Hér ber að líta forsíðu Blaðsins. En hvaða dagsetningu? Það er öllu snúnara. Blaðamennskan í þessu tilviki er svo tímalaus að það er engin dagsetning á forsíðunni.
En jú, þetta er forsíða blaðsins þann 20. september 2006. Og ég verð að vera sammála þeim. Hókus Pókus dagar í Leikbæ hljóta að vera eitt það fréttnæmasta sem komið hefur fyrir á árinu. Hverjum stendur ekki á sama um heimsmálin þegar það er 33% afsláttur af leikföngum og "KVISS, BAMM BÚMM" í Leikbæ.
Reyndar verður maður, við tækifæri sem þessi, að fara aðeins að hugsa út í réttmæti staðhæfinga Blaðsins um "frjálsa, óháða og ókeypis" blaðamennsku þegar svona mikill þungi er lagður í eina frétt. Ég er ekki frá því að mér finnist vera smá keimur af selective reporting framan á Blaðinu, allavega téðan dag.
Ennfremur finnst mér það kannski líka liggja nokkurn vegin í hlutarins eðli að frelsi feli það í sér að vera óháður. Er þá Blaðið kannski bara frjálst og ókeypis? Þeir ættu þá kannski bara að draga þetta allt saman í hnitmiðaðan undirtitil: Free.
Einhvern vegin fæ ég þó á tilfinninguna að það sé langt frá því að vera ókeypis að auglýsa í Blaðinu. Ennfremur fæ ég það á tilfinninguna að Blaðið sé langt frá því að vera óháð auglýsendunum sem að leggja undir sig heilu forsíðurnar og opnurnar. Getur Blaðið þá talist vera frjálst? Er Blaðið þá yfir höfuð frjálst, óháð eða ókeypis?
Allavega. Burtséð frá öllum þessum vangaveltum er Blaðið miðill að mínu skapi. Þar eru engar pestering fréttir af valdaránum, brottför Kanans eða óeirðum í Ungverjalandi. Bara endalaus neyslugleði.
Þetta er heimspekilegasta færsla Arnaldarins hingað til. I, for one, welcome our new philosophical overlord!
The password to post a comment is:
(Sveinbjörn)