Já, ég er latur eftir gærkvöldið. Steven félagi er í heimsókn. Og ég er þreyttur og búinn að týna fullt af drasli á djamminu. As one does. Ég er meiraðsegja svo latur að ég nenni hvorki að skrifa meira, né fjarlægja Imdb top 250 linkinn neðst á síðuni minni, sem að mér skilst að sé mikil pína fyrir marga að horfa á og særi fagurfræðilega blygðunarkennd þessa sama fólks.
Ég hélt að ég hefði týnt rándýra Armani úrinu mínu. En það kom í leitirnar á endanum. Á hinum undarlegasta stað. Ég er alvarlega farinn að vilja gera gagngera rannsókn á svefnvenjum mínum þegar ég er drukkkinn og mögulegum svefngöngum sem gætu verið að valda þessum undarlegheitum.
The password to post a comment is:
(Arnaldur)