Var að horfa á myndbandið Moss með GusGus. Myndbandið, sem er anímerað, sýnir fólk, aðallega GusGus-fólk að blása rósum á hvort annað og brosa svo svakalega mikið þegar það fær rósirnar í líkaman sinn. (Ég veit ekki alveg hver pælingin er, en mér dettur ýmislegt í hug.) Myndbandið endar svo á því að allir í GusGus, og einhverjir fleiri fara og detta í það á Sirkus. Allir brosa og allt fyllist af blómum þannig að blómin streyma út um reykháfinn á Sirkus. Frábært.
Ég hef komið inn á Sirkus. Sirkus er ekki hresslegur lítill kósý blómabar. Aldrei hef ég setið inni á Sirkus og horft á alla brosa og hlæja með blóm útum allt. Reyndar sé ég eiginlega aldrei neinn brosa á Sirkus. Það eru allir svo uppteknir við að gnísta tönnum þar og hugsa um hvernig megi best glasa næsta Portúgala sem dúkkar upp. Hvaða obsessíón er þetta hjá þessu fólki á þessum stað.
Æi, og núna er gaurinn úr Maus sem kann ekki að syngja að sleikja eyrað á ljóshærðri stelpu og káfa á rassinum og brjóstunum á henni.
Vantar lekandi hlandið í hornunum og útúrkókuðu barþjónana að skenkja bjór með fyrirlitningasvip?
Úff, sammála. Þessi staður er alveg hræðilegur. Þetta er enginn blómastaður, svo mikið er víst. Gott ef ég sá ekki einmitt þetta atriði, sem þú lýsir þarna í lokin, gerast fyrir nokkrum mánuðum.
Þetta var ágætispleis fyrir einhverjum árum síðan... eða svo segir þokukennd minningin. Ég stundaði þennan stað mikið þegar ég bjó nokkrum skrefum frá.
Þetta var fínt pleis þegar Fröllurnar voru með hann. Hann var ekki svona sóðalegur og útúr dópaður þegar hann opnaði. Veit ekki hvenær hann breyttist í kókbúllu? Man það einhver? Kannski var hann ekkert svo skemmtilegur þrátt fyrir allt? Já, hann var fínn þangað til að það kom VIP stimpill á hann.
Þetta er allt raftónlistinni að kenna! Eftir að þeir fóru að spila techno á Sirkús þá fór allt á annan endan. Techno er BARA leiðinlegt. Eyðilagði allt. Eyður Smáraði bara allt!!!
Einföld jafna - you do the math:
Raftónlist = kókaín
Sammála, þessi elektróníska tónlist er bara ógeðsleg -- fólk sem hlustar á hana er viðbjóður, en fólkið sem *semur* hana fer náttúrulega beinustu leið til helvítis. ;)
Hafðu ekki áhyggjur Arnaldur minn! Það styttist í gröfuna, og þú verður fyrsti maðurinn á svæðið með kúbeinið! :)
ég var nú svekktur þegar ég sá þetta myndband, það vantaði mig í dyrnar að segja nördum að fara á hverfisbarinn...
Málið er bara að þeir sem fara oft á sirkus hafa þann tendens að sjá blóm og allskonar drasl sem er ekki þarna í raun og veru svífa um loftið...
The password to post a comment is:
(Sigurgeir Þór)