Results for 2006-11

21.11.2006 | Marx vs. Max (Weber)

marxbw

Er nú búinn að vera að vinna þrotlaust að ritgerðum undanfarna viku eða svo. Kláraði stórskemmtilega (þó ég segi sjálfur frá) ritgerð um hlutskipti Vísindakirkjunnar sem nýrrar trúar á sálnaveiðimarkaðnum í gær og er að leggja lokahöndina á magnum opusinn:

-Hvort hugmyndir Karls Marx um stéttir og stéttaskiptingu séu vænlegri til skilnings á þróun íslensks nútímasamfélags en lagskiptingarhugmyndir Max Weber.

Reyndar verð ég nú að taka afstöðu með Weber í þessum efnum, þó hann sé ekki jafn litríkur penni og eigi til að verða helst til tedious.

Sjálft research-ið sem þó kemur nú ekki inn á nema brot af umfjöllunarefni beggja, hefur hinsvegar verið hreint yndi. Ég er þó nokkrum sinnum búinn að staðnæmast í lestrinum hér og þar hreinlega yfir því hvað þetta eru ótrúlega spennandi og skemmtilega framsettar pælingar. Sérstaklega Marx. Algerlega að missa sig, og obsessa yfir Hegel, og hrauna yfir borgarastéttina.

Ég vil meina að Marx sé stórkostlega misskilið barn síns tíma


13 comments
(Grétar)



9.11.2006 | Pp-suík-hó

game 2

Ég var með sjónvarpið í gangi í gær og það spýtti út hverju vondu músík-vídeóinu á fætur öðru. Tvö þeirra sérstaklega fönguðu athygli mína:

Annars vegar myndband með rapparanum "The Game" sem kemur frá Los Angeles geri ég ráð fyrir (miðað við skammstöfunina LA sem hann er með tattóveraða á kinnina sína). The Game er svakalega harður gangsta thug, eins og við sjáum í myndbandinu og virðist hafa allt að því pervers áhuga á hjólbörðum, sem endurspeglast enn frekar á albúmkóverum hans.

Það sem mér þótti kannski merkilegast við þetta vídeó voru nokkrar örstuttar klippur sem var skotið inn öðru hvoru af The Game og crew-inu hans marsérandi ógnvekjandi um úthverfi Los Angeles. En hvað er þetta? Það virðist vera sem svo að allt þetta hard-core gangsta-thug lið sé svo tísku meðvitað að það hafi verið vafið inn í ríkuleg litklæði beint frá Nakta Apanum, eða Bathing Ape, eða einhverju álíka chic. Þið afsakið, en ég get ekki verið hræddur við fólk sem að klæðir sig í svona svakalega chic outfit, þó að það sé með bókstafi í andlitinu. Manni finnst helst að þeir hljóti að vera eiga við einhver meiriháttar self-esteem issues miðað við hvernig þeir eru klæddir og hvernig þeir eru orðnir hoknir af öllu silfur skraninu sem þeir neyðast til að ganga með um hálsinn.

RabbieWilliams

Hinsvegar var myndband með "ekki-svo-mikið-en-samt-að-reyna" rapparanum Robbie Williams. Lagið var titlað Rudebox, sem ég skildi nú ekki alveg, en var vissulega dónalega lélegt. Í raun vakti myndbandið helst athygli mína fyrir þær sakir hversu lélegt það var. Fyrst hélt ég reyndar að um innlent vídeó væri að ræða, en annað kom á daginn. Robbie Williams er orðinn gamall karl með beyglaðar tennur og hrukkótt andlit. Hann minnti mig á gamla dökkhærða útgáfu af Andra Gísla, sem var fólskulegur og hrottafenginn maður og dólgslegur fáviti í gamla hverfinu mínu Álftamýri/Háaleitisbraut. Kannski er Rudebox ekki myndband með Robbie Williams, heldur með Andra Gísla að pósa sem Robbie Williams. (Þó ég myndi reyndar ekki treysta Andra til að fara með flóknu ensku textana, maður sem gat ómögulega lesið orðið Psycho í Trivial Pursuit.)


11 comments
(Steinn)



9.11.2006 | Springtime for Marx and for Germany...

marxbw

Breski seðlabankinn hækkaði í dag stýrivextina upp í 5%. Ógn og skelfing grípur um sig í Bretlandi. Hvað myndu þeir eiginlega segja um hann Davíð? Read all about it.

Annars finnst mér magnað að þýskur leikhúshópur er að setja upp æsispennandi leiksýningu byggða á spennuriti Karls Marx um hagfræði Das Kapital. Gangi þeim vel. Ég væri actually til að sjá þessi ósköp, bara til að "get my head around" hvernig þetta fólk ætlar að pull-a off þetta seemingly vonlausa feat.


2 comments
(Arnaldur)



1.11.2006 | Osama

osamamovie

Í gær var ég eitthvað hálf-tense og ákvað að unwinde-a og horfa á video. Myndin sem varð fyrir valinu var afgansk, íransk, írsk, japansk, hollenska myndin Osama, sem ég hef ætlað mér að horfa á um nokkurt skeið.

Eftir myndina var ég ennþá meira tense, og ónýtur á sálinni. Horfði á nokkra Peep Show þætti til að létta mér lund en gat ekki einu sinni hlegið að þeim.

Osama fjallar um unga stúlku í Afganistan undir talibönum, hverrar móðir dulbýr sem dreng til að hún geti unnið og skaffað fjölskyldunni mat. (Faðirinn er dáinn á þessu stigi málsins og þær mæðgur því algerlega vonlausar um lifibrauð.) Needless to say travesty ensues.

Eins miður mín og ég varð við að sjá þessa mynd (og er enn) þá vil ég samt hvetja fólk til að skoða þessa mynd. Svakalega er hægt að fara illa með fólk. Og mikið svakalega tók maður stóra, STÓRA vinninginn í örlaga-lóttóinu þegar maður fæddist í velferðar- og jafnaðarsamfélaginu Íslandi.


Og það liggur svo berlega í augum uppi Snati minn, hversu átakanlega vondur hann er þessi heimur.


5 comments
(Össi)