Results for 2006-02

28.2.2006 | (Empty title)

Jæja, þá er ég að fara að leggja af stað til London. Verð vonandi kominn á Liverpool Street station klukkan 18.00 á eftir. Annars skoðaði ég TAF-reportið hjá Damian í gær og þeir vildu meina að það yrði slæmt skyggni, sterkar vindhviður og nett snjókoma akkúrat klukkan 16.00, sem er þegar ég fer í loftið. Fyrir þá sem ekki vita, er TAF-reportið veðurspá fyrir flugumferð sem er töluvert nákvæmari og meira anal en veðurfréttirnar á RÚV. Þetta gæti seinkað fluginu, eða allavega gert það mjög óþægilegt. Það er allavega ljóst að það verður ekkert belly-loading í gangi á þessu flugi. En maður vonar bara hið besta.

Annars verð ég að segja að það er fokking kalt hérna og rakt loft sem gerir það ennþá kaldara. Í gær fór ég niður í bæ að kaupa mér sokka og fá mér að borða, og eventually niður í Tårnby of Death, og mér var ískalt allan tíman.

Vá, ég gerði heila færslu um veðrið...

...en ...leiðinlegt.



Hmmm... afhverju kemst ég ekki á HÍ-netið og webmailið og allt það? Fokking drasl.




27.2.2006 | (Empty title)

Jæja, kominn til Kaupinhafnar. Flugið gekk vel, og mig langar að þakka starfsfólki Icelandair, fyrir góða þjónustu. Lenti um klukkan sex í gærkvöld og tók einn dýrasta leigubíl mannkynssögunnar til Damian. Var nýbúinn að missa af lestinni og var þreyttur og ákvað því að taka leigubíl sem endaði á að kosta 300 DKK. Oh, well það var allavega þægilegt að fá skutl upp að dyrum. Kíkti svo út á Støvlen með Damian, sem er local værtshúsið hérna við Jyllingevej, og við fengum okkur fjóra bjóra. Pizza, internethangs og umræður um orðsifjar fyrir háttinn. Komst loks að konklusive niðurstöðu afhverju danskar tölur eru svona vanskapaðar og hvað Kraftedeme þýðir í raun og veru. Edermanme still remains a mystery.

Well, ég er farinn að njóta borgarinnar, then it's off to London tomorrow. Vona bara að meltingafærin mín fari að starfa rétt á næstunni. Er búinn að vera með ónot í maganum aðeins of lengi núna til að vera sáttur.


6 comments
(Ari Eldjárn)



21.2.2006 | (Empty title)

Annars langaði mig til að nýta tækifærið og benda þeim á, sem kunna að vilja koma höndum sínum yfir ritverk misskilda snillingsins Ólafs Ormssonar að það er nú hægt, sér að kostnaðarlausu.

Hér eru þær allar, Stútungspungar (sem er meiraðsegja spurt um í Trivial Pursuit), Skekkja í bókhaldinu, og Lostafullu ræningjabækurnar. Ekki er nein spurning um að hér er um sanna hilluprýði að ræða og hvet ég fólk eindregið til að nýta sér þetta einstaka tækifæri og hafa samband við hann Stein og krækja sér í hámenningu meðan hún býðst. Segið bara að Arnaldur hafi sent ykkur.

Hmmm... en svona án nokkura gamanmálalenginga, þá ættu þeir sem hafa jafnvel hinn minnsta áhuga að tékka á þessu. Kallinn er skemmtilegur, og goðsögn í þokkabót.

Tékka á Listræningjabókunum...



img

5 comments
(Sindri)



21.2.2006 | (Empty title)

Ávarp til fjallkonunnar

Fúll er hann af þér fnykurinn,
fjallkonutötrið ærusnauða.
Lítur þig alheimslókurinn,
en lítil er girndin í auganu eina og rauða.

Þú lagðist fyrrum gleið á grund,
undir gíruga mangara feita og danska.
Og mök við tyrkja heiðinn hund,
hafðirðu og sjómenn enska og franska.

Og nú ertu dönnuð, feit og fín.
Fuðina ilmvökvum smyrðu gljúpa.
Gröf vil ég taka þér gimbrin mín.
Ég ger'ana barasta nógu djúpa.

Nógu helvíti djúpa.


Magnús Þór Jónsson
img

1 comments
(Steinn)



18.2.2006 | (Empty title)

Í gær varð ég fyrir merkilegri upplifun. Ég fór út á lífið í fyrsta sinn í 2 vikur með þeim prýðismönnum Jóa, Helga Hrafni, Frikka Stein og fleirum. Eins og algengt er með þessi "escapades of the night" þá enduðum við á Prikinu, sem er griðastaður djammara eftir að flestir aðrir skemmtistaðir bæjarins hafa lokað dyrum sínum.

Ég komst fljótt að barnum þar sem að ég parkeraði mér í góða stund. Allt í einu fann ég að einhver var að ýta við mér með olnboganum. Ég sneri mér við og blasti þá við mér skælandi stúlkubarn. "Ég er alein! Allar vinkonur mínar eru farnar heim! Buhu!" sagði stúlkan. Er þá ekki kominn tími til að fara heim hugsaði ég, en sagði "Já, það var nú leiðinlegt". "Viltu kaupa handa mér bjór," sagði stúlkan þá. Fannst mér þetta í hæsta máta óvenjulegt og svaraði "haaaaa???" Eitthvað hélt stúlkan áfram að væla, og ég sneri mér að Jóa og átti við hann stutt orðaskipti. Þá tók ég allt í einu eftir því að stúlkan var að gefa einhverri annari stúlku sem sat hinumegin við barinn allskyns merki þegar ég sá ekki til.

Nújá, hugsaði ég, hún er að reyna að hössla bjór út úr mér. Ég hef heyrt sögur af þessum klækjakvenndum. Stúlkan hélt þá áfram að daðra við mig, bað mig að vera með sér þarna inni, og ekki skilja sig eftir og beiddist alltaf bjórs inn á milli. Þvílíkir leikrænir tilburðir, hugsaði ég með mér og ákvað að láta eftir suðinu og gaf barþjóninum merki um að koma með einn bjór. Eitthvað virðist þetta hafa farið framhjá stúlkukorninu, þar sem hún hélt áfram að leita á mig. Að lokum klikkti hún út með þeirri eftirminnilegu setningu: "Ég er mjög laus!" hvað svosem það átti að þýða. Lausgyrt, dettur mér helst í hug, eða það er laust um toppstykkið hjá mér, gæti það líka verið. Að svo mæltu kom bjórinn loks á borðið, og með því rauk stúlkan glottandi upp og skaust innar á staðinn og tillti sér hjá vinkonu sinni.

Þá spyr maður sig, er það svona sem að íslenskt kvenfólk er farið að haga sér á næturlífinu? Setja upp daðursfull sóðabrókarleikrit til að verða sér úti um bjór? Það er kannski ekki furða að íslenska konan hefur fengið á sig það leiðinda orðspor sem loðir við hana meðal útlendinga. Mér dettur helst í hug ávarp Megasar til fjallkonunnar.


8 comments
(Sindri)



17.2.2006 | (Empty title)

Jibbí!!!!

Ég var rétt í þessu að bóka mér flugferð frá Kaupmannahöfn til London þann 28. feb. og svo aðra slíka aftur til baka fjórum dögum seinna.

Rokk on!!!

Ari, I'm comin' to git ya!


6 comments
(Baldur)



16.2.2006 | (Empty title)

Búinn að skella upp temporary skissu síðu hérna á vefnum. Það er, eins og glöggir lesendur taka kannski eftir, kominn stór hlekkur fyrir neðan Balmorall kastala sem heitir "sketches". Vonandi liður sem á eftir að verða meira professional og umfangsmeiri í framtíðinni.

(Og já, ég veit að þetta er shoddy HTML. Ég breyti þessu í náinni framtíð.)

Tékkiði á þessu og segið hvað ykkur finnst.

13 comments
(7berg)



15.2.2006 | (Empty title)

Er að vinna að nokkrum skemmtilegum fídúsum hérna. Þolinmæði þrautir vinnur allar.

Annars er ég hálf fucked með hvað ég er kominn aftur úr í skólanum. Ekkert sem ekki er hægt að vinna upp samt. En ég er bara ekki að auðvelda mér hlutina beint.

Enough of this nonsense!


1 comments
(Anonymous Coward)



13.2.2006 | (Empty title)

Ég er búinn að þjást undanfarna 3 daga. Hluti þessara þjáninga stafar af viðbjóðs hitanum og flensunni sem að ég er búinn að ganga með og ala á, sem að ég get eiginlega ekki mælt með fyrir nokkurn mann. Hinn hlutinn stafar af öllu því ógrynni sóðalega illa unna sjónvarpsefnis sem að ég hef dottað mig í gegn um á þessum sama tíma sökum sjúklegs ástands míns. Leyfið mér að útlista:

Næstum því allir þættirnir sem að ég sá á skjá einum, the Bachelor, Australia's Next Top Model, Malcom in the Middle, Charmed, etc. virðast vera framleiddir fyrir fólk sem á við andleg vanheilindi að stríða. Sem útskýrir sennilega hversvegna ég hef aldrei fyrr getað pínt mig í gegnum svona þætti. Sit-com-arnir eru ekki fyndnir, raunveruleikaþættirnir eru bara pirrandi, og módelin eru ekki módel. Ég hef séð módel-legri stelpur vinnandi á kassa í Bónus.

Að lokum fékk ég nóg af dagskrárgerðinni sem stóð í boði og hélt veikburða út á vídeóleigu, kl, hálf 2 í fyrrinótt. Þá komst ég að því að þjónusta er eitthvað sem að virðist ekki fara Íslendingum vel.
Videohöllin, Lágmúla, kl.02.04:
-"Já, minn góði maður, ég ætla að fá þessa mynd... hvernig er það...? Eruð þið með eitthvað tilb..."
-"NEI!!!" greip litla strákhelvítið framífyrir mér. "Það gera 550 ISK!"
-"Bíddu? Ertu að rukka mig um 550 ISK, fyrir þessa VHS spólu? Þessi mynd er frá 2003 eða 4! Þetta er fokking VHS spóla!!!"
-"Hé,hé,hé. Já" sagði ómaginn glottandi.
-"Já, þú getur glott þínu sólheimaglotti í alla nótt kallinn minn, ég hinsvegar ætla ekki að taka þátt í þessari rányrkju!"
-"Ha? Nei, nei, ehhh.... þá, bara, ehhh..."

Ég rauk út og þræddi mig í gegn um völundarhús rauðra ljósa í náttmyrkrinu þar til að ég kom að Laugarásvideo. Klukkan var orðin rétt rúmlega 2 og á móti mér tók elskulegur eldri maður sem að tjáði mér að hann hefði nú eiginlega lokað fyrir um rúmri klst. síðan en endilega kæmi ég inn og finndi mér mynd. Ég gekk rakleitt að þeirri mynd sem ég hafði áður valið á DVD og tók eina aðra til. Maðurinn skeggræddi kumpánlega við mig um ágæti myndanna sem að ég var að leigja og kvaddi mig svo með virktum.
Loksins almennileg þjónusta!

Að lokum kom ég við á Devito's Pizza við Hlemm og keypti mér 2 sneiðar til að taka með. Drengstaulinn sem að var við afgreiðslu skellti sneiðunum í kassa sem gegnsýrðist á augabragði með olíum svo út úr vall.
-"Áttu nokkuð poka?" spurði ég drenginn.
-"Nei, við setjum ekki svona í poka." sagði gemlingurinn, standandi við hliðina á risastóru plastpokaknippi.
-"Ehhh... dude, þarf ég að borga fyrir pokann eða...?"
-"Nei, það eru ekki pokar með svona." útskýrði drengurinn fyrir mér aftur með nánast róbótískri nákvæmni.

Ég sá að þetta stoðaði lítið og keyrði heim sneyptur haldandi á pizzakassanum í annarri hendinni til að olíurnar settust ekki í áklæðið á bílnum.

Nú er þetta orðið allt of langt....


7 comments
(Steinn)



9.2.2006 | (Empty title)

arnaldur.org

Breytiði bookmörkunum ykkar, biatches!!! Það er rétt, Arnaldur er kominn með alvöru geðveikt lén...

Arnaldur, ekki lengur bara drasl... Núna með organisational skillz!!!


7 comments
(Anonymous Coward)



6.2.2006 | (Empty title)

img

Í gær fór ég að sjá kvikmyndina Walk the Line í Regnboganum. Walk the Line fjallar um ævi tónlistarmannsins og mega töff dude-sins Johnny Cash, einkum með tilliti til sambands hans við seinni konu sína June Carter.

Myndin er einkar vel gerð í marga staði og ber helst að nefna að þrátt fyrir töluverðar efasemdir fyrirfram af minni hálfu, þá leikur Joaquin Phoenix hlutverk Cash á einstaklega sannfærandi hátt. Sömuleiðis kemur Reese Witherspoon vel út og má segja að hún passi mjög vel í hlutverk sitt.

Ég hefði viljað sjá meira af ólöglegu athæfi mannsins og minna af kossaflensi og "stalking", en í heildina er myndin mjög vel heppnuð. Að lokum verð ég að nefna að Robert Patrick (Mr. T-1000) finnst mér vera sérstaklega kúl í þessari mynd og well cast.


2 comments
(Arnaldur)



4.2.2006 | (Empty title)

Jæja, þá er ævintýrið búið. Heimsóknir á síðuna komnar í eðlilegt horf á ný. Maggi ábyggilega ánægður með það. Ég verð nú að viðurkenna að þetta kynþokkafulla ævintýri kitlaði dálítið hégóma minn. Um sjö þúsund heimsóknir á einni viku og sjötta sæti á vinsælast vikunnar á b2.is. Samt voru nú standpínur náttúrunnar vinsælli. Sóðafólk, alltaf að hugsa um hörð typpi!

Ég vil fyrst og fremst þakka sjálfum mér, án hvers, þetta hefði aldrei verið mögulegt. Næst vil ég þakka ógeðslega fyndna húmornum mínum, sem er fyndnari og betri en hjá venjulegu fólki. Og svo síðast en ekki síst, Internetinu og Dan Quayle, upphafsmanni þess, fyrir að gera mér kleift að deila frábærleika mínum með almúganum. Og til allra ykkar hinna sem að efuðust um mig, og voruð leiðinleg við mig, F*** YOU!!!

(Living in Oblivion fyrir þá sem ekki fatta.)

img



1.2.2006 | (Empty title)

Kynþokkafyllsti Arnaldur landsins sviptur titlinum!!!

Reykjavík, Ísland, 01.02.2006 - Um þrjúleytið í dag bárust fregnir frá kynþokkanefnd þess efnis að hún hefði ákveðið að svipta Arnald Grétarsson, hjálpartæki ástarlífsins, titli sínum, sökum ósiðlegs atferlis undanfarna 24 klst.

"Ég var bara að halda uppá kosninguna!!!" lét Arnaldur hafa eftir sér í símaviðtali. "Ég er ekki hóra!!!" sagði hann í lok símtalsins.

Vangaveltur eru um hvort að þessi niðurstaða feli í sér að Arnaldur Grétarsson, fyrirsæta, hreppi titilinn, en hann var eins og kunnugt er í öðru sæti.

"Ég er ánægður með niðurstöður nefndarinnar ... þessi maður samræmist engan vegin hugmyndum mínum um ytri-, eða innri kynþokka, og persónulega vil ég ekki sjá minnst á kynþokka og þennan mann í sömu setningu ... Fyrirsætan er mun betur að titlinum komin." sagði Logi Bergmann, sem er sjálfur í framboði til embættis Kynþokkadýrs Íslands. "Mér líka!" sagði Bubbi, keppinautur hans.

Strax klukkan 15:11 í dag höfðu aðstandendur keppninnar breytt hamingjuóskum sínum til Arnaldar á heimasíðu sinni. Í stað þeirra voru hörð orð í garð hjálpartækisins.

Arnaldur Grétarsson, hjálpartæki hefur þegar haft samband við lögfræðinga í Englandi og hyggst höfða mál gegn aðstandendum keppninnar þar, dragi þeir ummæli sín ekki umsvifalaust til baka. "Ég hef heyrt að þessi "Arnaldur" sem sér um keppnina sé fáviti!!!" sagði Arnaldur aðspurður.


4 comments
(Níels Ben)



1.2.2006 | (Empty title)

Kynþokkafyllsti Arnaldur Landsins - Hórkarl!!!

Seint í gær voru teknar myndir af Arnaldi Grétarssyni að leggja stund á saurlífi. Kynþokkanefnd hefur komið saman og ræðir nú um að svipta Arnald titlinum, þar sem hann hefur brugðist skyldum sínum sem fyrirmynd ungra kynþokkafullra drengja.

img

5 comments
(Anonymous Coward)