5.12.2006 | Ritgerðir og próf

thjobo

Ég geri lítið annað þessa dagana en að þykjast lesa fyrir próf og látast skrifa ritgerðir og upplifi mig subsequently sem leiðinlegasta mann í heimi fyrir vikið.

Reyndin er samt meira sú að ég er pirraður og guilt-ridden yfir því að vera ekki að lesa og skrifa. Það er erfitt að átta sig á því hvernig þetta hangir saman allt.

Eins og er sit ég á Þjóðarbókhlöðunni. Hér er erfitt og leiðinlegt að vera. Ennfremur er hörgull á námsplássi svo mikill að B-manneskjur eins og ég eru tilneyddar að sitja úti í horni með ekkert borð og pompous fólk lítandi niður á mann. Dáldið eins og í grunnskóla í Kabúl.

Ennfremur eru hér laumufarþegar, eða laumuplásstakar. Á ýmsum stöðum í kringum mig sé ég púkalega MR-inga að lesa úrvalsritið: Frá Einveldi til Lýðveldis. Þetta fólk hefst við þá iðju eina að hafa af mér verðmætt vinnupláss á svæði sem ég er beygður til að nýtast við út af svokölluðu námsbókasafni. Mér finnst að þessu fólki ætti að úthýsa med det samme. Þetta fólk ætti að geta beðið í eitt ár eftir að námsferill þeirra hefst hjá HÍ.

Sem færir okkur að útgangspunktinum. Er töff að vera að nördast á þjóbó? Er það kúl að segja: "Já, æi, ég er bara búinn að vera á Þjóðarbókhlöðunni í allan dag að lesa og drekka kaffi og svona"?

Ég fæ nett á tilfinninguna að hluti fólksins hérna sé bara að pose-a. Af því að sumu fólki gengur maður hjá trekk í trekk, eða verður starsýnt á yfir herbergið og þá situr það bara og horfir út í loftið með vísdómssvip út í eilífðina. Eða þá að hér eru pör sem eru alltaf eitthvað að pota í hvort annað og hlæja hvísl-hlátri og hafa gaman af lífinu.

Æiii, Fokkitt nenni þessu ekki...

bookflush

14 comments
(Doddi)




14 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Arnaldur at 5.12.2006

Arnaldur

Hvað er málið með fólkið hérna? Það gerir ekki annað en að vera í kærustuparaleik á göngunum og sofa við borðin. Ég er núna að horfa á 2 manns liggjandi á stólunum, sofandi og slefandi. Það var þá máttur íslenskrar akademíu.

[ Reply ]

Hildur at 5.12.2006

Hildur

Þú verður bara að rekast fast í þessa sem eru sofandi þegar þú labbar framhjá þeim:) Annars þá færðu alla mína samúð!!!

[ Reply ]

Árni at 5.12.2006

Árni

En heldurðu að það hafi ekki verið kannski einhver mastersnemi sem var að læra fyrir próf í díóðugreiningarfræði sem hafi verið að horfa á þig meðan þú varst að skrifa þessa færslu hugsandi með sér: "Vá, einn undergrad lúser bara að blogga í stað þess að læra. Hann verður aldrei jafn gáfaður og ég. Aldrei! Aldrei!! Ha ha ha ha ha ha ha ha ha. Ha ha ha ha ha ha. Haaaaaaa."

[ Reply ]

Árni at 5.12.2006

Árni

Svo svar við spurningu þinni á bloggi mínu er það að fyrst um sinn átti heitt og kalt listinn að vera stika hægra megin á síðunni. Svo breyttist það í núverandi form.

[ Reply ]

Doddi at 5.12.2006

Doddi

Já, klassískt líka að mæta í einhverjum ömurlegum jogginggalla eða náttbuxum, af því að það eru próf og það er bara geðveikt þægilegt að vera í kósí fötum.

[ Reply ]

Friðrik Steinn at 6.12.2006

Unknown User

Það er gott að sofa á hlöðunni, sérstaklega í hornstólunum.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 6.12.2006

Sveinbjörn

Well, þú færð samúð mína Naldó. LSE bókastafnið er alltaf (og þá meina ég 24/7/365) pakkað af kínverskum ofur-gleraugnanördum sem sitja yfir bókum á borð við Accounting, Finance and the Marginal Utility Development through Advanced Integer Calculus.

[ Reply ]

Steinn at 6.12.2006

Steinn

Ég tók eftir þessum MR-ingum sem sátu með vísdómssvip að spá í þessu í húminu og sofandi og kelandi. Helvítis pakk!!

[ Reply ]

7berg at 6.12.2006

7berg

Ok, ég verð víst að pósta hérna þar sem ég vinn á þessari stofnum. Í fyrsta lagi þá er ég búinn að vera henda menntaskólanemum hægri og vinstri af borðum síðan prófin byrjuðu. Ástandið er líka búið að vera óvenjufokkt þessa önn og á morgun verða nemar að sýna skólaskirteini eða láta flétta þér upp í nemendaskránni til að fá borð. Í öðru lagi er mjög kúl að vera á þjóðarbókhlöðunni og ég er kóngur kúlsins af því ég vinn þar, gef sætu menntaskólastelpunum borð og fæ vonandi eitthvað að launum næstu helgi.
Að lokum, ef ég sé einn annan gaur í náttbuxum skalla ég hann, mér sama þótt ég missi vinnuna, maður bara gerir ekki svona, þetta er eins og appelsínugulur sjógalli í útilegu. Hef samt mest gaman að pjæunum sem dressa sig upp eins og þær séu að fara á djammið. Þeir fá stig fyrir metnað.

[ Reply ]

Arnaldur at 6.12.2006

Arnaldur

Hehehehe...

[ Reply ]

Sveinbjörn at 6.12.2006

Sveinbjörn

Já, býsna fokking dedicated að punta sig fyrir bókhlöðuna. En já, A for Effort ;)

En Össi, nú færðu fullt af sjensum til að skoða mannlífið. Er ekki slatti af "blossoming romances" þarna? Þær dömurnar eru kannski ekki jafn pjattaðar og ætla mætti.

[ Reply ]

7berg at 7.12.2006

7berg

Ég sé þettta reyndar ekki mjög vel þar sem ég sit í afgreiðslunni megnið af vaktinni. En það hafa samt fundist g-strengir á klóinu og margt fleira skemmtilegt.

[ Reply ]

Arnaldur at 7.12.2006

Arnaldur

Vá í alvöru!!! Þetta þykir mér ótrúlegt og stórmerkilegt að heyra. Maður ætti kannski að hætta þessu bæjarrölti og reyna frekar fyrir sér á þjóbó...


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment