Undanfarna daga hef ég spilað mikið Scrabble, bæði á íslensku og ensku, aðallega við Sveinbjörn. Núna nýlega kom upp mikið og erfitt deilumál í enska Scrabble þar sem Sveinbjörn vildi fyrir alla muni hleypa orðskrípinu Ma (í merkingunni Mother) á borðið. Fyrir þetta hafði ég almennt litið á Sveinbjörn sem mikinn unnanda enskrar tungu og frammámann í skrifum á þeirri tungu hér á landi. En eftir þetta er ég ekki alveg viss. Nú er reyndar hægt að skilja rökfærslu Sveinbjarnar, þar sem að Ma kemur fyrir í einhverjum orðabókum. En lítum á staðreynd málsins. Ma er ekki enska. Ma er bara eitthvað sem ósiðmenntað fólk í útkjálkasamfélögum hins enskumælandi heims lætur upp úr sér við hinar neyðarlegustu aðstæður. Það og Kínverjar. Ég bið þess innilega hvern einn og einasta dag að ég muni aldrei þurfa að neyða þessu óhljóði upp á eyru mín áður en ég get lagst rólegur í gröfina fullsaddur lífdaga minna.
Tökum höndum saman, eyðum misskilningnum. Útrýmum orðskrýpinu Ma.
Hmmm....kemur fyrir í *einhverjum* orðabókum?
http://dictionary.reference.com/search?q=ma">Dictionary.com
http://www.askoxford.com/concise_oed/max?view=uk">AskOxford
http://www.dict.org/bin/Dict?Form=Dict2&Database=gcide&Query=ma">Dict.org
Og svo auðvitað kemur orðið einnig fyrir í ensk-íslenskri orðabók Arnar og Örlygar, sem og Compact Edition of the Oxford English Dictionary.
Fyrir mitt leyti er ég lítið gefinn fyrir fjölmörg orð í hinni engilsaxnesku tungu, en tel þau samt leyfileg í skrabbli. Maður getur ekki látið andúð sína og tilfinningar ganga í veg fyrir kalda rökhugsun og skynsemi.
ég man eftir því þegar ég var barn, þá sá ég í sjónvarpinu svertingja sem kallaði hvíta konu Ma. Og konunni líkaði það vel. Arnaldur, hatar þú svertingja og hvítar konur eða hvað?
Hinsvegar styð ég afstöðu þína Arnaldur í þessu deilumáli, því mér sýnist hinn bráðgáfaði Sveinbjörn taka þessu allt of alvarlega og ráðast fram af of mikili hörku. Hann er eins og stæltur ribbaldi, sem lemur ekki bara aðra stælta ribbalda, heldur líka lítil börn. Í þessu tilfelli notar hann orðskrípið Ma eins og lítið barn sem barefli. Barnið er orðið blátt og marið, en honum er sama, Sveinbjörn vill bara vinna gáfnasigur á Arnaldi!
Mér finnst þetta alltof lítilsverð umræða, aðallega vegna þess að hún er sprottin upp úr leik. Ég verð samt að taka aðstöðu með Arnaldi, aðallega vegna þess að þú, Sveinbjörn, settir þig gegn því að ég myndi nota orðið née, sem er vissulega frönskusletta en finnst í þessum orðabókum og jafnvel án franskst é.
Það á bara að spila þennan leik með eitt hardcover eintak af orðabók sem allir sættast til að útiloka svona petty ágreining.
Ég er sammála Árna. Velja eina orðabók -- ef orð kemur fyrir í henni, þá má nota það.
Hvaða maníska Scrabble-æði er þetta á ykkur þessa dagana? Þetta er skemmtilegt spil en þegar menn eru farnir að spila fram á morgun, sleppa því að éta og baða sig, starta svo umræðu um þetta á netinu þá byrjar maður að efast.=> Þetta er fíkn! Eins og allt sem menn stunda af ástríðu dag. Það er skilgreint sem fíkn. Þannig að ég ætla að vera með og kalla ykkur fíkla ;)
Þið hafið kannski tekið eftir því að í dag mega menn ekki hafa gaman af hlutum án þess að það sé skilgreint sem fíkn. Það þarf að skilgreina allt sem fíkn. Fótboltafíkn, tölvuleikja fíkn og guð má vita hvað.
það gengur ekki að hafa bara eina orðabók, ég sá í sjónvarpsþætti (á discovery) einu sinni að margir kínverjar geta lagt heilu orðabækurnar á heilann, þá getur maður ekki spilað við kínverja
The password to post a comment is:
(Steinn)