25.7.2006 | Bardagar í Reykjavík

Jæja, já, já.

Er búinn að vera hálf slappur síðustu tvo daga, og því bara hafst við heima undanfarið og lagt rækt við yfirvaraskeggið mitt, sem er orðið það massíft að ég get ekki lengur tekið sjálfan mig alvarlega þegar ég sé mig í spegli.

Picture 3

Ég myndi setja inn mynd af því en það er ómögulegt, af því að það er svo stórkostlegt að linsan sér það ekki... það og að batteríin í myndavélinni minni eru fucked.

Í raun er það orðið svo mikilfenglegt að það dregur orðið athygli frá fríðum andlitsdráttum mínum, og hef ég því ákveðið að taka þátt í mottukeppninni sem að Maggi Lego vinnur alltaf. Ef einhver veit eitthvað um þessa keppni má endilega láta mig vita hvenær hún er og hvað maður þarf að þekkja marga í GusGus til að vinna

Nú nálgast verslunarmannahelgin óðfluga með hefðbundinni villimennsku og ólátum. Í tilefni af því vil ég stofna til nýrrar úti/innihátíðar í Reykjavík, sem ég kýs að kalla Bardagar í Reykjavík. Áhugasamir skrái sig hér á síðunni.

bloodmoney

Annars reif ég upp hljómplötuna Blood Money með Tom Waits um daginn í tilefni af því að Steini kollegi minn lét sig hverfa til London að raula undir með sýningum á Woyzeck þarlendis. áttaði mig á því hversu mikill gullmoli þessi plata er. Einkum og sér í lagi lagið, A Good Man is Hard to Find. Reyndar er öll platan frekar solid í gegn, sérstaklega textarnir, og mæli ég því með því að fólk drullist til að hlusta á þetta.


11 comments
(Svanur)




11 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Hildur at 25.7.2006

Hildur

Ég skal mæta á hátíðina þína "Bardagar í Reykjavík"... Nafnið er frábært:)

[ Reply ]

Árni at 25.7.2006

Árni

Aðalatriðið er að þekkja Bigga Veiru. Hann er sprautan af power sem þú þarft til að komast á toppinn. Hinir eru bara peð í þessu yfirvaraskeggs valdatafli.

[ Reply ]

Steinn at 26.7.2006

Steinn

Ég er ekki sammála Árna, best er að þekkja Urði og þá helst ef þú hefur stundað "vertical mambo" með henni, allir vita að hún er með mikla brókarsótt! Hvað eru annars "Bardagar í Reykjavík"? Það er lítið um slagsmál í Reykjavík um verslunarmannahelgina, ertu að hvetja fólk að lemja hvort annað?

[ Reply ]

Dagga at 26.7.2006

Dagga

Ég skal koma á Bardaga með einu skilyrði: Ég fái að vera svona kona sem gengur fáklædd með stigatöflu í hringnum.

[ Reply ]

Arnaldur at 26.7.2006

Arnaldur

BAR-dagar...

[ Reply ]

Arnaldur at 26.7.2006

Arnaldur

Svo er líka svo mikill barningur að leggja stund á barina.

[ Reply ]

Árni at 27.7.2006

Árni

Steinn hefur rétt fyrir sér. Það slær ekkert út að hafa stundað "vertical mambo" með Urði uppá að vinna þessa blessuðu keppni.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 28.7.2006

Sveinbjörn

Blood Money er frábær diskur, tek undir þér þar.

[ Reply ]

Halldór Eldjárn at 30.7.2006

Halldór Eldjárn

suss já!

higher the monkey can climb, the more he shows his tail, call no man happy 'til he dies, there's no milk at the pail

[ Reply ]

Baldur at 31.7.2006

Baldur

Vá hvað ég var ekki að fatta að bardagar væru BAR-dagar...but me like :)

[ Reply ]

Svanur at 1.8.2006

Svanur

Eini gallinn við keppnina er að hún er venjulega haldin á Sirkus að ég held. Vonandi verður þér hleypt inn þar eftir þínar hrakfarir þar í röðinni í gegnum tíðina. En ef skeggið er jafnmikilenglegt og þú segir þá ætti enginn að kannast við þig eða tengja við þitt fyrra sjálf.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment