10.1.2007 | Lóan er komin að sveifla svipunni

heidloa

Rétt í þessu hljóðaði lag undir vísunni "Lóan er komin að kveða burt snjóinn" í útvarpinu. Til að glöggva lesendur er kveðskapurinn hér:


Lóan er komin að kveða burt snjóinn,
kveða burt leiðindin það getur hún.
Hún hefur sagt mér að senn komi spóinn,
sólskin í dali og blómstur í tún.
Hún hefur sagt mér til syndanna minna,
ég sofi of mikið og vinni ekki hót.
Hún hefur sagt mér að vaka og vinna,
vonglaður taka nú sumrinu mót.

Hverskonar Arbeit-macht-frei, kalvínista geðsjúklingur samdi þessa vísu? "Ég sofi of mikið og vinni ekki hót"? og "Hún hefur sagt mér að vaka og vinna" !?! Hvað er í gangi. Þetta dregur óneitanlega upp mynd af samfélagi sem ég vil ekki taka þátt í. Hér eru bændur greinilega búnir að skatt- og vinnupína vinnuhjú svo illa að í einhverskonar tremma eru þeir farnir að taka við skipunum frá þessum blíðlynda fugli sem heiðlóan er. (Ég geri ráð fyrir að átt sé við heiðlóu ekki sandlóu.)

Og hvaða klikkhaus fer að brígsla heiðlóunni um svona harðstjórnar tendensa? Ber þetta kannski evt. vitni um þjóð sem er að vakna af þunglyndisdvala skammdegisins með kalvinískt samviskubit yfir því að hafa ekki brauðstritað 18 tíma yfir desembermánuð?


4 comments
(Sindri)




4 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sveinbjörn at 10.1.2007

Sveinbjörn

"Max Weber has taught you well ... but you are not a Jedi yet."

[ Reply ]

Steinn at 11.1.2007

Steinn

Bóndinn þarf að streða yfir sumarmánuðina. Það er verið að minna á það.

[ Reply ]

Helgi Hrafn at 11.1.2007

Unknown User

Það er svo mikið að gera í garðvinnunni. Svo þarf að skutla börnunum á leikjanámskeið.

[ Reply ]

Sindri at 16.1.2007

Sindri

Hey Arnaldur, þú verður að taka þátt í getrauninni. Það er engin getraun án Arnaldar.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment