Þá er jafndægrið að nálgast og fólk farið að geta skriðið úr híðinu, sem maður hefur óneitanlega verið nauðugur í yfir þennan dimma, drungarlega og glataða tíma sem er vetrarskammdegisgubbupestin. Sjálfur kláraði ég kúrs á dögunum og hef því örlítið meiri tíma á höndum mér en ella, en það hefur óneitanlega dregið úr manni undanfarið að standa í verkefnum og prófum. Skýrir það ef til vill að einhverju leyti fjarveruna úr tilverunni og rafverunni.
Framundan er afmælisveisla um næstu helgi sem við getum öll hlakkað til, en á föstudaginn verður haldið upp á sameiginlegt afmæli mitt, Akira Kurosawa, Dr. Wernher Von Braun, Damon Albarns og fleiri góðra manna. Þeir taka það til sín sem vilja. Teitin hefst á Reykvískum staðaltíma hjá mér og varir eitthvað frameftir nóttu. Boðið verður upp á létta skemmtun fyrir öll skilningarvitin og að sjálfsögðu mig. Þeir sem telja sig velkomna eru það ef þeir geta samviskusamlega svarað fyrir sjálfum sér hvort ég myndi taka á móti þeim með dýrindis kalkúnasamloku eða dýrslegri hnefasamloku.
Nánar um það þegar nær dregur.
Fór annars að sjá kvikmyndina 300 í gær og var stórhrifinn. Allir sem vilja tala voða mikið um þessa mynd er guðvelkomið að hafa samband við mig og tala mikið um hana.
Skil ekki alveg fjaðrafokið í Teheran yfir þessu, þó að eflaust megi lesa hvað sem menn vilja út úr svona myndum. EF við ætlum hinsvegar að opna þær dyrnar (sem mér finnst fáránlegt) af hverju ræðum við ekki viðhorfin sem birtast til fatlaðra og útlitslega hamlaðra í myndinni. Eða viðhorfin til barnauppeldis, dýrameðferðar, ofbeldis og kynferðismisnotkunar. Vá þegar ég velti því fyrir mér get ég jafnvel fundið stórar rökræður um gildi menntunar, og grískrar heimspeki í myndinni. Höldum endilega alþjóðlegt málþing og bönnum svo myndina. Það leysir ábygglega öll heimsins vandamál.
I'll drink to the birthday of Wernher von Braun any day!
Við gætum jafnvel sungið eftirfarandi lag:
Gather round while I sing you of Werner von Braun,
a man whose allegience
is ruled by expedience.
Call him a Nazi, he won't even frown.
"Hah, Nazi, schmazi" says Werner von Braun.
Don't say that he's hypocritical.
Say rather that he's apolitical.
"Once ze rockets are up, who cares where zay come down?
Zat's not my department" says Werner von Braun.
Some have harsh words for this man of renown,
but some say our attitude
should be one of gratitude,
like the widows and cripples in old London Town,
who owe their large pensions to Werner von Braun.
You too may be a big hero,
once you've learnt to count backwards to zero.
"In Eenglish or German I know how to count down,
and I'm learning Chinese" says Werner von Braun.
300 var bara útlitslega flott mynd en frekar léleg í aðra staði. Að horfa á Gerard Butler hálfnakinn á skýlunni öskrandi út í veður og vind, var ekki að virka fyrir mig. Það vantaði góða sögu í kringum þessi læti. Fyrir mér er góð kvikmynd sú kvikmynd sem segir góða sögu. Þessi mynd var bara "lookið" og ekkert annað. Ég þarf eitthvað meira.
...en afmæli segirðu. Ég verð að kíkja í það. Ég á heldur von á því að þú mætir mér með dýrindis kalkúnasamloku heldur en hinu sem þú nefndir...ef ekki þá verð ég bara að glíma við júdómanninn.
Efast um að ég sjái þessa. Ekkert endilega útaf fjaðrafoki, heldur þykja mér bara svona "stórmyndir" grútleiðinlegar.
Frank Miller er hins vegar frekar skýr í sinni meiningu:
I tried to justify seeing this movie but my girl made me listen to Miller's NPR interview where he states "that the entire western world is up against an existential foe", that part of the problem is that we were "educated to believe all cultures are equal", refers to "the enemy" and "who we're up against" as "these people" who "saw people's heads off", "enslave women" and "genetically mutilate their daughters", states that "they do not behave like any cultural norms", couldn't have invented microphones or airplanes(?!), criticizes Bush for not "calling the nation into a state of war" after 9/11", likens "us" (U.S. citizens I guess) to Romans, claims the stakes in the Iraq war are as high as in WWII because "we're taking on an idea here", and then gets sonned by my man on Talk Of The Nation. He came off real bad, all jittery, egotistical and ethno-centric, pompous, and some might say slightly fascist.
After hearing that interview, I'd rather lick the green off a dollar than spend it on his movie. I'm also convinced there is a deeper meaning to "300" than just entertainment.
Check it out, Miller is between 30:50 and 35:22:
http://www.npr.org/templates/story/story.php?storyId=7002481">http://www.npr.org/templates/story/story.php?storyId=7002481
Jájájá...
Næsta verkefni Millers er einnig varhugavert...
Some of what Frank Miller said at San Franciscos WonderCon comic book convention in 2006 bears repeating, as it puts the movie 300 in context. Miller revealed that his upcoming graphic novel, Holy Terror, Batman!, will feature the "Caped Crusader" fighting the al-Qaida terror network. Aside from promising that "Batman kicks al-Qaidas ass," Miller went on to say the following about his forthcoming graphic novel: "Not to put too fine a point on it - its a piece of propaganda. I just think its silly to have Batman out chasing the Riddler when youve got al-Qaida out there." Miller went on to say that "I wish the entertainers of our time had the spine and the focus of the ones who faced down Hitler."
The password to post a comment is:
(Dún og fiður)