1.6.2006 | Trópí

Jújú, þá er maður farinn á Trópí. Í fyrsta sinn á ævinni er ég ánægður með að vera í viðskiptum við KB-kúk. Reyndar man ég að ég gladdist mjög yfir Vaxtalínu fílófaxinu sem að ég fékk að gjöf þegar ég gekk fyrst til liðs við Búnaðarbankann heitinn. Síðan þá hefur þetta bara verið a downward spiral of disappointment. En í dag fékk ég 2000,- ISK afslátt af miðanum mínum á Reykjavík Trópík. Hver veit nema að maður mögulega haldi áfram að láta KB punda sig - að ég tali nú ekki um ef að þjónustubellinum tekst að ná prikinu úr rassgatinu á sér.

Reyndar vil ég aðeins lýsa yfir vanþóknun á þessu ananasþema, en eins og allir vita er ananas ávaxtabarn djövulsins. Hvað er næst? Mintutyggjóþema?

Að lokum er mér spurn hvort að einhver sá Kastljósið? Það var gaman að sjá hvernig enskumenntun grunnskólanna skilaði sér í viðtali Ragnhildar Steinunnar við vísindamanninn Neal Copeland. Þar tönglaðist stúlkukindin á orðskrípinu mouses í merkingunni mice. Eða var hún kannski að tala um Móses allan tímann?


5 comments
(Arnaldur)




5 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sveinbjörn at 2.6.2006

Sveinbjörn

Argh, Naldó! Ertu að segja mér að þú sért að fara að fyrirgefa KB skullfökkunum fyrir að vera evil yuppie douchebags af þeirri ástæðu einni að þeir gerðu einhvern sérdíl við tónleikahaldara? Jaysis...

[ Reply ]

Steinn at 2.6.2006

Steinn

Já, ég hefði gjarnan viljað fara á Trópí, mig langar til að sjá ESG. Annars skil ég ekki hvað þú hefur á móti ananas, mér finnst þetta annars ágætur ávötur eins og nær allir ávextir.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 3.6.2006

Sveinbjörn

Já, ananas er fínn. En af einhverri ástæðu álítur Arnaldur ananas vera Il Frutto Del Diablo

[ Reply ]

Anonymous Coward at 5.6.2006

Unknown User

Sparisjóðurinn rúlar, þar eru allir þjónustufulltrúarnir undirgefnar gellur!

[ Reply ]

Arnaldur at 6.6.2006

Arnaldur

ég heyrði það reyndar... hef mikið velt því fyrir mér að kíkja þangað.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment