Grrrr... Afhverju virkar firefox ekki rétt? Ég get ekki fengið rétt text-encoding til að virka. Séríslenskir stafir verða bara að drasli. Sem er frekar glatað. Ef einhver hefur rekið sig á þetta bögg má hann endilega láta mig vita og laga, laga.
Annars er klukkan núna 6.28 um morgun og mér líður reyndar furðulega vel, en er farinn að gera skuggalega margar innsláttarvillur og aðra asnalega hluti. Það fer að styttast í sjóntruflanirnar.
Að öðru leyti verð ég að segja að það er dáldið merkileg upplifun, finnst mér, að vera einn inn í Odda og fylgjast með þegar birtir af degi. Ég er voðalega mikið að ímynda mér að þetta sé marmarahöll sem ég búi í og hafi tekið meðvitaða ákvörðun um að innrétta á frekar stofnanalegan hátt. Millionaire eccentric pakkinn.
Annars þótti mér synd að horfa upp á öryggisvarðastúlkuna áðan leggja í fatlaðra-stæði. Ég veit að klukkan var 4 um morgun, og það var enginn á ferli, en á hverju eigum við von næst, þegar hinn leigði armur laganna er farinn að fremja svona hrapaleg stílbrot?
Jæja, ég ætla að hætta þessu rausi og fara að flýja inn í draumalandið. Svo er planið bara að leggja sig í 3 tíma og reyna að umbreyta útliti mínu (sem er í núverandi ástandi eitthvað í líkingu við þrútinn illa lyktandi svamp), í eitthvað sem að særir ekki svona augljóslega fegurðarskyn lítilla barna og smáhunda.
Það væri nú samt dáldið skemmtilegt flipp að leggja sig hérna á marmaranum. Sjá hvað fólkið segði þegar það mætti eftir 1-2 tíma. Hehehe. Skítugur Arnaldur í stuttbuxum á gólfinu.
Þetta var sigurvegarinn í keppninni, ekki satt? Mér fannst samt nokkrar aðrar vera töluvert betri.
The password to post a comment is:
(Doddi)