Undanfarið hef ég eins og svo margir samlandar mínir og jafnaldrar, setið að próflestri. Sem gæti útskýrt lélega frammistöðu við að pósta hérna. Próflestur er fyrirbæri sem að krefst mikillar einbeitingar í lengri tíma og er mjög óeðlilegt líkamlegt ástand. Með einhug og atorku er þó hægt að berja sér leið í gegnum viskuna sem fyrir mann er lögð. Þó hjálpar ekki, þegar einstaka sauðslegir "fræðimenn" finna sér leið inn í námsefnið. Þessir menn eru ekki færir um að miðla hugsunum og hugmyndum sínum og ætti því að vera meinaður aðgangur að akademíu. Þó virðist vera eitthvað trend þessa dagana að líta á þetta fólk, eins og það hafi virkilega eitthvað merkilegt fram að færa. Þá kvelst prófheimur, yfir ambigous og illa framsettu bulli þessa fólks.
Leyfið mér að koma með dæmi:
"Because the post-modern world is a post-scientific world without the illusion of a transcendental, neither transcendental science nor transcendental religion can be at home in it, for that which is inhospitable to the transcendence by abstraction of the one must also be unfriendly to the similar character of the other. Neither the scientific illusion of reality nor the religious reality of illusion is congruent with the reality of fantasy in the fantasy reality of the post-modern world."
Ég er með kenningu:
Fólk sem að kennir sig við póst-módernisma, fær ekki inngöngu í himnaríki.
Ég veit ekki alveg hvort þetta er gott eða ekki, en ég skil nokkurn veginn hvað maðurinn/konan er að fara. Það er í raun verið að tala um breytta heimsmynd frá tíma trúarbragða, síðan upplýsingarinnar og til dagsins í dag.
Nei, Arnaldur er að staðfesta orð jóhannesar Páls páfa annars, að póst-módernismi er illur. Ergo, Arnaldur er kaþóliki.
Já, hýddu mig Steini, hýddu mig! Kristur konungur skipar þér að refsa mér!
On second thought, neyddu mig bara til að lesa Writing Culture í heild sinni. Það eru sennilega mun verri örlög en hýðing.
Ég get reyndar ekki sagt að ég viti almennilega hvað póst-módernismi er en ég er alveg sammála þér og ég er brjálaður!
Sko, fyrsta setningin sem er kvótið þarna er ekki svo slæm, en þessi hér er alveg agaleg:
"Neither the scientific illusion of reality nor the religious reality of illusion is congruent with the reality of fantasy in the fantasy reality of the post-modern world."
Sko, að koma með einhverjar svona staðhæfingar um að vísindin séu með "illusion of reality" er náttúrulega svolítið vafasamt án sterkra raka þess efnis (ég er einmitt að skrifa ritgerð um "reality according to science" núna).
Síðan kemur "religious reality of illusion" -- what the fuck is "religious reality"? Prestar að nauðga kórdrengjum?
Og hvað í andskotanum er "reality of fantasy"? Annað hvort er eitthvað reality eða það er fantasy, ekki gefa mér fokking "reality of fantasy".
Æi, þetta er runk. Ef maðurinn hefur eitthvað intelligent að segja, þá er hann að grafa það undir haug af verbose reyk.
Þetta er ástæða þess að ég kýs yfirleitt að sleppa því að lesa bækurnar sem kenndar eru í kúrsunum mínum.
Hehehe...
Já, það er ekki svo vitlaust. Ég held að ég fari að adoptera náms-fílósófíuna þína Stígur.
The password to post a comment is:
(Arnaldur)