Ég varð nýlega var við þessar fréttir af sprengingu á rússneskum MacDonald's stað, með tilheyrandi myndefni frá Reuters.
(Fyrir þá sem það vilja fremur og nenna ekki að lesa)
Við það vaknar óneitanlega sú spurning hvort að Aðalsteinn Hákonarson sé mögulega einn hinna særðu, og þá væntanlega þessi eini karlmaður. Ellegar hvort að hann hafi náð að standast freistingar Makkans og sniðgengið bjakkið rétt á meðan ósköpin dundu yfir.
Rennir ákveðið fjarskiptaleysi stoðum undir þær kenningar mínar að Alli sé í raun einn af fórnarlömbunum, en frá honum hefur ekkert spurst síðan þann örlagaríka febrúarmorgun er hann kvaddi heimahagana.
Aftur á móti gæti líka verið að hann sé bara latur að skrifa eða komist hvergi á internet í öðrum heiminum.
Hérmeð skora ég á Aðalstein að láta vita af sér og sínum högum og helst skrifa eitthvað krassandi um heimsklassa hryðjuverk í Rússlandi samtímans.
(Athyglisvert... mjög algeng innsláttarvilla hjá mér er að skrifa -e í stað -a. Veit einhver um statistical breakdown á algengum innsláttarvillum?)
Þekkjandi Alla og hans ósvalandi græðgi í Makkadóna, þá hefur hann vafalaust látist þarna.
Þeir finna pottþétt limlest líkið hans, aflimaða hendi með rigor mortis krumlurnar fastar utan um poka af myljukenndum frönskum kartöflum, og rotvarða Big Mac tuggu í kjaftinum á honum, svipdauf augun vottandi um andlegt tóm hins kapítalíska neytenda bæði í lífi sem og dauða.
Ég er á lífi. Var einu sinni tíður gestur einmitt á þessum tiltekna McDonalds-stað.
Var ekki einn hinna slösuðu 38-ára þýskur ferðamaður? Ég passa nú ekki í þá kategóríu er það?
Annars er ég nú aðallega bara latur við að skrifa og bið menn að afsaka það.
The password to post a comment is:
(Sveinbjörn)