Langafi minn, Ólafur Hvanndal, var merkilegur maður. Hann var m.a. fyrsti prentmyndasmiðurinn á Íslandi og gerði fullt af merkilegum hlutum. Hann var líka með massíva upphandleggi sem við getum öll dáðst að ef við lítum á höggmynd Einars Jónssonar, Útlaginn, sem horfir alltaf löngunar augum á hlýju hótelherbergin á Sögu hinumegin við Hringbraut.
Ég ætlaði hinsvegar ekki að rausa endalaust um manninn fyrir utan það að hann virðist hafa deilt með mér áhuga á afmælisdögum og þá einkum og sér í lagi sínum eigin. Maðurinn var fæddur sama dag og ár og Albert nokkur Einstein. Þetta þótti honum sniðugt og skrifaði Berta einn daginn á afmæli þeirra. Viti menn, Berta kallinum fannst þetta jafn sniðugt og sendi honum línu um hæl sem er varðveitt í kassa í geymslu einhversstaðar á Stór-Reykjavíkursvæðinu og sást síðast 1997.
Ég á aftur á móti engan merkilegan afmælisbróðir til að skrifast á við. Allt fræga fólkið sem ég á afmælisdag með er annað hvort dáið (Akira Kurosawa, Wernher von Braun), eða gamalt og hálfgert drasl (Damon Albarn). Fyrir utan þá augljósu staðreynd að ártölin passa ekki. Ætli maður verði ekki að bíða eftir að komast á nóbels-aldurinn til að eitthvað fari að gerast í þessum efnum.
Reyndar er leikkonan margrómaða Álfrún Örnólfsdóttir með sama afmælisdag og ár, sem mér hefur þótt merkilegt um nokkurt skeið. Að henni algerlega ólastaðri þó, þá er hún í fyrsta lagi ekki alveg nógu framandi (býr hérna rétt hjá einhversstaðar), og svo held ég líka að ég verði að bíða eftir Óskar, eða allavega gullpálma þangað til ég fer að skrifast á við hana. (Ég vil sumsé hvetja hana til að fara að gera eitthvað í þessu.) Annars er bara að bíða og sjá. Það hljóta að vera einhverjir fleiri snillingar þarna úti, aðrir en ég og kannski Álfrún. 23 júní er betri tími en margur annar til að geta börn.
"Langafi minn, Ólafur Hvanndal, var merkilegur maður. Hann var m.a. fyrsti prentmyndasmiðurinn á Íslandi og gerði fullt af merkilegum hlutum"
Vá hvað þessi romsa byrjaði mikið mikið eins og gamall karl að kvelja barnabörnin með sögum.
Hmmm, ertu viss að hann horfi í átt að Hótel Sögu? Minnir endilega að það sé frekar í átt að verkamannablokkunum eða jafnvel kirkjugarðinum...
Túlkaðu það!
The password to post a comment is:
(Ari Eldjárn)