31.1.2006 | (Empty title)

Þá eru komnar í hús úrslit úr hinni sérlega yfirborðskenndu kosningu - Kynþokkkafyllsti Arnaldur Landsins 2005. Lokað var fyrir þáttöku kl. 18:20 GMT, eða rúmri viku eftir að skoðunarkönnunin fór af stað.

Alls tóku um 6253 manns þátt í að velja kynþokkadýr ársins 2005 og var valið mjög jafnt á köflum, en líka mjög ójafnt á öðrum köflum!?!

Hafa ber í huga að þrátt fyrir þá staðreynd að öll þessi yndislegu eintök af Arnöldum hafi háð með sér harða keppni, þá eru þeir í raun ALLIR sigurvegarar.
Þeir eru allir sigurvegarar þar sem að þrátt fyrir að töluverður munur kunni að vera með þeim útlitslega séð, þá hafa allir Arnaldarnir í raun sömu óþrjótandi uppsprettu af "innri kynþokka", og væri það því siðferðilegur glæpur að gera upp á milli þeirra...

Í heimi þar sem allir eru gegnsýrðir af ytri kynþokkadýrkun, má ekki gleyma að það er innri kynþokki sem skiptir máli.

En fyrir ykkur yfirborðskennda fólk sem að missir sig yfir ytri kynþokkanum sem að lekur af kynþokkafyllstu Arnöldum þessarar köldu, kynþokkafullu veraldar, hef ég skellt upp tölfræðilegum upplýsingum um kosninguna.


5 comments
(Arnaldur)




5 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sveinbjorn at 31.1.2006

Sveinbjorn

jei! Minn kandídat vann!

Og tal um "innri kynþokka" er bara eitthvað sem ókynþokkafullt fólk segir!

[ Reply ]

Arnaldur at 31.1.2006

Arnaldur

Ohhh!!! Sveinbjörn, þú ert svo yfirborðskenndur.

[ Reply ]

Steinn at 31.1.2006

Steinn

Vel af sér vikið, kynnþokkafyllsti Arnaldurinn. Ég vissi innst inni að „Hjálpartæki ástarlífsins" ynni, þar sem ég kaus hann. Ég kýs alltaf sigurvegarann. Go Sjálfstæðisflokkurinn! Nei, djók. Megveikt mikið djók! LOL!!

[ Reply ]

íris at 1.2.2006

Unknown User

Til hamingju "moose-Arnaldur" !!!
Þá veistu það Arnaldur minn - nú þarftu bara að draga fram gamla góða moose hlýrabolinn og truck driver gleraugun og þá muntu geisla af bæði ytri og innri kynþokka !!!

[ Reply ]

Arnaldur at 1.2.2006

Arnaldur

Veiiii!!!!!


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment