Results for 2006-10

24.10.2006 | Suðurland-V skyggni ágætt...

Picture 1

Helgin var stormasöm og viðburðarík með Airwaives og tilheyrandi. Sá fullt af tónlist og drakk allskonar bjór.

Ég vil senda Árna Kristjánssyni eldheitan elektrónískan cyber-knús beint úr viðjum Kárahnjúka fyrir að plögga mér fallega rauða armbandinu sínu.

Annars verð ég að segja að ég verð alltaf pínku fyrir vonbrigðum með Airwaves. Maður nær aldrei að sjá allt sem maður vill (sem er nú eðli svona hátíða) en neyðist aftur á móti til að sjá fullt sem maður vill ekki. Vegna þess að maður má ekki fara út af stöðum ef maður kemst inn. Annars eyðir maður kvöldinu í biðröðum. En nóg um það.

Ég hugsa að ég hljóti að vera einn af fáum Íslendingum sem að hlustar á veðurfréttir RÚV af fullkominni athygli (með hmmmhmmm og öllu) þegar ég dett inn á þær. Það yljar mér alltaf um hjartarætur að heyra veðurfréttamanninn þar tala um millibör en ekki hektópasköl. Eins og tíminn hafi gleymt honum. Persónulega þykir mér alltaf vænna um millibör en hektópasköl. Reyndar er ég svo mikill anakrónisti að ég myndi vilja hafa vindstig ef ég fengi einhverju ráðið í heiminum.

Að lokum...



Spurning vikunnar:

  • Er betra að vera framúrskarandi góður í einhverju einu?
  • Eða semi fær í öllu?
  • Og ef að það er betra að vera framúrskarandi góður í einhverju einu, hverju er þá best að vera cyber-dýnamít góður í?

11 comments
(Arnaldur)



19.10.2006 | Mongohalvfems

mongohalvfems

Í busaútgáfu skólablaðsins Loka í MR, fékk ég þann virðulega titil "Mongó Halvfems", út af lélegri mynd sem náðist af mér og óvirðulegur samnemandi minn sendi í blaðið. (Reyndar gæti þetta verið misminni hjá mér og Alli hafa fengið titilinn.) Allavega, svívirðilegar myndir voru sendar inn og mannorð góðra manna dregin í svaðið, þar á meðal mitt.

Nú níu árum síðar, með hjálp nútíma tækni hefur mér tekist að endurskapa þessa mynd, og gott betur, því að nú lít ég út fyrir að vera virkilega illa á mig kominn. Takið eftir óhugnarsvipnum á Össa yfir vansköpuninni.



(Gert með forritinu Photobooth, sem er rugl skemmtilegt forrit og ég verð að eignast.)

The Mongó lives


6 comments
(Hjalti)



17.10.2006 | Hmmhmmm...

Ég var að komast að því að ég er apparently með skelfilega pirrandi kjæk, eða ósið, sem ég hafði ekki gert mér grein fyrir.

Svo virðist sem að þegar að ég sit fyrirlestra sem að kitla áhuga minn, þá samsinni ég fyrirlesaranum með hmm, hmmmhmmm, ammm eða mmmm á eftir hverri áhugaverðri og skiljanlegri setningu. Þessu hafði ég ekki gert mér grein fyrir og hef ekki hugmynd um hvort að þetta er eitthvað nýtilkomið eða eldra fyrirbæri.

Reyndar finnast mér þetta leiðinlegar fréttir, þar sem að sjálfur hef ég frekar litla þolinmæði fyrir svona rugli.

Í ofanálagið hef ég verið eitthvað hálf tæpur til heilsu undanfarið og tókst meiraðsegja að lúffa og gefast upp eftir 45 mín. á síðustu Júdó æfingu, eftir að mér sortnaði fyrir augum og fór að svima.

Til að toppa þetta allt saman hefur mér í auknum mæli fundist ég vera andfúll upp á síðkastið eftir endajaxlatökuna á föstudaginn. (Sem ég skil ekki, af því að tanntakan gekk framar björtustu vonum og ég er ekkert bólginn eða neitt.)

Allavega, þar hafiði það. NaldoMan er lítið annað en andfúlt grey sem er stamandi/hummandi surrender monkey.


surrendermonkey

...And in his scathing self-critique entitled "Hmmmhmmm... - memoirs of a surrender monkey", Naldo lashes out at life, the arts and the scent of cinnamon.


2 comments
(Sveinbjörn)



14.10.2006 | Joduka des

jrlogomerki

Ég hef ekki minnst á það áður en ég er farinn að leggja stund á Judo hjá Júdófélagi Reykjavíkur, og hef nú gert um nokkurt skeið. Á mánudaginn fékk ég loksins minn eigin búning, eða Judogi, og er það reffilegur Dan-Ro búningur sem að er reyndar ýfið stór en kunnugir segja að hann komi til með að minnka í þvotti.

Hvernig þetta gæti svo mögulega haft nokkuð að segja fyrir nokkurn mann sem hingað kemur er svo annað mál. Svakalega hversdagsleg færsla.

...fór í dag og fékk mér kaffi. Hugsaði um daginn og veginn og komst að merkilegum niðurstöðum. Fór svo heim og opnaði eldhússkápinn. Og haldiði að það hafi ekki bara gosið upp þessi svakalega kanil lykt!!!


9 comments
(Sigurgeir Þór)



5.10.2006 | Almennt raus...

Haardescience

Geir Haarde svaraði í gær ásökunum stjórnarandstöðunnar um aukinn ójöfnuð í samfélaginu á eftirfarandi hátt: Að í raun væri ekki um neinn ójöfnuð að ræða. Ef að frá væru taldir efstu 5% af tekjuhæstu einstaklingunum (og þá væntanlega þessi 1% sem njóta 60% allra fjármagnstekna hér á landi) væri hér bara allt svakalega slétt og fínt og jafnt. M.ö.o. ef að við sleppum þessum 5% sem eru ótrúlega ójöfn og eyðileggja jöfnuna, þá er ekkert ójafnt. Fuck GINI-stuðulinn!

Ég vildi að ég gæti svarað fólki sem ég rökræddi við með svona útpældri lógík. Hell, ég vildi að ég gæti beitt svona aðferðafræði þegar ég er að leysa jöfnur.

Sigurjón Sighvatsson kom í Kastljós og varpaði heldur betur ljósi á atferli Zidane á HM um daginn. Hann leiddi að því líkur að Zidane hefði mögulega kannski verið búinn að ákveða að skalla Materazzi. Samt ekki endilega fyrir upphaf leiksins en kannski á meðan á leiknum stóð.

Ísköld niðurstaða Sigurjóns: Á einhverju stigi málsins tók Zidane ákvörðun um að skalla Materazzi.

Zidaneheadbutt

Bravó Sigurjón. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir þessu. Sigurjón endaði svo á að delera eitthvað um að Zidane hefði þarna fórnað sér fyrir samlanda sína sem að eru tapsárir. Úff, þarna lagði Sigurjón ýmis vandmeðfarin hugðarefni síðustu mánaða að hvílu fyrir mér. En hvað er það sem að gerir Sigurjón svona mikinn sérfræðing? Jú, 90 mínútna bíóræma sem hann púslaði saman úr einum Real Madrid leik.
Má ég vera með? Mín kenning er að Zidane hafi aldrei tekið meðvitaða ákvörðun um að skalla Materazzi á neinu stigi málsins. Í raun var þetta áru-draugur Eric Cantona sem að teleportaði sér í framheila Zidane afþví að hann hélt að Materazzi væri áhorfandi. Ástæðan fyrir þessu? Jú, Frakkar eru ofbeldishneigðir.

Blaðið fer áfram á kostum með frábærri blaðamennsku, og íslenskri mál- og ritsnilld. Á forsíðu Blaðsins er viðtal við innanhúsarkitekt sem ég veit ekki hvað er. Þar er líka talað um að ákveðin vinnubrögð gefi augaleið. Á síðu tvö er svo talað um að Hugo Chavez, forseti Venesúela, hefurgefið í skynd að Bandaríkjamenn kunni að gera innrás í landið. Hvað svo sem það þýðir.

Blaðið þarf að fara að fjárfesta í prófarkalesara. Eða allavega prentvillupúka frá FRISK ehf.


8 comments
(Sveinbjörn)