Vaknaði þunnur, fór á leikinn og það var eins og að stáli væri í mig slegið. Djövulli var þetta magnað. Guðmundur Kristján Jónsson fær heiðursnafnbótina snillingur fyrir boðið.
By the way, afhverju er ekki seldur bjór í Höllinni? Það myndi auka ánægjufactorinn af þessari annars stórskemmtilegu skemmtun um svona 32,56%. Reyndar myndi það líka stefna lífi Dómaranna í mikla hættu, en það verður ekki bæði haldið og sleppt. Það færi dómarafíflinu bara ekkert illa að fá sér make-over frá útfararstjóra.
En nei, annars ætlaði ég að vera búinn að minnast á að færslan hér að neðan var nú meira hugsuð á gamansömum nótum. Ekki sem ísköld staðhæfing um að mér fyndist kaffiheimsóknir vera hinn eini sanni mælikvarði á manngæði. Ég nefni þetta nú bara af því að einverjir virðast hafa tekið þetta of alvarlega. Hér með er það leiðrétt.
Annars vil ég bara bjóða fólk velkomið í kvöld til að drekka með mér bjór og hafa það huggulegt í faðmi manngæðisins Arnaldar.
Mér þykir miður að hafa ekki rúllað í heimsókn kvöld. Sér í lagi sökum kveðjugjafarinnar. En hún bíður þá bara betri tíma. Koma tímar koma ráð.
The password to post a comment is:
(Arnaldur)