25.4.2006 | Stúdentablaðið?

Ég gluggaði í gær í nýjasta eintakið af Stúdentablaðinu. Ég hafði nú tekið eftir því áður að blaðið bar með sér ákveðna vinstri slagsíðu en undur og stórmerki: Við mér blasti sá hinn mesti róttæklingableðill sem ég hef lengi séð. Við erum að tala um efni sem fékk sósíalistann og mannvininn Arnald til að blikna.

Er það sniðugt?

Ég les ýmis blöð og tímarit. Sum með meiri pólitíska slagsíðu en önnur. Almennt reyni ég þó að bíta á jaxlinn og balance-a þetta út með að lesa eitthvað úr öllum áttum.

Er það samt hlutverk Stúdentablaðsins að vera einhvert "rautt kver" í reykvísku háskólasamfélagi? (Eða ultra-pólitískt málgagn úr hvaða átt sem er?) Hver velur líka eiginlega þetta fólk sem stendur fyrir þessu blaði?

Eflaust þætti mér þetta þó ekki svona mikið tiltöku mál ef að greinarnar í blaðinu væru ekki svona illa skrifaðar. Nú geri ég mér grein fyrir því að próf eru á næsta leiti og það tekur eflaust tíma frá aðstandendum blaðsins. En það þykir mér engin ástæða til að henda allri rökhugsun og lágmarks coherence út um gluggan.

Það virðist vera sama í hvora áttina þú ferð á hinu pólitíska spectrumi. Ef þú ferð nógu langt breytast rök í kúk og samhengi í gubb. Og þegar þú ert farinn að æla og skíta í staðinn fyrir að ræða og skrifa þá hættir fólk að hlusta á þig.

______________

Hehehe. Í leit minni að þýska orðinu yfir jakkaföt fann ég þessa síðu sem fjallar um tóbaksfíkn Þjóðverja. Og hvaða tóbakstegund er það sem fer fremst meðal jafningja á þeirri síðu (allavega samkvæmt myndinni)?

Jú það er Roth Händle. Viðbjóðssígaretturnar sem Sveinbjörn og ég vorum að barma okkur yfir fyrir skemmstu.

It's official Roth Händle eru mestu viðbjóðssígarettur í heimi.


14 comments
(Sveinbjörn)




14 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

niels at 25.4.2006

Unknown User

Ég var að fatta að fyrir mánuði síðan keypti ég mér roth-handle til að prufa eitthvað þýskt. Og svo breyttist það útí að nota roth Handle til að læra hversu vont er að reykja og hætta. Nú á ég hálfan Roth Handle pakka hérna og er ekki hættur að reykja.
Svo margur maðurinn hefur brennt sig a Rothinum sé ég, humm humm humm.

[ Reply ]

Steinn at 26.4.2006

Steinn

Já það er ágætt að einhver skrifi um það hvað allt þetta sígóbrjálæði er að fara úr böndunum. Ég viðurkenni fúslega að reykingar eru mega óhollar og allt það, en fyrr má nú rota en nauðgamann í analinn. Það að kaupa sér sígó er eins og að fara og biðja um kúkaklám í Mál og menningu (ath. ætlað sem fyndin ýkja, ekki lesa of mikið í þetta!)

[ Reply ]

Stígur at 26.4.2006

Stígur

Hvaða greinar í Stúdentablaðinu ertu svona óánægður með? Nú hef ég reyndar bara lesið fjórar þeirra, en mér fundust þær allar alveg hreint til fyrirmyndar...

[ Reply ]

Einar Örn at 26.4.2006

Unknown User

Það er nú ekki tímaskortinum fyrir að fara, amk hjá ritstjóra blaðsins, þar sem þetta er 100% launuð staða.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 26.4.2006

Sveinbjörn

Einar, þú ert nú búinn að vera að pota þér áfram í þessari stúdentapólitík. Hvernig er þetta, hvernig verða menn ritstjórar Stúdentablaðsins? Hver velur þetta fólk? Og geta ritstjórar bara prómóterað hvers kyns propaganda, án nokkurs aðhalds? Hvernig er greitt fyrir þetta? Gerðu það, segðu mér að ég sé ekki að setja peninga í þetta rugl?

[ Reply ]

Doddi at 27.4.2006

Doddi

Ég held að stjórn Stúdentaráðs velji ritstjóra. Öllum er frjálst að sækja um stöðuna, held að hún sé auglýst í fjölmiðlum. En já, ritstjórnin er nokkuð frjáls. Varðandi kostnað, þá held ég að blaðinu sé fyrst og fremst haldið uppi á auglýsingum.

En ég er sammála, stefnan í þessu blaði er hrikaleg. "Af kapítalisma"; þetta var einum of mikil sófakommagrein.

[ Reply ]

Arnaldur at 27.4.2006

Arnaldur

Hmmm... afsakið latency-ið á að svara hérna. Já, ég var nú kannski full harðorður í garð þessa blessaða blaðs. Þar eru nú alveg ágætis viðtöl og pistlar inn á milli. En annars stend ég fyllilega við fyrri orð mín um illa skrifaða og rökstudda pistla, og vísa hér í nokkra þá helstu.

Ritstjórnarpistillinn, sem ég geri nú ráð fyrir að Doddi sé að vísa í, var hreint út sagt óskiljanlegur, en angaði af helberri vænisýki og ranghugmyndum um blökkumenn og þræla etc.

Næst á eftir kom enn vænisýkisfyllri grein um hvernig við vorum blekkt með 11. sept.
Nú er ég ekki frá því að þar sé enn ýmislegt á huldu, en greinin var bara full af bulli og rangfærslum.

Í heilsíðugrein um málfrelsi ruglar greinarhöfundur rækilega saman hugmyndum um málfrelsi, ritskoðun, niðurgreiðslu ríkis á listum, og kapítalísísk útgáfufyrirtæki.
Útgangspunktur greinarinnar er sumsé sá (eftir því sem ég best fæ séð) að greinarhöfundi finnist allir eiga jafnan rétt á að Sony gefi þá út. Það er bara undarleg hugmynd og hefur ekkert með málfrelsi að gera. Besides... Dúman var nú ekkert að bakka hvern sem er í Sóvét heldur. Pointið er, það er eitt að búa við málfrelsi og mega segja og gera það sem maður vill. Annað að þurfa að beygja sig undir ritskoðun þegar aðrir eru farnir að fjármagna útgáfu verka manns. Ég veit allavega ekki til þess að FBI ráðist inn til fólks í USA þegar það situr heima við prentarann að binda inn ljóðabækur.

Undir lokin var undarleg grein um hvernig hamingjan sé ekki nothæft hugtak og sé einungis búið til undir kapítalisma. Sem er bara augljóslega rugl. Ég er mjög hamingjusamur núna og það hefur fullkomlega reasonable merkingu fyrir mér.

Allt í allt þótti mér orðin Kommúnismi, Kapítalismi, Blóð og Olía koma of oft fyrir í blaðinu til að það gæti verið reasonable og balancerað.

Annars getur vel verið að ég hafi misskilið þetta allt. Blaðið var bara svo undarlega skrifað.

[ Reply ]

Friðrik St. at 28.4.2006

Unknown User

Þessi banner er frábær.

[ Reply ]

Steinn at 28.4.2006

Steinn

Mega man cool header! You pulled it of dude!

[ Reply ]

Sindri at 28.4.2006

Sindri

Ég er bara mjög sammála. Ég las nokkrar greinar í þessu blaði og fékk hroll. Þetta var virkilega lélegt blað, uppfullt af illa skrifuðum og óáhugaverðum greinum

[ Reply ]

Arnaldur at 28.4.2006

Arnaldur

takk, takk, takk...

[ Reply ]

Hildur at 29.4.2006

Hildur

NALDO MAN er ekkert smá flottur:)

[ Reply ]

Árni at 3.5.2006

Árni

Yo Naldo man,

Hérna er þetta fína pixelart tutorial sem ég fann sem kennir að skyggja item.

http://www.derekyu.com/extras/pixel01.html">http://www.derekyu.com/extras/pixel01.html

[ Reply ]

Sveinbjörn at 4.5.2006

Sveinbjörn

Á síðunni sem Árni linkaði á er annar hlekkur á snilldar Mac OS X forrit sem heitir Pixen, og er sérstaklega hannað með pixel work í huga. Ef ég hefði nú aðeins haft þetta hérna í gamla daga!


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment