Já, þá er maður bara búinn að fylla heilan kvart. Til hamingju með afmælið elsku barnið mitt...
Mega partý á laugardaginn. Allir sem mér þykir vænt um velkomnir.
Til hamingju gamli maður. Þar sem ég kemst ekki í afmælið með gjöf hef ég ákveðið að senda þér smá vísukorn:
Þó skallirðu stundum staura
og stynjir við barinn prikið,
þá glyskvendi gabb'af þér aura
og þú leyfir þér að far'yfir strikið og klípa þær í rassinn.
Til hamingju, skeggjaði gaur. Þá erum við báðir orðnir gamalmenni (er 4 dögum eldri). Kveðja frá gömlum skólafélaga. Ps. skaffar ekki vinnan búsið fyrir veisluna?
Maður verður ekki minni maður. Innilega til hamingju.....Innilega...
Ekki ætla ég að leyfa Níels að eiga heiðurinn af afmæliskvæði. Mín verður limra:
Það var eitt sinn skeggjaður maður
sem var alltaf fullur og glaður
En þegar hann fór
og drakk mikin bjór
Þá varð hann stjörnuruglaður
Hann Arnaldur í silluna greip
en hún reyndist af ælunn'of sleip
hann hrundir til jarðar
á hellurnar harðar,
Svo á barinn í einum sveip!
Annars sé ég það hjá þér, Naldó, að þú merkir þetta sem Afmæli v. 25.0. Ég legg til að version numbering á aldri fólks styðjist við áratuginn, þannig að þetta sé í raun Afmæli 2.5. Fæstur hugbúnaður þróast upp í útgáfunúmer á borð við 25.0 -- satt að segja, þá held ég að áratugsmælikvarðinn endurspegli "the human condition" ágætlega -- því flestur hugbúnaður er orðinn að useless bloatware í útgáfum > 6.0, og er yfirleitt upp á sitt besta milli 2.0-4.0.
Ég sé að það er hægt að semja langt epískt kvæði um svaðilfarir Arnaldar í og við Prikið.
Já, kannski ættum við að "pool our resources", eins og sagt er, og leggjast í eitt slíkt.
Innilega til hamingju með afmælið félagi, maður kíkir á þig á laugardaginn og samfagnar áfanganum!! :)
Arnaldarkviða? Hún gæti væntanlega staðið stolt við hlið Þrymskviðu og Bjólfskviðu.
Já, hvur andskotinn. á dauða mínum átti ég von, en ekki þessu. Bara hetjukvæði og endalausar heillaóskir. Hmmm...
Ég þarf að passa mig. Þetta gæti stigið mér til höfuðs. Eins gott að ég er ekki kókhaus.
Btw. Það virðist vera eitthvað rugl með einhverja user image-a. Þetta er hið undarlegasta mál.
Ertu að meina að við förum einhverntíman saman í sund og semjum ferskeytlur/limrur í heita pottinum? Ég er til. Það þyrfti auðvitað að fara út í svolitla heimildasöfnun...
The password to post a comment is:
(Niels)