Results for 2006-01

31.1.2006 | (Empty title)

Þá eru komnar í hús úrslit úr hinni sérlega yfirborðskenndu kosningu - Kynþokkkafyllsti Arnaldur Landsins 2005. Lokað var fyrir þáttöku kl. 18:20 GMT, eða rúmri viku eftir að skoðunarkönnunin fór af stað.

Alls tóku um 6253 manns þátt í að velja kynþokkadýr ársins 2005 og var valið mjög jafnt á köflum, en líka mjög ójafnt á öðrum köflum!?!

Hafa ber í huga að þrátt fyrir þá staðreynd að öll þessi yndislegu eintök af Arnöldum hafi háð með sér harða keppni, þá eru þeir í raun ALLIR sigurvegarar.
Þeir eru allir sigurvegarar þar sem að þrátt fyrir að töluverður munur kunni að vera með þeim útlitslega séð, þá hafa allir Arnaldarnir í raun sömu óþrjótandi uppsprettu af "innri kynþokka", og væri það því siðferðilegur glæpur að gera upp á milli þeirra...

Í heimi þar sem allir eru gegnsýrðir af ytri kynþokkadýrkun, má ekki gleyma að það er innri kynþokki sem skiptir máli.

En fyrir ykkur yfirborðskennda fólk sem að missir sig yfir ytri kynþokkanum sem að lekur af kynþokkafyllstu Arnöldum þessarar köldu, kynþokkafullu veraldar, hef ég skellt upp tölfræðilegum upplýsingum um kosninguna.


5 comments
(Arnaldur)



28.1.2006 | (Empty title)

img

Ég fékk FJÖRTÍU OG TVÖ e-mail frá Fortúnu á milli klukkkan 17:21 - 21:24 á miðvikudaginn, þar sem að þeir lofuðu mér peningaverðlaunum. Mér er ekki skemmt, og ég kaus að opna bréfin ekki.

Annars verð ég að segja að mér finnst íslenskt samfélag hafa þróast á undarlegan hátt undanfarið. Í gær stóð ég fyrir utan skyndibitastaðinn Nonnabita í Hafnarstræti og var að kveikja mér í vindling eftir að hafa skellt í mig sveittum gelti. Framhjá mér gekk maður í eldri kantinum, illa til reika - og gæti jafnvel flokkast sem róni, ef út í það er farið.

Róninn var að tala í GSM-síma!!! Og ekki bara einhvern glataðan "róna" GSM-síma, heldur splunkunýjan Sony-Erikson síma... Ekki það, að það er kannski rökrétt að rónar gangi með GSM-síma, þar sem þeir hafa oft ekki fasta búsetu. Allavega, maðurinn gerði hlé á símtalinu og sníkti af mér sígó og hélt svo á brott masandi í símann.

U.þ.b. 35 sekúndum seinna keyrir framhjá mér Porsche-jeppi (ef jeppi skyldi kallast). Út um gluggan kallar feit unglingsstúlka á mig:

-"Áttu sígó!?!"
-"Já!" svara ég.
-"Má ég fá!?!" spyr stúlkan.
-"Nei" svara ég "Ég er að nota hana!"

(veifa með sígarettunni fyrir framan hana)

"FOKKING FÁVITI!!!" voru orðin sem að hún kvaddi mig með um leið og hún spyrnti í burtu á PORSCHE-jeppanum sínum.

Með þessu þykir mér sýnt að ég hljóti að tilheyra þvílíkum forréttinda hópi á landi hér. Fyrir utan það að vera kosinn kynþokkafyllsti Arnaldur landsins, þá á ég oft sígarettur sem virðast vera orðnar meiri lúksusvarningur en GSM-símar og Porsche-jeppar samanlagt.

Það er synd að góðærið hérna nær ekki jafnt til allra...


4 comments
(Anonymous Coward)



25.1.2006 | (Empty title)

Eftir að ég rakst á áhyggjuskrif Ara Eldjárns um sjúklega og niðurlægjandi keppni á Vísi, leið mér hreint út sagt líkamlega illa. Ég velti því fyrir mér hvort að ekki væri til alvöru keppni í karlmennsku fyrir alvöru karlmenn. Eftir langa leit, á netinu og í hjarta mínu fann ég svo loks lausnina:


Látið ekki skoðanir Vísis og Létts FM byrgja ykkur sýn á raunveruleikann!!!

Látið ekki blekkjast af misvísandi ranghugmyndum rökleysingja um orsakatengsl fjölmiðlanærveru og kynþokka!!!

Þrýsið á hnappinn og ykkur mun sannleikurinn verða ljós!!!



18 comments
(Þóra Marteins)



24.1.2006 | (Empty title)

Wow, hvað færslan hér á undan er vesæl. Mætti halda að maður hefði lítið gert um helgina annað en að bryðja estrógen. Usss!!! Jæja, hún mun samt standa enn um tíð.

Annars er ég núna búinn að eyða heilmiklum tíma í að endurbæta myndirnar sem að fylgja með commentunum og búinn að skella þeim upp líka. Ég vil því endilega hvetja fólk til að prófa að commenta, líka bara til að sjá hvort að þetta virkar ekki almennilega.

Ég vil sömuleiðis minna sérstaklega á að til að notendamynd birtist, verður að fylla inn nafn í reitinn sem að heitir NAME.

Btw, djöfulli er Safari með frekann cashe mekanisma!!!


10 comments
(Arnaldur)



23.1.2006 | (Empty title)

Jæja, þá er helgin liðin með öllu sínu pompi og prakt. Mestmegnis hvarf þessi blessaða helgi í vinnubull, en mér tókst nú samt að koma að smá gleði inn á milli. Annars komst ég helst að því að ég þarf nauðsynlega að fá mér nýja mega-pirrandi vekjaraklukku, þar sem að ég virðist vera hættur að vakna við símann minn.

Allavega á föstudaginn kíkti ég til Baldurs og kvaddi hann með virktum áður en að hann fór til Kaupmannahafnar. Nú er hann sumsé farinn, farinn frá okkur. Í bili.

Á laugardaginn byrjaði ég á því að sofa yfir mig, og mætti hálftíma of seint í vinnuna, sem að ég verð að segja að mér finnst hræðilegt. Það samræmist engan vegin vinnusiðferði mínu og ég veit ekki hversu vel fólk getur sett sig í spor mín en ég þjáist næstum því líkamlega þegar svona gerist. Þetta er strike 2 á vinnuferli mínum, fyrir utan nokkra veikindadaga sem að ég tók mér í Kaupmannahöfn.

Ussss!!!

Allavega, kíkti ég á Prikið á laugardaginn og komst að því að ég er orðinn gamall karlfauskur. Eru einhverjir á efri hæð Priksins orðnir 20 ára?

Að lokum vil ég minnast á afbragðs skemmtilegan þátt sem að ég sá á RÚV á laugardag. Þátturinn, sem að ég var gersamlega búinn að afskrifa fyrirfram, var tíminn líður hratt... eða eitthvað svoleiðis, og þótti mér fín skemmtun af.

Þar hafiði það!


6 comments
(Anonymous Coward)



19.1.2006 | (Empty title)

Í morgun mætti ég fimm mínútum of seint í tíma. Hafði ekki reiknað með því hvílík gáskaför leiðin í gegnum Hljómskálagarðinn væri. Nú var ég engan veginn síðastur inn. Engu að síður gekk ég út úr tíma 30 sekúndum eftir að ég kom inn í kennslustofuna. Af hverju, kunnið þið að spyrja ykkur. Jú, vegna þess að það voru engin sæti laus í stofunni. Þetta er í þriðja skiptið á þessari önn sem þetta atvikast. Og á einni viku finnst mér það full mikið. Í gær sat ég á gólfinu í stofu 052 í Aðalbyggingunni.

Búum við í Kabúl? Er til of mikils ætlast að vilja sitja í stól, við borð, eins og siðmenntuð manneskja? Í morgun var mér nóg boðið og neitaði að taka þátt í þessari helvítis vitleysu.

Vel á minnst. Ég ætla að benda fólki á möguleikan á því að skrá sig úr þjóðkirkjunni. Það er gersamlega pointless að moka jafn miklu fé í þessa starfsemi og gert er. Með því að skrá sig úr þjóðkirkjunni renna samsvarandi sóknargjöld í Háskóla Íslands. Þá er hægt að fjárfesta í borðum og stólum og þá þarf Arnaldur kannski ekki að sitja á gólfinu í tímum.

(Og nei, samsvarandi sóknargjöld ganga ekki óskert til Guðfræðideildar, eftir því sem best verður að komist.)


9 comments
(Friðrik St.)



19.1.2006 | (Empty title)

img

Snilld!!! FSM - The game!

Þetta samrýmist algerlega fagurfræðilegum kröfum mínum um góða skemmtun.

Hvernig skyldi það vera? Ætli það sé hægt að skrá sig í FSM hjá Hagstofunni löglega? Ég tók eftir því að það virðist vera hægt að skrá sig í óskráð trúfélög á eyðublaðinu. Sem er reyndar mjög undarlegt, þegar ég spái í það, og samræmist alveg örugglega ekki fagurfræðilegum kröfum mínum um almenna skynsemi.


2 comments
(Arnaldur)



18.1.2006 | (Empty title)

Ég var að uppgötva nokkur þau skemmtilegustu orð sem ég hef fundið lengi. Héðan í frá decree-a ég, (skv. O.P. - Vatican Posse Infallibility Rule nr.1) að glataða fólkið í Sirkus (blaðinu), verði kallað faux-mo-sexuals, og glataða fólkið á Sirkus (búllunni), verði kallað faux-hemians.




18.1.2006 | (Empty title)

Jæja, þá er ég búinn að bæta aðeins útlitið á mannfræðivefnum Anthropos. Endilega tékkið á því. Mér finnst hann persónulega mun minna uppsöluhvetjandi, núna. Þá er bara að drífa í að skrifa upp greinar þar sem það vantar og lagfæra aðrar.

Annars finnst mér rétt að nefna að þeim mannfræðimenntuðum einstaklingum sem að gætu hugsað sér að leggja mér lið við vinnu á vefnum er það meira en velkomið. Bara hafið samband einhvernveginn. Mailið mitt er arg1 hjá hi.is. Öðrum er frjálst að gagnrýna á uppbyggilegan hátt útlit og viðmót vefsins. Takk, takk, takk.

---

Ég vil líka benda á stórmerkilegar rökræður á vefnum hans Sveinbjarnar. HH bara mættur á vígvöllinn!!!


4 comments
(Anonymous Coward)



17.1.2006 | (Empty title)

"Le Da-Neux"


4 comments
(Steinn)



12.1.2006 | (Empty title)

img

Ég hef ákveðið að Árnagarður er mesta kick-ass háskólabyggingin á svæðinu. Árnagarður fær fyrstu ágætisverðlaun í flokki háskólabygginga frá óháðu Arnaldísku háskólamatsnefndinni.

Vinsamlegast misskiljið samt ekki. Árnagarður er meira vinner by default. Það verður að viðurkennast að Oddi 101, og Lögberg 101, og aðalfyrirlestrarsalurinn í Peningagjá, eru frekar sexý, en að öðru leyti eru þessar byggingar drasl. Sérstaklega Peningagjá. Eftir stendur Árnagarður sem ótvíræður sigurvegari, ekki vegna þess að hann skarar sérstaklega fram úr, heldur vegna þess að hann er moderate og er ekki ónothæft drasl.

Það er til gamalt og gott enskt orð sem lýsir vel vinnubrögðum arkítektanna sem hönnuðu Odda og sérstaklega Peningagjá. "Incompetence". "Detachment" og "nepotism" fara líka langt með að lýsa ástandinu.

Ég hlakka bara til að sjá næsta blunder-ið sem að er þetta nýja háskólatorg. Hverja ætli sá arkítekt hafi tottað til að fá að smíða þetta ljóta, ljóta plexigler módel?

By the way, er einhver sem actually skilur módelið sem að er til sýnis í Odda? Er ég bara svona blindur? Eru til einhverjar skiljanlegri myndir af því hvernig þetta á að líta út? Á þetta bara að vera svona appelsínugul plastklessa?


12 comments
(Sveinbjorn)



11.1.2006 | (Empty title)

Mig langar til að benda fólki á þessa smekklegu síðu þar sem hægt er að krota nafnið sitt með rafmagni, í von um að einn mesti sorpmiðill okkar tíma hætti að neyða fólk til að drepa sig.

Áskorun á DV um að hætta að vera fávitar!

Endilega tékka á þessu.




11.1.2006 | (Empty title)

Fullt af nýjum myndum komnar inn fólk, allt frá Októberfest, til núna um helgina. Jájájájá, njótið vel!

Vel að merkja, nú er Arnaldur líka fánlegur á ensku, fyrir þá sem eru ósiðmenntaðir. Jújú, það eru ekki bara Indriðasynir sem að eru gerðir málhöltu fólki skiljanlegir!




9.1.2006 | (Empty title)

Jæja, þá er maður byrjaður í skólanum aftur, eftir nákvæmlega 70 klst langt stresslaust, vinnulaust, verkefnalaust, jólafrí. Það sýgur belli að vinna í jólafríinu sínu. En á hinn bóginn þá verður maður víst einhvernvegin að eiga fyrir þessari helvítis dýrtíð. Hélt svaka skemmtilegt jólapartý á föstudagin og skellti mér svo á Náttúruleysistónleikana á laugardag, þökk sé milligöngu Hildar og Charlie. Takk fyrir það fólk.

En já, sem stendur er ég að taka alveg hreint fyllilega boðlegan, og afar áhugaverðan kúrs, um menningararf, með aðaláherslu á Skotland í þeim skilningi. I won't bore you with details. Aðsókn í kúrsinn fór víst fram úr öllu góðu hófi og nú eru um áttatíu manns að taka þennan kúrs. Remarkable!

Eitt sem mér finnst ákaflega merkilegt, er hversu merkilega hátt hlutfall af miðaldra og eldri konum eru að taka þennan kúrs. Á sama tíma og þetta vekur athygli mína, vekur þetta líka pirring minn. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum virðast miðaldra og eldri konur hafa óseðjandi tjáningarþörf. Ekki virðist bæta úr skák að kennarinn er Skoti, en það virðist í þokkabót kalla á mikla og djúpa þörf hjá allmörgum til að sýna fram á einhverskonar enskukunnáttu. Nú vill maður síður vera að setja sig á háan hest, en mér finnst svo margt annað mikilvægara að ræða á þessum stutta tíma sem að við höfum en, "Maybe, it's because of Culture!?!."

Ég býst við að það sem að ég sé að reyna að segja sé að þó að flest öll umræða sé góð, getur hún keyrt um þverbak og fólk verður að sýna stillingu og má ekki gleyma sér í smáatriðum.


1 comments
(Sveinbjorn)



8.1.2006 | (Empty title)

Í dag fór ég og rækti líkama og sál í Sundhöll Reykjavíkur, sem var vel þarft eftir átök helgarinnar. Þegar á hólminn var komið var ég þó sendur í það sem mér virðist vera sálarkreppu-skiptiklefann. Klefa 143. Þar sem að ég stóð og fækkaði fötum rak ég augun í texta sem einhver þjökuð sál hafði hripað niður á innri vegginn. Vafalítið einhver eiturlyfjaneytandi í mók-rofunum.

Svo dulinn og undarlegur þótti mér textinn að ég skrifaði hann upp til að muna hann.

Á hliðarveggnum stóð:

Ég elska þig mest af öllum en bara á sérstakan hátt

Á innsta veggnum var lítil, að því er virtist helgimynd af gröf, þar sem að kross stóð yfir nafninu Máni. Undir því stóð svo:

eg hata þig fyrir að vera til - ef þú (he) hefðir ekki fæðst væri máni livandi og eg mundi ekki þekkja ásu

Merkilegt




6.1.2006 | (Empty title)

PARTÝÝÝÝ!!!!!!!!!!!!


2 comments
(Sveinbjorn)



4.1.2006 | (Empty title)

Úff, hið metnaðarfulla project mitt sem er litli mannfræðivefurinn virðist hafa verið einmitt það. Ögn of metnaðarfullt. Auk þess sem að ég er búinn að vera að vinna of mikið frá próflokum. Work truly is the curse of the drinking classes, ehh?

Allavega, layoutið er nokkurnvegin komið og allt efnið er óðum tilbúið. Það verður að hafa það þótt maður fái þetta ekki metið sökum seinagangs. Mér finnst þessi vefur bara frekar snazzy, og ætla að hafa hann sem pet-projectið mitt á næstunni.


(Viðbótarfærsla)

Úps, maður er orðinn svo vanur að skrifa sitt eigið url að ég virðist eitthvað hafa ruglast í ríminu. Allavega nú er linkurinn farinn að virka.


2 comments
(Steinn)



4.1.2006 | (Empty title)

Mér finnst Gillzenegger vera hommi.

(Viðbótaruppfærsla)

Hmmm... Það er nú kannski óþarfi að vera með leiðinda sleggjudóma hér, ég vil biðjast opinberrar afsökunar á ummælum mínum. Ég þekki marga góða einstaklinga sem eru samkynhneigðir og eru gott fólk, hið besta jafnvel. Láti það hér með vera sagt að mér finnst Gillzenegger vera fáviti og auli.




3.1.2006 | (Empty title)

Það hefur löngum þótt skemmtilegur siður hér á landi að binda endi á líðandi ár með því að birta gamanefni á sjónvarpsskjáum Íslendinga. Þá koma saman þespíur þær sem fróðastar þykja um gamanmál og ausa af viskubrunni sínum yfir landsmenn alla. Sannkallaður gleðitími og tilefni fyrir landann að kætast í síðasta sinn á árinu áður en það er svo kvatt með bros á vör í flugeldafans.

Í ár var haldið í gamlar hefðir og nokkrar hressar stelpur tóku sig til og börðu saman gleðiefnið sem á borð var reitt um áramót. Nú veit ég ekki um ykkur, en mér þótti það takast svona líka ægilega skemmtilega til.

Ótalin atriði kítluðu hláturtaugar mínar trekk í trekk.

Jú, jú. Hver getur gleymt grænmetisstelpunum hressu sem röppuðu um sellerí og sveifluðu dreadlockunum sínum um allt, útataðar í skósvertu? Mmmmm, precious!

Nú eða skemmtilegu börnunum sem dönsuðu sig út úr velheppnuðum eftirhermuleik um tvo hárfagra forseta? Toppið það með góðu móti!!!

Já, allt frá uppátækjum óheppnu hjónanna Eddu og Ladda í verslunarmiðstöð landsmanna Kringlunni, til nöldurgjörnu og litríku hárgreiðslukvennanna tveggja, var skaupið sannkallað andlegt konfekt fyrir þá sem að góðan húmor kunna að meta.

Skaupið í ár fær fimm fingur...

...samankreppta, beint upp í rassgatið, frá Arnaldi!!!

(and you can quote me on that!)


2 comments
(Baldur)