Results for 2007-03

22.3.2007 | ÉG fór Suður!!!

sydrirass

Nú fer enn og aftur að líða að stórhátíðinni "Aldrei fór ég suður." Ég rakst á þessa mynd af Rass að fagna því að þeir hefðu aldrei farið suður. Og ég skil fagnaðarlætin hjá þeim. Ef þeir hefðu einhverntíman farið suður, hefðu þeir sennilega endað í ísköldu N.-Atlantshafinu. Eða jafnvel verra. Í Reykjanesbæ. Hvort heldur sem er væru þeir sennilega dánir, annaðhvort úr hnífsstungum eða drukknun. Maður verður því að skilja drengina. Þeir eru greinilega að fagna lífinu.

Í hið minnsta getur varla verið að þeir séu að fagna því að þeir hafi alltaf búið á Ísafirði, og aldrei farið suður þaðan. Því að þá byggju þeir ekki í Reykjavík. Reyndar er það athyglisvert að á tónlistarhátíðinni "Aldrei fór ég Suður" er meirihluti tónlistarmannana að sunnan. Ampop, Dóri DNA, Dr. Spock, Flís, etc. Er ekki þversögn fólgin í því að allar þessar miðbæjarrottur úr Reykjavík komi saman einu sinni á ári, drattist Vestur og lofsyngi Vestfirðina og sveitarómantíkina.

Ég útbjó lítinn vef í tilefni af þessu. Ég kalla hann: "Ég fór suður." Vona að enginn taki hann nærri sér. Þetta er djók!!! Hættu að væla kelling!!!

egforsudur

6 comments
(Baldur)



21.3.2007 | Barn Útlagans

utlagi

Langafi minn, Ólafur Hvanndal, var merkilegur maður. Hann var m.a. fyrsti prentmyndasmiðurinn á Íslandi og gerði fullt af merkilegum hlutum. Hann var líka með massíva upphandleggi sem við getum öll dáðst að ef við lítum á höggmynd Einars Jónssonar, Útlaginn, sem horfir alltaf löngunar augum á hlýju hótelherbergin á Sögu hinumegin við Hringbraut.

Ég ætlaði hinsvegar ekki að rausa endalaust um manninn fyrir utan það að hann virðist hafa deilt með mér áhuga á afmælisdögum og þá einkum og sér í lagi sínum eigin. Maðurinn var fæddur sama dag og ár og Albert nokkur Einstein. Þetta þótti honum sniðugt og skrifaði Berta einn daginn á afmæli þeirra. Viti menn, Berta kallinum fannst þetta jafn sniðugt og sendi honum línu um hæl sem er varðveitt í kassa í geymslu einhversstaðar á Stór-Reykjavíkursvæðinu og sást síðast 1997.

Ég á aftur á móti engan merkilegan afmælisbróðir til að skrifast á við. Allt fræga fólkið sem ég á afmælisdag með er annað hvort dáið (Akira Kurosawa, Wernher von Braun), eða gamalt og hálfgert drasl (Damon Albarn). Fyrir utan þá augljósu staðreynd að ártölin passa ekki. Ætli maður verði ekki að bíða eftir að komast á nóbels-aldurinn til að eitthvað fari að gerast í þessum efnum.

Reyndar er leikkonan margrómaða Álfrún Örnólfsdóttir með sama afmælisdag og ár, sem mér hefur þótt merkilegt um nokkurt skeið. Að henni algerlega ólastaðri þó, þá er hún í fyrsta lagi ekki alveg nógu framandi (býr hérna rétt hjá einhversstaðar), og svo held ég líka að ég verði að bíða eftir Óskar, eða allavega gullpálma þangað til ég fer að skrifast á við hana. (Ég vil sumsé hvetja hana til að fara að gera eitthvað í þessu.) Annars er bara að bíða og sjá. Það hljóta að vera einhverjir fleiri snillingar þarna úti, aðrir en ég og kannski Álfrún. 23 júní er betri tími en margur annar til að geta börn.


3 comments
(Ari Eldjárn)



19.3.2007 | 300 afmæli...

300comic

Þá er jafndægrið að nálgast og fólk farið að geta skriðið úr híðinu, sem maður hefur óneitanlega verið nauðugur í yfir þennan dimma, drungarlega og glataða tíma sem er vetrarskammdegisgubbupestin. Sjálfur kláraði ég kúrs á dögunum og hef því örlítið meiri tíma á höndum mér en ella, en það hefur óneitanlega dregið úr manni undanfarið að standa í verkefnum og prófum. Skýrir það ef til vill að einhverju leyti fjarveruna úr tilverunni og rafverunni.

Framundan er afmælisveisla um næstu helgi sem við getum öll hlakkað til, en á föstudaginn verður haldið upp á sameiginlegt afmæli mitt, Akira Kurosawa, Dr. Wernher Von Braun, Damon Albarns og fleiri góðra manna. Þeir taka það til sín sem vilja. Teitin hefst á Reykvískum staðaltíma hjá mér og varir eitthvað frameftir nóttu. Boðið verður upp á létta skemmtun fyrir öll skilningarvitin og að sjálfsögðu mig. Þeir sem telja sig velkomna eru það ef þeir geta samviskusamlega svarað fyrir sjálfum sér hvort ég myndi taka á móti þeim með dýrindis kalkúnasamloku eða dýrslegri hnefasamloku.

Nánar um það þegar nær dregur.

Fór annars að sjá kvikmyndina 300 í gær og var stórhrifinn. Allir sem vilja tala voða mikið um þessa mynd er guðvelkomið að hafa samband við mig og tala mikið um hana.

Skil ekki alveg fjaðrafokið í Teheran yfir þessu, þó að eflaust megi lesa hvað sem menn vilja út úr svona myndum. EF við ætlum hinsvegar að opna þær dyrnar (sem mér finnst fáránlegt) af hverju ræðum við ekki viðhorfin sem birtast til fatlaðra og útlitslega hamlaðra í myndinni. Eða viðhorfin til barnauppeldis, dýrameðferðar, ofbeldis og kynferðismisnotkunar. Vá þegar ég velti því fyrir mér get ég jafnvel fundið stórar rökræður um gildi menntunar, og grískrar heimspeki í myndinni. Höldum endilega alþjóðlegt málþing og bönnum svo myndina. Það leysir ábygglega öll heimsins vandamál.


6 comments
(Dún og fiður)



19.3.2007 | Vertical Limbo

Er búinn að vera heima lasinn yfir helgina. Horfði á hina arfaslöku kvikmynd Vertical Limit (2000) sem var á dagskrá sjónvarpsins á föstudagskvöld.

Leyfið mér að summa þessu upp í tveimur setningum:
Fjallgöngusystkin etja kappi við illan sjónvarpsfjallgöngumann og tímann á K2, vopnuð einungis óstöðugu nítróglíseríni, sterasprautum og náttúrulega sterkri siðferðiskennd byggðri á traumatizing bernskufjallgönguslysi með pabba. Góði pakistanski þyrluflugmaðurinn (leikinn af nýsjálendingi) og sæta fjallgönguhjúkkan (sem klifrar til að koma sér í gegnum hjúkkunám), eru þeirra stoð og stytta meðan "crazy but lovable" fjallgöngutöffarar og erfiði einbúinn á fjallinu (sem er stífur og ósanngjarn í fyrstu en reynist svo hið besta skinn) skiptast á að draga stemminguna upp og niður.

Það sem mér fannst ef til vill sorglegast, fyrir utan ótrúverðugleikan og lélegu kvikmyndagerðina, var að 4 af 6 í björgunarleiðangrinum fórust og þeim tókst einungis að bjarga einum af þeim þremur sem átti að bjarga. Mjög lélegur árangur to say the least. Enn verra var að allir remotely interesting karakterarnir dóu. Þvílík sóun. Mannslíf eru greinilega ódýr á K2.

Lesson: Ef þú ætlar að lenda í sjálfheldu á K2 eða gera út björgunarleiðangur þar, þá skaltu vera litlaus en sætur gaur eða sæt stelpa. Ekki vera litríkur og flippaður, miðaldra, eða crazy einbúi.

(Ástæður þess að ég horfði á myndina til enda eru útlistaðar að neðan. Ég byrjaði á að skrifa þær vangaveltur en komst svo að því að þær eru langdregnar og tedious. Hef þær samt með ef einhver vill spreyta sig.)

Myndin átti samt killer samtöl sem munu lifa með mér að eilífu:

-"What the hell are you doing!?!"
-"I'm trying to kiss my ass goodbye!"

-"Is she a good climber?"
-"No, mate. She couldn't climb a ladder."
-"Well it was a very tall ladder"

-"We need to give him the steroids or he'll die!!!"
-"Face it! Up here... He's already dead!"

-"What's his story?"
-"He's been up here for 3 years. His wife's body was never recovered and he is still looking for her. He's crazy!"
-"Sounds like just the man we need!"

-"You said you were climbing for the money. Why are you really doing this?"
-"I want to go back to France and finish my studies as a Nurse..."
(Note: það kostar actually pening að klifra upp á K2, it's not really a sorce of income. also, fólk spjallar ekki um framtíðaráform sín at low oxygen altitudes, það berst við einfalda hluti eins og að labba.)

Það sem mér fannst athyglisvert við myndina og hélt mér við efnið var að ég var viss um að ég kannaðist við einn leikarann og dáðist að verkum hans, en bara kom honum ekki fyrir mig og mundi ekki hvað hann hét. Ég beið of lengi eftir kreditlistanum og komst að því að maðurinn hét Ben Mendelsohn.

Ég komst þá að því á imdb að ég vissi ekkert hver Ben Mendelsohn er og hafði aldrei séð neina mynd með honum. Ég hélt að ég væri að verða rugludallur þegar ég rak þá augun í spjallþráð um hversu líkir nefndur Ben Mendelsohn er öðrum manni að nafni Noah Taylor.

Noah Taylor kannaðist ég við og finnst hann vera skemmtilegur leikari. Ég varð þá viss um geðheilsu mína á ný áður en ég tók svo eftir því að þrátt fyrir að báðir menn hafi ekki leikið í mörgum myndum hafa þeir actually náð að collaborate-a á myndinni The New World árið 2005. Hringnum var þar með lokað. Ég trúi því nú innilega að það sé eitthvað stærðfræðilegt "The number 23," "Pí"-esque system á heiminum.


3 comments
(Sveinbjörn)