27.7.2006 | Total Eclipse of Skífan

skifudrasl

Ég gerði mér ferð í Skífuna um daginn. Skífan er verslun með nokkur útibú á höfuðborgarsvæðinu sem gefur sig út fyrir að versla með hljómplötur og annað afþreyingarefni. Skífan er samt ekki verslun sem selur hljómplötur. Skífan er verslun sem reynir af veikum mætti að þykjast selja hljómplötur á verðum sem eru úr tengslum við raunveruleikann.

Eftir að hafa leitað þó nokkra stund að efni sem ég hafði hugsað mér að festa kaup á, kom í ljós að allir fimm titlarnir sem ég bar upp á afgreiðslufólkið voru ýmist uppseldir eða höfðu ekki verið keyptir inn.

Einstotaleclipse

Ég ráfaði um í leit að einhverju bitastæðu en fann fátt, og það var allt verðmerkt með óraunhæfum upphæðum. Loks rakst ég á smáskífu með Einstürzende Neubauten sem ég hef um þó nokkurt skeið rennt hýru auga til, Total Eclipse of the Sun.* Smáskífan kostaði 2.499,- ISK.

Ég spurðist fyrir um hvort hér væri ekki um mistök að ræða en svo var ekki og báru afgreiðslumenn "undarlegri verðlagningu" við.

Ég tók undir það.

Nú geri ég ekki ráð fyrir að við séum ógnvekjandi her fólks, sem myndum leggja okkur eftir smáskífu með Einstürzende Neubauten - ekki margir aðrir sem ég veit um sem eru sérstaklega að safna plötum með þeim. Í því ljósi spyr ég: "Ef ég er ekki tilbúinn að greiða 2.499 krónur fyrir smáskífu með Einstürzende. Hver er þá tilbúinn að greiða 2.499 krónur fyrir smáskífu með Einstürzende?"

Svarið er ekkert sérlega flókið. Það er: "Enginn"

Skífan þarf virkilega að fara að endurskoða innkaupa-/verðlagninga-/lagerstefnuna sína.

einsturzenderedlogo

*(ath. Total Eclipse of the Sun er ekki einhver raritet-runk-smáskífa. Hún er bara venjulegur 4 track smáskífudjöfull.)


8 comments
(Arnaldur)




8 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Anonymous Coward at 27.7.2006

Unknown User

Þetta er göfugt band byggt á gömlum og góðum gildum sem allir ættu að sýna ýtrustu virðingu, jafnt and- sem efnislega. 2499kr er dropi í hafið, ekki dropinn sem fyllir mælinn. Vinsamlega reynið að skilja það. Eða deyja ella heimskur.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 28.7.2006

Sveinbjörn

Fyndið -- Skífan, líkt og aðrar hljómplötuverslanir, er í samkeppni við Internetið. Fólk eins og ég hugsar með sér "Hmm....ég GÆTI borgað 2500 kr. fyrir 4 lög með Einstuerzende, eða ég gæti SÓTT lögin á netinu". No contest. Síðan er safnarafólk eins og Naldó, sem fílar að eiga tónlistina efnislega, og vill vera heiðarlegur -- þetta er markhópur hljómplötuverslunar -- og að misbjóða þeim er yfir strikið. Go tell'em Dawg!

[ Reply ]

Árni at 28.7.2006

Árni

Maður þarf ekki að vera safnari til að vilja kaupa músík á diskum/vínyl, Sveinbjörn. Hljómgæði koma líka inní þetta þar sem að mp3 ná vanalega ekki meiri gæðum en 192kbps. Svo er oft umbúðir plötunnar hluti af heildarmyndinni. Svo vill maður kannski styrkja tónlistarmanninn.

[ Reply ]

Steinn at 29.7.2006

Steinn

Ég held að ástæða þess að skífan geri ekki betur er vegna þess að þeir hafa enga samkeppni! Jújú, BT selur diska, svona u.þ.b 30 titla og síðan eru 12 tónar sem eru með underground og klassík og what not, sem skífan hefur engan áhuga á að versla með. Þeir eru þannig séð eina tónlistarverslunarkeðja Íslands! Fyrir fá einum árum kostuðu CD 1900 kall og þá voru þrjár verslunarkeðjur, Skífan, Japis og M&M. Go MP3 and internet retail.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 29.7.2006

Sveinbjörn

Þegar ég var uþb 15-16 ára þá kostuðu CDar á Íslandi um 1800-1900 krónur -- ég held að núverandi verð (~2500 krónur) sé í grófum dráttum sama verð ef verðbólga er tekin inn í myndina.

Geisladiskar hafa alltaf verið grossly overpriced síðan ég man eftir mér...

[ Reply ]

Arnaldur at 29.7.2006

Arnaldur

Þessi smáskífa kostar £4.99 á amazon.co.uk. Að greiða 2.500, ISK fyrir hana er því vatnsfata í haf heimskulegra viðskiptahátta.

[ Reply ]

Svanur at 1.8.2006

Svanur

Þetta með undarlegu verðlagninguna kannast ég við. Það er í rauninni einhver fáviti á skrifstofunni sem veit ekki hvað hann er með í höndunum og verðleggur allt sem full price diska, ekki vitandi hvort um sé að ræða ódýrari vöru frá framleiðanda eða smáskífu. Gallinn er bara að maður talar svo sjaldan við manneskju sem hefur vald til að tala við fólkið á skrifstofunni, of miðstýrt fyrirtæki öfugt við 12 tóna.

Ég man eftir því að hafa sagt einhverjum gaur sem sá um klassíkina í Kringlunni að einn diskur hjá þeim væri rangt verðlagður þar sem serían sem þetta væri væri svokallað midprice en ekki full price. Hann sagði að hann gæti ekkert að þessu gert, svipað og náriðillinn hja Hugleiki Dagssyni.

Maður þarf bara að reyna að koma fólki í skilning um að maður viti hvað maður er að egja og kannski fattar það að það ætti kannski að benda á þessi fáránlegu mistök skrifstofufólksins sem veit ekkert um hvað línan sem er á reikningnum í raninni merkir.

[ Reply ]

Arnaldur at 1.8.2006

Arnaldur

Já. Fólk er fífl.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment