Ég var með sjónvarpið í gangi í gær og það spýtti út hverju vondu músík-vídeóinu á fætur öðru. Tvö þeirra sérstaklega fönguðu athygli mína:
Annars vegar myndband með rapparanum "The Game" sem kemur frá Los Angeles geri ég ráð fyrir (miðað við skammstöfunina LA sem hann er með tattóveraða á kinnina sína). The Game er svakalega harður gangsta thug, eins og við sjáum í myndbandinu og virðist hafa allt að því pervers áhuga á hjólbörðum, sem endurspeglast enn frekar á albúmkóverum hans.
Það sem mér þótti kannski merkilegast við þetta vídeó voru nokkrar örstuttar klippur sem var skotið inn öðru hvoru af The Game og crew-inu hans marsérandi ógnvekjandi um úthverfi Los Angeles. En hvað er þetta? Það virðist vera sem svo að allt þetta hard-core gangsta-thug lið sé svo tísku meðvitað að það hafi verið vafið inn í ríkuleg litklæði beint frá Nakta Apanum, eða Bathing Ape, eða einhverju álíka chic. Þið afsakið, en ég get ekki verið hræddur við fólk sem að klæðir sig í svona svakalega chic outfit, þó að það sé með bókstafi í andlitinu. Manni finnst helst að þeir hljóti að vera eiga við einhver meiriháttar self-esteem issues miðað við hvernig þeir eru klæddir og hvernig þeir eru orðnir hoknir af öllu silfur skraninu sem þeir neyðast til að ganga með um hálsinn.
Hinsvegar var myndband með "ekki-svo-mikið-en-samt-að-reyna" rapparanum Robbie Williams. Lagið var titlað Rudebox, sem ég skildi nú ekki alveg, en var vissulega dónalega lélegt. Í raun vakti myndbandið helst athygli mína fyrir þær sakir hversu lélegt það var. Fyrst hélt ég reyndar að um innlent vídeó væri að ræða, en annað kom á daginn. Robbie Williams er orðinn gamall karl með beyglaðar tennur og hrukkótt andlit. Hann minnti mig á gamla dökkhærða útgáfu af Andra Gísla, sem var fólskulegur og hrottafenginn maður og dólgslegur fáviti í gamla hverfinu mínu Álftamýri/Háaleitisbraut. Kannski er Rudebox ekki myndband með Robbie Williams, heldur með Andra Gísla að pósa sem Robbie Williams. (Þó ég myndi reyndar ekki treysta Andra til að fara með flóknu ensku textana, maður sem gat ómögulega lesið orðið Psycho í Trivial Pursuit.)
Ég hef aldrei þolað Robbie Williams, en ég verð að segja að þetta er eitt það skásta sem hann hefur gert, það eru amk kúl dansarar í video inu, og svo gef ég honum líka kredit fyrir að fatta að hip hop og elektrónika eru bestu tónlistarstefnurnar. Því miður er lagið frekar (eins og við var að búast) mikið rusl.
Varðandi The Game, þá sé ég ekkert gott við það video, vonandi að einvher rapparinn með viti taki sig til og skjóti hann, öðrum röppurum sem eru að hugsa um að gera svona rusl til viðvörunar...
Shit hvernig þorirðu að tala svona um Andra Gísla? Hann á eftir að lemja þig í hakk ef hann les þetta.
Þetta Robbie Williams myndband er einhver argasti viðbjóður sem ég hef séð, samt fær maður svolítið samviskubit á að dissa það, það er eins og að gera grín að mongólíta! Þetta Game dæmi er bara sorglegt, að horfa á þessa þætti á MTV eins og CRIBS og sjá þessi kvikindi sóa aleigunni í felgur og Scarfaceplaggöt. Þessi fífl enda flest í einhverju krakkbæli að láta taka sig í rassgatið. Hef hitt Andra Gísla nokkrum sinnum undanfarið og guð hvað menn lifa í miningunni, ég vona hans vegna að hann hitta Naldóinn ekki!! Farðu að bjalla í kallinn, löngu kominn tími á hitting!
Þetta Robbie Williams myndband er einhver argasti viðbjóður sem ég hef séð, samt fær maður svolítið samviskubit á að dissa það, það er eins og að gera grín að mongólíta! Þetta Game dæmi er bara sorglegt, að horfa á þessa þætti á MTV eins og CRIBS og sjá þessi kvikindi sóa aleigunni í felgur og Scarfaceplaggöt. Þessi fífl enda flest í einhverju krakkbæli að láta taka sig í rassgatið. Hef hitt Andra Gísla nokkrum sinnum undanfarið og guð hvað menn lifa í miningunni, ég vona hans vegna að hann hitta Naldóinn ekki!! Farðu að bjalla í kallinn, löngu kominn tími á hitting!
Hahaha. Hann getur síðan haft tag línuna:
It's Game Over, man! It's Game Over!
Heyriði gott fólk! Ég er í GÓÐU sambandi við Andra Gísla, daglega jafnvel og ég er að hugsa um að segja honum frá þessu. Þannig að þetta verður eins og í gamla daga (í Álftó), þið þurfið að hlaupa fyrir horn næst þegar þið sjáið hann, annars fáið þið að kenna þá því! Þetta er ekkert grín!
Ekki það að ég sé Game aðdáandi, en BAPE peysur eru alveg jafn mikið stöðutákn og keðjur, þannig séð.
Þær eru allavega nógu fokkdýrar.
Verst hvað þær eru ljótar.
The password to post a comment is:
(Steinn)