22.3.2007 | ÉG fór Suður!!!

sydrirass

Nú fer enn og aftur að líða að stórhátíðinni "Aldrei fór ég suður." Ég rakst á þessa mynd af Rass að fagna því að þeir hefðu aldrei farið suður. Og ég skil fagnaðarlætin hjá þeim. Ef þeir hefðu einhverntíman farið suður, hefðu þeir sennilega endað í ísköldu N.-Atlantshafinu. Eða jafnvel verra. Í Reykjanesbæ. Hvort heldur sem er væru þeir sennilega dánir, annaðhvort úr hnífsstungum eða drukknun. Maður verður því að skilja drengina. Þeir eru greinilega að fagna lífinu.

Í hið minnsta getur varla verið að þeir séu að fagna því að þeir hafi alltaf búið á Ísafirði, og aldrei farið suður þaðan. Því að þá byggju þeir ekki í Reykjavík. Reyndar er það athyglisvert að á tónlistarhátíðinni "Aldrei fór ég Suður" er meirihluti tónlistarmannana að sunnan. Ampop, Dóri DNA, Dr. Spock, Flís, etc. Er ekki þversögn fólgin í því að allar þessar miðbæjarrottur úr Reykjavík komi saman einu sinni á ári, drattist Vestur og lofsyngi Vestfirðina og sveitarómantíkina.

Ég útbjó lítinn vef í tilefni af þessu. Ég kalla hann: "Ég fór suður." Vona að enginn taki hann nærri sér. Þetta er djók!!! Hættu að væla kelling!!!

egforsudur

6 comments
(Baldur)




6 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Steinn at 22.3.2007

Steinn

Hátíðin ætti kannski að heita 'Loksins fór ég Vestur' eða 'Afhverju fór ég Vestur'?

[ Reply ]

Arnaldur at 22.3.2007

Arnaldur

Já, ég tek undir það. Ég ætla að stinga upp á nafnabreytingu við Mugison...

[ Reply ]

Aðalsteinn at 23.3.2007

Aðalsteinn

Til hammingju með ammælið, Naldó minn. Vona að partýið verði gott, verð með ykkur í anda.

[ Reply ]

Hjalti Snær Ægisson at 23.3.2007

Unknown User

Tek undir afmæliskveðjuna. Njóttu dagsins, Arnaldur. Kem ekki í partýið að þessu sinni...aldrei fer ég norður.

[ Reply ]

Gummi at 23.3.2007

Unknown User

Til hamingju með afmælið, kem ekki í afmælið af þessu sinni en verð með ykkur í anda frá japan.

[ Reply ]

Baldur at 23.3.2007

Baldur

Til hamingju með afmælið! Ég sé fram á að vera með þér í anda OG mæta í partýið (ætlaði að segja að ég yrði með þér í anda sem og líkama...en það hljómar eitthvað vafasamt).


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment