5.2.2007 | DNAsty

Kominn heim aftur frá umheiminum. Snúinn aftur í fangavistina, landvistarleyfið afturkallað. Þeir sem vilja láta sig málið varða, geta heiðrað sig með nærveru minni og hlustað á athyglisverðar frásagnir frá meginlandinu. Heimsóknartímar eru leyfðir milli 00:01 og 23:59 alla daga vikunnar. NO TOUCHING!

Horfði á tvær auglýsingar rétt áðan hver annarri fáránlegri. Til að byrja með var um asnalega auglýsingu um Rás 1 að ræða, þar sem að framákonur úr íslensku menningarlífi dilla sér fyrir framan myndavélina undir ódýrum ljóðalestri og við eigum að vera agndofa yfir herlegheitunum. Getur einhver sagt mér point-ið með þessari auglýsingu, fyrir utan það að eiga að vera sniðug og pretentious?

DNAgecrap

Hin auglýsingin var beinlýnis stupid og fraudulent og ég er hissa á að hún skuli yfir höfuð vera birt. Um er að ræða eitthvað asnalegt krem sem lofar að vernda DNA-húðarinnar. Vernda erfðaefni húðarinnar? Heyrði ég rétt? Hverskonar vísindaskáldskapur er þetta? Síðast þegar ég vissi var nú líkaminn fullfær um það sjálfur, og genatherapía á mjög tilraunakenndu stigi. Vernda DNA-ið frá hverju? Stökkbreytingum? Er góða fólkið hjá Nivea kannski komið með vísi, eða jafnvel full-blown lækningu við krabbameini? Nei, ég held að þau séu frekar komin með heilablæðingu og hörgulsjúkdóma af því að éta svo mikið af skítakreminu sínu.

dexmorgue

Annars hef ég lítið að segja: Hef enga skoðun á stúdentapólitík; Minni áhuga á íslenskri drulluballa landspólitík; Við fokkuðum þessu upp með hvalina; Við erum voða dugleg að fokka hlutunum upp; Dexter er frábært sjónvarpsefni; Heroes er ekki jafn gott sjónvarpsefni, stolin hugmynd, og klisjukennd, en frekar vel útfærð og mjög áframrekandi og ánetjandi sjónvarpsefni. Allar aðrar skoðanir verður að leggja fram þess til gerðar beiðnir um hér á síðunni.

Hugleiðing: Sound studio heitir á íslensku hljóðver. Væri þá stúdíóíbúð þá ekki réttnefnd verbúð?


6 comments
(Sveinbjörn)




6 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Steinn at 5.2.2007

Steinn

Jú, eða hljóðveríverslun. Vel á minnst, Nivea og Clinique eru þegar búinn að finna upp cold fusion en eru enn að prófa það á húðvörur og á meðan hlýnar loftslagið, en kremið sem þeir koma síðan með lagar það allt, sem og krabbamein.

[ Reply ]

Arnaldur at 5.2.2007

Arnaldur

Æi, já... auðvitað. Ég gleymi því alltaf. Nivea og Clinique, those great seats of learning and research.

[ Reply ]

Örnólfur at 5.2.2007

Unknown User

jamm, ég er að gefast upp á þessari landspólitík eins og allir aðrir...er farinn að horfa á Skjá einn á kvöldin, einn undir sæng. Jesús, ég er að hraðri leið með að verða eins og móðir mín!! :( Sjónvarpsþátturinn Heroes er orðinn besti vinur minn! Hversu s.a.d. er það? hvað er að gerast? Hef ekki fundið neitt krem (ennþá) sem bjargar þessu! Ef einhver veit um skammdegisþunglyndiskrem þá step forward!! Muuuuuu

[ Reply ]

ozy at 5.2.2007

Unknown User

Skammdegisþunglyndi er:
a) líkamsástand
b) hugarfar?
c) gróðurhúsaáhrifin
d) samsæri á vegum stjórnvalda, til þess að halda okkur niðri og kjósa Framsóknarflokkinn.
e) veit ekki. Mér er alveg nákvæmlega sama! Hvað er í matinn. Skjár Einn rúlar!

[ Reply ]

Steinn at 6.2.2007

Steinn

Hehehe, ég held að c og d séu líklegustu kandídatarnir. Jafnvel að skammdegisþunglyndi sé gróðurhúsalofttegund!

[ Reply ]

Sveinbjörn at 6.2.2007

Sveinbjörn

Fokkuðum þessu upp með hvalina? Please elaborate.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment