Helgin var stormasöm og viðburðarík með Airwaives og tilheyrandi. Sá fullt af tónlist og drakk allskonar bjór.
Ég vil senda Árna Kristjánssyni eldheitan elektrónískan cyber-knús beint úr viðjum Kárahnjúka fyrir að plögga mér fallega rauða armbandinu sínu.
Annars verð ég að segja að ég verð alltaf pínku fyrir vonbrigðum með Airwaves. Maður nær aldrei að sjá allt sem maður vill (sem er nú eðli svona hátíða) en neyðist aftur á móti til að sjá fullt sem maður vill ekki. Vegna þess að maður má ekki fara út af stöðum ef maður kemst inn. Annars eyðir maður kvöldinu í biðröðum. En nóg um það.
Ég hugsa að ég hljóti að vera einn af fáum Íslendingum sem að hlustar á veðurfréttir RÚV af fullkominni athygli (með hmmmhmmm og öllu) þegar ég dett inn á þær. Það yljar mér alltaf um hjartarætur að heyra veðurfréttamanninn þar tala um millibör en ekki hektópasköl. Eins og tíminn hafi gleymt honum. Persónulega þykir mér alltaf vænna um millibör en hektópasköl. Reyndar er ég svo mikill anakrónisti að ég myndi vilja hafa vindstig ef ég fengi einhverju ráðið í heiminum.
Að lokum...
Spurning vikunnar:
Ég myndi segja að það væri best að vera cyber-dínamít góður á píanó. Sjáðu bara Richard Clayderman.
The Jack of All Trades is Master of None.
Best að vera súpermegagóður í að vagga eyrunum.
'tis an ability that the market has an insatiable demand for.
Ég held alveg hiklaust að það sé best að vera cyber-dínamít góður í golfi.
Persónulega kysi ég þó að vera semí góður í öllu.
Ég segi semi-góður í öllu, hiklaust. Maður má ekki líta framhjá einhverfninni sem að fylgir því að vera cyber-dínamít góður í einhverju einu. Æfingar tugi klukkutíma á dag.. ekki gott. Hmm.. ekki nema að maður sé cyber-dínamít góður í kúlinu, maður þyrfti varla að æfa það.
Ég get séð fyrir mér executive-inn sem myndi ráða þig:
"That Naldo -- he's one talentless guy: lazy, stupid, ignorant and tedious. But damn, can he play golf!
Hehehe...hættu að vera mannvera, Naldó, og gerstu golfari. Framtíðin er björt fyrir þig í kapítalistaparadísinni Ísland.
Ég held að þú sért að misskilja þetta Sveinbjörn. Það eru miklir peningar í golfi eins og Gummi er að benda á. Tiger Woods er best launaðasti íþróttamaður heims. Sem þýðir að hann er fokk RÍKUR. En samt þá held ég að líf manns sé frekar leiðinlegt ef að það eina sem að maður gerir allan daginn er að elta golfbolta.
Tiger Woods er ríkur út af því að hann er í endalausum auglýsingum í The Economist:
*Stór mynd af Tiger woods að gera e-ð rosa drive*
Be a Tiger
--StanleyMorgan Investment Group
Það er allavega mín kenning.
The password to post a comment is:
(Arnaldur)