Results for 2006

13.12.2006 | Almost there now...

Fór um daginn í gráðun í Júdó, stóðst með sóma, fékk nýtt belti og er betri maður fyrir vikið.

Annars kom ég höndum yfir eintak af Háskólablaðinu, sem virðist vera einhversskonar stúdentablað Háskólanns í Reykjavík. Það sem slóg mig hvað mest var hve áherslurnar í blaðinu voru áberandi mikið í þá átt sem maður hefði svo sem getað sagt sér að yrðu. Til mikils þykir mér koma þegar eini maðurinn sem ég var í grófum dráttum sammála var Friðbjörn Orri, en grein hans um innflytjendamál var furðulega mikið niðri á jörðinni, og ágætlega skrifuð hugvekja.

tyravaseline

Annars verð ég að skjóta hérna inn þessu vídjóklippi af Tyru Banks sem mér var bent á. Nú hef ég um nokkurt skeið staðið í þeirri meiningu að Tyra Banks sé ill mannvera, annaðhvort geðsjúk eða andsetin af öldruðum sjóræningja. Ég held að þetta framferði tali sínu máli.
Hérna er reyndar líka fyndin útfærsla af youtube sem mér fannst mjög skondin.

Tyra reynir að vísu hérna að útskýra andsetninguna. En burtséð frá öllu rausi um Operah, þá hef ég aldrei orðið svona spenntur yfir vaselíni...
...nema þegar ég reykti fimm krakkpípur, með Tyru Banks.


9 comments
(Baldur)



5.12.2006 | Ritgerðir og próf

thjobo

Ég geri lítið annað þessa dagana en að þykjast lesa fyrir próf og látast skrifa ritgerðir og upplifi mig subsequently sem leiðinlegasta mann í heimi fyrir vikið.

Reyndin er samt meira sú að ég er pirraður og guilt-ridden yfir því að vera ekki að lesa og skrifa. Það er erfitt að átta sig á því hvernig þetta hangir saman allt.

Eins og er sit ég á Þjóðarbókhlöðunni. Hér er erfitt og leiðinlegt að vera. Ennfremur er hörgull á námsplássi svo mikill að B-manneskjur eins og ég eru tilneyddar að sitja úti í horni með ekkert borð og pompous fólk lítandi niður á mann. Dáldið eins og í grunnskóla í Kabúl.

Ennfremur eru hér laumufarþegar, eða laumuplásstakar. Á ýmsum stöðum í kringum mig sé ég púkalega MR-inga að lesa úrvalsritið: Frá Einveldi til Lýðveldis. Þetta fólk hefst við þá iðju eina að hafa af mér verðmætt vinnupláss á svæði sem ég er beygður til að nýtast við út af svokölluðu námsbókasafni. Mér finnst að þessu fólki ætti að úthýsa med det samme. Þetta fólk ætti að geta beðið í eitt ár eftir að námsferill þeirra hefst hjá HÍ.

Sem færir okkur að útgangspunktinum. Er töff að vera að nördast á þjóbó? Er það kúl að segja: "Já, æi, ég er bara búinn að vera á Þjóðarbókhlöðunni í allan dag að lesa og drekka kaffi og svona"?

Ég fæ nett á tilfinninguna að hluti fólksins hérna sé bara að pose-a. Af því að sumu fólki gengur maður hjá trekk í trekk, eða verður starsýnt á yfir herbergið og þá situr það bara og horfir út í loftið með vísdómssvip út í eilífðina. Eða þá að hér eru pör sem eru alltaf eitthvað að pota í hvort annað og hlæja hvísl-hlátri og hafa gaman af lífinu.

Æiii, Fokkitt nenni þessu ekki...

bookflush

14 comments
(Doddi)



21.11.2006 | Marx vs. Max (Weber)

marxbw

Er nú búinn að vera að vinna þrotlaust að ritgerðum undanfarna viku eða svo. Kláraði stórskemmtilega (þó ég segi sjálfur frá) ritgerð um hlutskipti Vísindakirkjunnar sem nýrrar trúar á sálnaveiðimarkaðnum í gær og er að leggja lokahöndina á magnum opusinn:

-Hvort hugmyndir Karls Marx um stéttir og stéttaskiptingu séu vænlegri til skilnings á þróun íslensks nútímasamfélags en lagskiptingarhugmyndir Max Weber.

Reyndar verð ég nú að taka afstöðu með Weber í þessum efnum, þó hann sé ekki jafn litríkur penni og eigi til að verða helst til tedious.

Sjálft research-ið sem þó kemur nú ekki inn á nema brot af umfjöllunarefni beggja, hefur hinsvegar verið hreint yndi. Ég er þó nokkrum sinnum búinn að staðnæmast í lestrinum hér og þar hreinlega yfir því hvað þetta eru ótrúlega spennandi og skemmtilega framsettar pælingar. Sérstaklega Marx. Algerlega að missa sig, og obsessa yfir Hegel, og hrauna yfir borgarastéttina.

Ég vil meina að Marx sé stórkostlega misskilið barn síns tíma


13 comments
(Grétar)



9.11.2006 | Pp-suík-hó

game 2

Ég var með sjónvarpið í gangi í gær og það spýtti út hverju vondu músík-vídeóinu á fætur öðru. Tvö þeirra sérstaklega fönguðu athygli mína:

Annars vegar myndband með rapparanum "The Game" sem kemur frá Los Angeles geri ég ráð fyrir (miðað við skammstöfunina LA sem hann er með tattóveraða á kinnina sína). The Game er svakalega harður gangsta thug, eins og við sjáum í myndbandinu og virðist hafa allt að því pervers áhuga á hjólbörðum, sem endurspeglast enn frekar á albúmkóverum hans.

Það sem mér þótti kannski merkilegast við þetta vídeó voru nokkrar örstuttar klippur sem var skotið inn öðru hvoru af The Game og crew-inu hans marsérandi ógnvekjandi um úthverfi Los Angeles. En hvað er þetta? Það virðist vera sem svo að allt þetta hard-core gangsta-thug lið sé svo tísku meðvitað að það hafi verið vafið inn í ríkuleg litklæði beint frá Nakta Apanum, eða Bathing Ape, eða einhverju álíka chic. Þið afsakið, en ég get ekki verið hræddur við fólk sem að klæðir sig í svona svakalega chic outfit, þó að það sé með bókstafi í andlitinu. Manni finnst helst að þeir hljóti að vera eiga við einhver meiriháttar self-esteem issues miðað við hvernig þeir eru klæddir og hvernig þeir eru orðnir hoknir af öllu silfur skraninu sem þeir neyðast til að ganga með um hálsinn.

RabbieWilliams

Hinsvegar var myndband með "ekki-svo-mikið-en-samt-að-reyna" rapparanum Robbie Williams. Lagið var titlað Rudebox, sem ég skildi nú ekki alveg, en var vissulega dónalega lélegt. Í raun vakti myndbandið helst athygli mína fyrir þær sakir hversu lélegt það var. Fyrst hélt ég reyndar að um innlent vídeó væri að ræða, en annað kom á daginn. Robbie Williams er orðinn gamall karl með beyglaðar tennur og hrukkótt andlit. Hann minnti mig á gamla dökkhærða útgáfu af Andra Gísla, sem var fólskulegur og hrottafenginn maður og dólgslegur fáviti í gamla hverfinu mínu Álftamýri/Háaleitisbraut. Kannski er Rudebox ekki myndband með Robbie Williams, heldur með Andra Gísla að pósa sem Robbie Williams. (Þó ég myndi reyndar ekki treysta Andra til að fara með flóknu ensku textana, maður sem gat ómögulega lesið orðið Psycho í Trivial Pursuit.)


11 comments
(Steinn)



9.11.2006 | Springtime for Marx and for Germany...

marxbw

Breski seðlabankinn hækkaði í dag stýrivextina upp í 5%. Ógn og skelfing grípur um sig í Bretlandi. Hvað myndu þeir eiginlega segja um hann Davíð? Read all about it.

Annars finnst mér magnað að þýskur leikhúshópur er að setja upp æsispennandi leiksýningu byggða á spennuriti Karls Marx um hagfræði Das Kapital. Gangi þeim vel. Ég væri actually til að sjá þessi ósköp, bara til að "get my head around" hvernig þetta fólk ætlar að pull-a off þetta seemingly vonlausa feat.


2 comments
(Arnaldur)



1.11.2006 | Osama

osamamovie

Í gær var ég eitthvað hálf-tense og ákvað að unwinde-a og horfa á video. Myndin sem varð fyrir valinu var afgansk, íransk, írsk, japansk, hollenska myndin Osama, sem ég hef ætlað mér að horfa á um nokkurt skeið.

Eftir myndina var ég ennþá meira tense, og ónýtur á sálinni. Horfði á nokkra Peep Show þætti til að létta mér lund en gat ekki einu sinni hlegið að þeim.

Osama fjallar um unga stúlku í Afganistan undir talibönum, hverrar móðir dulbýr sem dreng til að hún geti unnið og skaffað fjölskyldunni mat. (Faðirinn er dáinn á þessu stigi málsins og þær mæðgur því algerlega vonlausar um lifibrauð.) Needless to say travesty ensues.

Eins miður mín og ég varð við að sjá þessa mynd (og er enn) þá vil ég samt hvetja fólk til að skoða þessa mynd. Svakalega er hægt að fara illa með fólk. Og mikið svakalega tók maður stóra, STÓRA vinninginn í örlaga-lóttóinu þegar maður fæddist í velferðar- og jafnaðarsamfélaginu Íslandi.


Og það liggur svo berlega í augum uppi Snati minn, hversu átakanlega vondur hann er þessi heimur.


5 comments
(Össi)



24.10.2006 | Suðurland-V skyggni ágætt...

Picture 1

Helgin var stormasöm og viðburðarík með Airwaives og tilheyrandi. Sá fullt af tónlist og drakk allskonar bjór.

Ég vil senda Árna Kristjánssyni eldheitan elektrónískan cyber-knús beint úr viðjum Kárahnjúka fyrir að plögga mér fallega rauða armbandinu sínu.

Annars verð ég að segja að ég verð alltaf pínku fyrir vonbrigðum með Airwaves. Maður nær aldrei að sjá allt sem maður vill (sem er nú eðli svona hátíða) en neyðist aftur á móti til að sjá fullt sem maður vill ekki. Vegna þess að maður má ekki fara út af stöðum ef maður kemst inn. Annars eyðir maður kvöldinu í biðröðum. En nóg um það.

Ég hugsa að ég hljóti að vera einn af fáum Íslendingum sem að hlustar á veðurfréttir RÚV af fullkominni athygli (með hmmmhmmm og öllu) þegar ég dett inn á þær. Það yljar mér alltaf um hjartarætur að heyra veðurfréttamanninn þar tala um millibör en ekki hektópasköl. Eins og tíminn hafi gleymt honum. Persónulega þykir mér alltaf vænna um millibör en hektópasköl. Reyndar er ég svo mikill anakrónisti að ég myndi vilja hafa vindstig ef ég fengi einhverju ráðið í heiminum.

Að lokum...



Spurning vikunnar:

  • Er betra að vera framúrskarandi góður í einhverju einu?
  • Eða semi fær í öllu?
  • Og ef að það er betra að vera framúrskarandi góður í einhverju einu, hverju er þá best að vera cyber-dýnamít góður í?

11 comments
(Arnaldur)



19.10.2006 | Mongohalvfems

mongohalvfems

Í busaútgáfu skólablaðsins Loka í MR, fékk ég þann virðulega titil "Mongó Halvfems", út af lélegri mynd sem náðist af mér og óvirðulegur samnemandi minn sendi í blaðið. (Reyndar gæti þetta verið misminni hjá mér og Alli hafa fengið titilinn.) Allavega, svívirðilegar myndir voru sendar inn og mannorð góðra manna dregin í svaðið, þar á meðal mitt.

Nú níu árum síðar, með hjálp nútíma tækni hefur mér tekist að endurskapa þessa mynd, og gott betur, því að nú lít ég út fyrir að vera virkilega illa á mig kominn. Takið eftir óhugnarsvipnum á Össa yfir vansköpuninni.



(Gert með forritinu Photobooth, sem er rugl skemmtilegt forrit og ég verð að eignast.)

The Mongó lives


6 comments
(Hjalti)



17.10.2006 | Hmmhmmm...

Ég var að komast að því að ég er apparently með skelfilega pirrandi kjæk, eða ósið, sem ég hafði ekki gert mér grein fyrir.

Svo virðist sem að þegar að ég sit fyrirlestra sem að kitla áhuga minn, þá samsinni ég fyrirlesaranum með hmm, hmmmhmmm, ammm eða mmmm á eftir hverri áhugaverðri og skiljanlegri setningu. Þessu hafði ég ekki gert mér grein fyrir og hef ekki hugmynd um hvort að þetta er eitthvað nýtilkomið eða eldra fyrirbæri.

Reyndar finnast mér þetta leiðinlegar fréttir, þar sem að sjálfur hef ég frekar litla þolinmæði fyrir svona rugli.

Í ofanálagið hef ég verið eitthvað hálf tæpur til heilsu undanfarið og tókst meiraðsegja að lúffa og gefast upp eftir 45 mín. á síðustu Júdó æfingu, eftir að mér sortnaði fyrir augum og fór að svima.

Til að toppa þetta allt saman hefur mér í auknum mæli fundist ég vera andfúll upp á síðkastið eftir endajaxlatökuna á föstudaginn. (Sem ég skil ekki, af því að tanntakan gekk framar björtustu vonum og ég er ekkert bólginn eða neitt.)

Allavega, þar hafiði það. NaldoMan er lítið annað en andfúlt grey sem er stamandi/hummandi surrender monkey.


surrendermonkey

...And in his scathing self-critique entitled "Hmmmhmmm... - memoirs of a surrender monkey", Naldo lashes out at life, the arts and the scent of cinnamon.


2 comments
(Sveinbjörn)



14.10.2006 | Joduka des

jrlogomerki

Ég hef ekki minnst á það áður en ég er farinn að leggja stund á Judo hjá Júdófélagi Reykjavíkur, og hef nú gert um nokkurt skeið. Á mánudaginn fékk ég loksins minn eigin búning, eða Judogi, og er það reffilegur Dan-Ro búningur sem að er reyndar ýfið stór en kunnugir segja að hann komi til með að minnka í þvotti.

Hvernig þetta gæti svo mögulega haft nokkuð að segja fyrir nokkurn mann sem hingað kemur er svo annað mál. Svakalega hversdagsleg færsla.

...fór í dag og fékk mér kaffi. Hugsaði um daginn og veginn og komst að merkilegum niðurstöðum. Fór svo heim og opnaði eldhússkápinn. Og haldiði að það hafi ekki bara gosið upp þessi svakalega kanil lykt!!!


9 comments
(Sigurgeir Þór)



5.10.2006 | Almennt raus...

Haardescience

Geir Haarde svaraði í gær ásökunum stjórnarandstöðunnar um aukinn ójöfnuð í samfélaginu á eftirfarandi hátt: Að í raun væri ekki um neinn ójöfnuð að ræða. Ef að frá væru taldir efstu 5% af tekjuhæstu einstaklingunum (og þá væntanlega þessi 1% sem njóta 60% allra fjármagnstekna hér á landi) væri hér bara allt svakalega slétt og fínt og jafnt. M.ö.o. ef að við sleppum þessum 5% sem eru ótrúlega ójöfn og eyðileggja jöfnuna, þá er ekkert ójafnt. Fuck GINI-stuðulinn!

Ég vildi að ég gæti svarað fólki sem ég rökræddi við með svona útpældri lógík. Hell, ég vildi að ég gæti beitt svona aðferðafræði þegar ég er að leysa jöfnur.

Sigurjón Sighvatsson kom í Kastljós og varpaði heldur betur ljósi á atferli Zidane á HM um daginn. Hann leiddi að því líkur að Zidane hefði mögulega kannski verið búinn að ákveða að skalla Materazzi. Samt ekki endilega fyrir upphaf leiksins en kannski á meðan á leiknum stóð.

Ísköld niðurstaða Sigurjóns: Á einhverju stigi málsins tók Zidane ákvörðun um að skalla Materazzi.

Zidaneheadbutt

Bravó Sigurjón. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir þessu. Sigurjón endaði svo á að delera eitthvað um að Zidane hefði þarna fórnað sér fyrir samlanda sína sem að eru tapsárir. Úff, þarna lagði Sigurjón ýmis vandmeðfarin hugðarefni síðustu mánaða að hvílu fyrir mér. En hvað er það sem að gerir Sigurjón svona mikinn sérfræðing? Jú, 90 mínútna bíóræma sem hann púslaði saman úr einum Real Madrid leik.
Má ég vera með? Mín kenning er að Zidane hafi aldrei tekið meðvitaða ákvörðun um að skalla Materazzi á neinu stigi málsins. Í raun var þetta áru-draugur Eric Cantona sem að teleportaði sér í framheila Zidane afþví að hann hélt að Materazzi væri áhorfandi. Ástæðan fyrir þessu? Jú, Frakkar eru ofbeldishneigðir.

Blaðið fer áfram á kostum með frábærri blaðamennsku, og íslenskri mál- og ritsnilld. Á forsíðu Blaðsins er viðtal við innanhúsarkitekt sem ég veit ekki hvað er. Þar er líka talað um að ákveðin vinnubrögð gefi augaleið. Á síðu tvö er svo talað um að Hugo Chavez, forseti Venesúela, hefurgefið í skynd að Bandaríkjamenn kunni að gera innrás í landið. Hvað svo sem það þýðir.

Blaðið þarf að fara að fjárfesta í prófarkalesara. Eða allavega prentvillupúka frá FRISK ehf.


8 comments
(Sveinbjörn)



27.9.2006 | Blaðið: Frjálst, óháð og ókeypis?

ohadabladid

Hér ber að líta forsíðu Blaðsins. En hvaða dagsetningu? Það er öllu snúnara. Blaðamennskan í þessu tilviki er svo tímalaus að það er engin dagsetning á forsíðunni.

En jú, þetta er forsíða blaðsins þann 20. september 2006. Og ég verð að vera sammála þeim. Hókus Pókus dagar í Leikbæ hljóta að vera eitt það fréttnæmasta sem komið hefur fyrir á árinu. Hverjum stendur ekki á sama um heimsmálin þegar það er 33% afsláttur af leikföngum og "KVISS, BAMM BÚMM" í Leikbæ.

Reyndar verður maður, við tækifæri sem þessi, að fara aðeins að hugsa út í réttmæti staðhæfinga Blaðsins um "frjálsa, óháða og ókeypis" blaðamennsku þegar svona mikill þungi er lagður í eina frétt. Ég er ekki frá því að mér finnist vera smá keimur af selective reporting framan á Blaðinu, allavega téðan dag.

Ennfremur finnst mér það kannski líka liggja nokkurn vegin í hlutarins eðli að frelsi feli það í sér að vera óháður. Er þá Blaðið kannski bara frjálst og ókeypis? Þeir ættu þá kannski bara að draga þetta allt saman í hnitmiðaðan undirtitil: Free.

Einhvern vegin fæ ég þó á tilfinninguna að það sé langt frá því að vera ókeypis að auglýsa í Blaðinu. Ennfremur fæ ég það á tilfinninguna að Blaðið sé langt frá því að vera óháð auglýsendunum sem að leggja undir sig heilu forsíðurnar og opnurnar. Getur Blaðið þá talist vera frjálst? Er Blaðið þá yfir höfuð frjálst, óháð eða ókeypis?

Allavega. Burtséð frá öllum þessum vangaveltum er Blaðið miðill að mínu skapi. Þar eru engar pestering fréttir af valdaránum, brottför Kanans eða óeirðum í Ungverjalandi. Bara endalaus neyslugleði.


2 comments
(Sveinbjörn)



26.9.2006 | Jájájájájá

Núna væri ég mest til að vera hérna í heiminum. Með daquiri og góðan vindil í munnvikinu.


paradiseisl1 gallery8

Í staðin er ég að hlusta á mann tala ótrúlega hægt um kenningar Marx og áhrif þeirra á líf okkar. Það er eitthvað við Marx sem er svakalega þunglamalegt og niðurdrepandi. Ég held að það sé allt þetta tal um arðrán, stéttabaráttu og öreiga sem að dregur upp grámyglulegar myndir í kollinn á mér.


2 comments
(Sveinbjörn)



19.9.2006 | Standing Alongside Giants

Nick&Ithumb

Helgin var að miklu leyti tileinkuð manni sem ég hef nú töluvert lengi haft mikið álit á fyrir einstaka færni sína á sviði tónlistar og nú nýlegar á sviði kvikmyndagerðar.

Ég hóf þetta Nick Cave marathon á föstudeginum með því að skella mér í boði Ara Eldjárns á The Proposition, sem er ný kvikmynd skrifuð af Cave. Kann ég Ara miklar þakkir fyrir þetta góða boð en það byrjaði ekki verr en svo að ég hitti hetjuna sjálfa, Nick Cave, í anddyri Háskólabíós og fékk tekna mynd af mér með kappanum. Glöggir geta séð Ray Winstone bregða fyrir í bakgrunninum. Ég vil þakka Steini kærlega fyrir að festa þetta atvik á filmu og gera það hér með ódauðlegt, sögulega stund í menningarsögu vesturlanda.

Það kom mér á óvart hversu stutta fingur hann hafði. (Ath. Þeir eru samt ekki stuttir, bara eðlilega langir. Ég hafði bara alltaf ímyndað mér að hann hefði Rachmaninov putta.) Winstone

Myndin sjálf var hin besta og vinnur vel á í minningunni. Nitty-gritty ástralskur vestri, sem færi kannski betur á að kalla austra. Eða syðra? Eða suð-austra? Vel leikin í alla staði og ákaflega þrúgandi mynd sem nær að halda manni í spennu meira og minna allan tíman þrátt fyrir að hún sé ögn hæg á köflum.

Concertthumb

Fundi okkar Cave var svo fylgt eftir með tónleikum í Laugardalshöllinni á laugardeginum. Tónleikarnir voru í einu orði stórkostlegir. En ef þið viljið fleiri orð þá er að finna summary, myndir og video-klippur af tónleikunum hér að neðan. Reyndar væri það vel þegið ef þeir sem voru á tónleikunum gætu haft skoðun á þessari umsögn og leiðrétt rangfærslur ef einhverjar eru.


8 comments
(Arnaldur)



19.9.2006 | Nick Cave 16.09.2006

Tónleikar Nick Cave

í Laugardagshöll 16.09.2006


  • Nick Cave - Söngur, Píanó, Gítar
  • Martyn P. Casey - Bassi
  • Warren Ellis - Fiðla, Mandólín, Bouzuouki, Flauta
  • Jim Sclavunos - Slagverk

NCconcert1

Tónleikarnir fóru almennt afskaplega vel fram, og voru einstaklega ánægjulegir. Ég vil leyfa mér að halda að þessir tónleikar hafi meira verið fyrir gamalkunna Cave aðdáendur, þar sem harkaleg keyrsla einkenndi tónleikana að miklu leyti og minna var um rólegri ballöður. Lagalistinn var blandaður og kom úr ýmsum áttum, spannaði meira og minna allan feril Cave and the Bad Seeds.

Eina umkvörtunarefni sem mér dettur í fljótu bragði í hug voru örfáir tónleikagestir sem áttu bágt með að haga sér siðsamlega, eða bara almennt vera töff. Vil ég nefna í því skyni tvær leiðinda tussur sem sátu tveim röðum fyrir aftan mig og vældu: "Do You Love Meeeeee!!!" í tíma og ótíma, milli laga. (Sjá nánar hér.) Þegar ljóst varð að Cave flytti ekki Do You Love Me, brugðust þær ókvæða við og æptu: "Fokk You!!! í átt að sviðinu.

Warren Ellis var magnaður og lék af mikilli innlifun. Jim Sclavunos var þéttur, reyndar svo þéttur að hann felldi symball og hljóðnema í öðru laginu (Red Right Hand).

NCconcert2

Almennt höfðaði lagavalið ágætlega til mín. Reyndar var tæplega helmingur laganna, kannski skiljanlega, af Abbatoir Blues/The Lyre Of Orpheus og Nocturama og hefði verið gaman að heyra meira af eldri plötum Cave eins ogHenry's Dream, Tender Prey eða Let love In en ekki var þeim gerð nein sérstök skil (einungis eitt lag af hverri þeirra). Ekki hefði manni nú heldur sárnað að heyra O'Malley's Bar eða fágætið Little Empty Boat, en það er nú víst einu sinni náttúra tónleika með jafn virkum og síbreytilegum listamönnum sem þessum að ekki gefst tími til að dekka allt þeirra repertoir.

NCconcert3

Gaman var að heyra óvenjulegar útgáfur af sumum lögunum, Mercy Seat var töluvert rólegra en það sem maður þekkir frá Tender Prey, og svipaði meira til útgáfunnar á Live Seeds bæði með tilliti til texta og keyrslu. The Weeping Song var full harkalega framkvæmt þótti mér, en kannski sök sér, fjarvera Blixa Bargelds kallar á breytingar á laginu frá samtals-dúett hvort eð er. Henry Lee sömuleiðis, var keyrt full harkalega í gegn, en þó var vel hægt að hafa gaman að, þar sem stemmningin hafði verið keyrð upp af hörku með lögunum á undan.

Útgáfan af Tupelo var stórfengleg, villt og ótamin eins vera ber og gaman var að sjá Cave munda gítarinn. Tónleikunum var slitið að Tupelo loknu en hafnir upp að nýju með skemmtilegri útgáfu af The Lyre of Orpheus þar sem að áhorfendur fengu hlutverk London Community Gospel Choir við að kallast á við Cave: "Oh, Mama!". Reyndar stytti Cave útgáfuna um þó nokkur vers, án þess þó að það spillti sérstaklega fyrir. (Reyndar saknaði ég tveggja versa fremur sárt.)

NCconcert4

Úrfellinguna bætti Cave þó glæsilega upp með einstaklega velhepnaðri ofur-rólegri og dapurlegri útgáfu af laginu Stagger Lee, þar sem hann bætti við loka versi: "And up came the Devil and said to Stagger Lee, I'm gonna take you down with me. And those were the last words that the Devil spoke 'cause Stag put four bullets in his motherfuckin' head." (ef ég man rétt.)

Uppklappinu var svo slitið með þéttri útgáfu af Jack the Ripper. Að vísu átti eitt lag eftir að verða leikið að því loknu, það er, í seinna uppklappi, en á því stigi hafði verið opnað fyrir útgöngudyr Laugardalshallarinnar og fólk var farið að streyma út.

Lagalisti

(plöturnar sem lögin koma fram á eru í svigum):
  • West Country Girl (The Boatman's Call)
  • Abbatoir Blues (Abbatoir Blues)
  • Red Right Hand (Let Love In)
  • Ship Song (The Good Son)
  • Wonderful Life (Nocturama)
  • Babe, You turn Me On (The Lyre Of Orpheus)
  • Weeping Song (The Good Son)
  • Cannibal's Hymn (Abbatoir Blues)
  • Messiah Ward (Abbatoir Blues)
  • Rock Of Gibraltar (Nocturama)*
  • Henry Lee (Murder Ballads)
  • The Mercy Seat (Tender Prey)
  • Hiding All Away (Abbatoir Blues)
  • God Is In The House (No More Shall We Part)
  • Tupelo (The Firstborn Is Dead)*
----Lok tónleika----
  • The Lyre of Orpheus (The Lyre Of Orpheus)
  • Lime Tree Arbour (Boatman's Call)
  • Right Out of Your Hand (Nocturama)*
  • Stagger Lee (Murder Ballads)
  • Jack The Ripper (Henry's Dream)
----Lok uppklapps I----
  • Lucy (The Good Son)
*(Nick Cave á gítar)

Video-klippur af tónleikum

Rockofgibintrolink

Intro að Rock Of Gibraltar
(MPEG - 13,4 MB)

Mercyseatbrotlink

Brot úr The Mercy Seat
(MPEG - 10,7MB)


2 comments
(Arnaldur)



12.9.2006 | Death to the Stingrays?!?

Ókei, þetta er náttúrulega bara fáránlegt!!!


2 comments
(Sindri)



12.9.2006 | Debauchery of Shakespearean proportions

Wshakespeare2

Fór í þrítugsafmæli og kveðjupartí um helgina. Bæði voru hið mesta gaman, og vel heppnuð, utan lágmarks-fjörtjóns af völdum atvinnu heimilisleysingja.

Reyndar var helst til vel veitt á báðum stöðum og kallinn varð pínku sósaður.

Mér kom til hugar Macbeth, eftir William Shakespeare. Act 2, scene iii.:



Enter MACDUFF and LENNOX

MACDUFF
Was it so late, friend, ere you went to bed, That you do lie so late?

PORTER
'Faith sir, we were carousing till the second cock.
And drink, sir, is a great provoker of three things.

MACDUFF
What three things does drink especially provoke?

PORTER
Marry, sir, nose-painting, sleep, and urine. Lechery,
sir, it provokes and unprovokes. It provokes the desire,
but it takes away the performance. Therefore, much
drink may be said to be an equivocator with lechery.
It makes him, and it mars him; it sets him on, and it
takes him off; it persuades him, and disheartens him;
makes him stand to and not stand to; in conclusion,
equivocates him in a sleep, and, giving him the lie,
leaves him.

MACDUFF
I believe drink gave thee the lie last night.

---

Já, já. Porterinn er ágætis gæi.


2 comments
(Sveinbjörn)



8.8.2006 | Fjörtjón í lágmarki

BarDagar fóru vel fram og voru ágætlega sóttir af góðmennum hópi fólks. Lítið var um ofbeldis- og nauðgunarverk utan munnhöggs sem kom upp við lítinn hóp ungmenna sem reyndu að smygla sér inn á hátíðina án þess að vera með aðgangsmiða.

Mennirnir kváðust vera að leita að nauðgunarverki og ætla að leiðrétta það með ofbeldisverki, hvað svo sem marka má sannleiksgildi staðhæfinga þeirra.

Eftir að mönnunum hafði verið leiðbeint í átt að Fjólugötu, sem virtist vera upphaflegur áfangastaður þeirra og götuskilti borgarinnar lesin og túlkuð fyrir þá, kvöddu mennirnir með orðum um "að gaman væri að sjá okkur Íslendingana standa saman, þess væri brýn þörf sem mótvægi við hópa innflytjenda af asísku bergi brotnu."

Að öðru leyti var hátíðin öll hin ánægjulegasta, lítið var um fjör-tjón og verður stefnt á að endurtaka hana í það minnsta að ári liðnu, ef ekki fyrr.

wtfxyz

Að öðru leyti langar mig að minnast á ákveðna undrun sem lagðist yfir mig þegar ég hlustaði á lagið XYZ með Boards of Canada af plötunni Peel Sessions. Það sem angraði mig og gerir enn er að John Peel, sem borinn er og barnfæddur í Englandi leyfir sér að kynna titilinn á laginu með því að bera fram Z sem "zee". "zee" er óheflaður amerískur framburður og er ósmekklegur og bliknar í samanburði við "zed" sem er breska útgáfan. Reyndar bjó Peel lengi í Bandaríkjunum en mér finnst það engin afsökun. Manni koma til hugar orð Butch í kvikmyndinni Pulp Fiction:

"Zed's dead, bayby. Zed's dead."


7 comments
(Sveinbjörn)



4.8.2006 | 101 Bardagar

bardagarireykjavik

Hver vill vera memm!?!


7 comments
(Arnaldur)



27.7.2006 | Total Eclipse of Skífan

skifudrasl

Ég gerði mér ferð í Skífuna um daginn. Skífan er verslun með nokkur útibú á höfuðborgarsvæðinu sem gefur sig út fyrir að versla með hljómplötur og annað afþreyingarefni. Skífan er samt ekki verslun sem selur hljómplötur. Skífan er verslun sem reynir af veikum mætti að þykjast selja hljómplötur á verðum sem eru úr tengslum við raunveruleikann.

Eftir að hafa leitað þó nokkra stund að efni sem ég hafði hugsað mér að festa kaup á, kom í ljós að allir fimm titlarnir sem ég bar upp á afgreiðslufólkið voru ýmist uppseldir eða höfðu ekki verið keyptir inn.

Einstotaleclipse

Ég ráfaði um í leit að einhverju bitastæðu en fann fátt, og það var allt verðmerkt með óraunhæfum upphæðum. Loks rakst ég á smáskífu með Einstürzende Neubauten sem ég hef um þó nokkurt skeið rennt hýru auga til, Total Eclipse of the Sun.* Smáskífan kostaði 2.499,- ISK.

Ég spurðist fyrir um hvort hér væri ekki um mistök að ræða en svo var ekki og báru afgreiðslumenn "undarlegri verðlagningu" við.

Ég tók undir það.

Nú geri ég ekki ráð fyrir að við séum ógnvekjandi her fólks, sem myndum leggja okkur eftir smáskífu með Einstürzende Neubauten - ekki margir aðrir sem ég veit um sem eru sérstaklega að safna plötum með þeim. Í því ljósi spyr ég: "Ef ég er ekki tilbúinn að greiða 2.499 krónur fyrir smáskífu með Einstürzende. Hver er þá tilbúinn að greiða 2.499 krónur fyrir smáskífu með Einstürzende?"

Svarið er ekkert sérlega flókið. Það er: "Enginn"

Skífan þarf virkilega að fara að endurskoða innkaupa-/verðlagninga-/lagerstefnuna sína.

einsturzenderedlogo

*(ath. Total Eclipse of the Sun er ekki einhver raritet-runk-smáskífa. Hún er bara venjulegur 4 track smáskífudjöfull.)


8 comments
(Arnaldur)



25.7.2006 | Bardagar í Reykjavík

Jæja, já, já.

Er búinn að vera hálf slappur síðustu tvo daga, og því bara hafst við heima undanfarið og lagt rækt við yfirvaraskeggið mitt, sem er orðið það massíft að ég get ekki lengur tekið sjálfan mig alvarlega þegar ég sé mig í spegli.

Picture 3

Ég myndi setja inn mynd af því en það er ómögulegt, af því að það er svo stórkostlegt að linsan sér það ekki... það og að batteríin í myndavélinni minni eru fucked.

Í raun er það orðið svo mikilfenglegt að það dregur orðið athygli frá fríðum andlitsdráttum mínum, og hef ég því ákveðið að taka þátt í mottukeppninni sem að Maggi Lego vinnur alltaf. Ef einhver veit eitthvað um þessa keppni má endilega láta mig vita hvenær hún er og hvað maður þarf að þekkja marga í GusGus til að vinna

Nú nálgast verslunarmannahelgin óðfluga með hefðbundinni villimennsku og ólátum. Í tilefni af því vil ég stofna til nýrrar úti/innihátíðar í Reykjavík, sem ég kýs að kalla Bardagar í Reykjavík. Áhugasamir skrái sig hér á síðunni.

bloodmoney

Annars reif ég upp hljómplötuna Blood Money með Tom Waits um daginn í tilefni af því að Steini kollegi minn lét sig hverfa til London að raula undir með sýningum á Woyzeck þarlendis. áttaði mig á því hversu mikill gullmoli þessi plata er. Einkum og sér í lagi lagið, A Good Man is Hard to Find. Reyndar er öll platan frekar solid í gegn, sérstaklega textarnir, og mæli ég því með því að fólk drullist til að hlusta á þetta.


11 comments
(Svanur)



11.7.2006 | Tímaþjófurinn

Ég þoli ekki hvernig ég hef engu komið í verk undanfarið. Líf mitt snýst um að vinna, borða og sofa...

Ekkert göfugt við það.


4 comments
(Doddi)



11.7.2006 | Meh...

Vinnan göfgar víst manninn. Þar af leiðandi vil ég meina að ég sé virkilega göfugur maður.

Reyndar er annað sem ég hef tekið eftir í sambandi við vinnu. Og það er að vinnan gerir manninn leiðinlegan og mónótónískan. Ég hef til að mynda ekkert merkilegt fram að færa á þessum tímapunkti í lífi mínu annað en það að ég er orðinn semi-slyngur í að óperera hjólaskóflu, en sökka ennþá jafnmikið á beltagröfu. Það íróníska í því öllu saman er að ég hef réttindi til að stofna lífi og limum fólks í voða með spastískum hreyfingum mínum á beltagröfunni, en má eignilega ekki vera á hjólaskóflunni.

Vá, ég er meiraðsegja að gera sjálfan mig leiðan með að skrifa þetta.

Mig vantar spennu í líf mitt...

Ég er farinn að horfa á Gilmore Girls


3 comments
(Margrét)



28.6.2006 | Desperate Houseman

Hmmm...

Gerist það mikið betra?

  • Búinn að ryksjúga allt pleisið, og bílinn, og skúra.
  • Þvo allan fataskápinn minn eins og hann leggur sig (utan tveggja buxna).
  • Vaska allt upp sem hægt er að leggja sér til munns af og gott betur.
  • Henda öllu útrunnu fæði úr ísskápnum.
  • Taka skelfilega vel til.
  • Hreinsa hina ýmsustu hluti sem kölluðu á hreinsun (espressovél, brauðrist, klósett, vaska ofl.).
  • Skipta á perum og öryggjum þar sem það var þörf.
  • Herða lausar skrúfur hér og þar.
  • Hófst handa á tiltekt í bílskúr.

Ef Stalín hefði gengið svona vel með hreinsanirnar sínar, þá værum við öll talandi rússnesku í dag.

Þeim sem vilja koma í heimsókn í hreinlætisríkið Arnaldíu er það velkomið að vinnudag loknum.


6 comments
(Sveinbjörn)



27.6.2006 | Sigló er nóg

siglologo2

Ég er farinn á Þjóðlagahátíð á Siglufirði...

...vill einhver koma með?

Hver veit nema maður nái sér í eina síld eða tvær.


3 comments
(Halldór Eldjárn)



21.6.2006 | Bonus Pater

Já, lífið leikur sannarlega við mann þessa dagana. Fékk skeyti þess efnis að ég hefði verið hækkaður upp um 0,5 í kúkafaginu aðferðafræði, which was nice. Komst svo að því þegar ég skoðaði tölfræðina fyrir Rannsóknir að ég var temmilega ofarlega á skalanum, which was also nice.

Svo er bara að sækja nýja vélavinnuskírteinið mitt á morgun.

Er hægt að biðja um meira?


6 comments
(Sveinbjörn)



18.6.2006 | Drykkju-Móri

Ég var að hitta mann, sem gengst við nafninu Dykkju-Móri. Hann er ömurlegur og á enga samleið með mannvininum og góðmenninu Arnaldi.

Verum góð við Arnald í dag, hrekjum Móra á brott.




17.6.2006 | 17. Júní, HSÍ og allt hitt...

Vaknaði þunnur, fór á leikinn og það var eins og að stáli væri í mig slegið. Djövulli var þetta magnað. Guðmundur Kristján Jónsson fær heiðursnafnbótina snillingur fyrir boðið.

By the way, afhverju er ekki seldur bjór í Höllinni? Það myndi auka ánægjufactorinn af þessari annars stórskemmtilegu skemmtun um svona 32,56%. Reyndar myndi það líka stefna lífi Dómaranna í mikla hættu, en það verður ekki bæði haldið og sleppt. Það færi dómarafíflinu bara ekkert illa að fá sér make-over frá útfararstjóra.

En nei, annars ætlaði ég að vera búinn að minnast á að færslan hér að neðan var nú meira hugsuð á gamansömum nótum. Ekki sem ísköld staðhæfing um að mér fyndist kaffiheimsóknir vera hinn eini sanni mælikvarði á manngæði. Ég nefni þetta nú bara af því að einverjir virðast hafa tekið þetta of alvarlega. Hér með er það leiðrétt.

Annars vil ég bara bjóða fólk velkomið í kvöld til að drekka með mér bjór og hafa það huggulegt í faðmi manngæðisins Arnaldar.


2 comments
(Arnaldur)



13.6.2006 | Grasekkjumaður

Ég verð einn í kotinu frá og með miðvikudegi. Sökum hudgarmsins, verð ég mikið til fastur heima við utan vinnu, og vil ég því bjóða velgjörðarmenn velkomna á heimilið í kaffi og með því að vinnudegi loknum.

Nú verður gaman að sjá hverjir eru vinir manns.


7 comments
(Ari Eldjárn)



12.6.2006 | Ain't no sunshine when she's gone

Ég verð bara að leyfa mér að tjá mér um hversu ótrúlega skull veðrið er þessa dagana. Og með því á ég við síðasta einn og hálfan mánuð eða svo. Þetta er ótækt og ég mótmæli allur. Alltént vil ég fá karmíska endurgreiðslu.




Sumrinu 2006 aflýst!


sökum dræmrar þáttöku


1 comments
(Sveinbjörn)



12.6.2006 | Konar

Ég hef mikið velt fyrir mér orðinu -konar, í kjölfar samtals mín og Sveinbjarnar. Til að fólk glöggvi sig almennt á því sem við er átt hér, þá á ég við -konar, í orðum á borð við: allskonar, hverskonar, ýmiskonar.

Þeir sem að telja sig hafa einhverja skýringu á reiðum höndum, mega endilega tjá sig.




11.6.2006 | Útileigumenn brugga ráð á laun

camerapat

Fór í útileigu um helgina með Lindu sem var hið besta mál. Aðrir mögulegir og ómögulegir þáttakendur í þessari ævintýraferð urðu miðnætursólborgardjamminu að bráð, og er það vel. Ferðin var öll hin ánægjulegasta fyrir utan örlítinn lífsháska á tímabili og síðbúið myndavélarrán sem Linda þurfti að fórna ótrúlega sexí, nice, fallegu, góðu myndavélinni sinni í. Málið er enn óupplýst, en þykir hið undarlegasta í ljósi þess að töluvert var af hnossi í bifreiðinni sem ráðist var til atlögu á.

Persónulega hef ég eina þá mestu furðuveru, sem ég hef augum litið í seinni tíð, grunaða. "Maðurinn" sem um ræðir er c.a. 17-18 ára ung"menni" sem bar með sér ákveðið yfirbragð kvikmyndapersónunnar It's Pat, fyrir utan það að tala með aðeins minna unambigous rödd og það kvikindi.
Alltént syrgi ég nú myndavélina hennar Lindu með henni og þær ágætu myndir sem á henni voru. Við vonum að þetta mál verði leitt til lykta sem allra fyrst og að justice will move swiftly.


1 comments
(Sveinbjörn)



7.6.2006 | Kílómetrar afmældir

angelheartlouie

Já, á degi kölska í gær (þeim numerically significant degi), varð mér litið á kílómetramælinn á bílnum mínum. Ekinn kílómetrafjöldi var 230381 km. Fæðingardagurinn minn er 230381. Það var mér því bæði afskapleg gleði að taka eftir þessu (þar sem að ég lít annars aldrei á þennan mæli) og álíka hryggjandi að keyra fram úr fæðingardeginum mínum og horfa á afmælin mín í gegnum árin renna hjá. Svona þarf nú lítið til að gleðja/hryggja litla sál.

Sem stendur er ég 13 ára, samkvæmt kílómetramælinum á bílnum mínum. Kannski ég keyri hann í nokkra kílómetra í viðbót, 13 var hallærislegt ár fullt af gelgju og hormónum.

Ég reyndi nú að festa þennan merkilega viðburð á filmu en náði held ég ekki nógu góðri mynd á símadraslið mitt. skelli því upp ef ég kemst í Bluetooth við tækifæri.

Annars komst ég eiginlega að þeirri niðurstöðu að ég hlyti að vera afsprengi kölska (á la Omen) og að bíllinn minn væri Satanmobile. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.

Annars er kallinn bara sáttur eftir að hafa frétt að kempan hann Rikki hafi komið Pel-Job (vinnuvélin sem ég rústaði í gær) í gang á ný...

Lengi lifi draslið Pel-Job

Jæja, ég nenni þessu ekki. Ég sé Stein Linnet í gegnum gluggan. I'm out.


2 comments
(Sveinbjörn)



6.6.2006 | Veltins

veltins

Góðan og blessaðan djövulsins daginn. Belsebúb er strax farinn að angra mig á þessari grábölvuðu dagsetningu 06.06.06. Rétt í þessu tók hann sér bólfestu í líkama mínum og velti vinnuvél í vinnunni með þeim afleiðingum að hún rústaðist. Núna er Arnaldur mjög framlágr og illa haldinn af visku sambiti.

R.I.P. Pel-Job


2 comments
(Arnaldur)



1.6.2006 | Trópí

Jújú, þá er maður farinn á Trópí. Í fyrsta sinn á ævinni er ég ánægður með að vera í viðskiptum við KB-kúk. Reyndar man ég að ég gladdist mjög yfir Vaxtalínu fílófaxinu sem að ég fékk að gjöf þegar ég gekk fyrst til liðs við Búnaðarbankann heitinn. Síðan þá hefur þetta bara verið a downward spiral of disappointment. En í dag fékk ég 2000,- ISK afslátt af miðanum mínum á Reykjavík Trópík. Hver veit nema að maður mögulega haldi áfram að láta KB punda sig - að ég tali nú ekki um ef að þjónustubellinum tekst að ná prikinu úr rassgatinu á sér.

Reyndar vil ég aðeins lýsa yfir vanþóknun á þessu ananasþema, en eins og allir vita er ananas ávaxtabarn djövulsins. Hvað er næst? Mintutyggjóþema?

Að lokum er mér spurn hvort að einhver sá Kastljósið? Það var gaman að sjá hvernig enskumenntun grunnskólanna skilaði sér í viðtali Ragnhildar Steinunnar við vísindamanninn Neal Copeland. Þar tönglaðist stúlkukindin á orðskrípinu mouses í merkingunni mice. Eða var hún kannski að tala um Móses allan tímann?


5 comments
(Arnaldur)



25.5.2006 | Anti-Gravity Beauty Queen

unnurfallin

Ég er búinn að horfa á þetta endalaust í allan dag, og ég get alveg horft meira á þetta og hlegið innilega og gleðst sannri þórðargleði. Það er eitthvað svo gefandi að sjá fallega fólkið fokka hlutunum upp. Jújú, það er víst ekki nóg að vera sætur. Maður þarf nú víst líka að kunna að labba.

Annars tek ég auðfúslega við því verkefni að stappa smá stáli í stelpugreyið...

...bleiku stáli (in the words of John Hughes).


3 comments
(Baldur)



23.5.2006 | Baby Seal Bay and Garden Town

Stbellalien

Já, ég verð eins og svo margir aðrir að benda á snilldina sem hann Baldur T er. Það virðist vera vinsælt að gera alien-orienteraðar skopmyndir þessa dagana. Steve Bell kom með þessa um daginn. Ég verð að segja að ég er að fíla þetta trend, enda Alien ekkert nema snilld.

Annars er ekki beinlínis margt að frétta. Er bara búinn að vera bera gras og grjót á landamærum Kópavogs og Garðabæjar. Sem er skelfilegt í þessu ótímabæra vetrarviðri þessa dagana. Ég græt drullu á kvöldin og varirnar á mér eru orðnar eins og sandpappír af öllu þessu moldarryki. Þeir sem að eru hugaðir geta séð mig uppi á brú í skær-appelsínugulu vesti að svitna/skæla. Þá virðist vera til siðs að brúka bílflautuna sína og helst hreyta í mann ónotum. Já, fólk í umferðinni á stór-Reykjavíkursvæðinu eru miklir fávitar. Þetta er samt fínt. Og verður bara betra eftir því sem veðrið verður eðlilegra. Maður er strax orðinn aðeins harðari og ekki jafn linur og maður óhjákvæmilega verður á því að skíta í 9 mánuði.

Að lokum vil ég tilkynna að ég mun að öllum líkindum drekka bjór á fimmtudaginn. Þá má fólk bítast um minn frábæra félagsskap.


5 comments
(Arnaldur)



18.5.2006 | Wiener dos

And the wiener of quiz doth, is....

Árni!!!

Til hamingju Árni, og takk fyrir þátttökuna.


4 comments
(Sveinbjörn)



17.5.2006 | Getraun 2

Þar sem að fólk virðist vera svo illa clued on...

Úr hvaða bíómynd er quote-ið:

"Well, I guess it comes down to two things: Get busy livin' or get busy dying."

Verðlaun í boði!


3 comments
(Sveinbjörn)



16.5.2006 | Um próflestur og annað smálegt

Hehehe... ég rakst á þessa stórskemmtilegu mynd hjá Baldri, sem að mér finnst endurspegla frekar vel próflestrarháttum mínum. Annars er ég nú þannig séð eiginlega búinn í prófum. Ég þarf bara að skrifa orð á tölvu og senda með tölvupósti. Ég bara nenni því ekki. Usss.

Well, I guess it comes down to two things: Get busy livin'...

...or get busy dying.


5 comments
(Arnaldur)



15.5.2006 | Vinna er böl drykkjustéttarinnar

Ég fer að vinna á miðvikudaginn. Því miður ekki í happdrætti eða lottó. En það er samt allt í lagi. Fínt að vinna og eiga pening. Hvernig ætli að það sé samt fyrir fólk sem vinnur í Happadrætti HÍ eða lottóinu? Hvað ætli það sé búið að segja/heyra brandarann: "Ég vinn í Happdrættinu!" eða "Hvað, ég frétti að þú ynnir í lottóinu.

Þetta er ekki mér að kenna...

I broke my funny bone.


4 comments
(Sveinbjörn)



14.5.2006 | ÖkuEyþór

Það hefur verið fundið upp nýyrði á Íslandi. Ökueyþór er maður sem að er ölvaður undir stýri og keyrir niður ljósastaura. Flýr svo helst af vettvangi.


4 comments
(Arnaldur)



12.5.2006 | Can't Get The Message From A Black Man!

The Lord Be Praised!

Undanfarna 5-6 mánuði hef ég on and off verið að obsessa yfir lagi með The Invaders af plötunni Spacing Out. Málið var sumsé að mér fannst ég hafa heyrt ákveðinn kafla úr laginu Can't Get Next To You, annars staðar. Er þetta búið að vera að éta mig að innan að geta ekki pinpointað hvar ég átti að hafa heyrt þetta ákveðna stef.

Í dag opnuðust svo loks augu mín. Eða eyru öllu heldur. Allt í einu fattaði ég að þessi ákveðni kafli kemur í mjög svo greinilega í laginu Message From A Black Man á plötunni Shorty The Pimp með Don Julian and the Larks.

No matter how hard you try, you can't stop me now!

Ég mun uploada þessum respective lögum á næstunni þegar ég verð ekki á dial-up tengingu.




9.5.2006 | Buhuhuhuhu

Arnaldur er spældur og illa fyrirkallaður


8 comments
(Sveinbjörn)



8.5.2006 | Firefoxxx

firefoxlogo

Grrrr... Afhverju virkar firefox ekki rétt? Ég get ekki fengið rétt text-encoding til að virka. Séríslenskir stafir verða bara að drasli. Sem er frekar glatað. Ef einhver hefur rekið sig á þetta bögg má hann endilega láta mig vita og laga, laga.

Annars er klukkan núna 6.28 um morgun og mér líður reyndar furðulega vel, en er farinn að gera skuggalega margar innsláttarvillur og aðra asnalega hluti. Það fer að styttast í sjóntruflanirnar.

Að öðru leyti verð ég að segja að það er dáldið merkileg upplifun, finnst mér, að vera einn inn í Odda og fylgjast með þegar birtir af degi. Ég er voðalega mikið að ímynda mér að þetta sé marmarahöll sem ég búi í og hafi tekið meðvitaða ákvörðun um að innrétta á frekar stofnanalegan hátt. Millionaire eccentric pakkinn.

Annars þótti mér synd að horfa upp á öryggisvarðastúlkuna áðan leggja í fatlaðra-stæði. Ég veit að klukkan var 4 um morgun, og það var enginn á ferli, en á hverju eigum við von næst, þegar hinn leigði armur laganna er farinn að fremja svona hrapaleg stílbrot?

Jæja, ég ætla að hætta þessu rausi og fara að flýja inn í draumalandið. Svo er planið bara að leggja sig í 3 tíma og reyna að umbreyta útliti mínu (sem er í núverandi ástandi eitthvað í líkingu við þrútinn illa lyktandi svamp), í eitthvað sem að særir ekki svona augljóslega fegurðarskyn lítilla barna og smáhunda.

Það væri nú samt dáldið skemmtilegt flipp að leggja sig hérna á marmaranum. Sjá hvað fólkið segði þegar það mætti eftir 1-2 tíma. Hehehe. Skítugur Arnaldur í stuttbuxum á gólfinu.


5 comments
(Doddi)



5.5.2006 | Prófa leiðindi

Blehh....

Mér finnst þessi tími lífsins alltaf jafn glataður. Afhverju getum við ekki bara komið okkur endanlega saman um að ég sé fluggáfaður og yfirburða manneskja í alla staði, í stað þess að þurfa endalaust að leggja þetta helvítis prófastress á mann?


4 comments
(Sveinbjörn)



25.4.2006 | Stúdentablaðið?

Ég gluggaði í gær í nýjasta eintakið af Stúdentablaðinu. Ég hafði nú tekið eftir því áður að blaðið bar með sér ákveðna vinstri slagsíðu en undur og stórmerki: Við mér blasti sá hinn mesti róttæklingableðill sem ég hef lengi séð. Við erum að tala um efni sem fékk sósíalistann og mannvininn Arnald til að blikna.

Er það sniðugt?

Ég les ýmis blöð og tímarit. Sum með meiri pólitíska slagsíðu en önnur. Almennt reyni ég þó að bíta á jaxlinn og balance-a þetta út með að lesa eitthvað úr öllum áttum.

Er það samt hlutverk Stúdentablaðsins að vera einhvert "rautt kver" í reykvísku háskólasamfélagi? (Eða ultra-pólitískt málgagn úr hvaða átt sem er?) Hver velur líka eiginlega þetta fólk sem stendur fyrir þessu blaði?

Eflaust þætti mér þetta þó ekki svona mikið tiltöku mál ef að greinarnar í blaðinu væru ekki svona illa skrifaðar. Nú geri ég mér grein fyrir því að próf eru á næsta leiti og það tekur eflaust tíma frá aðstandendum blaðsins. En það þykir mér engin ástæða til að henda allri rökhugsun og lágmarks coherence út um gluggan.

Það virðist vera sama í hvora áttina þú ferð á hinu pólitíska spectrumi. Ef þú ferð nógu langt breytast rök í kúk og samhengi í gubb. Og þegar þú ert farinn að æla og skíta í staðinn fyrir að ræða og skrifa þá hættir fólk að hlusta á þig.

______________

Hehehe. Í leit minni að þýska orðinu yfir jakkaföt fann ég þessa síðu sem fjallar um tóbaksfíkn Þjóðverja. Og hvaða tóbakstegund er það sem fer fremst meðal jafningja á þeirri síðu (allavega samkvæmt myndinni)?

Jú það er Roth Händle. Viðbjóðssígaretturnar sem Sveinbjörn og ég vorum að barma okkur yfir fyrir skemmstu.

It's official Roth Händle eru mestu viðbjóðssígarettur í heimi.


14 comments
(Sveinbjörn)



24.4.2006 | Wir Kinder vom Bankhof Anzug

Ó, nei.

Börnin í jakkafötunum koma sér upp enn einu málgagninu.

Jamm, það var hann Stígur sem að var að brjóta heilan um þetta.


2 comments
(Einar Örn)



24.4.2006 | Myndir

Veiii. Jæja, loksins búinn að skella upp myndunum úr afmælinu mínu. And not a moment too soon.

Virðist þessi skrýtnu skilaboð sem ég fékk frá Transmit hafi verið eitthvað bull.

Enjoy, biatchesss!!!


2 comments
(Sveinbjörn)



23.4.2006 | Arnaldur í Buttercup

Ég er dáldið pirraður núna. Reyndi að skella upp myndum úr afmælinu mínu. En í staðin virðist ég hafa deletað fullt af file-um út af servernum. Hið undarlegasta mál alltsaman. Annars kæmi mér ekkert á óvart ef að þetta væri bara eitthvað rugl. Netið virtist vera í algeru fokki niðrí skóla í dag.

En talandi um afmæli, þá fór ég í eitt slíkt á miðvikudaginn. Það var hjá Össa 7berg. Einstaklega kærkomin lífsreynsla, og vil ég þakka gott boð.

Annars er böl drykkjumannsins, vinnan, bara búin að hvíla þungt á mér yfir helgina. Lyfti mér þó aðeins upp á Laugardaginn. Hitti Sveinbjörn og Alla og féngum okkur smá bjór og reyndum að fá inni á elítista skemmtistöðum bæjarins.

Fór reyndar í lítið partý á Eggertsgötu á föstudaginn, en það telst eiginlega ekki með, þar sem að ég mætti seint og drakk lítið sem ekkert og fór snemma heim eftir einn bjór á Dillon. Skemmtilegt samt og áminningar vert.

Að lokum vil ég segja að ég skil ekki þessa últra-fascination sem að allir sem að ég tala við virðast vera með á þessari söngkonu sem er að fara að syngja með Garðari Thor Cortes, Catherine Jenkins. Það eina sem ég heyri þessa dagana eru setningar á borð við: "Tjah, hún er nú voða lagleg þessi breska!" eða "Já, þær eru nú ekki margar sem að geta þetta...Litið svona vel út og sungið svona fallega!". Ég veit ekki, mér finnst hún nú bara ekkert skara neitt það mikið fram úr á hvorugu sviðinu.

Allavega. Önnur slightly tilgangslaus nöldurs-athugasemd. Í dag fór ég í bíó á Bamba 2. Mér finnst þetta algert gaun. Ég man þegar ég var lítill. Þá hétu myndirnar frá disney bara Bambi, og Robin Hood og Little Mermaid eða Alladin. Núna heita þær allar 2 eða 3. Hversu glatað er það. Ég sé þetta fyrir mér sem blaðaviðtal:

"Hver var defining teiknimynd bernsku þinnar?"
"Jú það var, The Sword in the Stone 3, Arthur finds a turnip"

Hvað varð um að framleiða orginal hluti?

Annars gef ég Bamba 2 það að hún er frekar góð, albeit stutt. Kallinn varð bara hrærður nokkrum sinnum. Verð að hætta að bryðja þetta estrógen!


3 comments
(Sveinbjörn)



19.4.2006 | Leti

Ég er latasta mannvera sem ég þekki.

UPPFÆRT:
No wait, mér detta strax í hug nokkrir sem gætu mögulega verið latari en ég. Og þökkum guði fyrir það.


11 comments
(Halldór)



16.4.2006 | Páskae

Jámm, gleðilega Páskae. Megi blóð Jesú hreinsa syndir ykkar og forða ykkur frá logum vítiselda.


4 comments
(Níels)



13.4.2006 | Ussussuss

Já, ég er latur eftir gærkvöldið. Steven félagi er í heimsókn. Og ég er þreyttur og búinn að týna fullt af drasli á djamminu. As one does. Ég er meiraðsegja svo latur að ég nenni hvorki að skrifa meira, né fjarlægja Imdb top 250 linkinn neðst á síðuni minni, sem að mér skilst að sé mikil pína fyrir marga að horfa á og særi fagurfræðilega blygðunarkennd þessa sama fólks.


2 comments
(Arnaldur)



11.4.2006 | Arnaldur Aristókrati

Já, ég viðurkenni það fúslega. Mér þætti það vera hið almennilegasta fyrirkomulag ef ég gæti verið aristókrati með minn eigin litla her af þjónustufólki. Allar tillögur um hvernig má koma þessu í kring, vel þegnar.

mefootman

Sömuleiðis þætti mér gaman að heyra hvaða hugmyndir fólk hefur um hvaða tímabil mannkynssögunnar hafi verið best fyrir aristókratisma. Þ.e. hvenær það hefði verið best að vera aristókrati. Og munið að skert civil liberties almúgans haldast ekki algerlega í hendur við aukin lífsgæði aristókratans. Þetta er mjög careful equation af subserviant peasantry og technological advances.

Hmmmm...


3 comments
(Sveinbjörn)



10.4.2006 | Cream git tha money!

Mér langar að vinna í Víkinga lottóinu. Það væri alveg hreint ágætt. Þá myndi ég kaupa mér hamborgara á Vitabar með ÖLLU. Svo myndi ég eigra um jarðkringluna í reiðileysi í nokkur ár. Áhyggjulaus með ÖLLU. Hugleiða svo kannski íbúðakaup. Usss. Draumhyggja og vitleysa.

En svona öllu gamni sleppt, þá stend ég í þeirri meiningu að ég hafi fæðst á vitlausum stað og tíma. Það liggur eitthvað svo augljóslega í augum uppi að ég átti að verða aristócrati, seint á 16. öld. Hvass, en réttlátur. Svo hefði ég leyft pesöntunum mínum að fá heilan frídag á ári til að dást að mér.


3 comments
(Arnaldur)



7.4.2006 | Glatað

Ég er einn heima, og mig langar að senda eftir mat. Helst kínamat. En það er bara hægt að fá Domino's eða eitthvað svolei...

Stoppum aðeins. Af hverju er ekki einhver sóðalegur kebab staður við hliðiná mér? Afhverju kosta pizzurnar á þessu landi 300.000 milljónir? Af hverju? Ég sakna Danmerkur.


2 comments
(Þóra Marteins)



5.4.2006 | Ma

Undanfarna daga hef ég spilað mikið Scrabble, bæði á íslensku og ensku, aðallega við Sveinbjörn. Núna nýlega kom upp mikið og erfitt deilumál í enska Scrabble þar sem Sveinbjörn vildi fyrir alla muni hleypa orðskrípinu Ma (í merkingunni Mother) á borðið. Fyrir þetta hafði ég almennt litið á Sveinbjörn sem mikinn unnanda enskrar tungu og frammámann í skrifum á þeirri tungu hér á landi. En eftir þetta er ég ekki alveg viss. Nú er reyndar hægt að skilja rökfærslu Sveinbjarnar, þar sem að Ma kemur fyrir í einhverjum orðabókum. En lítum á staðreynd málsins. Ma er ekki enska. Ma er bara eitthvað sem ósiðmenntað fólk í útkjálkasamfélögum hins enskumælandi heims lætur upp úr sér við hinar neyðarlegustu aðstæður. Það og Kínverjar. Ég bið þess innilega hvern einn og einasta dag að ég muni aldrei þurfa að neyða þessu óhljóði upp á eyru mín áður en ég get lagst rólegur í gröfina fullsaddur lífdaga minna.

Tökum höndum saman, eyðum misskilningnum. Útrýmum orðskrýpinu Ma.


11 comments
(Steinn)



4.4.2006 | Á?

Íslenska tungan getur oft á tíðum verið skemmtilega magnað fyrirbæri. Í manískri Scrabble-spilun undanfarinna daga hef ég áttað mig betur og betur á þessu. Ég minntist þess vegna skemmtilegrar setningar sem ég heyrði fyrir einhverjum árum og vakti mikla hrifningu mína á þeim tíma. Hún er eftirfarandi, og sýnir hversu skemmtilega afkáralegt þetta annars ágæta tungumál getur tekið upp á að vera:


Ási á Á á á á á.


img

M.ö.o. Hann Ási, sem er ábúandi á dreifbýlissetrinu Á, telur til sinnar eignar, kind, sem í þessu tilviki er staðsett á fljóti (og þá vonandi á einhverskonar báti eða pramma).

Það er rétt. Það er um að gera að vera ekkert að flækja málin með óþarflegum samhljóðum. Engu að síður verður maður að velta fyrir sér hvað blessuð útlendingsgreyin kunna að halda þegar þau sjá jafn undarlega orðaða setningu sem þessa. Og ég hélt að finnska væri skrýtin.

grey, -s, - H 1 tík, hundur. 2 garmur, ræksni; (líka hálfgert gæluorð); skinn, hró: komdu g-ið, gerðu það fyrir mig, g-ið mitt.

Þegiðu eða ég grey-löðrunga þig!

svefngalsi, -a K gáski, ofsakæti, ég þjáist af s-a einmitt núna...


2 comments
(Hjalti)



2.4.2006 | Weekend Report

Vinna - Afmæli - Árshátíð - Partý - Shut-in - Almenn dópamín framleiðsla...

...og gleði.




29.3.2006 | Apple vs. Apple




28.3.2006 | 75 Bands

Snillingurinn Svanur Pétursson lét mér í té þessa stórmerkilegu mynd sem ég er búinn að vera að glápa á í langan tíma. Á myndinni ku maður víst geta fundið nöfn 75 hljómsveita. Sumsé ein heljarinnar risastór myndgáta, sem fær þessa í Mogganum um áramótin til að fara að skæla.

Smellið á myndina til að sjá hana í réttri stærð.



Hmmm... njótiði vel, og látið mig endilega vita hvað þið finnið þarna, ég er kominn með White Zombie, Smashing Pumpkins og sitthvað fleira.


26 comments
(Svanur)



28.3.2006 | Muzick

Já, jæja, búinn að encode-a og upload-a báðum lögunum. Þannig að hér eru þau. Gerið þið svo vél.

Naldo (an artist's portrait) eftir Mondeyano

Arnaldur eftir Bigga og Hrein

Skelli inn myndum innan skamms, þegar ég er kominn með betra forrit til að generate-a gallery.




27.3.2006 | Happy Birthday Motherfucker!

Úfff... Þá er árshátíð Arnaldar yfirstaðin og heppnaðist hún bara frekar nokkuð vél. Allavega heyrðist mér á fólki að það hefði verið ánægt með veisluna. Og nema að þetta fólk sé að ljúga að mér, þá hlýtur hún að hafa verið ánægjuleg.

Það var margt um góðan manninn á laugardaginn og ég fékk margar góðar gjafir. Reyndar langaði mig til að deila einni þeirra með lesendum. Það er lagið Naldo (I presume it's called that) eftir listamanninn Earl Mondeyando. Ég fékk reyndar annað afmælislag, en ég gleymdi því heima og gat þessvegna ekki uploadað því. Það var líka töluvert meira Avant Garde

Naldo (an artist's portrait) eftir Mondeyano

Annars vil ég bara þakka öllum fyrir komuna og vona bara enn og aftur að fólk hafi skemmt sér konunglega. Ég veit allavega að ég gerði það.

Að lokum vil ég linka á alveg mega pirrandi kóreiskan tölvuleik sem ég rakst á um daginn og hefur tekið upp töluvert af tímanum mínum undanfarið:

Finnið smárann

Jamm svo ætla ég að setja líka screenshot af Washington Post sem ég tók. Myndin er af val-lista sem birtist við hliðina á fréttunum sem maður les. Þar býður WP manni að skoða hvað venjulegu fólki úti í heimi finnst um málið, sem fréttin fjallar um. Og ég bara spyr... Who gives a flying fuck!?! Ég veit ekki, þetta er kannski nice gesture. Mér finnst þetta bara vera kjaftæði. Það á bara að láta þetta pseudo-intellectual concerned political do-gooders lið vera og þá kannski hættir það að vera með ljótar og leiðinlegar "blog" síður.

img

5 comments
(Arnaldur)



24.3.2006 | Ohhh, just some champagne, darling!

Já, í gær var mos def viðundurlegur (d. vidunderlig) dagur. Kláraði að mestu leyti mesta sköll-fuck verkefni sem ég hef þurft að vinna, ásamt Sunnu og Elmari, sem gáfu mér köku og bakaríshádegisverð í afmælisgjöf.

Svo kom mamma með meiri köku og bauð mér svo út að borða á Skólabrú. And damn, that shit is tiiiight. Borðaði einhverja humargeðsýki og lambakjötsnammi. Og svo var bara kampavín og nice-heit. Smakkaði í fyrsta sinn á ævinni Pol Roger kampavín, sem ég reyndar hugleiddi að kaupa um jólin, og ég verða að segja að ég sé nú næstum bara eftir að hafa tekið Mumm & Co. flöskuna í staðin. Hefði átt að hlusta á Palla.

img

Það sem kom mér samt mest á óvart var að ég fékk eftirrétt "on the house, " sem ég hélt að væri bara gert á Hard Rock og svoleiðis stöðum. En það var damn nice. My comliments to the chef.

Allavega svo bara almennu bjór bjór chill eftir það með skemmtilegu fólki.

Svo er það bara "The Big Push" á morgun. Er búinn að setja saman Megatron partý sem að myndi fá Optimus Prime til að short circuit-a, af því að hann myndi verða mannlegur og fara að gráta en vélbúnaðurinn myndi ekki höndla álagið. Nei, en ég held allavega að ég hafi outdone myself í þetta skipti.

Allavega, þá vil ég hvetja fólk til að mæta, og þeir sem að tóku sér tíma til að commenta við síðustu færslu eru sérstaklega velkomnir. Hmmm... málið er samt að ég man aldrei almennilega hverjum ég býð þannig að fólk verður bara að mæta og ekki vera fúlt þó að ég hafi ekki hringt persónulega í það. And also þá eru allar stelpur líka mega velkomnar. Það er svo gaman að hafa estrógen og brjóst í kringum sig þegar maður er fullur.


3 comments
(björn ingi)



23.3.2006 | Afmæli v. 2.5.0

img

Já, þá er maður bara búinn að fylla heilan kvart. Til hamingju með afmælið elsku barnið mitt...

Mega partý á laugardaginn. Allir sem mér þykir vænt um velkomnir.


27 comments
(Niels)



21.3.2006 | New and Improved Naldo Puffs


10 comments
(Árni)



21.3.2006 | Leti og Apathy

jájájájá.... Kominn heim frá útlöndum fyrir þónokkru síðan.

Búinn að vera að djöflast í ýmsum öðrum projectum. Eða reyndar ekki, bara búinn að vera latur. Ég vil í því skyni biðja lesendur afsökunar á að þvinga andliti Hr. Cosbys upp á þá í lengri tíma núna.

Annars er ekki margt að segja frá akkúrat núna. Ég er nefninlega að búa mig andlega undir það að verða 25 vetra gamall íslenskur karlmaður. Það gerist á fimmtudaginn og þeir sem vilja halda upp á harmleikinn með mér er velkomið að gera svo á laugardaginn, en þá verður heiðursmannasamkoma í Laufási.

Meira seinna...




6.3.2006 | (Empty title)

Hmmm... Einhverra hluta vegna virðist sá misskilningur hafa komið upp í tengslum við síðustu færsluna hérna að ég væri kominn til Íslands. Þetta eru ranghugmyndir af verstu gerð. Ég er nú staddur í heimsborginni Kaupmannahöfn, í Vanloese nánar tiltekið, og kem ekki heim aftur fyrr en á fimmtudaginn.

img

Við nánari skoðun sé ég ýmislegt sem kann að vekja umhugsun í færslunni að framan með tilliti til ranghugmynda lesenda. Ég geri ekki ráð fyrir að það sé mikill snjór og kuldi heima í augnablikinu, til að byrja með. Þar að auki tel ég ekki að það geti talist fréttnæmt að sitja við hliðina á íslenskri stúlku í flugi milli Kaupmannahafnar og Íslands. Því þykir mér rétt að benda á, og ástæðan fyrir því að ég minntist upphaflega á það hér að framan, að mér finnst það magnað að einu tveir Íslendingarnir (að öllum líkindum), í morgunflugi milli LON og CPH, skyldu lenda í sæmu sætaröð. Það er greinilega ekki þverfótað fyrir Íslendingum í Evrópu um þessar mundir.

Annars er nú ekkert sérstaklega merkilegt sem ég vil minnast á hér, fyrir utan nýja þætti sem ég rakst á og heita "House of Cosbys". Þættirnir fjalla um gaur sem að elskar Bill Cosby svo mikið að hann klónar hann og endar með hræðilega Multiplicity stemmingu heima hjá sér. Bill er víst eitthvað óhress með þessa þætti og það er orðið smá vesen að finna þá en þessi gaur er með þá alla saman. Alveg klikksins vert.

img

7 comments
(Sunna & Elmar)



5.3.2006 | (Empty title)

Mér þykir vænt um Kaupmannahöfn. Hér þekki ég mikið af góðu fólki. Það er ekki laust við að undanfarnir dagar hafi vakið með mér út-heimþrá.

Hmmm... hlutir sem ég gæti talað um hér...

Vesenið sem það var að komast frá Liverpool St. Station til Stansted Airport.

Vesenið við að komast að hliðinu á Stansted eftir að eldvarnarkerfið fór í gang á flugvellinum.

Fallegu íslensku ballerínustelpuna sem sat við hliðina á mér í fluginu, í íslendinga-dauðasætinu eins og ég vil kalla það. (Hafið í huga hversu ólíklegt það er að sitja við hliðina á landa sínum í álíka flugi.)

En það sem að mig langar til að tala um er ekkert af þessu. Mig langar fyrst að segja að það var alger fokking vangefnlingur sem að hannaði sætin á dönsku metro-stöðvunum. (Sætin á dönsku metro-stöðvunum eru járnspjöld sem er búið að halla í 45 gráður á 140 cm háum járnstöngum).
Næst vil ég segja að gamlar danskar konur eru beinlínis ógnvænlegar. Þær titra og opna og loka munninum eins og fiskar og gefa manni konstant illt auga.

Svo vil ég segja að ég skil núna hversvegna ég hef aldrei getað óríenterað mig almennilega um London, eins ratvísan og ég annars tel mig vera. Það er vegna þess að ég hef alltaf notað Underground-ið. Að nota Underground-ið gerir það að verkum að maður poppar bara upp einhverstaðar og hefur engar viðmiðanir með hvaðan maður kom eða hvert maður fór. Strætó í London er alveg málið!!!

Annars er ég impressed. London er búin að taka upp "Oyster-card" system í tengslum við almenningssamgöngur. Þetta system er það sama og "Suica" system-ið í Tokyo, sm er mjög impressive. (Maður greiðir kredit inn á segulkort, sem maður leggur upp að þar til gerðum sensorum til að nota kerfið. Sensorarnir sjá svo um að draga frá viðeigandi gjald fyrir hverja ferð.)

Annars er það eina héðan að hér er alltaf snjór og kalt. Sem er glatað. En hér er líka alltaf skemmtilegt fólk sem vill eiga með manni gleðistund, og vil ég einkum og sér í lagi þakka Baldri og stúlkufansinum í kringum hann fyrir stórskemmtileg djömm nú um helgina.

Anyway, nenni ekki meira í bili. Peace out.




3.3.2006 | (Empty title)

img

Um daginn sá ég athyglisverða heimildarmynd í Danmörku. Sú hét "Perfekte Mennesker" og fjallaði um fólk sem að á sér þann draum heitastan að verða aflimað (á vinalegan hátt). Mér hefur verið þessi mynd mjög hugleikin og í kvöld þegar Sveinbjörn tilkynnti mér að hann væri að glápa á Hostel sem fjallar um fólk sem að vill ekki vera aflimað, en er samt aflimað (á óvinalegan hátt), fann ég mig knúinn til að tékka aðeins á þessu. Þetta fólk er kallað Apotemnophile-ar eða stundum "Wannabees"og er með allskonar hang-ups (aðallega) útaf fótunum á sér og gerir allt til að losna við þá. Einn gaur skaut sig í fótinn með haglara. Einn skellti fótnum ofan í baðkar af þurrís. Og einn fór til Suður-Ameríku til að láta fjarlægja fótinn. Svo voru þessir gaurar bara að kvarta yfir því að það hefði annaðhvort ekki verið tekið nóg, eða of mikið af fætinum. Nema þessi sem fór til Suður-Ameríku. Hann dó.

Annars fann ég í kjölfarið þessa síðu hér, sem segir manni bara að það virðist alveg vera dating markaður fyrir svona apotemnophila. Kannski er það þess vegna sem þeir eru af þessu.

Já, kannski er þessum blessaða vinstri fæti ofaukið!


9 comments
(Arnaldur)



3.3.2006 | (Empty title)

Dagurinn í dag er búinn að vera góður en uneventful dagur. Mér finnst það oft haldast í hendur. Fórum á Pizzustað eftir að bankamál dagsins höfðu verið sorteruð og borðuðum pizzu. Fórum svo og keyptum sósu í Sommerfield. Sósu fyrir Damian. Góða sósu. Sósu í Sommerfield.

Eftir það setti ég mig á hausinn með kvikmyndadiskakaupum en get huggað mig við það að ég á núna ennþá betra ultra-connaisseur DVD-safn, sem er ógeðslega kúl, og á ábyggilega eftir að gera það að verkum að ég á eftir að fá ógeðslega mikið á broddinn.

-"Hey, þú sérðu Spartacus boxið þarna? Þetta er Deluxe-edition!!!"
-Vá, taktu mig núna folinn þinn!!!

Eftir kvikmyndaleiðangurinn mikla fórum við á kínverskan stað og fengum okkur marglitaða óáfenga hommakokteila með horkúlum í botninum, sem voru víst kínverskt morgunkorn. (Maður átti að sjúga horkúlurnar upp með gíga-röri.) Ég borðaði meirihlutann af þessu rugli en skildi eftir nógu mikið til að kínverska konan myndi skilja hvað þetta væri líkt hori og ósæmilegur matur að bera á borð.

Enduðum svo á Mickey D's þar sem ég fékk mér einn double quarterpounder og einn normal quarterponder. Eins mikið og ég hata Mickey D's finnast mér quarterpounderarnir þeirra fínir, og shake-arnir líka.

Markmið dagsins var rólegur hedónismi, og það takmark náðist glæsilega.




2.3.2006 | (Empty title)

London er dýr borg.

London er skemmtileg borg

Annars er hér búið að vera mjög fínt. Byrjaði á að éta á Pizza Express á þriðjud. Fór svo beint í karaoke, þar sem að ég söng lagið "A Boy Named Sue" við mikinn fögnuð viðstaddra, og gerði það vel. Vann reyndar engin verðlaun, enda voru þau ekki gefin út á merit-basis. Ari vann hinsvegar VHS-spólu með kvikmyndinni "Desperately Seeking Susan".

Í gær fór ég með Ara niðrí bæ áður en hann fór í skólann sinn og endaði á að fara inn í Forbidden Planet að skoða. Keypti comics og DVD fyrir 7.000,- ISK. Stuttu seinna sá ég í HMV að DVD-boxið mitt sem ég keypti á 30,- GBP. Kostaði þar 19,- GBP. Helvítis bastarðir!!! Alltaf að ríða manni.

Fórum síðan á Souk, marókóskan veitingastað með Ala og fleirum úr skólanum hans Ara. Það var fínt og ég át þar kjúklingalifur í fyrsta sinn. Það var bara fínt. Smakkaði líka marókóskan bjór, sem að ég hélt að væri ekki til í heiminum, Casablanca. Hann var mjög fínn.

Enduðum á heimatilbúnu stand-up kvöldi hjá einhverjum vinum skólafélaga Ara. Það var alveg svakalega interesting. Það bombuðu nú eiginlega allir, en sumir voru með ágætis hugmyndir og vísi að góðu efni. Það sem var merkilegt að sjá var að það var tiltölulega gott að sjá hvað þetta fólk var að gera vitlaust. Allavega, ég var mjög inspíreraður af þessu og það gæti verið gaman að gera eitthvað svipað heima e-n tíman.

Kvöldið endaði svo bara í almennu bjórsulli og kjaftagang með stuttri truflun frá sænskri og finnskri stelpu sem voru að reyna við okkur en fóru svo.

Meira síðar...


1 comments
(Anonymous Coward)



1.3.2006 | (Empty title)

Jæja, kominn til London. Lenti reyndar í 50 mínútna töf, út af af-ísunar processnum sem vélin þurfti að ganga í gegnum fyrir flugtak. Mig reyndar grunaði að það yrði seinkunn þegar ég skoðaði TAF reportið um hádegisbilið. Þessi grunur minn var svo staðfestur af Damian þegar ég hringdi í hann rétt fyrir boarding. Sú staðreynd að ég vissi c.a. 90% að vélinni myndi seinka veitti mér svona petty satisfaction þegar flugmaðurinn tilkynnti það og allir andvörpuðu í kór. Það gerði mér líka kleift að líta í kringum mig með nettri besservissera tilfinningu í bland við fyrirlitningu og hugsa: "Já já, ÉG vissi þetta... ekki þið!"

Annars vil ég biðjast afsökunar á conjecture-inu sem ég kom með síðast um að flugvélar væru ekki bellyload-aðar í vondu veðri. CARGO-vélar eru bellyload-aðar sem minnst í vondu veðri. Farþegaflugvélar eru alltaf bellyload-aðar. Þetta er vegna þess að í farþegavélum er cargo-rýmið fullt af fólki sem myndi kremjast ef maður setti gám þar inn. Anyway, enough about that.

Ég rakst á nýyrði á síðunni I Come From Reykjavík sem mér finnst snilld. Það er staðfæring á útlenska orðinu "anorexía," sem er með öllu óskiljanlegt. Í stað þess vil ég mæla orðinu "nágrenni" bót, og er það hérmeð lögfest.

anorexia=nágrenni


img

Annars langar mig að taka fram að maginn á mér virðist vera að komast í gott horf. Ég attributa kjötmiklu og chilli-ríku fæði undanfarið. Að endingu vil ég minnast á salernið hans Damians sem hefur verið mér nákomið upp á síðkastið. Maðurinn er sumsé búinn að renovate-a Kaupmannahafnfirska salernisskápinn sinn svo að hann er nú actually frekar viðkunnanlegur. Svo kem ég bara og skít það allt út. Usssss!!!!!!!

Nei, nei ég er nú reyndar bara að ýkja gróflega. Allavega, nenni þessu ekki lengur. Pósta meiru á morgun.


5 comments
(Sveinbjorn)



28.2.2006 | (Empty title)

Jæja, þá er ég að fara að leggja af stað til London. Verð vonandi kominn á Liverpool Street station klukkan 18.00 á eftir. Annars skoðaði ég TAF-reportið hjá Damian í gær og þeir vildu meina að það yrði slæmt skyggni, sterkar vindhviður og nett snjókoma akkúrat klukkan 16.00, sem er þegar ég fer í loftið. Fyrir þá sem ekki vita, er TAF-reportið veðurspá fyrir flugumferð sem er töluvert nákvæmari og meira anal en veðurfréttirnar á RÚV. Þetta gæti seinkað fluginu, eða allavega gert það mjög óþægilegt. Það er allavega ljóst að það verður ekkert belly-loading í gangi á þessu flugi. En maður vonar bara hið besta.

Annars verð ég að segja að það er fokking kalt hérna og rakt loft sem gerir það ennþá kaldara. Í gær fór ég niður í bæ að kaupa mér sokka og fá mér að borða, og eventually niður í Tårnby of Death, og mér var ískalt allan tíman.

Vá, ég gerði heila færslu um veðrið...

...en ...leiðinlegt.



Hmmm... afhverju kemst ég ekki á HÍ-netið og webmailið og allt það? Fokking drasl.




27.2.2006 | (Empty title)

Jæja, kominn til Kaupinhafnar. Flugið gekk vel, og mig langar að þakka starfsfólki Icelandair, fyrir góða þjónustu. Lenti um klukkan sex í gærkvöld og tók einn dýrasta leigubíl mannkynssögunnar til Damian. Var nýbúinn að missa af lestinni og var þreyttur og ákvað því að taka leigubíl sem endaði á að kosta 300 DKK. Oh, well það var allavega þægilegt að fá skutl upp að dyrum. Kíkti svo út á Støvlen með Damian, sem er local værtshúsið hérna við Jyllingevej, og við fengum okkur fjóra bjóra. Pizza, internethangs og umræður um orðsifjar fyrir háttinn. Komst loks að konklusive niðurstöðu afhverju danskar tölur eru svona vanskapaðar og hvað Kraftedeme þýðir í raun og veru. Edermanme still remains a mystery.

Well, ég er farinn að njóta borgarinnar, then it's off to London tomorrow. Vona bara að meltingafærin mín fari að starfa rétt á næstunni. Er búinn að vera með ónot í maganum aðeins of lengi núna til að vera sáttur.


6 comments
(Ari Eldjárn)



21.2.2006 | (Empty title)

Annars langaði mig til að nýta tækifærið og benda þeim á, sem kunna að vilja koma höndum sínum yfir ritverk misskilda snillingsins Ólafs Ormssonar að það er nú hægt, sér að kostnaðarlausu.

Hér eru þær allar, Stútungspungar (sem er meiraðsegja spurt um í Trivial Pursuit), Skekkja í bókhaldinu, og Lostafullu ræningjabækurnar. Ekki er nein spurning um að hér er um sanna hilluprýði að ræða og hvet ég fólk eindregið til að nýta sér þetta einstaka tækifæri og hafa samband við hann Stein og krækja sér í hámenningu meðan hún býðst. Segið bara að Arnaldur hafi sent ykkur.

Hmmm... en svona án nokkura gamanmálalenginga, þá ættu þeir sem hafa jafnvel hinn minnsta áhuga að tékka á þessu. Kallinn er skemmtilegur, og goðsögn í þokkabót.

Tékka á Listræningjabókunum...



img

5 comments
(Sindri)



21.2.2006 | (Empty title)

Ávarp til fjallkonunnar

Fúll er hann af þér fnykurinn,
fjallkonutötrið ærusnauða.
Lítur þig alheimslókurinn,
en lítil er girndin í auganu eina og rauða.

Þú lagðist fyrrum gleið á grund,
undir gíruga mangara feita og danska.
Og mök við tyrkja heiðinn hund,
hafðirðu og sjómenn enska og franska.

Og nú ertu dönnuð, feit og fín.
Fuðina ilmvökvum smyrðu gljúpa.
Gröf vil ég taka þér gimbrin mín.
Ég ger'ana barasta nógu djúpa.

Nógu helvíti djúpa.


Magnús Þór Jónsson
img

1 comments
(Steinn)



18.2.2006 | (Empty title)

Í gær varð ég fyrir merkilegri upplifun. Ég fór út á lífið í fyrsta sinn í 2 vikur með þeim prýðismönnum Jóa, Helga Hrafni, Frikka Stein og fleirum. Eins og algengt er með þessi "escapades of the night" þá enduðum við á Prikinu, sem er griðastaður djammara eftir að flestir aðrir skemmtistaðir bæjarins hafa lokað dyrum sínum.

Ég komst fljótt að barnum þar sem að ég parkeraði mér í góða stund. Allt í einu fann ég að einhver var að ýta við mér með olnboganum. Ég sneri mér við og blasti þá við mér skælandi stúlkubarn. "Ég er alein! Allar vinkonur mínar eru farnar heim! Buhu!" sagði stúlkan. Er þá ekki kominn tími til að fara heim hugsaði ég, en sagði "Já, það var nú leiðinlegt". "Viltu kaupa handa mér bjór," sagði stúlkan þá. Fannst mér þetta í hæsta máta óvenjulegt og svaraði "haaaaa???" Eitthvað hélt stúlkan áfram að væla, og ég sneri mér að Jóa og átti við hann stutt orðaskipti. Þá tók ég allt í einu eftir því að stúlkan var að gefa einhverri annari stúlku sem sat hinumegin við barinn allskyns merki þegar ég sá ekki til.

Nújá, hugsaði ég, hún er að reyna að hössla bjór út úr mér. Ég hef heyrt sögur af þessum klækjakvenndum. Stúlkan hélt þá áfram að daðra við mig, bað mig að vera með sér þarna inni, og ekki skilja sig eftir og beiddist alltaf bjórs inn á milli. Þvílíkir leikrænir tilburðir, hugsaði ég með mér og ákvað að láta eftir suðinu og gaf barþjóninum merki um að koma með einn bjór. Eitthvað virðist þetta hafa farið framhjá stúlkukorninu, þar sem hún hélt áfram að leita á mig. Að lokum klikkti hún út með þeirri eftirminnilegu setningu: "Ég er mjög laus!" hvað svosem það átti að þýða. Lausgyrt, dettur mér helst í hug, eða það er laust um toppstykkið hjá mér, gæti það líka verið. Að svo mæltu kom bjórinn loks á borðið, og með því rauk stúlkan glottandi upp og skaust innar á staðinn og tillti sér hjá vinkonu sinni.

Þá spyr maður sig, er það svona sem að íslenskt kvenfólk er farið að haga sér á næturlífinu? Setja upp daðursfull sóðabrókarleikrit til að verða sér úti um bjór? Það er kannski ekki furða að íslenska konan hefur fengið á sig það leiðinda orðspor sem loðir við hana meðal útlendinga. Mér dettur helst í hug ávarp Megasar til fjallkonunnar.


8 comments
(Sindri)



17.2.2006 | (Empty title)

Jibbí!!!!

Ég var rétt í þessu að bóka mér flugferð frá Kaupmannahöfn til London þann 28. feb. og svo aðra slíka aftur til baka fjórum dögum seinna.

Rokk on!!!

Ari, I'm comin' to git ya!


6 comments
(Baldur)



16.2.2006 | (Empty title)

Búinn að skella upp temporary skissu síðu hérna á vefnum. Það er, eins og glöggir lesendur taka kannski eftir, kominn stór hlekkur fyrir neðan Balmorall kastala sem heitir "sketches". Vonandi liður sem á eftir að verða meira professional og umfangsmeiri í framtíðinni.

(Og já, ég veit að þetta er shoddy HTML. Ég breyti þessu í náinni framtíð.)

Tékkiði á þessu og segið hvað ykkur finnst.

13 comments
(7berg)



15.2.2006 | (Empty title)

Er að vinna að nokkrum skemmtilegum fídúsum hérna. Þolinmæði þrautir vinnur allar.

Annars er ég hálf fucked með hvað ég er kominn aftur úr í skólanum. Ekkert sem ekki er hægt að vinna upp samt. En ég er bara ekki að auðvelda mér hlutina beint.

Enough of this nonsense!


1 comments
(Anonymous Coward)



13.2.2006 | (Empty title)

Ég er búinn að þjást undanfarna 3 daga. Hluti þessara þjáninga stafar af viðbjóðs hitanum og flensunni sem að ég er búinn að ganga með og ala á, sem að ég get eiginlega ekki mælt með fyrir nokkurn mann. Hinn hlutinn stafar af öllu því ógrynni sóðalega illa unna sjónvarpsefnis sem að ég hef dottað mig í gegn um á þessum sama tíma sökum sjúklegs ástands míns. Leyfið mér að útlista:

Næstum því allir þættirnir sem að ég sá á skjá einum, the Bachelor, Australia's Next Top Model, Malcom in the Middle, Charmed, etc. virðast vera framleiddir fyrir fólk sem á við andleg vanheilindi að stríða. Sem útskýrir sennilega hversvegna ég hef aldrei fyrr getað pínt mig í gegnum svona þætti. Sit-com-arnir eru ekki fyndnir, raunveruleikaþættirnir eru bara pirrandi, og módelin eru ekki módel. Ég hef séð módel-legri stelpur vinnandi á kassa í Bónus.

Að lokum fékk ég nóg af dagskrárgerðinni sem stóð í boði og hélt veikburða út á vídeóleigu, kl, hálf 2 í fyrrinótt. Þá komst ég að því að þjónusta er eitthvað sem að virðist ekki fara Íslendingum vel.
Videohöllin, Lágmúla, kl.02.04:
-"Já, minn góði maður, ég ætla að fá þessa mynd... hvernig er það...? Eruð þið með eitthvað tilb..."
-"NEI!!!" greip litla strákhelvítið framífyrir mér. "Það gera 550 ISK!"
-"Bíddu? Ertu að rukka mig um 550 ISK, fyrir þessa VHS spólu? Þessi mynd er frá 2003 eða 4! Þetta er fokking VHS spóla!!!"
-"Hé,hé,hé. Já" sagði ómaginn glottandi.
-"Já, þú getur glott þínu sólheimaglotti í alla nótt kallinn minn, ég hinsvegar ætla ekki að taka þátt í þessari rányrkju!"
-"Ha? Nei, nei, ehhh.... þá, bara, ehhh..."

Ég rauk út og þræddi mig í gegn um völundarhús rauðra ljósa í náttmyrkrinu þar til að ég kom að Laugarásvideo. Klukkan var orðin rétt rúmlega 2 og á móti mér tók elskulegur eldri maður sem að tjáði mér að hann hefði nú eiginlega lokað fyrir um rúmri klst. síðan en endilega kæmi ég inn og finndi mér mynd. Ég gekk rakleitt að þeirri mynd sem ég hafði áður valið á DVD og tók eina aðra til. Maðurinn skeggræddi kumpánlega við mig um ágæti myndanna sem að ég var að leigja og kvaddi mig svo með virktum.
Loksins almennileg þjónusta!

Að lokum kom ég við á Devito's Pizza við Hlemm og keypti mér 2 sneiðar til að taka með. Drengstaulinn sem að var við afgreiðslu skellti sneiðunum í kassa sem gegnsýrðist á augabragði með olíum svo út úr vall.
-"Áttu nokkuð poka?" spurði ég drenginn.
-"Nei, við setjum ekki svona í poka." sagði gemlingurinn, standandi við hliðina á risastóru plastpokaknippi.
-"Ehhh... dude, þarf ég að borga fyrir pokann eða...?"
-"Nei, það eru ekki pokar með svona." útskýrði drengurinn fyrir mér aftur með nánast róbótískri nákvæmni.

Ég sá að þetta stoðaði lítið og keyrði heim sneyptur haldandi á pizzakassanum í annarri hendinni til að olíurnar settust ekki í áklæðið á bílnum.

Nú er þetta orðið allt of langt....


7 comments
(Steinn)



9.2.2006 | (Empty title)

arnaldur.org

Breytiði bookmörkunum ykkar, biatches!!! Það er rétt, Arnaldur er kominn með alvöru geðveikt lén...

Arnaldur, ekki lengur bara drasl... Núna með organisational skillz!!!


7 comments
(Anonymous Coward)



6.2.2006 | (Empty title)

img

Í gær fór ég að sjá kvikmyndina Walk the Line í Regnboganum. Walk the Line fjallar um ævi tónlistarmannsins og mega töff dude-sins Johnny Cash, einkum með tilliti til sambands hans við seinni konu sína June Carter.

Myndin er einkar vel gerð í marga staði og ber helst að nefna að þrátt fyrir töluverðar efasemdir fyrirfram af minni hálfu, þá leikur Joaquin Phoenix hlutverk Cash á einstaklega sannfærandi hátt. Sömuleiðis kemur Reese Witherspoon vel út og má segja að hún passi mjög vel í hlutverk sitt.

Ég hefði viljað sjá meira af ólöglegu athæfi mannsins og minna af kossaflensi og "stalking", en í heildina er myndin mjög vel heppnuð. Að lokum verð ég að nefna að Robert Patrick (Mr. T-1000) finnst mér vera sérstaklega kúl í þessari mynd og well cast.


2 comments
(Arnaldur)



4.2.2006 | (Empty title)

Jæja, þá er ævintýrið búið. Heimsóknir á síðuna komnar í eðlilegt horf á ný. Maggi ábyggilega ánægður með það. Ég verð nú að viðurkenna að þetta kynþokkafulla ævintýri kitlaði dálítið hégóma minn. Um sjö þúsund heimsóknir á einni viku og sjötta sæti á vinsælast vikunnar á b2.is. Samt voru nú standpínur náttúrunnar vinsælli. Sóðafólk, alltaf að hugsa um hörð typpi!

Ég vil fyrst og fremst þakka sjálfum mér, án hvers, þetta hefði aldrei verið mögulegt. Næst vil ég þakka ógeðslega fyndna húmornum mínum, sem er fyndnari og betri en hjá venjulegu fólki. Og svo síðast en ekki síst, Internetinu og Dan Quayle, upphafsmanni þess, fyrir að gera mér kleift að deila frábærleika mínum með almúganum. Og til allra ykkar hinna sem að efuðust um mig, og voruð leiðinleg við mig, F*** YOU!!!

(Living in Oblivion fyrir þá sem ekki fatta.)

img



1.2.2006 | (Empty title)

Kynþokkafyllsti Arnaldur landsins sviptur titlinum!!!

Reykjavík, Ísland, 01.02.2006 - Um þrjúleytið í dag bárust fregnir frá kynþokkanefnd þess efnis að hún hefði ákveðið að svipta Arnald Grétarsson, hjálpartæki ástarlífsins, titli sínum, sökum ósiðlegs atferlis undanfarna 24 klst.

"Ég var bara að halda uppá kosninguna!!!" lét Arnaldur hafa eftir sér í símaviðtali. "Ég er ekki hóra!!!" sagði hann í lok símtalsins.

Vangaveltur eru um hvort að þessi niðurstaða feli í sér að Arnaldur Grétarsson, fyrirsæta, hreppi titilinn, en hann var eins og kunnugt er í öðru sæti.

"Ég er ánægður með niðurstöður nefndarinnar ... þessi maður samræmist engan vegin hugmyndum mínum um ytri-, eða innri kynþokka, og persónulega vil ég ekki sjá minnst á kynþokka og þennan mann í sömu setningu ... Fyrirsætan er mun betur að titlinum komin." sagði Logi Bergmann, sem er sjálfur í framboði til embættis Kynþokkadýrs Íslands. "Mér líka!" sagði Bubbi, keppinautur hans.

Strax klukkan 15:11 í dag höfðu aðstandendur keppninnar breytt hamingjuóskum sínum til Arnaldar á heimasíðu sinni. Í stað þeirra voru hörð orð í garð hjálpartækisins.

Arnaldur Grétarsson, hjálpartæki hefur þegar haft samband við lögfræðinga í Englandi og hyggst höfða mál gegn aðstandendum keppninnar þar, dragi þeir ummæli sín ekki umsvifalaust til baka. "Ég hef heyrt að þessi "Arnaldur" sem sér um keppnina sé fáviti!!!" sagði Arnaldur aðspurður.


4 comments
(Níels Ben)



1.2.2006 | (Empty title)

Kynþokkafyllsti Arnaldur Landsins - Hórkarl!!!

Seint í gær voru teknar myndir af Arnaldi Grétarssyni að leggja stund á saurlífi. Kynþokkanefnd hefur komið saman og ræðir nú um að svipta Arnald titlinum, þar sem hann hefur brugðist skyldum sínum sem fyrirmynd ungra kynþokkafullra drengja.

img

5 comments
(Anonymous Coward)



31.1.2006 | (Empty title)

Þá eru komnar í hús úrslit úr hinni sérlega yfirborðskenndu kosningu - Kynþokkkafyllsti Arnaldur Landsins 2005. Lokað var fyrir þáttöku kl. 18:20 GMT, eða rúmri viku eftir að skoðunarkönnunin fór af stað.

Alls tóku um 6253 manns þátt í að velja kynþokkadýr ársins 2005 og var valið mjög jafnt á köflum, en líka mjög ójafnt á öðrum köflum!?!

Hafa ber í huga að þrátt fyrir þá staðreynd að öll þessi yndislegu eintök af Arnöldum hafi háð með sér harða keppni, þá eru þeir í raun ALLIR sigurvegarar.
Þeir eru allir sigurvegarar þar sem að þrátt fyrir að töluverður munur kunni að vera með þeim útlitslega séð, þá hafa allir Arnaldarnir í raun sömu óþrjótandi uppsprettu af "innri kynþokka", og væri það því siðferðilegur glæpur að gera upp á milli þeirra...

Í heimi þar sem allir eru gegnsýrðir af ytri kynþokkadýrkun, má ekki gleyma að það er innri kynþokki sem skiptir máli.

En fyrir ykkur yfirborðskennda fólk sem að missir sig yfir ytri kynþokkanum sem að lekur af kynþokkafyllstu Arnöldum þessarar köldu, kynþokkafullu veraldar, hef ég skellt upp tölfræðilegum upplýsingum um kosninguna.


5 comments
(Arnaldur)



28.1.2006 | (Empty title)

img

Ég fékk FJÖRTÍU OG TVÖ e-mail frá Fortúnu á milli klukkkan 17:21 - 21:24 á miðvikudaginn, þar sem að þeir lofuðu mér peningaverðlaunum. Mér er ekki skemmt, og ég kaus að opna bréfin ekki.

Annars verð ég að segja að mér finnst íslenskt samfélag hafa þróast á undarlegan hátt undanfarið. Í gær stóð ég fyrir utan skyndibitastaðinn Nonnabita í Hafnarstræti og var að kveikja mér í vindling eftir að hafa skellt í mig sveittum gelti. Framhjá mér gekk maður í eldri kantinum, illa til reika - og gæti jafnvel flokkast sem róni, ef út í það er farið.

Róninn var að tala í GSM-síma!!! Og ekki bara einhvern glataðan "róna" GSM-síma, heldur splunkunýjan Sony-Erikson síma... Ekki það, að það er kannski rökrétt að rónar gangi með GSM-síma, þar sem þeir hafa oft ekki fasta búsetu. Allavega, maðurinn gerði hlé á símtalinu og sníkti af mér sígó og hélt svo á brott masandi í símann.

U.þ.b. 35 sekúndum seinna keyrir framhjá mér Porsche-jeppi (ef jeppi skyldi kallast). Út um gluggan kallar feit unglingsstúlka á mig:

-"Áttu sígó!?!"
-"Já!" svara ég.
-"Má ég fá!?!" spyr stúlkan.
-"Nei" svara ég "Ég er að nota hana!"

(veifa með sígarettunni fyrir framan hana)

"FOKKING FÁVITI!!!" voru orðin sem að hún kvaddi mig með um leið og hún spyrnti í burtu á PORSCHE-jeppanum sínum.

Með þessu þykir mér sýnt að ég hljóti að tilheyra þvílíkum forréttinda hópi á landi hér. Fyrir utan það að vera kosinn kynþokkafyllsti Arnaldur landsins, þá á ég oft sígarettur sem virðast vera orðnar meiri lúksusvarningur en GSM-símar og Porsche-jeppar samanlagt.

Það er synd að góðærið hérna nær ekki jafnt til allra...


4 comments
(Anonymous Coward)



25.1.2006 | (Empty title)

Eftir að ég rakst á áhyggjuskrif Ara Eldjárns um sjúklega og niðurlægjandi keppni á Vísi, leið mér hreint út sagt líkamlega illa. Ég velti því fyrir mér hvort að ekki væri til alvöru keppni í karlmennsku fyrir alvöru karlmenn. Eftir langa leit, á netinu og í hjarta mínu fann ég svo loks lausnina:


Látið ekki skoðanir Vísis og Létts FM byrgja ykkur sýn á raunveruleikann!!!

