16.2.2007 | Homo Kraftmachine

kraftmachine

Oft orðið, þegar ég hlusta á Kraftwerk, finnst mér eins og ég sé að þróast (sem tegund, ekki andlega eða neitt svoleiðis rúnk) yfir í ofurmenni. Hlutir sem að mér finnst eins og ég eigi að geta þegar ég hlusta á Kraftwerk: skjóta lazer-geislum úr augunum; teleportað; hlaupið hraðar en Mercedes Benz eða TGV-lest; og kannski flogið pínku smá.

Kannski er ég bara búinn að vera of duglegur að verja DNA-ið mitt með Nivea kremi. Ég er alveg hættur að stökkbreytast. Verð að redda mér smokkum og tannkremi úr radíum og poloníum

Annars ætlaði ég að hripa eitthvað niður um forheimskuna sem viðgengst í íslensku sjómmarpi þessa dagana. En það er svo mikið af vitleysu að ég er búinn að gleyma því sem ég ætlaði að benda sérstaklega á. Stundum finnst mér eins og ég sé að keppa í Gettu Betur þegar ég er að horfa á sjónvarpið og eigi að finna 100 staðreyndavillur, 20 vandræðalegheit, og 30 ómálefnalega málflutninga. Yfirleitt næ ég að spotta flest atriðin.

Annars vil ég bara bjóða ykkur góða helgi, og biðja ykkur að fara vél með ykkur. Það er svo mikið af ágætu fólki þarna sem er ekki að reyna að breyta þjóðfélaginu í DV.


2 comments
(Steinn)




2 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sveinbjörn at 16.2.2007

Sveinbjörn

Orðspjót þín, Arnaldur, gera þig að hinum íslenzka Nietzsche okkar tíma.

[ Reply ]

Steinn at 17.2.2007

Steinn

Kannski verður þú að einhvers konar Heroes persónu, sem hefur þann yfirnáttúrulega eiginleika að taka alltaf eftir staðreyndarvillum, vandræðalegheitum og ófagmannlegum málflutningi?


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment