Results for 2007-02

19.2.2007 | Russky explosivi

stpmacds

Ég varð nýlega var við þessar fréttir af sprengingu á rússneskum MacDonald's stað, með tilheyrandi myndefni frá Reuters.
(Fyrir þá sem það vilja fremur og nenna ekki að lesa)

Við það vaknar óneitanlega sú spurning hvort að Aðalsteinn Hákonarson sé mögulega einn hinna særðu, og þá væntanlega þessi eini karlmaður. Ellegar hvort að hann hafi náð að standast freistingar Makkans og sniðgengið bjakkið rétt á meðan ósköpin dundu yfir.

Rennir ákveðið fjarskiptaleysi stoðum undir þær kenningar mínar að Alli í raun einn af fórnarlömbunum, en frá honum hefur ekkert spurst síðan þann örlagaríka febrúarmorgun er hann kvaddi heimahagana.

Aftur á móti gæti líka verið að hann sé bara latur að skrifa eða komist hvergi á internet í öðrum heiminum.

Hérmeð skora ég á Aðalstein að láta vita af sér og sínum högum og helst skrifa eitthvað krassandi um heimsklassa hryðjuverk í Rússlandi samtímans.

(Athyglisvert... mjög algeng innsláttarvilla hjá mér er að skrifa -e í stað -a. Veit einhver um statistical breakdown á algengum innsláttarvillum?)


5 comments
(Sveinbjörn)



16.2.2007 | Homo Kraftmachine

kraftmachine

Oft orðið, þegar ég hlusta á Kraftwerk, finnst mér eins og ég sé að þróast (sem tegund, ekki andlega eða neitt svoleiðis rúnk) yfir í ofurmenni. Hlutir sem að mér finnst eins og ég eigi að geta þegar ég hlusta á Kraftwerk: skjóta lazer-geislum úr augunum; teleportað; hlaupið hraðar en Mercedes Benz eða TGV-lest; og kannski flogið pínku smá.

Kannski er ég bara búinn að vera of duglegur að verja DNA-ið mitt með Nivea kremi. Ég er alveg hættur að stökkbreytast. Verð að redda mér smokkum og tannkremi úr radíum og poloníum

Annars ætlaði ég að hripa eitthvað niður um forheimskuna sem viðgengst í íslensku sjómmarpi þessa dagana. En það er svo mikið af vitleysu að ég er búinn að gleyma því sem ég ætlaði að benda sérstaklega á. Stundum finnst mér eins og ég sé að keppa í Gettu Betur þegar ég er að horfa á sjónvarpið og eigi að finna 100 staðreyndavillur, 20 vandræðalegheit, og 30 ómálefnalega málflutninga. Yfirleitt næ ég að spotta flest atriðin.

Annars vil ég bara bjóða ykkur góða helgi, og biðja ykkur að fara vél með ykkur. Það er svo mikið af ágætu fólki þarna sem er ekki að reyna að breyta þjóðfélaginu í DV.


2 comments
(Steinn)



5.2.2007 | DNAsty

Kominn heim aftur frá umheiminum. Snúinn aftur í fangavistina, landvistarleyfið afturkallað. Þeir sem vilja láta sig málið varða, geta heiðrað sig með nærveru minni og hlustað á athyglisverðar frásagnir frá meginlandinu. Heimsóknartímar eru leyfðir milli 00:01 og 23:59 alla daga vikunnar. NO TOUCHING!

Horfði á tvær auglýsingar rétt áðan hver annarri fáránlegri. Til að byrja með var um asnalega auglýsingu um Rás 1 að ræða, þar sem að framákonur úr íslensku menningarlífi dilla sér fyrir framan myndavélina undir ódýrum ljóðalestri og við eigum að vera agndofa yfir herlegheitunum. Getur einhver sagt mér point-ið með þessari auglýsingu, fyrir utan það að eiga að vera sniðug og pretentious?

DNAgecrap

Hin auglýsingin var beinlýnis stupid og fraudulent og ég er hissa á að hún skuli yfir höfuð vera birt. Um er að ræða eitthvað asnalegt krem sem lofar að vernda DNA-húðarinnar. Vernda erfðaefni húðarinnar? Heyrði ég rétt? Hverskonar vísindaskáldskapur er þetta? Síðast þegar ég vissi var nú líkaminn fullfær um það sjálfur, og genatherapía á mjög tilraunakenndu stigi. Vernda DNA-ið frá hverju? Stökkbreytingum? Er góða fólkið hjá Nivea kannski komið með vísi, eða jafnvel full-blown lækningu við krabbameini? Nei, ég held að þau séu frekar komin með heilablæðingu og hörgulsjúkdóma af því að éta svo mikið af skítakreminu sínu.

dexmorgue

Annars hef ég lítið að segja: Hef enga skoðun á stúdentapólitík; Minni áhuga á íslenskri drulluballa landspólitík; Við fokkuðum þessu upp með hvalina; Við erum voða dugleg að fokka hlutunum upp; Dexter er frábært sjónvarpsefni; Heroes er ekki jafn gott sjónvarpsefni, stolin hugmynd, og klisjukennd, en frekar vel útfærð og mjög áframrekandi og ánetjandi sjónvarpsefni. Allar aðrar skoðanir verður að leggja fram þess til gerðar beiðnir um hér á síðunni.

Hugleiðing: Sound studio heitir á íslensku hljóðver. Væri þá stúdíóíbúð þá ekki réttnefnd verbúð?


6 comments
(Sveinbjörn)