5.10.2006 | Almennt raus...

Haardescience

Geir Haarde svaraði í gær ásökunum stjórnarandstöðunnar um aukinn ójöfnuð í samfélaginu á eftirfarandi hátt: Að í raun væri ekki um neinn ójöfnuð að ræða. Ef að frá væru taldir efstu 5% af tekjuhæstu einstaklingunum (og þá væntanlega þessi 1% sem njóta 60% allra fjármagnstekna hér á landi) væri hér bara allt svakalega slétt og fínt og jafnt. M.ö.o. ef að við sleppum þessum 5% sem eru ótrúlega ójöfn og eyðileggja jöfnuna, þá er ekkert ójafnt. Fuck GINI-stuðulinn!

Ég vildi að ég gæti svarað fólki sem ég rökræddi við með svona útpældri lógík. Hell, ég vildi að ég gæti beitt svona aðferðafræði þegar ég er að leysa jöfnur.

Sigurjón Sighvatsson kom í Kastljós og varpaði heldur betur ljósi á atferli Zidane á HM um daginn. Hann leiddi að því líkur að Zidane hefði mögulega kannski verið búinn að ákveða að skalla Materazzi. Samt ekki endilega fyrir upphaf leiksins en kannski á meðan á leiknum stóð.

Ísköld niðurstaða Sigurjóns: Á einhverju stigi málsins tók Zidane ákvörðun um að skalla Materazzi.

Zidaneheadbutt

Bravó Sigurjón. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir þessu. Sigurjón endaði svo á að delera eitthvað um að Zidane hefði þarna fórnað sér fyrir samlanda sína sem að eru tapsárir. Úff, þarna lagði Sigurjón ýmis vandmeðfarin hugðarefni síðustu mánaða að hvílu fyrir mér. En hvað er það sem að gerir Sigurjón svona mikinn sérfræðing? Jú, 90 mínútna bíóræma sem hann púslaði saman úr einum Real Madrid leik.
Má ég vera með? Mín kenning er að Zidane hafi aldrei tekið meðvitaða ákvörðun um að skalla Materazzi á neinu stigi málsins. Í raun var þetta áru-draugur Eric Cantona sem að teleportaði sér í framheila Zidane afþví að hann hélt að Materazzi væri áhorfandi. Ástæðan fyrir þessu? Jú, Frakkar eru ofbeldishneigðir.

Blaðið fer áfram á kostum með frábærri blaðamennsku, og íslenskri mál- og ritsnilld. Á forsíðu Blaðsins er viðtal við innanhúsarkitekt sem ég veit ekki hvað er. Þar er líka talað um að ákveðin vinnubrögð gefi augaleið. Á síðu tvö er svo talað um að Hugo Chavez, forseti Venesúela, hefurgefið í skynd að Bandaríkjamenn kunni að gera innrás í landið. Hvað svo sem það þýðir.

Blaðið þarf að fara að fjárfesta í prófarkalesara. Eða allavega prentvillupúka frá FRISK ehf.


8 comments
(Sveinbjörn)




8 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sveinbjörn at 6.10.2006

Sveinbjörn

Arnaldur: heimspekingur og ískaldur sósíalkrítíker! Methinks me likes it!

[ Reply ]

Steinn at 6.10.2006

Steinn

Já, þetta er svipað og að taka ákveðna vöruflokka út úr vissri vísitölu! Good call dude!

[ Reply ]

Sigurgeir Þór at 8.10.2006

Unknown User

Ég reyndar er sammála Sigurjóni með Zidane, gaurinn sem hann skallaði er annálaður fáviti og fantur, og ég gæti vel trúað því að Zidane hafi hugsað sér að kenna honum lexíu í lokaleiknum sínum vegna þess að hann vissi að leikbann væri eina refsingin sem hann gæti fengið og hann vissi jú að hann var að hætta eftir þennann leik (tilviljun?). Það ótrúlegasta við þetta var þó sú staðreynd að hann skildi ekki hitta smettið á honum því hann er jú vanur að hitta það sem hann miðar á...

[ Reply ]

Sigurgeir Þór at 8.10.2006

Unknown User

Og annað, sem betur fer eru hér á landi ríkt lið sem borgar háa skatta því þá er minna að borga fyrir okkur hin!

[ Reply ]

Anonymous Coward at 9.10.2006

Unknown User

Zidane hugsaði auðvitað frekar um að kenna einhverjum Marco lexíu en að vinna heimsmeistaratitilinn. Hann var búinn að vinna hann '98 svo það var ekkert merkilegt lengur frekar að skalla Marco. Gera eitthvað nýtt.
Tel að ástæðan fyrir því að hann hitti ekki sé 8 cm hæðarmunur.

Jonni var bara að steypa. Ekkert mark á honum takandi varðandi fótbolta.

[ Reply ]

Baldur at 13.10.2006

Baldur

Hvernig er það, ertu mottulaus þessa stundina? Þú hefðir getað rústað mottukeppninni sem var á Oktoberfest í gær!

[ Reply ]

Arnaldur at 14.10.2006

Arnaldur

Já uss...
Ég var kominn með fína mottu um daginn og ákvað í bríeríi að raka hana af. Daginn eftir fæ ég e-mail um að það sé mottukeppni á Oktoberfest (reyndar tveim vikum fyrir Oktoberfest). Allavega, það segir sig sjálft það safnar enginn maður með heilbrigða hormónastarfsemi alvöru mottu á tveim vikum.
Mér finnst ég vera illa svikinn.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 18.10.2006

Sveinbjörn

Já, varðandi athugasemdir Geirs Haarde, þá má þess geta að samskonar röksemdafærlsa gildir um N-Kóreu. Ef frá eru taldir 1% tekjuhæstu í Norður-Kóreu, þá eru menn þar jafntekjuháir (eða réttara sagt, lágir).


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment