Results for 2006-06

28.6.2006 | Desperate Houseman

Hmmm...

Gerist það mikið betra?

  • Búinn að ryksjúga allt pleisið, og bílinn, og skúra.
  • Þvo allan fataskápinn minn eins og hann leggur sig (utan tveggja buxna).
  • Vaska allt upp sem hægt er að leggja sér til munns af og gott betur.
  • Henda öllu útrunnu fæði úr ísskápnum.
  • Taka skelfilega vel til.
  • Hreinsa hina ýmsustu hluti sem kölluðu á hreinsun (espressovél, brauðrist, klósett, vaska ofl.).
  • Skipta á perum og öryggjum þar sem það var þörf.
  • Herða lausar skrúfur hér og þar.
  • Hófst handa á tiltekt í bílskúr.

Ef Stalín hefði gengið svona vel með hreinsanirnar sínar, þá værum við öll talandi rússnesku í dag.

Þeim sem vilja koma í heimsókn í hreinlætisríkið Arnaldíu er það velkomið að vinnudag loknum.


6 comments
(Sveinbjörn)



27.6.2006 | Sigló er nóg

siglologo2

Ég er farinn á Þjóðlagahátíð á Siglufirði...

...vill einhver koma með?

Hver veit nema maður nái sér í eina síld eða tvær.


3 comments
(Halldór Eldjárn)



21.6.2006 | Bonus Pater

Já, lífið leikur sannarlega við mann þessa dagana. Fékk skeyti þess efnis að ég hefði verið hækkaður upp um 0,5 í kúkafaginu aðferðafræði, which was nice. Komst svo að því þegar ég skoðaði tölfræðina fyrir Rannsóknir að ég var temmilega ofarlega á skalanum, which was also nice.

Svo er bara að sækja nýja vélavinnuskírteinið mitt á morgun.

Er hægt að biðja um meira?


6 comments
(Sveinbjörn)



18.6.2006 | Drykkju-Móri

Ég var að hitta mann, sem gengst við nafninu Dykkju-Móri. Hann er ömurlegur og á enga samleið með mannvininum og góðmenninu Arnaldi.

Verum góð við Arnald í dag, hrekjum Móra á brott.




17.6.2006 | 17. Júní, HSÍ og allt hitt...

Vaknaði þunnur, fór á leikinn og það var eins og að stáli væri í mig slegið. Djövulli var þetta magnað. Guðmundur Kristján Jónsson fær heiðursnafnbótina snillingur fyrir boðið.

By the way, afhverju er ekki seldur bjór í Höllinni? Það myndi auka ánægjufactorinn af þessari annars stórskemmtilegu skemmtun um svona 32,56%. Reyndar myndi það líka stefna lífi Dómaranna í mikla hættu, en það verður ekki bæði haldið og sleppt. Það færi dómarafíflinu bara ekkert illa að fá sér make-over frá útfararstjóra.

En nei, annars ætlaði ég að vera búinn að minnast á að færslan hér að neðan var nú meira hugsuð á gamansömum nótum. Ekki sem ísköld staðhæfing um að mér fyndist kaffiheimsóknir vera hinn eini sanni mælikvarði á manngæði. Ég nefni þetta nú bara af því að einverjir virðast hafa tekið þetta of alvarlega. Hér með er það leiðrétt.

Annars vil ég bara bjóða fólk velkomið í kvöld til að drekka með mér bjór og hafa það huggulegt í faðmi manngæðisins Arnaldar.


2 comments
(Arnaldur)



13.6.2006 | Grasekkjumaður

Ég verð einn í kotinu frá og með miðvikudegi. Sökum hudgarmsins, verð ég mikið til fastur heima við utan vinnu, og vil ég því bjóða velgjörðarmenn velkomna á heimilið í kaffi og með því að vinnudegi loknum.

Nú verður gaman að sjá hverjir eru vinir manns.


7 comments
(Ari Eldjárn)



12.6.2006 | Ain't no sunshine when she's gone

Ég verð bara að leyfa mér að tjá mér um hversu ótrúlega skull veðrið er þessa dagana. Og með því á ég við síðasta einn og hálfan mánuð eða svo. Þetta er ótækt og ég mótmæli allur. Alltént vil ég fá karmíska endurgreiðslu.




Sumrinu 2006 aflýst!


sökum dræmrar þáttöku


1 comments
(Sveinbjörn)



12.6.2006 | Konar

Ég hef mikið velt fyrir mér orðinu -konar, í kjölfar samtals mín og Sveinbjarnar. Til að fólk glöggvi sig almennt á því sem við er átt hér, þá á ég við -konar, í orðum á borð við: allskonar, hverskonar, ýmiskonar.

Þeir sem að telja sig hafa einhverja skýringu á reiðum höndum, mega endilega tjá sig.




11.6.2006 | Útileigumenn brugga ráð á laun

camerapat

Fór í útileigu um helgina með Lindu sem var hið besta mál. Aðrir mögulegir og ómögulegir þáttakendur í þessari ævintýraferð urðu miðnætursólborgardjamminu að bráð, og er það vel. Ferðin var öll hin ánægjulegasta fyrir utan örlítinn lífsháska á tímabili og síðbúið myndavélarrán sem Linda þurfti að fórna ótrúlega sexí, nice, fallegu, góðu myndavélinni sinni í. Málið er enn óupplýst, en þykir hið undarlegasta í ljósi þess að töluvert var af hnossi í bifreiðinni sem ráðist var til atlögu á.

Persónulega hef ég eina þá mestu furðuveru, sem ég hef augum litið í seinni tíð, grunaða. "Maðurinn" sem um ræðir er c.a. 17-18 ára ung"menni" sem bar með sér ákveðið yfirbragð kvikmyndapersónunnar It's Pat, fyrir utan það að tala með aðeins minna unambigous rödd og það kvikindi.
Alltént syrgi ég nú myndavélina hennar Lindu með henni og þær ágætu myndir sem á henni voru. Við vonum að þetta mál verði leitt til lykta sem allra fyrst og að justice will move swiftly.


1 comments
(Sveinbjörn)



7.6.2006 | Kílómetrar afmældir

angelheartlouie

Já, á degi kölska í gær (þeim numerically significant degi), varð mér litið á kílómetramælinn á bílnum mínum. Ekinn kílómetrafjöldi var 230381 km. Fæðingardagurinn minn er 230381. Það var mér því bæði afskapleg gleði að taka eftir þessu (þar sem að ég lít annars aldrei á þennan mæli) og álíka hryggjandi að keyra fram úr fæðingardeginum mínum og horfa á afmælin mín í gegnum árin renna hjá. Svona þarf nú lítið til að gleðja/hryggja litla sál.

Sem stendur er ég 13 ára, samkvæmt kílómetramælinum á bílnum mínum. Kannski ég keyri hann í nokkra kílómetra í viðbót, 13 var hallærislegt ár fullt af gelgju og hormónum.

Ég reyndi nú að festa þennan merkilega viðburð á filmu en náði held ég ekki nógu góðri mynd á símadraslið mitt. skelli því upp ef ég kemst í Bluetooth við tækifæri.

Annars komst ég eiginlega að þeirri niðurstöðu að ég hlyti að vera afsprengi kölska (á la Omen) og að bíllinn minn væri Satanmobile. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.

Annars er kallinn bara sáttur eftir að hafa frétt að kempan hann Rikki hafi komið Pel-Job (vinnuvélin sem ég rústaði í gær) í gang á ný...

Lengi lifi draslið Pel-Job

Jæja, ég nenni þessu ekki. Ég sé Stein Linnet í gegnum gluggan. I'm out.


2 comments
(Sveinbjörn)



6.6.2006 | Veltins

veltins

Góðan og blessaðan djövulsins daginn. Belsebúb er strax farinn að angra mig á þessari grábölvuðu dagsetningu 06.06.06. Rétt í þessu tók hann sér bólfestu í líkama mínum og velti vinnuvél í vinnunni með þeim afleiðingum að hún rústaðist. Núna er Arnaldur mjög framlágr og illa haldinn af visku sambiti.

R.I.P. Pel-Job


2 comments
(Arnaldur)



1.6.2006 | Trópí

Jújú, þá er maður farinn á Trópí. Í fyrsta sinn á ævinni er ég ánægður með að vera í viðskiptum við KB-kúk. Reyndar man ég að ég gladdist mjög yfir Vaxtalínu fílófaxinu sem að ég fékk að gjöf þegar ég gekk fyrst til liðs við Búnaðarbankann heitinn. Síðan þá hefur þetta bara verið a downward spiral of disappointment. En í dag fékk ég 2000,- ISK afslátt af miðanum mínum á Reykjavík Trópík. Hver veit nema að maður mögulega haldi áfram að láta KB punda sig - að ég tali nú ekki um ef að þjónustubellinum tekst að ná prikinu úr rassgatinu á sér.

Reyndar vil ég aðeins lýsa yfir vanþóknun á þessu ananasþema, en eins og allir vita er ananas ávaxtabarn djövulsins. Hvað er næst? Mintutyggjóþema?

Að lokum er mér spurn hvort að einhver sá Kastljósið? Það var gaman að sjá hvernig enskumenntun grunnskólanna skilaði sér í viðtali Ragnhildar Steinunnar við vísindamanninn Neal Copeland. Þar tönglaðist stúlkukindin á orðskrípinu mouses í merkingunni mice. Eða var hún kannski að tala um Móses allan tímann?


5 comments
(Arnaldur)