Hmmm... Vá, annaðhvort er ég svona mikil karlremba (sem ég skal fúslega viðurkenna að vera, svona pínkulítið inn við beinið), eða þá að fólk með mikið estrógen í blóðinu er bara ekki þess virði að linka á. Ég var að renna yfir linkana mína með það fyrir augum að endurskoða þá og komst að því að þar er ekki ein síða sem er sérlega tengd kvenfólki. Nema þessar tvær rússnesku. En það er nú kannski ekki alveg það sem að ég er að tala um, og þeim virðist nú líka vera haldið úti af karlmönnum.
Ég held að ástæðan fyrir þessu sé sú að þær eru allar að búa sig undir hjónaband.
Ég get reyndar strax látið mér detta í hug síður sem að gætu breytt þessu dramatískt en ég bara nenni ekki að breyta þessu núna.
Arnaldur, þú ættir að nota Comic Life til þess að búa til svona speech bubbles.
Annars, þá er þessi bók alveg hrikaleg "The Complete Guide to Help You Discover God's Plan For A Lifetime Of Love" -- so, this Denis guy is suddenly God?
Ég skil ekki hvað þú ert að tala um, Arnaldur minn! Hver er að fara að gifta sig estrogeni?
The password to post a comment is:
(Steinn)