Látið ekki blekkjast af misvísandi ranghugmyndum rökleysingja um orsakatengsl fjölmiðlanærveru og kynþokka!!!

Þrýsið á hnappinn og ykkur mun sannleikurinn verða ljós!!!



18 comments
(Þóra Marteins)



24.1.2006 | (Empty title)

Wow, hvað færslan hér á undan er vesæl. Mætti halda að maður hefði lítið gert um helgina annað en að bryðja estrógen. Usss!!! Jæja, hún mun samt standa enn um tíð.

Annars er ég núna búinn að eyða heilmiklum tíma í að endurbæta myndirnar sem að fylgja með commentunum og búinn að skella þeim upp líka. Ég vil því endilega hvetja fólk til að prófa að commenta, líka bara til að sjá hvort að þetta virkar ekki almennilega.

Ég vil sömuleiðis minna sérstaklega á að til að notendamynd birtist, verður að fylla inn nafn í reitinn sem að heitir NAME.

Btw, djöfulli er Safari með frekann cashe mekanisma!!!


10 comments
(Arnaldur)



23.1.2006 | (Empty title)

Jæja, þá er helgin liðin með öllu sínu pompi og prakt. Mestmegnis hvarf þessi blessaða helgi í vinnubull, en mér tókst nú samt að koma að smá gleði inn á milli. Annars komst ég helst að því að ég þarf nauðsynlega að fá mér nýja mega-pirrandi vekjaraklukku, þar sem að ég virðist vera hættur að vakna við símann minn.

Allavega á föstudaginn kíkti ég til Baldurs og kvaddi hann með virktum áður en að hann fór til Kaupmannahafnar. Nú er hann sumsé farinn, farinn frá okkur. Í bili.

Á laugardaginn byrjaði ég á því að sofa yfir mig, og mætti hálftíma of seint í vinnuna, sem að ég verð að segja að mér finnst hræðilegt. Það samræmist engan vegin vinnusiðferði mínu og ég veit ekki hversu vel fólk getur sett sig í spor mín en ég þjáist næstum því líkamlega þegar svona gerist. Þetta er strike 2 á vinnuferli mínum, fyrir utan nokkra veikindadaga sem að ég tók mér í Kaupmannahöfn.

Ussss!!!

Allavega, kíkti ég á Prikið á laugardaginn og komst að því að ég er orðinn gamall karlfauskur. Eru einhverjir á efri hæð Priksins orðnir 20 ára?

Að lokum vil ég minnast á afbragðs skemmtilegan þátt sem að ég sá á RÚV á laugardag. Þátturinn, sem að ég var gersamlega búinn að afskrifa fyrirfram, var tíminn líður hratt... eða eitthvað svoleiðis, og þótti mér fín skemmtun af.

Þar hafiði það!


6 comments
(Anonymous Coward)



19.1.2006 | (Empty title)

Í morgun mætti ég fimm mínútum of seint í tíma. Hafði ekki reiknað með því hvílík gáskaför leiðin í gegnum Hljómskálagarðinn væri. Nú var ég engan veginn síðastur inn. Engu að síður gekk ég út úr tíma 30 sekúndum eftir að ég kom inn í kennslustofuna. Af hverju, kunnið þið að spyrja ykkur. Jú, vegna þess að það voru engin sæti laus í stofunni. Þetta er í þriðja skiptið á þessari önn sem þetta atvikast. Og á einni viku finnst mér það full mikið. Í gær sat ég á gólfinu í stofu 052 í Aðalbyggingunni.

Búum við í Kabúl? Er til of mikils ætlast að vilja sitja í stól, við borð, eins og siðmenntuð manneskja? Í morgun var mér nóg boðið og neitaði að taka þátt í þessari helvítis vitleysu.

Vel á minnst. Ég ætla að benda fólki á möguleikan á því að skrá sig úr þjóðkirkjunni. Það er gersamlega pointless að moka jafn miklu fé í þessa starfsemi og gert er. Með því að skrá sig úr þjóðkirkjunni renna samsvarandi sóknargjöld í Háskóla Íslands. Þá er hægt að fjárfesta í borðum og stólum og þá þarf Arnaldur kannski ekki að sitja á gólfinu í tímum.

(Og nei, samsvarandi sóknargjöld ganga ekki óskert til Guðfræðideildar, eftir því sem best verður að komist.)


9 comments
(Friðrik St.)



19.1.2006 | (Empty title)

img

Snilld!!! FSM - The game!

Þetta samrýmist algerlega fagurfræðilegum kröfum mínum um góða skemmtun.

Hvernig skyldi það vera? Ætli það sé hægt að skrá sig í FSM hjá Hagstofunni löglega? Ég tók eftir því að það virðist vera hægt að skrá sig í óskráð trúfélög á eyðublaðinu. Sem er reyndar mjög undarlegt, þegar ég spái í það, og samræmist alveg örugglega ekki fagurfræðilegum kröfum mínum um almenna skynsemi.


2 comments
(Arnaldur)



18.1.2006 | (Empty title)

Ég var að uppgötva nokkur þau skemmtilegustu orð sem ég hef fundið lengi. Héðan í frá decree-a ég, (skv. O.P. - Vatican Posse Infallibility Rule nr.1) að glataða fólkið í Sirkus (blaðinu), verði kallað faux-mo-sexuals, og glataða fólkið á Sirkus (búllunni), verði kallað faux-hemians.




18.1.2006 | (Empty title)

Jæja, þá er ég búinn að bæta aðeins útlitið á mannfræðivefnum Anthropos. Endilega tékkið á því. Mér finnst hann persónulega mun minna uppsöluhvetjandi, núna. Þá er bara að drífa í að skrifa upp greinar þar sem það vantar og lagfæra aðrar.

Annars finnst mér rétt að nefna að þeim mannfræðimenntuðum einstaklingum sem að gætu hugsað sér að leggja mér lið við vinnu á vefnum er það meira en velkomið. Bara hafið samband einhvernveginn. Mailið mitt er arg1 hjá hi.is. Öðrum er frjálst að gagnrýna á uppbyggilegan hátt útlit og viðmót vefsins. Takk, takk, takk.

---

Ég vil líka benda á stórmerkilegar rökræður á vefnum hans Sveinbjarnar. HH bara mættur á vígvöllinn!!!


4 comments
(Anonymous Coward)



17.1.2006 | (Empty title)

"Le Da-Neux"


4 comments
(Steinn)



12.1.2006 | (Empty title)

img

Ég hef ákveðið að Árnagarður er mesta kick-ass háskólabyggingin á svæðinu. Árnagarður fær fyrstu ágætisverðlaun í flokki háskólabygginga frá óháðu Arnaldísku háskólamatsnefndinni.

Vinsamlegast misskiljið samt ekki. Árnagarður er meira vinner by default. Það verður að viðurkennast að Oddi 101, og Lögberg 101, og aðalfyrirlestrarsalurinn í Peningagjá, eru frekar sexý, en að öðru leyti eru þessar byggingar drasl. Sérstaklega Peningagjá. Eftir stendur Árnagarður sem ótvíræður sigurvegari, ekki vegna þess að hann skarar sérstaklega fram úr, heldur vegna þess að hann er moderate og er ekki ónothæft drasl.

Það er til gamalt og gott enskt orð sem lýsir vel vinnubrögðum arkítektanna sem hönnuðu Odda og sérstaklega Peningagjá. "Incompetence". "Detachment" og "nepotism" fara líka langt með að lýsa ástandinu.

Ég hlakka bara til að sjá næsta blunder-ið sem að er þetta nýja háskólatorg. Hverja ætli sá arkítekt hafi tottað til að fá að smíða þetta ljóta, ljóta plexigler módel?

By the way, er einhver sem actually skilur módelið sem að er til sýnis í Odda? Er ég bara svona blindur? Eru til einhverjar skiljanlegri myndir af því hvernig þetta á að líta út? Á þetta bara að vera svona appelsínugul plastklessa?


12 comments
(Sveinbjorn)



11.1.2006 | (Empty title)

Mig langar til að benda fólki á þessa smekklegu síðu þar sem hægt er að krota nafnið sitt með rafmagni, í von um að einn mesti sorpmiðill okkar tíma hætti að neyða fólk til að drepa sig.

Áskorun á DV um að hætta að vera fávitar!

Endilega tékka á þessu.




11.1.2006 | (Empty title)

Fullt af nýjum myndum komnar inn fólk, allt frá Októberfest, til núna um helgina. Jájájájá, njótið vel!

Vel að merkja, nú er Arnaldur líka fánlegur á ensku, fyrir þá sem eru ósiðmenntaðir. Jújú, það eru ekki bara Indriðasynir sem að eru gerðir málhöltu fólki skiljanlegir!




9.1.2006 | (Empty title)

Jæja, þá er maður byrjaður í skólanum aftur, eftir nákvæmlega 70 klst langt stresslaust, vinnulaust, verkefnalaust, jólafrí. Það sýgur belli að vinna í jólafríinu sínu. En á hinn bóginn þá verður maður víst einhvernvegin að eiga fyrir þessari helvítis dýrtíð. Hélt svaka skemmtilegt jólapartý á föstudagin og skellti mér svo á Náttúruleysistónleikana á laugardag, þökk sé milligöngu Hildar og Charlie. Takk fyrir það fólk.

En já, sem stendur er ég að taka alveg hreint fyllilega boðlegan, og afar áhugaverðan kúrs, um menningararf, með aðaláherslu á Skotland í þeim skilningi. I won't bore you with details. Aðsókn í kúrsinn fór víst fram úr öllu góðu hófi og nú eru um áttatíu manns að taka þennan kúrs. Remarkable!

Eitt sem mér finnst ákaflega merkilegt, er hversu merkilega hátt hlutfall af miðaldra og eldri konum eru að taka þennan kúrs. Á sama tíma og þetta vekur athygli mína, vekur þetta líka pirring minn. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum virðast miðaldra og eldri konur hafa óseðjandi tjáningarþörf. Ekki virðist bæta úr skák að kennarinn er Skoti, en það virðist í þokkabót kalla á mikla og djúpa þörf hjá allmörgum til að sýna fram á einhverskonar enskukunnáttu. Nú vill maður síður vera að setja sig á háan hest, en mér finnst svo margt annað mikilvægara að ræða á þessum stutta tíma sem að við höfum en, "Maybe, it's because of Culture!?!."

Ég býst við að það sem að ég sé að reyna að segja sé að þó að flest öll umræða sé góð, getur hún keyrt um þverbak og fólk verður að sýna stillingu og má ekki gleyma sér í smáatriðum.


1 comments
(Sveinbjorn)



8.1.2006 | (Empty title)

Í dag fór ég og rækti líkama og sál í Sundhöll Reykjavíkur, sem var vel þarft eftir átök helgarinnar. Þegar á hólminn var komið var ég þó sendur í það sem mér virðist vera sálarkreppu-skiptiklefann. Klefa 143. Þar sem að ég stóð og fækkaði fötum rak ég augun í texta sem einhver þjökuð sál hafði hripað niður á innri vegginn. Vafalítið einhver eiturlyfjaneytandi í mók-rofunum.

Svo dulinn og undarlegur þótti mér textinn að ég skrifaði hann upp til að muna hann.

Á hliðarveggnum stóð:

Ég elska þig mest af öllum en bara á sérstakan hátt

Á innsta veggnum var lítil, að því er virtist helgimynd af gröf, þar sem að kross stóð yfir nafninu Máni. Undir því stóð svo:

eg hata þig fyrir að vera til - ef þú (he) hefðir ekki fæðst væri máni livandi og eg mundi ekki þekkja ásu

Merkilegt




6.1.2006 | (Empty title)

PARTÝÝÝÝ!!!!!!!!!!!!


2 comments
(Sveinbjorn)



4.1.2006 | (Empty title)

Úff, hið metnaðarfulla project mitt sem er litli mannfræðivefurinn virðist hafa verið einmitt það. Ögn of metnaðarfullt. Auk þess sem að ég er búinn að vera að vinna of mikið frá próflokum. Work truly is the curse of the drinking classes, ehh?

Allavega, layoutið er nokkurnvegin komið og allt efnið er óðum tilbúið. Það verður að hafa það þótt maður fái þetta ekki metið sökum seinagangs. Mér finnst þessi vefur bara frekar snazzy, og ætla að hafa hann sem pet-projectið mitt á næstunni.


(Viðbótarfærsla)

Úps, maður er orðinn svo vanur að skrifa sitt eigið url að ég virðist eitthvað hafa ruglast í ríminu. Allavega nú er linkurinn farinn að virka.


2 comments
(Steinn)



4.1.2006 | (Empty title)

Mér finnst Gillzenegger vera hommi.

(Viðbótaruppfærsla)

Hmmm... Það er nú kannski óþarfi að vera með leiðinda sleggjudóma hér, ég vil biðjast opinberrar afsökunar á ummælum mínum. Ég þekki marga góða einstaklinga sem eru samkynhneigðir og eru gott fólk, hið besta jafnvel. Láti það hér með vera sagt að mér finnst Gillzenegger vera fáviti og auli.




3.1.2006 | (Empty title)

Það hefur löngum þótt skemmtilegur siður hér á landi að binda endi á líðandi ár með því að birta gamanefni á sjónvarpsskjáum Íslendinga. Þá koma saman þespíur þær sem fróðastar þykja um gamanmál og ausa af viskubrunni sínum yfir landsmenn alla. Sannkallaður gleðitími og tilefni fyrir landann að kætast í síðasta sinn á árinu áður en það er svo kvatt með bros á vör í flugeldafans.

Í ár var haldið í gamlar hefðir og nokkrar hressar stelpur tóku sig til og börðu saman gleðiefnið sem á borð var reitt um áramót. Nú veit ég ekki um ykkur, en mér þótti það takast svona líka ægilega skemmtilega til.

Ótalin atriði kítluðu hláturtaugar mínar trekk í trekk.

Jú, jú. Hver getur gleymt grænmetisstelpunum hressu sem röppuðu um sellerí og sveifluðu dreadlockunum sínum um allt, útataðar í skósvertu? Mmmmm, precious!

Nú eða skemmtilegu börnunum sem dönsuðu sig út úr velheppnuðum eftirhermuleik um tvo hárfagra forseta? Toppið það með góðu móti!!!

Já, allt frá uppátækjum óheppnu hjónanna Eddu og Ladda í verslunarmiðstöð landsmanna Kringlunni, til nöldurgjörnu og litríku hárgreiðslukvennanna tveggja, var skaupið sannkallað andlegt konfekt fyrir þá sem að góðan húmor kunna að meta.

Skaupið í ár fær fimm fingur...

...samankreppta, beint upp í rassgatið, frá Arnaldi!!!

(and you can quote me on that!)


2 comments
(Baldur)