Results for 2007

27.12.2007 | Jólaveikin

glydra1

Mér finnst það mjög áhugavert að sjá hversu mörgum ungum íslenskum stúlkum finnst það fullkomnlega eðlilegt að ganga um í smápilsi í miðbæ Reykjavíkur í -3 stiga gaddi og norðanátt.

Ég hélt að fólk hlyti allskyns meinsemd af þessu. Eða er íslenskt kvenfólk bara svona svakalega harðgert? Mér verður allvega kalt af því að horfa upp á þetta.

Btw. Það má smella á myndina af "djammpíunni" hérna að ofan til að sjá hræðilega hallærislegt og luralegt gráfiðringsvídjó.


Annars langaði mig að linka á þessi tvo frábæru vídjó sem ég var búinn að gleyma að væru til þangað til að óminnisþræðir internetsins leiddu mig til þeirra frá honum Sveinbirni

laurie america

Hér er Hugh Laurie að flytja magnað lag sem ég vil meina að hann hljóti að hafa samið sjálfur og heitir "America". Það minnir mig á svo mörg svipuð lög...







fry laurie politerap

...og hér eru þeir félagar Hugh Laurie og Stephen Fry að rappa á afskaplega elskulegan hátt early nineties white-boy style.
Takið eftir því hvað Stephen Fry líkist góðlátlegum og meinlausum V í þessu myndbandi.


2 comments
(Sveinbjörn)



15.12.2007 | Jájá...

Já. Þau eru mörg, fíflin sem ganga laus um helgar...


7 comments
(Sigurgeir Þór)



13.12.2007 | Klessubíla Karlinn

bumpercar1

Það er ekki gaman að klessa bíla...

Vill einhver gefa mér frambretti og grill á Jeep Cherokee Laredo '89/'90?






Það er reyndar nokkuð gaman að klessa svona bíla...




12.12.2007 | Bull hornið

mrtbullhorn1

Einhverra hluta vegna minntist ég allt í einu þess að ég átti sem barn gjallarhorn sem var merkt "The A-Team" (og reyndar líka risastórt "The A-Team" AM-útvarp fyrir BMX-hjólið mitt sem virkaði aldrei ).

Hornið var samskonar því sem sjá má á myndinni að neðan og í kom í samskonar pakningu og sjá má hér til hliðar. Samhliða þessari minningu kom upp viss fortíðarljómi í mér og mig langaði til að nálgast hornið, en man svosem ekkert hvað um það hefur orðið.

mrtbullhorn2

"The A-Team" þættirnir voru aldrei sýndir hér á landi svo ég muni. Því gat ég aldrei gert mér fyllilega grein fyrir því hvaða merkingu þessi gripur átti að hafa, fyrir utan það að ég kannaðist óljóst við Herra T. sem var sýndur á áberandi hátt á hliðinni. Þó man ég reyndar glögglega að ég var fullviss um að Herra T. væri einhverskonar indíáni, frekar en hvað annað.

Nú spyr ég: Hefur einhver, einhverntíman séð "The A-Team" þátt, og er eitthvað varið í þá?

Hér er linkur á geðveikt fólk sem safnar Mr. T dóti og tattóverar ímynd hans á líkama sína.


16 comments
(Sindri)



2.12.2007 | Erfðabreyttur kínverskur matur

chinese takeaway

Ég ætlaði að skrifa langa og insightful grein um nýja arfgreiningarþjónustu DEcode.

Ég byrjaði meir að segja að skrifa hana en ég nenni þessu ekki. Mig langar heim að sofa.

Í staðinn datt mér í hug að tengja yfir á þessa athyglisverðu frétt um erfðabreytingar og kínverskan mat.

Guð blessi íslenska tungu og tvíræðni...


4 comments
(Arnaldur)



30.11.2007 | Góðkunningi tískulögreglunnar #6

godvinurag5

3 comments
(Siggi)



21.11.2007 | Sprunginn á blöðrunni

Hvernig er það? Er einhver þarna úti sem hefur hugsað sér að kíkja eitthvað út um helgina? Endilega dragið mig með. Ég get verið ferlega sniðugur.

Svo er bara að passa að maður sprengi ekki blöðruna.


4 comments
(Einar Örn)



18.11.2007 | Afslapp

Ég á 300 grömm af yndislegum, Gouda-baseruðum, hollenskum Prima Donna osti, gott ástralskt rauðvín og skemmtilega bók. Nú langar mig bara til að vera einn í hægindastól það sem eftir lifir helgarinnar.


3 comments
(Arnaldur)



16.11.2007 | Góðkunningi tískulögreglunnar #5

godvinurag4



16.11.2007 | Moral depravity í 2ðru veldi

Vá. En fullkomlega siðleysislega, ömurlega, nöturlegt.

Svona fréttir gera mig virkilega misanthropískan.




15.11.2007 | Nýr liður

Svona til útskýringar hef ég hugsað mér að hafa hér fastan lið næstu tuttugu-og-eitthvað til þrjátíu vikurnar sem ég mun kalla "Stafróf kvikmyndanna" í hverjum ég mun velja eina kvikmynd sem mér þykir framúrskarandi fyrir hvern bókstaf. (Mestmegnis verður hér stuðst við enska stafrófið af skiljanlegum ástæðum.) Niðurstöðunum mun ég svo safna á einn stað hérna þar sem hægt verður að fylgjast með og dást að óaðfinnanlegum kvikmyndasmekk mínum sem og kunnáttu minni á stafrófinu.

Fyrsta stafinn, A, má sjá hér að neðan.


3 comments
(Sveinbjörn)



15.11.2007 | A is for Apocalypse Now

Aapocalypse1

Apocalypse Now

Charlie don't surf!!! - Lt. Kilgore

Apocalypse Now, verður framlag kvikmyndasögunnar til bókstafsins A. Myndin kom fyrst út árið 1979 og var hvort tveggja í senn draumsýn og martröð kvikmyndagerðarmannsins Francis Ford Coppola. Enda er útkomunni sennilega ágætlega lýst þannig - sem martraðakenndri draumsýn á Víetnamstríðið.

Myndin er unnin eftir skáldsögu Joseph Conrad, Heart of Darkness en er þó einungis lauslega byggð á henni. John Milius vinnur handritið á snilldarlegan hátt og fléttar inn í það áhrif frá ýmsum verkum s.s. The Golden Bough eftir James Frazer (sem má sjá glitta í hjá Col. Kurtz). Einnig hafa einhverjir viljað draga línu milli Ódysseifskviðu og Apocalypse Now. Ef til vill er það ekki vitlaus samlíking, enda er það í grófum dráttum umfjöllunarefni myndarinnar; langferð um hrylling stríðs með öllum þeim siðferðilegu og heimspekilegu ranghölum sem slík ferð kann að leiða menn niður eftir.

AapocalypseKilgore1

Rétt er að taka fram að á vissan hátt er hér verið að fjalla um tvær kvikmyndir. Árið 2001 endurútgaf Coppola verkið í nýrri mynd sem hann kallaði Apocalypse Now: Redux. Nú er það svo að í flestum tilfellum er greinarhöfundi afar illa við það þegar menn taka sig til á gamals aldri og fara að fikta í gömlum verkum sínum (sbr. náinn starfsbróðir Coppola, George Lucas). Aftur á móti er útkoman hér aðdáunarverð. Persónulega get ég ekki gert upp á milli myndanna tveggja. Þær standa tvær uppi, skýrt aðgreindar sem sjálfstæð verk í mínum huga eins og tvær leiðir að sama endapunkti. Því hvet ég alla til að skoða bæði verkin.

Fyrir áhugasama eru það næstum skylduáhorf að vinna sig í gegnum heimildamyndina Hearts of Darkness (1991), sem er m.a. unnin af konu Coppola, Eleanor, um tilurð kvikmyndarinnar, sem var vægast sagt erfið fæðing.


3 comments
(Arnaldur)



14.11.2007 | Meðmæli

Mæli líka með Manhattan kokteilum, eggs benedickt, erítreísku kaffi, handgerðum regnhlífum og haggis. Allt eru þetta guðsgjafir, hver á sinn hátt.




14.11.2007 | Edilon

Jæja, þá er maður kominn heim úr langþráðu fríi til London og Edinborgar.

Ferðin var mikil menningarreisa og mun lengi lifa í manna minnum. Ég mun ekki fara löngum orðum um þetta allt saman, öðrum en þeim að á Bretlandseyjum sjúgast frá manni peningar, aðallega gegnum óskilvirk almenningssamgangnakerfi og eftirsóknarverðan neysluvarning, en að sama skapi er þar margt skemmtilegt að sjá og mikið af góðgæti sem maður getur verið sáttur við að eigna sér.

Mæli með Edinborg fyrir ferðafúsa. Klassa pleis.


2 comments
(Arnaldur)



5.11.2007 | Life imitating retro gaming?

Ég varð að posta þessum tveimur linkum. Fann þetta á youtube, og finnst þetta vera ein sú mesta snilld sem ég hef séð lengi. Kannski er fólk búið að sjá þetta milljón sinnum, en allavega.

spaceinvadehuman
Human Space Invaders

ponghuman
Human Pong


4 comments
(Steinn)



2.11.2007 | Góðkunningi tískulögreglunnar #4

godvinurag3

2 comments
(Steinn)



1.11.2007 | Coming up next...

kvikmaz2

1 comments
(Steinn)



1.11.2007 | Albums

Hvar fær maður falleg, stílhrein ljósmyndaalbúm sem kosta ekki an arm and a leg?

Ræðið...


3 comments
(Sigurgeir Þór)



1.11.2007 | Emmpéþrís

Á Internetinu kennir ýmissa grasa. Á vafri mínu undanfarið hef ég rekist á ýmislegt sem mér finnst rétt að deila með áhugasömum. Mun ég jafnframt reyna að gera meira af því og markvissar, sérstaklega ef mér tekst einhverntíman að uppfæra þessa síðu almennilega.

awesometapes1

Awesome Tapes fom Africa

Til að byrja með langar mig að benda á .mp3 blogg sem heitir Awesome Tapes fom Africa. Umsjónarmaður síðunnar virðist vera einhverskonar þjóðfræðingur sem hefur safnað hljóðsnældum víðsvegar að úr Afríku. Einkum kemur tónlistin á síðunni frá Mali, en einnig frá Ghana, Egyptalandi ofl. stöðum.

Margt af þessu dóti er nú helst til of local og ethnic fyrir minn smekk, en inn á milli eru athyglisverðar upptökur fyrir fólk sem er eitthvað að spá í svona tónlist á annað borð. Ég bendi sérstaklega á King Sunny Ade í því skyni, sem og Yoro Diallo. Síðast en ekki síst, Boubacar Traore (fyrir þá sem hafa skoðanir á gítartónlist), en um hann var m.a. gerð kvikmyndin Je Chanterai Pour Toi, (sem fólk má láta mig hafa ef það veit af henni.)

easytempocollagethumb1

Saravaclub

Aukinheldur langar mig að benda á .mp3 blogg sem heitir Saravaclub. Þar er hægt að nálgast allskyns plötur í heilu lagi sem eru ID3-taggaðar í þokkabót, sem er mikil unun fyrir completista eins og mig. Einkum er þar að finna eldri tónlist, fönk, jazz/blues, og brazilíska tónlist. Þá er rétt að taka fram að safnplötur og compilation-ir eru í yfirgnæfandi meirihluta á síðunni.

Saravaclub hefur þann ókost að vera á einhverju undarlegu tungumáli sem ég held að sé portúgalska, en annars er nú frekar staight forward að finna út úr þessu öllu. Það er samt rétt að minna fólk á að tékka líka á archívunum því þar leynast líka margir gullmolar.

Að lokum vil ég benda á homage-ið til Easy Tempo coveranna hér til hliðar, en þau finnast mér afskaplega falleg. Easy Tempo serían er í heild sinni á síðunni en þeir sem höfðu gaman af Beat at Cinécitta plötunum ættu að kunna að meta hana. (Smella á myndina til að finna Easy Tempo.)

Reyndar eru gaurarnir tveir neðst ekki Easy Tempo cover heldur eru þeir cover fyrir Barry 7's Connectors seríuna, en þeir eru líka flottir.


2 comments
(Arnaldur)



31.10.2007 | Bjórpulsa

salamismall1

Ég vil taka það fram að ég á sennilega um 250-300g í þessum 1,7 tonnum sem að tollararnir hafa rænt af kjötelskandi Íslendingum.


1 comments
(Steinn)



31.10.2007 | Diego

Í dag keypti ég litla gúmmíplöntu, sem ég hef nefnt Diego. Diego kemur til með að verða framlag mitt til framtíðar kolefnisjöfnunar fyrir hönd íbúa San Diego og meira og minna allrar Kaliforníu.

Gúmmíplöntur eru harðgerar skepnur sem að spúa frá sér ósóni og súrefni og allskyns góðgæti. Svo þurfa þeir líka lágmarks athygli.

Seriously fólk, nú þarf aldeilis að fara að kolefnisjafna fyrir öll þessi tré sem brunnu þarna í Cali. Hvað ætlar þú að gera?


1 comments
(Sveinbjörn)



30.10.2007 | Undraheimar Internetsins

Ég ætlaði að skrifa fullt hérna í nótt, en ýmis aðkallandi verkefni og internetið í bland gerðu þessi áform mín að engu.

Fullt af spennandi og athygliverðum greinum í vændum.


1 comments
(Sveinbjörn)



26.10.2007 | Góðkunningi tískulögreglunnar #3

Árni er búinn að leggja inn nýtt rap-sheet.


3 comments
(Sveinbjörn)



24.10.2007 | Reykjavíkurnætur

drunkhug1

Um nokkurt skeið hef ég safnað myndum af ógæfunni í Reykjavík um helgar og á orðið veglegt safn. Það hljóp þó aldeilis á snærið um daginn hjá mér þegar ég náði þessu greyi sem að stóð og svaf utan í staur á Hverfisgötu.

Ég ætlaði reyndar að vera búinn að skella þessari athyglisverðu mynd upp fyrir nokkru.

Það merkilega er að hann stóð þarna dauður í um 45 mínútur, svo ég viti til. Kannski lengur.

Ef grannt er skoðað má sjá að hann skemmti vel vegfarendum Hverfisgötunnar með athæfi sínu sem bentu og híuðu á hann í gríð og erg.

Þetta finnst útlendingunum merkilega skemmtilegt.


5 comments
(Arnaldur)



19.10.2007 | Góðkunningi tískulögreglunnar #2

godvinurag2

2 comments
(Steinn)



18.10.2007 | Byssubankinn

byssubanki

Ég er undanfarið búinn að vera að fara í gegnum þann aragrúa af myndum sem ég hef tekið undanfarin ár. Er búinn að rekast á ýmsar mjög skemmtilegar og athyglisverðar myndir sem ég var annars búinn að gleyma.

chillibeer

Hér er ég til dæmis fyrir utan tékkneskan banka. Þar er greinilega merkt á hurðinni að bannað sé að fara með alvæpni inn í bankann. Það er eins gott að hafa svona hluti á hreinu á framandi menningarslóðum.

Fyrir neðan er svo mynd af einum þeim mesta viðbjóði sem ég hef innbyrt í lífinu. Það myndi vera hinn japanski Chilli Beer. Eins og sjá má e.t.v. er lítill chilli pipar í sjálfri flöskunni þannig að ekki er um nein vörusvik að ræða. Aftur á móti verður maður að spyrja sig, "Hver vill hafa chilli í bjórnum sínum?" Ekki ég, allavega. Ég er þeirrar gamaldags skoðunnar að bjór eigi fyrst og fremst að slökkva þorsta. Ekki kveikja hann.

Annars er rétt að minnast á að þessi nýfundna ljósmyndagrúskhugmynd kemur til með að skila sér í stórum og fallegum myndaalbúmum sem fólk ætti að vilja bítast um að fá að skoða. Ennfremur hefur þetta vonandi þá aukaverkun að maður fari að post-a aftur myndum hérna á síðuna.


3 comments
(Sveinbjörn)



18.10.2007 | Wake up (or the call of the zombie)

Ég hef mikið verið að velta fyrir mér, í þau örfáu skipti sem ég þarf að vekja Íslendinga hér, hvaða sambærilegt orðalag maður gæti notað og fyrir "This is your wake up call". Mér dettur bara ekkert í hug nema ef vera skyldi: "Þetta er uppvaknings hringingin þín"...

...sem er ekki nógu gott.

Einhverjar tillögur?


1 comments
(Sveinbjörn)



16.10.2007 | Æ, æ, æ, æiii.

Er þetta mögulega mest aulahrolls-inducing sjitt sem maður hefur séð?


2 comments
(Stígur)



16.10.2007 | Kaffi Kósý og Keltik

Nýlega fékk ég óskiljanlega synjun á kortið mitt sem mér fannst furðulegt. Ég ákvað því að athuga málið nánar í heimabankanum með tilheyrandi 6 kr. aulaskatti fyrir auðkennislyklavanþóknun.

Þar komst ég að því að vissulega átti ég þannig séð nóg af peningum og að synjunin væri úr lausu lofti gripin en það sem mér þótti öllu merkilegra var að renna yfir færslurnar á kortinu mínu. Þar eru þau ljúgvitni á mig borin að ég hafi stundað viðskipti á Celtic Cross annars vegar og Kaffi Cosý hinsvegar.

Ég minnist þess ekki að hafa verslað við Celtic Cross í á að verða hálft ár. Aukinheldur tel ég mig geta fullyrt að ég hafi aldrei nokkurn tíman stigið fæti inn fyrir dyrnar á Kaffi Cosý.

kafficosy

Þetta ásamt nokkrum tvöföldum færslum veldur mér þó nokkru hugarangri. Bankarnir skyldu þó ekki vera að reyna að véla mann?

Annars hefur þetta áður gerst með tvöfaldar færslur en alltaf leiðrétt sig. Þetta með draugafærslurnar er annað og verra mál.


3 comments
(Sveinbjörn)



15.10.2007 | Skýr skyrréttindi

skyrrettindi

Já, ég er mjög sammála því að það ættu að vera skýrari reglur um að skyr séu réttindi ófæddra barna.

Það eina sem ég er ekki alveg með á hreinu er hvernig er best að standa vörð um þessi skyrréttindi. Eigum við að neyða barnshafandi konur til að borða svakalega mikið skyr, eða leyfa börnunum að taka skyrið út í óhóflegri neyslu þess eftir fæðingu?


1 comments
(Sveinbjörn)



11.10.2007 | Japanorama I

Ég er búinn að vera að renna í gegnum Special Reports section-in á Guardian og datt inn á Japan. Þar kennir ýmissa grasa og ég verð að komast að þeirri niðurstöðu að Japan hljóti að vera í annarri vídd eða eitthvað.

Athyglisverðasta fréttin þótti mér samt sú sem ég kýs að kalla "MySpace or your's?


1 comments
(Sindri)



10.10.2007 | Animalia

Djövulli er ég ánægður með þennan gaur...

FraserLewry's animal alphabet.


1 comments
(Steinn)



8.10.2007 | Hlutlægni

Úr grein um Lollywood á Wikipediu:

"Copying things is easy but the person(s) indulging in copying stop using their own brains and the net result is a downfall in quality."

Frekar vafasamur málflutningur finnst manni...

P.S. Getur einhver endanlega skorið úr því hvorum megin gæsalappirnar lenda við punktinn? Mér finnst ég alltaf vera að sjá þær bæði fyrir framan og aftan punkt.

P.P.S. Það er frekar fyndið og ruglandi að innlyksa bókstafinn -u í underline tögg í html-i.


6 comments
(Þórdís)



7.10.2007 | Blackwater-gate

Mér finnst þetta alveg hreint með ólíkindum. Hér er úttekt á Blackwater-affair-inu á Guardian. Setningin sem mér finnst mögnuðust er:"The official suggested $250,000, but the department's diplomatic security service said this was too much and could cause Iraqis to "try to get killed".


3 comments
(Arnaldur)



5.10.2007 | Góðkunningi tískulögreglunnar #1

godvinurag1

Góðkunninginn er nýr sameiginlegur vikulegur viðburður á síðunum okkar Árna. Fylgist spennt með nýrri íslenskri dagskrárgerð á hverjum föstudegi.




5.10.2007 | Ran Fiennes Lost in Showbiz

Það er eitthvað við svona sögur sem mér finnst ótrúlega heillandi. Sömuleiðis er það eitthvað svo ótrúlega magnað að heyra af fólki sem að limlestir sjálft sig viljandi (að ég tali nú ekki um svona grafískar lýsingar eins og eru í þessari grein).

Svo verð ég að segja að þessi grein um skoðanir Rambós á ástandinu í Myanmar/Burma er líka alveg heillandi.


3 comments
(Arnaldur)



4.10.2007 | Somegreybloke

somegreybloke1

Nú er það almennt svo að ég er sjaldnast sá fyrsti með skemmtilegt internet fyndið. Aftur á móti rakst ég á þessa síðu hjá manni sem kallar sig somegreybloke. Þessi maður gerir merkilega skemmtilegar flash-myndir um internetfíkil sem er að velta ýmsu fyrir sér. Hér má t.d. sjá eina slíka sem fékk mig til að hlæja þó nokkuð.

Flest eru þessi vídjó frekar fyndin. Mæli með þessu.


1 comments
(Steinn)



4.10.2007 | Tågemund feat. Papa Pughæg

Almennt er ég mjög mótfallinn því að fólk sé að embedda flash-vídjó í síðurnar sína en í þetta eina sinn vil ég meina að þetta sé ein mesta snilld sem ég hef setið í gegnum.


1 comments
(Árni Bragi)



3.10.2007 | Guitarman

guitarman3

Ég er búinn að vera þó nokkuð duglegur að skoða gítara undanfarið á vefnum.

Það verður að segjast að Gibson búa til nokkuð flotta gítara. Hér til hliðar hef ég útbúið smá collage með nokkrum sem mér finnast frekar skemmtilegir úr signature artist seríunni þeirra.

Frá vinstri til hægri: Robert Johnson L-1, Woody Guthrie Southern Jumbo, Elvis Presley Dove (sem mér finnst flottastur).

Röffaðast af þessu öllu saman er þó án efa áletrunin á Woody Guthrie gítarnum: "This Machine Kills Fascists."




3.10.2007 | Þriðjudags-partíbær

Mér er nú ekki tamt að minnast sérstaklega á vinnuna mína hérna, en ég get varla orða bundist um það sem gerðist hér rétt áðan.

Um 2 leytið ljóðaði hér á dyrnar maður sem var greinilega mjög drukkinn. Ég opnaði dyrnar til að spyrja hann hvert erindið væri, en þó meira til að fá hann til að hætta að berja að dyrum. Maðurinn vildi þá ryðjast inn og sveiflaði lúnu debet-korti, eins og til að sýna mér að hér ætti hann loksins heima. Ég stöðvaði framgang mannsins og bægði honum frá með nokkrum styrk, horfði hvössum augum á hann og spurði hvort ég gæti aðstoðað hann eitthvað. Maðurinn horfði á mig með fyrirlitningarsvip, eins og hann væri að velta fyrir sér hvort hann ætti að rjúka í mig. Eftir nokkra mæðu hætti hann að streitast á móti mér og sagði: "Nei. Nei, ekki. Ég. Nei, ekki í kvöld."

Já, það eru aldeilis skemmtileg þriðjudagskvöldin hjá sumum.

foslidur1promo

Annars er það að frétta að nýr, skemmtilegur, ferskur og jafnframt fastur liður er væntanlegur hjá okkur Árna. Þetta verður skemmtiefni til að létta fólki lund fyrir helgarnar, og mun framvegis vera hér fastur liður á föstudögum.

Já núna getur fólk virkilega farið að hlakka til að taka þátt í smekkvísri gleði þeirri sem skín af okkur Árna.

Mun þetta framtak jafnframt vonandi líka ýta við manni í að uppfæra síðuna betur. Ég hef miklar og nokkuð fullmótaðar hugmyndir um hvað mig langar til að gera með þetta pleis. Í gær parkaði ég domain-inu mínu næstu tvö árin. Núna eru Sveinbjörn's awesome css-powers, það eina sem manni vantar.




28.9.2007 | Októbeerfest.

beerchick1

Hver ætlar að koma og drekka bjór með mér og óléttu vinkonu minni henni Bjórhildi í kvöld?

Ég skora á fólk að taka sér öl í hönd og koma með mér og Bjórhildi í ævintýraferð um ölstræti lögregluríkisins Reykjavíkur.

Want Beer?

or birth-defects?


1 comments
(Sveinbjörn)



24.9.2007 | Badass

Ég er mikið búinn að vera að velta fyrir mér hver er mesti badass dude kvikmyndanna en get reyndar ekki alveg ákveðið mig. Annað vefst líka fyrir mér, en það er hvort ég er að einskorða mig við myndir, karaktera, leikara osfr.

Hér fyrir neðan er shortlistinn eins og hann er í dag. Klárlega: Al Pacino (Scarface, Carlito's Way); Bruce Lee (Fists of Fury, Enter the Dragon); Richard Roundtree (Shaft); Robert De Niro (Raging Bull, Heat); Toshiro Mifune (Sanjurno, Yojimbo); Steve MacQueen (Bullit, Papillon).

badass1

Tillögur eru velkomnar....


12 comments
(Sveinbjörn)



24.9.2007 | Re:mail

1messagein

Ég tók mig til og tók til í pósthólfinu mínu. Meðal annars í von um að hlutirnir færu að komast í lag með e-mail and such. Ég tilkynni hérmeð stolltur að um þessar mundir er aðeins eitt e-mail sem að fær að reside-a í inboxinu mínu. Þetta er eins og að byrja nýtt líf.

Reyndar er það nokkuð dæmigert að eina bréfið í innhólfinu mínu er spamm. Ástæðan fyrir því að ég deletaði því ekki hinsvegar var sú að þetta er skemmtilegasta spamm sem ég hef fengið nokkurntíma.

Eftirfarandi er innihald spammsins:

Call out Gouranga be happy!!!
Gouranga Gouranga Gouranga ....
That which brings the highest happiness!!

Hér er færsla á wikipediu um dularfula Gouranga spammið...


1 comments
(Sveinbjörn)



23.9.2007 | De-mail

Hræðilegt. e-mailið mitt virðist vera í fokki. Hef ekki fengið eitt einasta e-mail í tvo daga og þó veit ég af allavega tveimur sem átti að senda á mig og auk þess reyndi ég sjálfur að senda mér e-mail en fékk ekkert.

I feel so violated.


2 comments
(Sveinbjörn)



21.9.2007 | The powerbook that just wouldn't die...

powerbook1

Gamla góða powerbókin mín stendur nú aldeilis undir nafni. Ég vil meina að það sé leynigaldra títaníumið í henni.

Í gær hljóp ég á rafmagnssnúruna úr henni með svo miklu offorsi að hún slitnaði. Tölvan hrundi að sjálfsögðu af borðinu sem hún stóð á. Mér tókst að hálf grípa hana, en ekki betur en svo að ég lamdi B-lykilinn úr lykla borðinu og að endingu lenti tölvan í gólfinu.

Viti menn. Hvað gerðist? Jú, batteríið fór að haga sér eðlilega og veita mér réttar upplýsingar um hver staða þess er (sem hefur ekki gerst lengi). Að öðru leyti, gerðist ekkert. Reyndar var ég í um þrjú kortér að bisa við að festa B-lykilinn aftur á sinn stað, en það hafðist nokkurnveginn á endanum.

GO POWERBOOK, GO!!!


1 comments
(Sveinbjörn)



20.9.2007 | Hús Datt...

husdatt1

Nei, nú verður þetta hústökufólk að fara að taka sig taki...

Ég geri mér nú grein fyrir því að þetta eru gamlar fréttir, en ég var á leiðinni heim þegar ég sá þetta hús sem hafði dottið utan í annað hús á Spítalastíg. Ég tók nokkrar myndir af viðburðinum og varð óneitanlega hugsað til hljómplötunnar Hús Datt, sérstaklega með löggurnar tvær þarna í forgrunni.

Annars varð ég fyrir smá vonbrigðum með þetta allt saman. Ég var svo innilega að vona að þeir ætluðu að byggja eitthvað verulega töff og sexy á horni Spítalastígs og Bergstaðarstrætis.




19.9.2007 | OJ is an evilous man...

OJmugshot

Hversu illur er O.J. Simpson? Ég ætla að kjósa O.J. sem Nino Brown of the naughties.




19.9.2007 | Eyrnheyrn

Væri ekki "eyrnheyrn" samsvarandi við "augsýn" ef maður þyrfti að koma slíkri athugasemd á framfæri?

Að lokum hafna ég þeirri athugasemd móður minnar að ég líti út eins og Dr. Gunni á header-num á síðunni minni. Eða hvað? Það er kannski eitthvað til í þessu hjá henni.

drgunniogeg2



19.9.2007 | Vertu ríkur... alltaf!

verturikuralltafjoi1

Var að komast að því að þetta var að detta inn núna rétt áðan. Hérna eru fleiri sketsar sem gerast á fjármálanámskeiði Jóhanns: "Vertu ríkur alltaf".

Ég leik hér gimpalegan félaga hans sem hefur verið plataður út í að vera aðstoðarmaður hans í þessu vafasama verkefni.

Persónulegt uppáhald mitt er nú "Eilífðarvélin" (það var líka gaman að taka hana upp). Annars eru þarna nokkrir helvíti góðir þótt ég segi sjálfur frá.

verturikureghambo1

Það er kannski dálítill hængur á þessu öllu saman að mér finnst of erfitt að finna þessa síðu, m.a. út af því að url-ið sem er skrifað í auglýsingunni er með séríslenskum stöfum, á meðan að í raunveruleikanum er svo ekki. Ennfremur eru vídjóin alltof þung. Allavega fyrir mína low-end vél. Það þyrfti að vera hægt að velja um resolution eða e-ð. Á minni vél er allt þetta flash algerlega að choke-a processorinn.

Maður ætti kannski að reyna að verða sér úti um vinnu á auglýsingastofu, þar sem eru vélar með nýjum intel-örgjöfum á hverju strái.


1 comments
(Hildur)



18.9.2007 | Glitnir I

glitnirbrot1

Alveg rétt. Ég var næstum búinn að gleyma þessu.

Hér ber að líta frábæra leikhæfileika mína njóta sín á tölvuskjánum.

Þetta kemur nú bara töluvert betur út en ég þorði að vona. Hef samt ekki séð þetta í kassanum ennþá, ef það ratar þá nokkurntíma þangað inn.

Annars er líka meira á leiðinni víst. Veit ekki hvenær það verður til sýnis.


4 comments
(Arnaldur)



18.9.2007 | Opinberun um Stjórnsýslu

Ég veit ekki alveg hvað mér á að finnast um þennan kúrs í Opinberri Stjórnsýslu. Námsefnið er temmilega interessant, en öll umgjörðin virðist vera frekar banal, uptight og ströng.

Ég allavega hafna því að fara að vinna hópverkefni í næsta mánuði, sem mér finnst vera fullkomlega fáránleg krafa, sökum þess að hópverkefni eru hvorki sniðug né skemmtileg, né heldur hafa þau þessi jákvæðu félagslegu áhrif á einstaklinga sem þeim er ætlað (og ég vil meina að sé eina ástæðan fyrir því að stungið sé upp á þessari vitleysu). In any case þá get ég ekki tekið þátt í þessu bulli sökum vinnu.

Af hverju má maður ekki bara lesa theoríuna sína í friði?

Manneskja sem stingur upp á The Protestant Ethic and the Spirit of Capitalism eftir Weber sem hliðsjónarefni í kúrs, hefur:

  • a) ekki lesið hana...
  • b) ekki áttað sig á því ennþá hvað Weber er leiðinlegur penni...
  • c) ekki áttað sig á því að PSEC eftir Weber er stúdía í sjálfri sér en ekki hliðsjónarefni...

---

Síðast en ekki síst, en þó ótengt þessu öllu. Hvað eru þessir geðsjúklingar að spá? Er fólk endanlega búið að missa allt vit? Ég man alveg eftir Lækjartorgi 1995-96.

Takið eftir stormsveitarbragnum á þessari mynd líka.


1 comments
(Steinn)



6.9.2007 | Nightwing

Af hverju, var ég ekki búinn að láta mér detta þetta í hug fyrr?


2 comments
(Arnaldur)



3.9.2007 | Hvað er að gerast!?!

Hvar eru allir? Hvað er á seyði?

Nú hóf ég störf í miðbæ Reykjavíkur að næturlagi um helgina. Ég hef bara eitt um það að segja: -Að fullt fólk sem djammar til 8 á morgnana er erfitt og leiðinlegt.


2 comments
(Sveinbjörn)



29.8.2007 | Kínverskt Marathon

Ókei, mér finnst alltaf gaman þegar fólk tekur sig til og gerir eitthvað merkilegt og sniðugt til að vekja athygli á sér og einhverju í kringum sig.

Þetta finnst mér samt frekar yfirdrifið og eiginlega ósiðlega illvirknislegt. Hvaða manneskja lætur barnið sitt hlaupa 1 og hálft marathon á dag í tvo mánuði og eltir á skellinöðru?

Ég sé þetta alveg fyrir mér: -"Elskan mín, pabbi þarf að taka bensín. Hlauptu bara áfram, ég næ þér..."

Svo gat maður verið að fárast yfir þessu Latabæjarhlaupi. Þessi stelpa hefði rústað því...




29.8.2007 | Kaffisorg...

Nú er ég ofstopafullur kaffidrykkjumaður og vinn ötullega að því að drekka í mig magasár.

Ég fór á kaffihús í gær og drakk þar tvo kaffibolla í góðri trú um að sá seinni væri ábót. Svo reyndist ekki vera. Þegar ég stóð upp og borgaði fyrir mig og sessunaut minn sem ég vildi splæsa á, stóð ég frammi fyrir reikning upp á ISK 1.040,-

Verður maður ekki bara heima, á kafi í kaffibruggi héðan í frá?




28.8.2007 | Íslensk tónlist ofl.

islandskjaldamerk1

Nú búum við á Íslandi. Maður skyldi halda að Ísland og jafnvel höfuðstaður landsins Reykjavík væri rétti staðurinn til að nálgast íslenskt menningarefni.

Undanfarið hef ég reynt að verða mér út um ýmsar eldri íslenskar hljómplötur, kvikmyndir og bækur sem ég nenni ekki að telja upp hérna og haft lítið erindi sem erfiði.

Afhverju er ekki haldið betur um þessa hluti hér á landi. Mér leið á tímabili eins og ég væri genginn inn í tvíhöfða-sketsinn um Mega með Megaleuth og Carpet my Apartment með Nancy Hendstidge and the Carpetband. Þó var þetta nú hvorki flókið né erfitt dót sem ég var að falast eftir.


6 comments
(Dún og fiður.)



24.8.2007 | Jói Pikkóló (á la Laxness)

Var að snapa mér djobb á hóteli í morgun. Sem er últra nice og eitthvað sem mig langaði mikið til að gera.

Þó verð ég að segja að það er pínku bömmer að ég verð að setja öll áform um útferðir á pásu á næstunni. Boð mitt um ferðafélag er því hér með dregið til baka, enda svosem frekar dræm viðbrögð við því.

Allt í allt verð ég þó að segja að ég er frekar sáttur við það hvernig málin hafa þróast. Meira svona...


5 comments
(Arnaldur)



23.8.2007 | Freshjive 2007

-Búinn að setja up temporary nýtt look.

-Bráðum koma skemmtilegri breytingar m.a. á innihaldi ofl.

-Btw. Þessi file-manager í mentatnum er fokking snilld Sveinbjörn.

-Vill í alvöru enginn koma með mér til úglanda?




13.8.2007 | Sysífos er enn að rembast við steininn...

helludrasl

Ég var búinn að ákveða að ég myndi ekki fara aftur í hellurnar í sumar. Á þessu stigi málsins er ég hinsvegar búinn að gera lítið annað en að bera grjót. Mig langar alveg svakalega mikið til að fara að gera eitthvað annað, og eignast líf á ný...

Í því skyni að flýja raunveruleikann short-term, er ég semi-búinn að ákveða að fara eitthvað til útlanda í lok ágúst/byrjun sept.

Er einhver til í að fara með mér til reasonably raunhæfra útlanda á þeim tíma? (Reasonably raunhæft útilokar sjálfkrafa lönd á borð við Egyptaland, Mali, Khirgizstan, Mongólíu, Japan og Páskaeyju)

Annars er ég bara búinn að ákveða það að mig langar til að vera í kringum fólk um næstu helgi og fá mér bjór og sígó og jafnvel vindil eða tvo. Er þetta ekki að detta í menningarnótt um það leyti? Meldið ykkur, þarna felupúkarnir ykkar...

Talandi um næturlíf Reykjavíkur, ég heyrði ágætis rök í útvarpinu í dag fyrir því að þáttur í auknu ofbeldi og sóðagangi í miðbænum væri reykingabannið. Meikar að vissu leyti sense. Hafði ekki pælt í þessu sjálfur.


8 comments
(Doddi)



6.8.2007 | ALIVE

Ég er á lífi...

1 comments
(Sveinbjörn)



19.7.2007 | Stop This (Nonsense)...

Smá update...

Ég fann Stop me if you've heard this before coverið með Daniel Merriweather á myspace-síðunni hans. Lagið hefur verið endurskírt Stop Me, til að gera það þjálla, meðfærilegra og söluvænna (eða af því að Daniel er lélegur typist-i).

Myspace síðan hans Daníels með laginu.

Þetta er alveg átakanlegur skítur. Verra en mig minnti. Honum tekst meiraðsegja að gera lagið virkilega gay, sem er skemmtilega öfugsnúið.

Endilega deilið skoðunum ykkar.


6 comments
(Doddi)



18.7.2007 | Barónsstígur

stgurbaron1

Ef Stígur Helgason yrði aðlaður og gerður að barón, þá yrði hann Barón Stígur...




18.7.2007 | Stop Me If You Think You've Heard This One Before...

Jæja, ég hef núna um nokkurt skeið ætlað að uppfæra síðuna en hef ekki komist í það vegna anna. Er farinn að vinna eins og hestur í hellunum á ný. Það er nú samt allt í lagi meðan veðrið er eins og það er.

Ég rakst á nokkuð afskaplega glatað í útvarpinu (sem er hluturinn sem maður heyrir mikið af glötun í) í gær. Þetta var væmin R'n'B (and not in a good way) útgáfa af einu af mínum eftirlætis lögum, Stop Me If You Think You've Heard This One Before, með The Smiths. Mér sýnist þetta vera í flutningi manns sem heitir Daniel Merriweather

Ég nenni ekki að eyða of mörgum orðum í þetta, en fokk hvað þetta var mikil ömurð. Mér datt í hug færslan hans Árna um Us Placers

totaleceins

Annars keypti ég mér nýlega nokkra DVD og geisladiska á netinu. Þar á meðal smáskífuna Total Eclipse of the Sun með Einstürzende Neubauten. Hana fékk ég á £4.99. In yer face Skífan! Með aðflutningsgjöldum, tollum og lítillega ofreiknuðum VSK-i, reiknast mér til að ég hafi fengið plötuna á um þriðjungi af útsöluverði Skífunnar. (Sjá færsluna að neðan.) Og það er ef ég reikna mjög rúmt. Ég er sterklega að hugsa um að fara að benda Skífunni á þetta og hlæja að þeim. Jafnvel hrækja í andlitið á þeim eftir á. Loksins vinnur Arnaldur í lífinu.

Annars keypti ég mér líka samtímis gamanþættina Black Books seríur 1-3. Ég hafði heyrt vel af þeim látið og stenst sú skoðun vel og leyfi ég mér að mæla með þessum þáttum við fólk. Það sem mér þykir samt skemtilegast er að ég þykist nú vera búinn að uppgötva mikinn sannleik...

Ef að Sveinbjörn Þórðarsson væri sjónvarpsþáttapersóna. Þá væri hann Bernard Black úr Black Books. Skoðið bara myndina að neðan og sjáið líkindin. Svo deila þeir þar að auki mörgum persónueinkennum. Ég er farinn að halda að karakterinn sé að einhverju leyti módellaður eftir vorum ástkærum Sveinbirni.

sveinblack1

2 comments
(Einar Örn)



19.6.2007 | Total Eclipse II

Einstotaleclipse

Skífan strikes again. Fór í dag í Skífuna að sækja miða á Air-tónleikana í kvöld.

Fyrst að ég var þar browsaði ég aðeins verslunina og fann mér PJ Harvey disk á góðu verði sem ég keypti mér. Svo rakst ég á gamlan kunningja, í Indie-rekkanum (sem mér finnst admittedly dáldið undarleg flokkun). Það var Total Eclipse of the Sun smáskífan með Einstürzende Neubauten.

Smáskífan var ennþá á ISK 2.490,- jafnvel þrátt fyrir VSK-lækkunina. Ég tók málið á ný upp við afgreiðslustúlku sem var nærstödd. Hún tjáði mér að vissulega væri þetta vitlaust verð og að platan kostaði í raun ISK 2.200,-

Ég sagði að þetta væri ennþá alveg jafn fáránlegt verð og þá dró hún í efa að þetta væri smáskífa og leit á mig eins og ég væri lygari. "Þetta er þá ábyggilega ekki smáskífa!"

Skífan er ekki kúl.


5 comments
(Arnaldur)



19.6.2007 | Pappírs-pésa partý

utskriftmatur

Á laugardaginn fór fram glæsileg veisla hér í garðinum mínum í tilefni þess að Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur rétti mér pappír og Kristín Ingólfsdóttir rektor tók í hendina á mér... heilsaði mér.

Með öðrum orðum var verið að leysa mig út úr Háskóla Íslands, þeim verndaða vinnustað (í bili). Athöfnin sjálf var svakalega löng bið eftir því að nafnið mitt væri kallað upp og síðan var brunað heim í veislu.

Veislan var ótrúlega vel heppnuð, vil ég meina, og töluvert vel sótt. Í raun var hún svo vel heppnuð að ég vil meina að Mezzoforte hafi séð sér ástæðu til að troða upp daginn eftir og spila homage til veislunnar á miðri Lækjargötu. Ég vil endilega þakka öllum sem sáu sér fært að mæta og fagna með mér og fjölskyldu minni. Veislan stóð lengi fram eftir nóttu og fór vel á með fólki. Þeir sem misstu af henni mega fara að kjökra... NÚNA.

utskriftgaman

Ég vil líka nota tækifærið og þakka fyrir allar þær fallegu gjafir sem fólk var að bera á mig. Aldrei átti ég von á öðru eins. Takk-takk-takk-takk-takk.

Ég hafði hugsað mér að skella upp myndum frá veislunni, en ég ætla að bíða með það þar til fleiri myndir skila sér í hús og hafa þetta dálítið samræmt við endurbætur á síðunni sem ættu að eiga sér stað von bráðar. Good things come to those who wait. (Góðir hlutir gerast hægt.)


6 comments
(Sveinbjörn)



13.6.2007 | Sjálfsskoðun

Er búinn að vera með félaga í heimsókn hérna síðan á laugardag. Mikið búið um að vera og því lítil action hérna á þessari síðu.

Svo reyndar var ég líka eitthvað að fokkast í HTML-inu og síðan mín hvarf og ég gat ekki séð hana. Dúkkaði svo óskiljanlega aftur upp í gær. Skil ekkert í þessu því fólk virðist hafa getað skoðað síðuna síðustu daga.

Að öðru leyti var ég að velta því fyrir mér hvort að sjálfs-googlunar-tíðni (hversu oft maður googlar sjálfan sig) fólks aukist eftir því sem það verður meira áberandi í þjóðfélaginu. Ég fæ upp skemmtilegt mental-image af Davíð Oddssyni og Ólafi Ragnari að googla sjálfa sig á milljón og fárast yfir öllu bullinu sem er á netinu og þeir hafa enga stjórn á.


7 comments
(Þóra)



7.6.2007 | Hell NO!

Þetta er náttúrulega fullkomnlega óásættanlegt. Þá getur maður saltað Amríku í bili.

Merkilegt samt að fréttin er um pirringin við lengri biðraðir en ekki óheilbrigða og ömurlega persónu-upplýsinga gagnasöfnun.


6 comments
(Sveinbjorn)



7.6.2007 | 5-0 - Nýr íslenskur spennuharmleikur

nidurlaeging

Hmmm... 5-0 fyrir Svíum. Þetta er frekar mikið lame. Hann Eyjólfur verður eitthvað að fara að spike-a drykkjarvatnið hjá þessum greyjum. Eða bara að fara að láta þá spila fótbolta.

Merkilega ósmekklegt líka þetta síðasta mark. Ég fór actually að hlæja þegar ég sá þetta.

Lærdómsríkt...

Annars er bara nóg að gera hjá manni. Og ég hef nú einsett mér það að vera búinn að uppfæra útlitið á síðunni minni innan 2 vikna.


2 comments
(Sindri)



6.6.2007 | London 2012

london2012

Gæti lógóið fyrir Ólympíuleikana 2012 í London verið með því ljótasta sem hefur verið hannað síðan Bryggjuhverfið í Grafarvogi á sínum tíma?

Lógóið kostaði Breta £400.000. Ég vildi óska að ég hefði fengið þann kontrakt.

Það sem mér finnst samt best er að Ólympíunefndin þurfti að fjarlægja nýlega auglýsingu vegna þess að hún var svo hyper-intensly overloaded af grafík, að fólk sem sá hana fékk flogaveikiskast.

Hér er linkur á flogaveikis-vidjóið.

(Varúð, ekki horfa á þetta ef þið eruð flogaveik, í alvöru.)


6 comments
(Arnaldur)



5.6.2007 | Spjoidt

Nú er ég sæll og glaður. Peningamálin komin á hreint, vinnumálin að skýrast og heimsókn frá fjarlægum slóðum yfirvofandi. Það er nú varla hægt að biðja um mikið fleira í bili...

Svo er bara veisla í kringum pappírsafhendinguna þann 16da. Meira um það síðar.




4.6.2007 | Opin Ber Stjórn Sýsla

Skráði mig í dag í diplómunám í Opinberri Stjórnsýslu. Svona til að hafa eitthvað að gera næsta árið með vinnu. Vei. Nú fæ ég að ráða...

Annars er ég búinn að vera að vinna að því að uppfæra þennan vef og það hefur gengið mis-vel. Hef haft í ansi mörgu að snúast undanfarið og látið ýmis svoleiðis verkefni sitja á hakanum.

Mikil drama-Tík með hundinn minn í gær. Nenni ekki að segja frá því in detail, en þetta var heilmikið vesen og fól í sér ferð á hundaslysó.

Svo eru allir að flytja þessa dagana og maður fær ekki frið fyrir fólki sem er annaðhvort að bjóða manni í innflutningspartý eða betla hjálp frá manni.

I'm out...


3 comments
(Sveinbjörn)



23.5.2007 | Clerical-error

Færslan hér að neðan er ef til vill eilítið óljós... og taugaveikluð.

Henni til útskýringar er það að ég fékk símhringingu frá HÍ kl. 11.15 í morgun þar sem mér var tjáð að ég gæti ekki útskrifast sökum einingaskorts og ókláruðum skyldukúrsum.

Við nánari eftirgrennslan og tilrauna til sáttaumleitana kom í ljós að um skrifræðisvillu var að ræða og engu var ábótavant á námsferli mínum.

Enn á ný stefnir allt hraðbyri í útskrift...

Fjúff...


4 comments
(Einar Örn)



23.5.2007 | Fokkkk

FOKKKKKKKK!!!

PANICPANICPANICPANIC


1 comments
(Sindri)



22.5.2007 | Panopticon smanopticon

Takk fyrir. Þá er ég búinn að senda frá mér síðustu orðin til akademíunnar í bili.

Það má óska mér til hamingju í dag og næstu daga.

Nú er bara að bíða og sjá hvort maður fær ekki pappír þann 16. og losnar opinberlega úr vistarbandinu.

Takk fyrir mig...


8 comments
(Baldur)



10.5.2007 | Heimsmynd í molum...

Blwahh... Hvað er að gerast? Guardian búið að breyta radically um útlit. Núna þarf ég að breyta um browsing-patterns, sem er ekki gott.

Annars er eftill vill hægt að túlka þetta sem tákn um breytta komandi tíma, sem væri þá gott.

Babbarabbababbarabb... Can't stands no more...


1 comments
(Steinn)



8.5.2007 | Um Odda að næturlagi...

kindergarten

Nú eyði ég talsvert miklum tíma hér á Odda þessa dagana enda baneitraður Babbari yfirvofandi. Nú er ég tiltölulega fókusaður á sjálfan mig aðallega, en þó er ekki laust við að mér finnst ég vera að taka eftir allskyns fólki sem að passar ekki hingað inn.

Mig grunar sterklega að hér séu menntaskólanemar að campa á næturnar í einhverri pervers tilraun að lesa fyrir próf.

Grunur minn var fyrst vakinn þegar ég sá fólk, sem ég hefði t.a.m. ekki afgreitt í ríkinu, lesa hérna allt í kring um mig. Hormónabrestur hugsaði ég fyrst, en þá fór ég að taka eftir því að þetta fólk er aldrei með tölvur, sem er grunsamlegt hérna.

Loka vísbendingin var svo áðan þegar tveir barnungir drengir stóðu og reyktu beint fyrir utan hurðina, og höfðu skellt gúmmímottu milli stafs og hurðar til að hún lokaðist ekki. Þetta fékk mig til að afleiða eftirfarandi:

  • a) þeir væru ekki með stúdentakort.
  • b) þeir gerðu sér ekki grein fyrir grievance-inu sem reykingarfólk verður fyrir þegar það reykir svo nærri byggingunni.
  • c) þeir væru ekki háskólanemar.

Nú hef ég svosem ekkert á móti því að deila þessu húsnæði hér, og þigg félagsskapinn á nóttunni þegar minna er um fólk. En verra er ef menntaskólanemar eru farnir að ganga á það litla pláss sem fyrir er í húsinu almennt. Að ekki sé minnst á ákveðna þætti í umgengni.

Ætli það sé ekki annars lendingin. Að Oddi verði endastöð fyrir andvana umrenningaflóð frá N1.


4 comments
(Steinn)



1.5.2007 | Til hamingju með daginn, 1. maí!

prolework

Fram, þjáðir menn í þúsund löndum
sem þekkið skortsins glímutök!
Nú bárur frelsis brotna á ströndum
boða kúgun ragnarök.
Fúnar stoðir burtu vér brjótum
Bræður! Fylkjum liði í dag!
Vér bárum fjötra, en brátt nú hljótum
að byggja réttlátt þjóðfélag.

Þó að framtíð sé falin,
grípum geirinn í hönd!
Því Internationalinn,
mun tengja strönd við strönd.


4 comments
(Arnaldur)



26.4.2007 | About A Boy... and his cancer.

hugh grant2

Ég er búinn að komast að þeirri niðurstöðu að mig langar til að vera Hugh Grant þegar ég verð stór.

Hugh Grant er undarlegur maður í marga staði, oft klénn á köflum en greinilega baneitraður undir barnslegu yfirborðinu.

Hvað sem maður getur sagt um manninn þá verður maður að dást að riddaralegri framgöngu hans í nýjustu samskiptum hans við ljósmyndarastéttina. Hvaðan fær hann innblástur? Aldrei hefði mér dottið í hug að vopna mig með bökuðum baunum. Eða þessi ljóðrænu tilsvör. Maðurinn er sannkallað warrior-poet.

Ég spái anger-management námskeiði í náinni framtíð Grants.


2 comments
(Arnaldur)



24.4.2007 | S1V-2000

Ég uncover-aði sannanir þess efnis að Siv Friðleifsdóttir er í raun illt cyborg vélmenni sem mun terminate-a Íslandi.

sivfridl1

Í frétt um BUGL er vélmennið Siv spurð álits og hún svarar spurningunni tvisvar í röð (eftir að fréttamaður biður hana um nákvæmt svar) nákvæmlega eins á óhugnanlega vélrænan hátt. Annað hvort er Siv cyborg eða zombie. Ég hefði getað svarað þessari spurningu betur en hún og samt er ég ekki ógeðslegur spindoctoraður póitíkus í forsvari fyrir Heilbrigðismálaráðurneytið.

(Því miður virkar ekki sjittið á rúv síðunni sem sýnir manni individual fréttir en þetta er alveg þess virði að bíða eftir streaminu.)


3 comments
(Sveinbjörn)



24.4.2007 | Pulsupartý á Zizzi

zizzi1

Ussss. Afskaplega þarf maður að vera illa fyrirkallaður til að taka upp á svona stunt-i. (insert own pun involving stunt-cocks.) Greyið maðurinn, það hlýtur nú að bæta gráu ofan á svart, ef að sprellinn er farinn fyrir fullt og allt.

Mér þykir þó skemmtilegast í þessu að ég sá þennan veitingastað þegar ég var að spóka mig á "The Strand" síðast þegar ég var í London. Eina ástæðan fyrir því að ég man eftir þessum stað er sú að ég staldraði við og velti því fyrir mér hverskonar mat, staður með jafn pempíulegt nafn byði upp á. Nú veit maður það. (insert own pun involving hot dogs.)


5 comments
(Sveinbjörn)



17.4.2007 | Pómó-Runk #2

img

(Sjá pómó-runk #1)

Nú hef ég verið önnum kafinn undanfarna daga við ritgerðarskrif og lestur og ég verð að segja að þessi bjánalegi póstmódernismi sem fær að vaða upp í akademíunni - imported en masse frá meginlandinu - er absúrd drasl og ég skil ekki hvað fólk sér í þessu. Þetta fólk getur ekki einu sinni komið hlutunum skikkanlega frá sér.

Gefið mér Dan Brown skáldsögu anyday framyfir Baudrillard og Latour. Maðurinn veit allavega hvað hann er að reyna að segja, annað en þessar frönsku hvítlauksætur.

Hér er dæmi um smá póstmódernisma frá vini okkar honum Baudrillard. Og þetta neyðist maður til að renna í gegnum.

"On the other hand, Baudrillard (1988) claims a degeneration of meaning occurs in the evolution of consciousness from the original function of language as pointing to reality, to the modern era's function of language as hiding reality (through advertising and propaganda), to the current postmodern function as hiding the absence of reality in the artificiality of hyper-real experience."

Endilega deilið skoðunum ykkar, I'd like to hear them.


10 comments
(Dún og fiður)



14.4.2007 | Dement demant

Mig langaði að benda á þessa últrakúl grein sem Steinn linkaði á.

Þetta er sennilega svalasta pæling sem að einhverjum hefur dottið í hug. Þið vitið það bara að ég vil fá svona demants-treatment þegar ég dey.

Kannski það væri hægt að studda manni svo á Vaselín túbu í eigu Tyru Banks. Ég er viss um að hún lube-ar upp með vaselíni fyrst hún er svona crazy about Vaseline.



Annars er ég pínku miffed yfir nýjasta coverinu á Grapevine. Those bastards stole my idea. Ég er sjálfur búinn að vera að skissa upp alternative skjaldamerki núna um nokkurt skeið. Mín eru bara betri. Frekar vel gert hjá þeim samt. Flott cover.

Grapevine mætti btw. updeita síðuna sína.


2 comments
(Steinn)



14.4.2007 | Þjóðarmorð í Malasíu

marlborolights

Ég hef komist á snoðir um samsæri. Samsæri um þjóðarmorð. Félagi minn Sveinbjörn færði mér sannanirnar. Hann lét mér nýlega í té malasískan pakka af Marlboro lights, sem okkur þótti athyglisverður fyrir þær sakir að engar viðvaranir eru á honum. (Sjálfsagt vegna þess að ólæsi er mikið í Malasíu.) En einhvernvegin fannst okkur pakkinn fallegri og eðlilegri. Engin mellódramatík um krabbamein og dautt sæði.

Nú kaupi ég mikið af sígarettum. Ekki fyrir mig reyndar - ég reyki ekki – heldur fyrir börnin í hverfinu og stundum brenni ég eina hérna heima til að fá gamla verksmiðjufílínginn heim. En í gær var ég uppiskroppa með sígó.

Þar sem klukkan var orðin seint, og ég nennti ekki að fara útúr húsi ákvað ég að opna malasíska pakkann. Ég gerði það og kveikti mér í mjög vafasamri, ljótri og illa lyktandi malasískri Marlboro lights. Eftir tvö puff leið mér hreinlega illa. Ég skoðaði pakkan og komst þá að nokkru merkilegu.

Malasísk Marlboro Lights sígaretta inniheldur 4 sinnum meiri tjöru og 3 sinnum meira nikótín en t.a.m. Winston Lights sígaretta. Þessi staðreynd, fyrir utan það að gera þær algerlega óreykjanlegar, gerir þær basically bara hættulegar.

Því vil ég meina að Philip Morris sé vísvitandi að myrða ólæst fólk í Malasíu....


Þetta minnir mig bara á Roth-Haendel incidentið hér um árið....

rothhandle



10.4.2007 | UssUss...

ussussuss

Var að horfa á myndbandið Moss með GusGus. Myndbandið, sem er anímerað, sýnir fólk, aðallega GusGus-fólk að blása rósum á hvort annað og brosa svo svakalega mikið þegar það fær rósirnar í líkaman sinn. (Ég veit ekki alveg hver pælingin er, en mér dettur ýmislegt í hug.) Myndbandið endar svo á því að allir í GusGus, og einhverjir fleiri fara og detta í það á Sirkus. Allir brosa og allt fyllist af blómum þannig að blómin streyma út um reykháfinn á Sirkus. Frábært.

Ég hef komið inn á Sirkus. Sirkus er ekki hresslegur lítill kósý blómabar. Aldrei hef ég setið inni á Sirkus og horft á alla brosa og hlæja með blóm útum allt. Reyndar sé ég eiginlega aldrei neinn brosa á Sirkus. Það eru allir svo uppteknir við að gnísta tönnum þar og hugsa um hvernig megi best glasa næsta Portúgala sem dúkkar upp. Hvaða obsessíón er þetta hjá þessu fólki á þessum stað.

Æi, og núna er gaurinn úr Maus sem kann ekki að syngja að sleikja eyrað á ljóshærðri stelpu og káfa á rassinum og brjóstunum á henni.


10 comments
(Sigurgeir Þór)



1.4.2007 | Svartur hundur í óskilum

Ég var uppfræddur um mikla snilld í gær. Það myndi vera hinn svarti hundur Churchills. Að sjálfsögðu þóttist ég vita hvað var rætt um. Reynsla mín er sú að fólk hefur tendens til að útskýra mál sitt óumbeðið. Oftast getur maður jánkað því að vera meðvitaður um hluti og fólk skýrir þá engu að síður út fyrir manni. Ég ætla hinsvegar ekki að útskýra svarta hundinn öðruvísi en að segja að hann sé hér með mér í dag, eins og oft vill verða eftir slark og gljálífi.

Fyrstir koma, fyrstir fá...


10 comments
(ozy)



22.3.2007 | ÉG fór Suður!!!

sydrirass

Nú fer enn og aftur að líða að stórhátíðinni "Aldrei fór ég suður." Ég rakst á þessa mynd af Rass að fagna því að þeir hefðu aldrei farið suður. Og ég skil fagnaðarlætin hjá þeim. Ef þeir hefðu einhverntíman farið suður, hefðu þeir sennilega endað í ísköldu N.-Atlantshafinu. Eða jafnvel verra. Í Reykjanesbæ. Hvort heldur sem er væru þeir sennilega dánir, annaðhvort úr hnífsstungum eða drukknun. Maður verður því að skilja drengina. Þeir eru greinilega að fagna lífinu.

Í hið minnsta getur varla verið að þeir séu að fagna því að þeir hafi alltaf búið á Ísafirði, og aldrei farið suður þaðan. Því að þá byggju þeir ekki í Reykjavík. Reyndar er það athyglisvert að á tónlistarhátíðinni "Aldrei fór ég Suður" er meirihluti tónlistarmannana að sunnan. Ampop, Dóri DNA, Dr. Spock, Flís, etc. Er ekki þversögn fólgin í því að allar þessar miðbæjarrottur úr Reykjavík komi saman einu sinni á ári, drattist Vestur og lofsyngi Vestfirðina og sveitarómantíkina.

Ég útbjó lítinn vef í tilefni af þessu. Ég kalla hann: "Ég fór suður." Vona að enginn taki hann nærri sér. Þetta er djók!!! Hættu að væla kelling!!!

egforsudur

6 comments
(Baldur)



21.3.2007 | Barn Útlagans

utlagi

Langafi minn, Ólafur Hvanndal, var merkilegur maður. Hann var m.a. fyrsti prentmyndasmiðurinn á Íslandi og gerði fullt af merkilegum hlutum. Hann var líka með massíva upphandleggi sem við getum öll dáðst að ef við lítum á höggmynd Einars Jónssonar, Útlaginn, sem horfir alltaf löngunar augum á hlýju hótelherbergin á Sögu hinumegin við Hringbraut.

Ég ætlaði hinsvegar ekki að rausa endalaust um manninn fyrir utan það að hann virðist hafa deilt með mér áhuga á afmælisdögum og þá einkum og sér í lagi sínum eigin. Maðurinn var fæddur sama dag og ár og Albert nokkur Einstein. Þetta þótti honum sniðugt og skrifaði Berta einn daginn á afmæli þeirra. Viti menn, Berta kallinum fannst þetta jafn sniðugt og sendi honum línu um hæl sem er varðveitt í kassa í geymslu einhversstaðar á Stór-Reykjavíkursvæðinu og sást síðast 1997.

Ég á aftur á móti engan merkilegan afmælisbróðir til að skrifast á við. Allt fræga fólkið sem ég á afmælisdag með er annað hvort dáið (Akira Kurosawa, Wernher von Braun), eða gamalt og hálfgert drasl (Damon Albarn). Fyrir utan þá augljósu staðreynd að ártölin passa ekki. Ætli maður verði ekki að bíða eftir að komast á nóbels-aldurinn til að eitthvað fari að gerast í þessum efnum.

Reyndar er leikkonan margrómaða Álfrún Örnólfsdóttir með sama afmælisdag og ár, sem mér hefur þótt merkilegt um nokkurt skeið. Að henni algerlega ólastaðri þó, þá er hún í fyrsta lagi ekki alveg nógu framandi (býr hérna rétt hjá einhversstaðar), og svo held ég líka að ég verði að bíða eftir Óskar, eða allavega gullpálma þangað til ég fer að skrifast á við hana. (Ég vil sumsé hvetja hana til að fara að gera eitthvað í þessu.) Annars er bara að bíða og sjá. Það hljóta að vera einhverjir fleiri snillingar þarna úti, aðrir en ég og kannski Álfrún. 23 júní er betri tími en margur annar til að geta börn.


3 comments
(Ari Eldjárn)



19.3.2007 | 300 afmæli...

300comic

Þá er jafndægrið að nálgast og fólk farið að geta skriðið úr híðinu, sem maður hefur óneitanlega verið nauðugur í yfir þennan dimma, drungarlega og glataða tíma sem er vetrarskammdegisgubbupestin. Sjálfur kláraði ég kúrs á dögunum og hef því örlítið meiri tíma á höndum mér en ella, en það hefur óneitanlega dregið úr manni undanfarið að standa í verkefnum og prófum. Skýrir það ef til vill að einhverju leyti fjarveruna úr tilverunni og rafverunni.

Framundan er afmælisveisla um næstu helgi sem við getum öll hlakkað til, en á föstudaginn verður haldið upp á sameiginlegt afmæli mitt, Akira Kurosawa, Dr. Wernher Von Braun, Damon Albarns og fleiri góðra manna. Þeir taka það til sín sem vilja. Teitin hefst á Reykvískum staðaltíma hjá mér og varir eitthvað frameftir nóttu. Boðið verður upp á létta skemmtun fyrir öll skilningarvitin og að sjálfsögðu mig. Þeir sem telja sig velkomna eru það ef þeir geta samviskusamlega svarað fyrir sjálfum sér hvort ég myndi taka á móti þeim með dýrindis kalkúnasamloku eða dýrslegri hnefasamloku.

Nánar um það þegar nær dregur.

Fór annars að sjá kvikmyndina 300 í gær og var stórhrifinn. Allir sem vilja tala voða mikið um þessa mynd er guðvelkomið að hafa samband við mig og tala mikið um hana.

Skil ekki alveg fjaðrafokið í Teheran yfir þessu, þó að eflaust megi lesa hvað sem menn vilja út úr svona myndum. EF við ætlum hinsvegar að opna þær dyrnar (sem mér finnst fáránlegt) af hverju ræðum við ekki viðhorfin sem birtast til fatlaðra og útlitslega hamlaðra í myndinni. Eða viðhorfin til barnauppeldis, dýrameðferðar, ofbeldis og kynferðismisnotkunar. Vá þegar ég velti því fyrir mér get ég jafnvel fundið stórar rökræður um gildi menntunar, og grískrar heimspeki í myndinni. Höldum endilega alþjóðlegt málþing og bönnum svo myndina. Það leysir ábygglega öll heimsins vandamál.


6 comments
(Dún og fiður)



19.3.2007 | Vertical Limbo

Er búinn að vera heima lasinn yfir helgina. Horfði á hina arfaslöku kvikmynd Vertical Limit (2000) sem var á dagskrá sjónvarpsins á föstudagskvöld.

Leyfið mér að summa þessu upp í tveimur setningum:
Fjallgöngusystkin etja kappi við illan sjónvarpsfjallgöngumann og tímann á K2, vopnuð einungis óstöðugu nítróglíseríni, sterasprautum og náttúrulega sterkri siðferðiskennd byggðri á traumatizing bernskufjallgönguslysi með pabba. Góði pakistanski þyrluflugmaðurinn (leikinn af nýsjálendingi) og sæta fjallgönguhjúkkan (sem klifrar til að koma sér í gegnum hjúkkunám), eru þeirra stoð og stytta meðan "crazy but lovable" fjallgöngutöffarar og erfiði einbúinn á fjallinu (sem er stífur og ósanngjarn í fyrstu en reynist svo hið besta skinn) skiptast á að draga stemminguna upp og niður.

Það sem mér fannst ef til vill sorglegast, fyrir utan ótrúverðugleikan og lélegu kvikmyndagerðina, var að 4 af 6 í björgunarleiðangrinum fórust og þeim tókst einungis að bjarga einum af þeim þremur sem átti að bjarga. Mjög lélegur árangur to say the least. Enn verra var að allir remotely interesting karakterarnir dóu. Þvílík sóun. Mannslíf eru greinilega ódýr á K2.

Lesson: Ef þú ætlar að lenda í sjálfheldu á K2 eða gera út björgunarleiðangur þar, þá skaltu vera litlaus en sætur gaur eða sæt stelpa. Ekki vera litríkur og flippaður, miðaldra, eða crazy einbúi.

(Ástæður þess að ég horfði á myndina til enda eru útlistaðar að neðan. Ég byrjaði á að skrifa þær vangaveltur en komst svo að því að þær eru langdregnar og tedious. Hef þær samt með ef einhver vill spreyta sig.)

Myndin átti samt killer samtöl sem munu lifa með mér að eilífu:

-"What the hell are you doing!?!"
-"I'm trying to kiss my ass goodbye!"

-"Is she a good climber?"
-"No, mate. She couldn't climb a ladder."
-"Well it was a very tall ladder"

-"We need to give him the steroids or he'll die!!!"
-"Face it! Up here... He's already dead!"

-"What's his story?"
-"He's been up here for 3 years. His wife's body was never recovered and he is still looking for her. He's crazy!"
-"Sounds like just the man we need!"

-"You said you were climbing for the money. Why are you really doing this?"
-"I want to go back to France and finish my studies as a Nurse..."
(Note: það kostar actually pening að klifra upp á K2, it's not really a sorce of income. also, fólk spjallar ekki um framtíðaráform sín at low oxygen altitudes, það berst við einfalda hluti eins og að labba.)

Það sem mér fannst athyglisvert við myndina og hélt mér við efnið var að ég var viss um að ég kannaðist við einn leikarann og dáðist að verkum hans, en bara kom honum ekki fyrir mig og mundi ekki hvað hann hét. Ég beið of lengi eftir kreditlistanum og komst að því að maðurinn hét Ben Mendelsohn.

Ég komst þá að því á imdb að ég vissi ekkert hver Ben Mendelsohn er og hafði aldrei séð neina mynd með honum. Ég hélt að ég væri að verða rugludallur þegar ég rak þá augun í spjallþráð um hversu líkir nefndur Ben Mendelsohn er öðrum manni að nafni Noah Taylor.

Noah Taylor kannaðist ég við og finnst hann vera skemmtilegur leikari. Ég varð þá viss um geðheilsu mína á ný áður en ég tók svo eftir því að þrátt fyrir að báðir menn hafi ekki leikið í mörgum myndum hafa þeir actually náð að collaborate-a á myndinni The New World árið 2005. Hringnum var þar með lokað. Ég trúi því nú innilega að það sé eitthvað stærðfræðilegt "The number 23," "Pí"-esque system á heiminum.


3 comments
(Sveinbjörn)



19.2.2007 | Russky explosivi

stpmacds

Ég varð nýlega var við þessar fréttir af sprengingu á rússneskum MacDonald's stað, með tilheyrandi myndefni frá Reuters.
(Fyrir þá sem það vilja fremur og nenna ekki að lesa)

Við það vaknar óneitanlega sú spurning hvort að Aðalsteinn Hákonarson sé mögulega einn hinna særðu, og þá væntanlega þessi eini karlmaður. Ellegar hvort að hann hafi náð að standast freistingar Makkans og sniðgengið bjakkið rétt á meðan ósköpin dundu yfir.

Rennir ákveðið fjarskiptaleysi stoðum undir þær kenningar mínar að Alli í raun einn af fórnarlömbunum, en frá honum hefur ekkert spurst síðan þann örlagaríka febrúarmorgun er hann kvaddi heimahagana.

Aftur á móti gæti líka verið að hann sé bara latur að skrifa eða komist hvergi á internet í öðrum heiminum.

Hérmeð skora ég á Aðalstein að láta vita af sér og sínum högum og helst skrifa eitthvað krassandi um heimsklassa hryðjuverk í Rússlandi samtímans.

(Athyglisvert... mjög algeng innsláttarvilla hjá mér er að skrifa -e í stað -a. Veit einhver um statistical breakdown á algengum innsláttarvillum?)


5 comments
(Sveinbjörn)



16.2.2007 | Homo Kraftmachine

kraftmachine

Oft orðið, þegar ég hlusta á Kraftwerk, finnst mér eins og ég sé að þróast (sem tegund, ekki andlega eða neitt svoleiðis rúnk) yfir í ofurmenni. Hlutir sem að mér finnst eins og ég eigi að geta þegar ég hlusta á Kraftwerk: skjóta lazer-geislum úr augunum; teleportað; hlaupið hraðar en Mercedes Benz eða TGV-lest; og kannski flogið pínku smá.

Kannski er ég bara búinn að vera of duglegur að verja DNA-ið mitt með Nivea kremi. Ég er alveg hættur að stökkbreytast. Verð að redda mér smokkum og tannkremi úr radíum og poloníum

Annars ætlaði ég að hripa eitthvað niður um forheimskuna sem viðgengst í íslensku sjómmarpi þessa dagana. En það er svo mikið af vitleysu að ég er búinn að gleyma því sem ég ætlaði að benda sérstaklega á. Stundum finnst mér eins og ég sé að keppa í Gettu Betur þegar ég er að horfa á sjónvarpið og eigi að finna 100 staðreyndavillur, 20 vandræðalegheit, og 30 ómálefnalega málflutninga. Yfirleitt næ ég að spotta flest atriðin.

Annars vil ég bara bjóða ykkur góða helgi, og biðja ykkur að fara vél með ykkur. Það er svo mikið af ágætu fólki þarna sem er ekki að reyna að breyta þjóðfélaginu í DV.


2 comments
(Steinn)



5.2.2007 | DNAsty

Kominn heim aftur frá umheiminum. Snúinn aftur í fangavistina, landvistarleyfið afturkallað. Þeir sem vilja láta sig málið varða, geta heiðrað sig með nærveru minni og hlustað á athyglisverðar frásagnir frá meginlandinu. Heimsóknartímar eru leyfðir milli 00:01 og 23:59 alla daga vikunnar. NO TOUCHING!

Horfði á tvær auglýsingar rétt áðan hver annarri fáránlegri. Til að byrja með var um asnalega auglýsingu um Rás 1 að ræða, þar sem að framákonur úr íslensku menningarlífi dilla sér fyrir framan myndavélina undir ódýrum ljóðalestri og við eigum að vera agndofa yfir herlegheitunum. Getur einhver sagt mér point-ið með þessari auglýsingu, fyrir utan það að eiga að vera sniðug og pretentious?

DNAgecrap

Hin auglýsingin var beinlýnis stupid og fraudulent og ég er hissa á að hún skuli yfir höfuð vera birt. Um er að ræða eitthvað asnalegt krem sem lofar að vernda DNA-húðarinnar. Vernda erfðaefni húðarinnar? Heyrði ég rétt? Hverskonar vísindaskáldskapur er þetta? Síðast þegar ég vissi var nú líkaminn fullfær um það sjálfur, og genatherapía á mjög tilraunakenndu stigi. Vernda DNA-ið frá hverju? Stökkbreytingum? Er góða fólkið hjá Nivea kannski komið með vísi, eða jafnvel full-blown lækningu við krabbameini? Nei, ég held að þau séu frekar komin með heilablæðingu og hörgulsjúkdóma af því að éta svo mikið af skítakreminu sínu.

dexmorgue

Annars hef ég lítið að segja: Hef enga skoðun á stúdentapólitík; Minni áhuga á íslenskri drulluballa landspólitík; Við fokkuðum þessu upp með hvalina; Við erum voða dugleg að fokka hlutunum upp; Dexter er frábært sjónvarpsefni; Heroes er ekki jafn gott sjónvarpsefni, stolin hugmynd, og klisjukennd, en frekar vel útfærð og mjög áframrekandi og ánetjandi sjónvarpsefni. Allar aðrar skoðanir verður að leggja fram þess til gerðar beiðnir um hér á síðunni.

Hugleiðing: Sound studio heitir á íslensku hljóðver. Væri þá stúdíóíbúð þá ekki réttnefnd verbúð?


6 comments
(Sveinbjörn)



26.1.2007 | I went to London and all I got was an amateurish blowjob from a 14 year old prostitute

lonsmall

Ég er í fríi. Er núna í Kaupinhafn, nánar tiltekið Vanloese og er við hestaheilsu. Fór til London fyrr í mánuðinum þar sem að ég dvaldi í góðu yfirlæti hjá Sveinbirni. London var merkilega skemmtileg miðað við hvað mig minnti, en kannski hafði það meira að segja hvað ég var í góðum félagsskap, og var líka fullkomnlega afslappaður og ekki að nenna að hamast í einhverjum túristaleik.

cphsmall

Annars er búið að vera ákaflega gaman að hitta allt gamla liðið hérna úti en ég er nokkurn veginn búinn að ná að hitta flesta. Það er eitthvað ákaflega vinalegt og nice Kaupmannahöfn finnst mér alltaf, þó að þeir mættu slaka aðeins á bjúrókrasíunni sinni og kannski hafa búðirnar sínar opnar c.a. klst lengur.

Kannski er það samt þessvegna sem það er svo afslappað hérna.

Að öðru leyti er ég bara búinn að eyða allt of mikið af peningum. Það er ótrúlegt hvað peningar hverfa bara úr vösum manns í útlöndum. Samt virkar allt svo ódýrt. Ég kenni öllum þjófóttu sígaununum um. Þeim, og HMV og Fona2000.

Allavega, ég var eiginlega búinn að ákveða að skrifa ekkert hérna fyrr en ég kæmi heim, þannig að þetta er orðið allt of langt. Ég er líka með nokkra Tuborg hérna sem ég þarf að huga að, saa det er jo det, og saa siger vi det soemand.


4 comments
(Fridrik Steinn)



10.1.2007 | Lóan er komin að sveifla svipunni

heidloa

Rétt í þessu hljóðaði lag undir vísunni "Lóan er komin að kveða burt snjóinn" í útvarpinu. Til að glöggva lesendur er kveðskapurinn hér:


Lóan er komin að kveða burt snjóinn,
kveða burt leiðindin það getur hún.
Hún hefur sagt mér að senn komi spóinn,
sólskin í dali og blómstur í tún.
Hún hefur sagt mér til syndanna minna,
ég sofi of mikið og vinni ekki hót.
Hún hefur sagt mér að vaka og vinna,
vonglaður taka nú sumrinu mót.

Hverskonar Arbeit-macht-frei, kalvínista geðsjúklingur samdi þessa vísu? "Ég sofi of mikið og vinni ekki hót"? og "Hún hefur sagt mér að vaka og vinna" !?! Hvað er í gangi. Þetta dregur óneitanlega upp mynd af samfélagi sem ég vil ekki taka þátt í. Hér eru bændur greinilega búnir að skatt- og vinnupína vinnuhjú svo illa að í einhverskonar tremma eru þeir farnir að taka við skipunum frá þessum blíðlynda fugli sem heiðlóan er. (Ég geri ráð fyrir að átt sé við heiðlóu ekki sandlóu.)

Og hvaða klikkhaus fer að brígsla heiðlóunni um svona harðstjórnar tendensa? Ber þetta kannski evt. vitni um þjóð sem er að vakna af þunglyndisdvala skammdegisins með kalvinískt samviskubit yfir því að hafa ekki brauðstritað 18 tíma yfir desembermánuð?


4 comments
(Sindri)



8.1.2007 | Gleðilegt ár...

capt blackeye1

Arnaldur Grétarsson, stórmenni og snillingur, þakkar góð samskipti á árinu sem var að líða og óskar landsmönnum öllum heillaríks komandi árs.


7 comments
(Sveinbjörn)