6.3.2006 | (Empty title)

Hmmm... Einhverra hluta vegna virðist sá misskilningur hafa komið upp í tengslum við síðustu færsluna hérna að ég væri kominn til Íslands. Þetta eru ranghugmyndir af verstu gerð. Ég er nú staddur í heimsborginni Kaupmannahöfn, í Vanloese nánar tiltekið, og kem ekki heim aftur fyrr en á fimmtudaginn.

img

Við nánari skoðun sé ég ýmislegt sem kann að vekja umhugsun í færslunni að framan með tilliti til ranghugmynda lesenda. Ég geri ekki ráð fyrir að það sé mikill snjór og kuldi heima í augnablikinu, til að byrja með. Þar að auki tel ég ekki að það geti talist fréttnæmt að sitja við hliðina á íslenskri stúlku í flugi milli Kaupmannahafnar og Íslands. Því þykir mér rétt að benda á, og ástæðan fyrir því að ég minntist upphaflega á það hér að framan, að mér finnst það magnað að einu tveir Íslendingarnir (að öllum líkindum), í morgunflugi milli LON og CPH, skyldu lenda í sæmu sætaröð. Það er greinilega ekki þverfótað fyrir Íslendingum í Evrópu um þessar mundir.

Annars er nú ekkert sérstaklega merkilegt sem ég vil minnast á hér, fyrir utan nýja þætti sem ég rakst á og heita "House of Cosbys". Þættirnir fjalla um gaur sem að elskar Bill Cosby svo mikið að hann klónar hann og endar með hræðilega Multiplicity stemmingu heima hjá sér. Bill er víst eitthvað óhress með þessa þætti og það er orðið smá vesen að finna þá en þessi gaur er með þá alla saman. Alveg klikksins vert.

img

7 comments
(Sunna & Elmar)




7 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Steinn at 7.3.2006

Steinn

Wow, pretty fucked up!

[ Reply ]

Arnaldur at 8.3.2006

Arnaldur

Yup! Pretty fucked 's right!

[ Reply ]

Sveinbjörn at 8.3.2006

Sveinbjörn

Grrr...

[ Reply ]

Halldór Eldjárn at 10.3.2006

Halldór Eldjárn

Heyrðu! Þú ert efstur á Goooooogle.com sem Arnaldur :P

[ Reply ]

Friðrik St. at 11.3.2006

Unknown User

Þetta var mjög fyndið á köflum. Hitt var svona lala.

[ Reply ]

Arnaldur at 13.3.2006

Arnaldur

Já, heheh, frekar leiðinlegt að þeir urðu að hætta þessu. Annars fannst mér Data Analysis Cosby vera snilld, og líka Cosby 100.

[ Reply ]

Sunna & Elmar at 15.3.2006

Unknown User

Hæ hvað seguru? ertu á landinu?? við erum búin að vera að reyna að ná í þig....við verðum að fara að vinna í aðferðafræðiverkefninu. Endilega hafðu sambandi :)


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment