8.8.2006 | Fjörtjón í lágmarki

BarDagar fóru vel fram og voru ágætlega sóttir af góðmennum hópi fólks. Lítið var um ofbeldis- og nauðgunarverk utan munnhöggs sem kom upp við lítinn hóp ungmenna sem reyndu að smygla sér inn á hátíðina án þess að vera með aðgangsmiða.

Mennirnir kváðust vera að leita að nauðgunarverki og ætla að leiðrétta það með ofbeldisverki, hvað svo sem marka má sannleiksgildi staðhæfinga þeirra.

Eftir að mönnunum hafði verið leiðbeint í átt að Fjólugötu, sem virtist vera upphaflegur áfangastaður þeirra og götuskilti borgarinnar lesin og túlkuð fyrir þá, kvöddu mennirnir með orðum um "að gaman væri að sjá okkur Íslendingana standa saman, þess væri brýn þörf sem mótvægi við hópa innflytjenda af asísku bergi brotnu."

Að öðru leyti var hátíðin öll hin ánægjulegasta, lítið var um fjör-tjón og verður stefnt á að endurtaka hana í það minnsta að ári liðnu, ef ekki fyrr.

wtfxyz

Að öðru leyti langar mig að minnast á ákveðna undrun sem lagðist yfir mig þegar ég hlustaði á lagið XYZ með Boards of Canada af plötunni Peel Sessions. Það sem angraði mig og gerir enn er að John Peel, sem borinn er og barnfæddur í Englandi leyfir sér að kynna titilinn á laginu með því að bera fram Z sem "zee". "zee" er óheflaður amerískur framburður og er ósmekklegur og bliknar í samanburði við "zed" sem er breska útgáfan. Reyndar bjó Peel lengi í Bandaríkjunum en mér finnst það engin afsökun. Manni koma til hugar orð Butch í kvikmyndinni Pulp Fiction:

"Zed's dead, bayby. Zed's dead."


7 comments
(Sveinbjörn)




7 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Hildur at 8.8.2006

Hildur

Sögðu þessir strákar þetta í alvörunni???

[ Reply ]

Sveinbjörn at 9.8.2006

Sveinbjörn

Kemur það þér á óvart, Hildur? Ég lenti nú í einum rasistadjöfli á Akureyri sem spurði mig hvort ég væri ekki örugglega Íslendingur, og hvort ég vildi að Arabar riðu mér í rassgatið, þegar ég lýsti því yfir að rasistaskoðanir hans væru skítómerkilegar og að hann myndi gera betur með því að þegja með þær.

Síðan kýldi hann mig :)

[ Reply ]

Sindri at 9.8.2006

Sindri

Ég hef tekið eftir því að yngri kynslóðin er mjög fordómafull í garð innflytjenda af asísku bergi brotnu. Töluvert meira en ég gerði mér grein fyrir. Ég veit ekki hvaðan þessir fordómar koma.

[ Reply ]

Hildur at 9.8.2006

Hildur

Ertu að grínast Sveinbjörn!!! Hvað er að gerast með fólk...

[ Reply ]

Sveinbjörn at 10.8.2006

Sveinbjörn

Hvað er að *gerast* með fólk?

Hmm....ég hugsa að fólk hafi bara alltaf verið svona, satt að segja. Eflaust skárra nú í dag hvað snertir umburðarlyndi heldur en oft áður í mannkynssögunni.

[ Reply ]

Arnaldur at 12.8.2006

Arnaldur

Já, þeir létu hafa þessi orð eftir sér.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 21.8.2006

Sveinbjörn

Hvernig er svo í Nýju Amsterdam?


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment