1.11.2006 | Osama

osamamovie

Í gær var ég eitthvað hálf-tense og ákvað að unwinde-a og horfa á video. Myndin sem varð fyrir valinu var afgansk, íransk, írsk, japansk, hollenska myndin Osama, sem ég hef ætlað mér að horfa á um nokkurt skeið.

Eftir myndina var ég ennþá meira tense, og ónýtur á sálinni. Horfði á nokkra Peep Show þætti til að létta mér lund en gat ekki einu sinni hlegið að þeim.

Osama fjallar um unga stúlku í Afganistan undir talibönum, hverrar móðir dulbýr sem dreng til að hún geti unnið og skaffað fjölskyldunni mat. (Faðirinn er dáinn á þessu stigi málsins og þær mæðgur því algerlega vonlausar um lifibrauð.) Needless to say travesty ensues.

Eins miður mín og ég varð við að sjá þessa mynd (og er enn) þá vil ég samt hvetja fólk til að skoða þessa mynd. Svakalega er hægt að fara illa með fólk. Og mikið svakalega tók maður stóra, STÓRA vinninginn í örlaga-lóttóinu þegar maður fæddist í velferðar- og jafnaðarsamfélaginu Íslandi.


Og það liggur svo berlega í augum uppi Snati minn, hversu átakanlega vondur hann er þessi heimur.


5 comments
(Össi)




5 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Hildur at 1.11.2006

Hildur

ég er lengi búin að ætla að taka þessa mynd, þar sem ég hef bara heyrt góða dóma um hana!
Það verða öll vandamál manns voðalega lítil eftir að hafa horft á svona mynd.

hildur

[ Reply ]

Sveinbjörn at 1.11.2006

Sveinbjörn

Þetta er s.s. góð mynd? Þess virði að sjá?

[ Reply ]

Sveinbjörn at 1.11.2006

Sveinbjörn

Btw, Naldó, þú vilt kannski uppfæra footerinn á síðunni, sem tilkynnir að efni hennar sé verndað af höfundarrétt árið 2005, en nú nálgast árið 2007 óðfluga. Þú getur líka bara sett breytuna YEAR inn.

[ Reply ]

Arnaldur at 2.11.2006

Arnaldur

Cheers Sveinbjörn, It's been taken care of. Og já mér fannst þetta góð mynd.

[ Reply ]

Össi at 16.11.2006

Unknown User

jamm, ég kann nú ekkert á svona comment dót (kannski seint að vera að commenta núna), en ég ætlaði að segja að þetta er ein af 40 kvikmyndum sem hafa verið teknar upp í Kabúl...og ALLIR leikararnir eru amatörar (hafa ekki leikið í neinu öðru), þar með talið stelpan sem leikur aðalhlutverkið! Nokkuð impressive í rauninni.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment