23.4.2006 | Arnaldur í Buttercup

Ég er dáldið pirraður núna. Reyndi að skella upp myndum úr afmælinu mínu. En í staðin virðist ég hafa deletað fullt af file-um út af servernum. Hið undarlegasta mál alltsaman. Annars kæmi mér ekkert á óvart ef að þetta væri bara eitthvað rugl. Netið virtist vera í algeru fokki niðrí skóla í dag.

En talandi um afmæli, þá fór ég í eitt slíkt á miðvikudaginn. Það var hjá Össa 7berg. Einstaklega kærkomin lífsreynsla, og vil ég þakka gott boð.

Annars er böl drykkjumannsins, vinnan, bara búin að hvíla þungt á mér yfir helgina. Lyfti mér þó aðeins upp á Laugardaginn. Hitti Sveinbjörn og Alla og féngum okkur smá bjór og reyndum að fá inni á elítista skemmtistöðum bæjarins.

Fór reyndar í lítið partý á Eggertsgötu á föstudaginn, en það telst eiginlega ekki með, þar sem að ég mætti seint og drakk lítið sem ekkert og fór snemma heim eftir einn bjór á Dillon. Skemmtilegt samt og áminningar vert.

Að lokum vil ég segja að ég skil ekki þessa últra-fascination sem að allir sem að ég tala við virðast vera með á þessari söngkonu sem er að fara að syngja með Garðari Thor Cortes, Catherine Jenkins. Það eina sem ég heyri þessa dagana eru setningar á borð við: "Tjah, hún er nú voða lagleg þessi breska!" eða "Já, þær eru nú ekki margar sem að geta þetta...Litið svona vel út og sungið svona fallega!". Ég veit ekki, mér finnst hún nú bara ekkert skara neitt það mikið fram úr á hvorugu sviðinu.

Allavega. Önnur slightly tilgangslaus nöldurs-athugasemd. Í dag fór ég í bíó á Bamba 2. Mér finnst þetta algert gaun. Ég man þegar ég var lítill. Þá hétu myndirnar frá disney bara Bambi, og Robin Hood og Little Mermaid eða Alladin. Núna heita þær allar 2 eða 3. Hversu glatað er það. Ég sé þetta fyrir mér sem blaðaviðtal:

"Hver var defining teiknimynd bernsku þinnar?"
"Jú það var, The Sword in the Stone 3, Arthur finds a turnip"

Hvað varð um að framleiða orginal hluti?

Annars gef ég Bamba 2 það að hún er frekar góð, albeit stutt. Kallinn varð bara hrærður nokkrum sinnum. Verð að hætta að bryðja þetta estrógen!


3 comments
(Sveinbjörn)




3 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Anonymous Coward at 23.4.2006

Unknown User

ég var alltaf í svona vandræðum með tölvuna mína líka, en svo hennti ég makkanum mínum, fékk mér PC og vandræðin eru úr sögunni. Svo er ég ekki sammála þér með þetta 2 og 3 bíómyndadæmi, td var besta mynd æsku minnar star wars 3, the return of the jedi...

[ Reply ]

Arnaldur at 24.4.2006

Arnaldur

point well taken. Star Wars 2 var helvíti mögnuð. En hey, ég hef samt rétt fyrir mér í þessu eins og öllu.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 24.4.2006

Sveinbjörn

To be pedantic, þá voru það Star Wars V: Empire Strikes Back, og Star Wars VI: Return of the Jedi, ss. 5 og 6 respectively. Star Wars 2 var viðurstyggð.

Annars væri ég alveg til í að sjá Sword in the Stone 3: Arthur finds a turnip. Þetta hljómar eins og prýðilegasta skemmtun.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment