Jæja, gleðileg jól fólkið mitt!!!
Ég fékk sjónvarpsþætti í jólagjöf. Það eru sjónvarpsþættirnir um þá félaga Jeeves og Wooster. Stórskemmtilegt. Og innspírerandi. Í kjölfar þessara þátta hefur blossað upp í mér anakrónismi og hef ég ákveðið að progress-a regressively og fara aftur á bak inn í framtíðina. Næst þegar við sjáumst mun ég því ekki vera Arnaldur, heldur Sir Archibald Moore. Eftir nokkur ár í viðbót verð ég svo Víga-Naldi, eða eitthvað svoleiðis fornfánlegt.
Hér er mynd meðferðis af þeim kumpánum Jeeves og Wooster. Eru þeir ekki sætir?
Hvort er það þessi auka prósenta í jólabjórnum eða bara bannsett næturkulið? Ég er allavega búinn að vera svo helvíti drukkinn undanfarið. Sem er eiginlega ekki nógu sexý.
Allavega, hafið þolinmæði börnin mín góð, ég ætla að skella einhverju fallegu saman fyrir ykkur á næstunni. Í millitíðinni ætla ég að benda á mottusketsinn hans Baldurs og líka jóla-Vader sketsinn. Jájá, svona er það nú. Þið verðið bara að reiða ykkur á hann Baldur fyrir andlega örvun og fróun.
Já, Jeeves & Wooster eru frábærir þættir. Ég verð líka að segja að eins mikill bjáni og Wooster er í raun og veru þá kemur hann út sem hinn gáfaðasti í samanburð við Tubby og aðra kumpána sem koma við sögu í þessum þáttum. Wooster er í raun eins gáfaður og aristókratarnir geta orðið.
Já, eins og hann Bertie segir á einhverju stigi málsins:
"I am regarded as somewhat of a brain at the Drones Club. When the chaps need some thinking done for them, they come running to good old Bertie!"
Eða eitthvað álíka...
The password to post a comment is:
(Sveinbjorn)