti til að nýta mér til tóbaksnotkunar. Annars sýnist mér þetta nú ætla að ganga.




15.11.2005 | (Empty title)

Hér finnst mér rétt að taka fram að í ljósi þess hve dagurinn er orðinn óupplýstur og óásjálegur, hef ég ákveðið að lýsa upp skammdegið myrka með skemmtiegri kefni [sic] í gamansömum dúr. Kefni [sic] sú gengur út á að senda inn gamanmál, frumsamið eða endurómað, í styttri kantinum á rafræna pósthólfið mitt, sjá að neðan*.

Leyfilegt er að senda inn lausnir á engilsaxnesku og íslensku, svo og dönsku. Dregið verður úr innsendum lausnum að viku liðinni og verða þá veitt vegleg verðlaun og skemmtilegar úrlausnir birtar hér á síðunni.

Ef þátttaka verður nægileg og viðbrögðin góð, munu fleiri góðar kefnir [sic] verða að föstum lið á síðunni.

*arg1(no-spam)@hi.is

Fjarlægið innihald sviganna til að koma þessu á leiðarenda.




15.11.2005 | (Empty title)

Í gær fór ég á lokatónleika Tónlistardaga Dómkirkjunnar. Þar heyrði ég frumflutt verk, Memento Mei, eftir Harald V. Sveinbjörnsson.

Verkið hlýtur að teljast stórskemmtilegt og ferskt. Það er samið fyrir áttraddaðan kór og var gaman að heyra hvernig að spilað var úr öllum röddum. Það verður athyglisvert að fylgjast með hvað Haraldur kemur til með að galdra fram í framtíðinni.

Seinna um kvöldið fór ég óvart að horfa á Eddu-verðlauna afhendinguna. Sem að er ekki karlmannlegt. Þó verður að segjast að ég hafði ákveðna unun af. Ástæðan fyrir hrifningu minni af þessari ákveðnu hátíð er í stuttu máli Þorsteinn Guðmundson. Maðurinn hafði ekki undan við að rífa í sig menningar-elítu þjóðarinnar, og hlakkaði mikið í mér, meðan ég fylgdist með honum við þessa iðju sína. Þorsteinn fær sex og hálfan þumlung upp, fyrir skemmtilega framkomu í gær. Í kjölfarið langar mig að benda þeim sem að ekki hafa uppgötvað vefsíðu mannsins á að hún sé falleg og góð.


3 comments
(Arnaldur)



11.11.2005 | (Empty title)

Ég held að Baldur hafi hitt naglann á höfuðið varðandi hvað það er sem að vantar í þessa fáránlega leiðinlegu, dull og bland veruleikaþætti. Ég vil leyfa mér að taka heilshugar undir tillögur Baldurs og vona að þær verði að veruleikasjónvarpi sem fyrst. Þá skal ég glaður fylgjast með Bachelor - Royale! og America's Next Flop Model - Royale!


5 comments
(Arnaldur)



10.11.2005 | (Empty title)

Já, vel á minnst. Mér þykir rétt að taka fram að ég hef nú hafið störf í Vínbúðinni í Kringlunni, eins og má kannski sjá á nýja headernum.

Þar verður hægt að berja mig augum alla föstudaga, og stundum um laugardaga, þar sem ég verð til sýnis við þá karlmannlegu iðju að selja fólki áfengi og skamma litla krakka.

Veiii, Vínbúð!!!


4 comments
(Arnaldur)



10.11.2005 | (Empty title)

Annars datt mér í hug að segja frá því að ég hefi nú næstum lokið við að þvo allar mínar eigur úr þvoanlegum efnum. Ég hyggst verða nakinn bróðurpartinn úr Sunnudegi til að þetta markmið mitt verði fullkomnað.

Svo er bara að finna sér eitthvað annað markmið í lífinu. Eins og háskólanám eða bogfimi...



...eða bara píka!


3 comments
(krummi)



10.11.2005 | (Empty title)

Sveinbirni finnst ég vera latur maður að uppfæra síðuna mína ekki oftar.

...hann hefur rétt fyrir sér.

Ég er latur maður.

Mjög latur.




1.11.2005 | (Empty title)

Ég var að koma úr þeim merkilegasta og skemmtilegasta skólatíma á allri minni skólagöngu. Það var verklegur tími í mannabeinafræði, þar sem að ég var að aldursgreina um 800 ára gömul bein frá Hofstaðarkirkjugarði. Ég aldursgreindi um 15 ára gamlan einstakling og gerði það bara nokkuð vel, reyndar með þó nokkurri hjálp frá kennara. Svona hands-on dæmi rokkar! Hversu oft fær maður að krukka í líkamsleifum fólks sem að dó fyrir 800 árum? Sumum kann að finnast þetta vera morbid pæling, en það eru líka bara tussur, sem að koma hvort eð er ekkert á þessa síðu. Yeah! Ég verð að segja að sjálfsmynd mín sveiflaðist milli þess að vera:

  • Indiana Jones (nema bara meira kúl og með fullt af beinum)
  • CSI: töffari! (fyrir utan hvað CSI er EKKI töff og eiginlega bara tussulegt)
  • Naldo the Conqueror, medival warlord frá A-Evrópu, nýkominn heim úr raid gegn Tyrkjum, eða bara Húni eða e-ð!
  • Hamlet!

Gisp, gad der var flere saadan nogen sjove praktiske kurser!

"Ceterum censeo Circum esse delendum!" - "Að lokum legg ég til að Sirkus verði lagt í eyði!"


2 comments
(Arnaldur)