Jæja, gleðileg jól fólkið mitt!!!
Ég fékk sjónvarpsþætti í jólagjöf. Það eru sjónvarpsþættirnir um þá félaga Jeeves og Wooster. Stórskemmtilegt. Og innspírerandi. Í kjölfar þessara þátta hefur blossað upp í mér anakrónismi og hef ég ákveðið að progress-a regressively og fara aftur á bak inn í framtíðina. Næst þegar við sjáumst mun ég því ekki vera Arnaldur, heldur Sir Archibald Moore. Eftir nokkur ár í viðbót verð ég svo Víga-Naldi, eða eitthvað svoleiðis fornfánlegt.
Hér er mynd meðferðis af þeim kumpánum Jeeves og Wooster. Eru þeir ekki sætir?
Hvort er það þessi auka prósenta í jólabjórnum eða bara bannsett næturkulið? Ég er allavega búinn að vera svo helvíti drukkinn undanfarið. Sem er eiginlega ekki nógu sexý.
Allavega, hafið þolinmæði börnin mín góð, ég ætla að skella einhverju fallegu saman fyrir ykkur á næstunni. Í millitíðinni ætla ég að benda á mottusketsinn hans Baldurs og líka jóla-Vader sketsinn. Jájá, svona er það nú. Þið verðið bara að reiða ykkur á hann Baldur fyrir andlega örvun og fróun.
Í gær horfði ég á fréttaflutning frá kosningunum í Írak. Mér varð skyndilega hugsað til mannsins sem að klippti hár mitt á hársnyrtistofunni Saloon Noor meðan ég bjó í Kaupmannahöfn. Afar viðkunnanlegur gaur. Sá var Íraki sem flúið hafði Baathistana og fór tilbaka aðeins nokkrum dögum eftir upphaf innrásarinnar með danska hernum sem túlkur. Ég spyr sjálfan mig hvernig honum hafi vegnað, og hvort hann sé enn í Írak, dauður - eða kjósandi.
Á sama tíma spyr maður sig hvernig manni hefði sjálfum vegnað þarna syðra, ef maður hefði drullað sér og tekið þetta helvítis djobb þarna. Hefði maður tekið Nick Berg-inn eða Lyddie England-ina á þetta?
Í gær fór ég og fékk mér tvö ölglös á þeirri annars ágætu ölstofu sem kennd er við Kormák og Skjöld. Á einhverju stigi málsins ákvað ég að bregða mér á salernið, sem þó reyndist illa tímasett ákvörðun þar sem ég tepptist á leið minni vegna örtraðar við barinn. Alla jafnan hefði þetta verið efni í leiðinda ýting og almennt vesen, en akkúrat þarna, varð ég fyrir skemmtilegri upplifun. Sem ég stend strandaður við barinn er mér kastað mitt inn í undarlegt samtal milli fulls gaurs, og frekar ölvaðrar, sætrar stúlku.
Fullur gaur: "Mig langar til að ríða þér!"
Frekar ölvuð sæt stúlka: "Ha, hvað meinarðu?"
Fullur gaur: Óskiljanlegt taut og muldur
Nú ætla ég ekki að setja mig á háan hest, en mér finnst nokkuð ljóst og ótvírætt hvað fulli gaurinn var að meina. Nei, hér gerist hvorki þörf á orðræðurgeiningu né sérlegrar nærveru Derrida eða Foucault, til að hjálpa okkur að skilja. (Eða alternatively að flækja málin.) Í raun veit ég ekki alveg hvernig gaurinn hefði getað sett þetta skýrar fram.
Einhverjar tillögur?
Jahérna, hér!
Þvílíkt og annað eins innsæi, hjá sex ára gömlu barni!
Sena 1: Systkinin Arnaldur og Valgerður sitja og horfa á Bubba Morthens reyna að syngja í tónlistarþætti Möggu Stínu. Stofan er illa upplýst og hrjúf rödd Bubba fyllir loftið með orðum eins og "druchna" og "wachna"
Jæja, þá er komið að þessu. Aftakan fer fram núna í dag milli klukkan 13.30 og 16.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Undanfarið hef ég eins og svo margir samlandar mínir og jafnaldrar, setið að próflestri. Sem gæti útskýrt lélega frammistöðu við að pósta hérna. Próflestur er fyrirbæri sem að krefst mikillar einbeitingar í lengri tíma og er mjög óeðlilegt líkamlegt ástand. Með einhug og atorku er þó hægt að berja sér leið í gegnum viskuna sem fyrir mann er lögð. Þó hjálpar ekki, þegar einstaka sauðslegir "fræðimenn" finna sér leið inn í námsefnið. Þessir menn eru ekki færir um að miðla hugsunum og hugmyndum sínum og ætti því að vera meinaður aðgangur að akademíu. Þó virðist vera eitthvað trend þessa dagana að líta á þetta fólk, eins og það hafi virkilega eitthvað merkilegt fram að færa. Þá kvelst prófheimur, yfir ambigous og illa framsettu bulli þessa fólks.
Leyfið mér að koma með dæmi:
"Because the post-modern world is a post-scientific world without the illusion of a transcendental, neither transcendental science nor transcendental religion can be at home in it, for that which is inhospitable to the transcendence by abstraction of the one must also be unfriendly to the similar character of the other. Neither the scientific illusion of reality nor the religious reality of illusion is congruent with the reality of fantasy in the fantasy reality of the post-modern world."
Ég er með kenningu:
Fólk sem að kennir sig við póst-módernisma, fær ekki inngöngu í himnaríki.
Hmmm... Vá, annaðhvort er ég svona mikil karlremba (sem ég skal fúslega viðurkenna að vera, svona pínkulítið inn við beinið), eða þá að fólk með mikið estrógen í blóðinu er bara ekki þess virði að linka á. Ég var að renna yfir linkana mína með það fyrir augum að endurskoða þá og komst að því að þar er ekki ein síða sem er sérlega tengd kvenfólki. Nema þessar tvær rússnesku. En það er nú kannski ekki alveg það sem að ég er að tala um, og þeim virðist nú líka vera haldið úti af karlmönnum.
Ég held að ástæðan fyrir þessu sé sú að þær eru allar að búa sig undir hjónaband.
Ég get reyndar strax látið mér detta í hug síður sem að gætu breytt þessu dramatískt en ég bara nenni ekki að breyta þessu núna.
Hehehehe... Baldur Thorlacius er snillingur og fokking Steve Bell er alger mastermind snillingur! Steve Bell on the Iraq pullout!

(Sveinbjorn)